Morgunblaðið - 11.11.1998, Side 18

Morgunblaðið - 11.11.1998, Side 18
18 MIÐVIKUDAGUR 11. NÓVEMBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ AKUREYRI Framkvæmdir við nýja kaþólska kirkju við Hrafnagilsstræti á Akureyri Húsinu umbylt FRAMKVÆMDIR við nýja kaþ- ólska kirkju á Hrafnagilsstæti 2 á Akureyri standa nú yfír, en það hefur lengi verið heit ósk þeirra sem sótt hafa kapellu kaþólska safnaðarins sem reynar er í næsta húsi, en stendur við Eyrarlands- veg 26 að byggja kirkju. Kirkju- gestir hafa stundum verið margir og rúmast þá vart inni í kapell- unni og nærliggjandi herbergjum. Þá vantaði aðstöðu undir safnað- arstarfið og fyrir trúfræðslu. Kaþólska kirkjan á bæði Eyrar- landsveg 26, hús sem hlaut viður- kenningu húsfriðunarsjóðs Akur- eyrar síðastliðið vor vegna vand- aðra endurbóta og eins Hrafna- gilsstræti 2. Þegar farið var að skoða möguleika á nýrri kirkju var því nærtækt að hefjast handa við endurbætur á húsinu við Hrafnagilsstræti. Teikningar gerðu arkitektarnir Kristjana Að- algeirsdóttir og Sigríður Sigþórs- dóttir. Stefán B. Árnason húsasmiða- meistari var að störfum í bygg- ingunni í gær ásamt fleirum, en verktakar varðandi trésmíða- vinnu er fyrirtækið Máni. Stefán sagði að breytingar á húsinu væru mjög miklar, en það var áð- ur íbúðarhús auk þess sem Fjórð- ungssjúkrahúsið á Akureyri rak þar eitt sinn leikskóla. Kjallari hússins var dýpkaður og undir- stöður styrktar og standa fram- kvæmdir yfir þar, en næsta skref er að steypa gólf hans. I kjallar- anum verður safnaðarheimili. Einnig verður húsið stækkað nokkuð, þannig verður norður- hlið þess rifin og húsið stækkaö um tvo metra í þá átt. 011 þil verða rifin, nýir stigar smíðaðir MIKLAR breytingar verða gerðar á þessu húsi við Hrafnagilsstræti sem nú er verið að breyta í nýja kaþ- ólska kirkju. Fyrir neðan sést núverandi hús kaþólsku kirkjunnar á Akureyri, Eyrarlandsvegi 26. Morgunblaðið/Kristján STEFAN B. Arnason húsasmíðameistari lítur upp á söngloftið sem verður ofan við kirkjuna. og nýtt gólf lagt. Þá verður skipt um klæðingu utan á húsinu. 60-70 manns í sæti Gert er ráð fyrir að 60 til 70 manns rúmist í sæti í kirkjunni sjálfri, en söngloft verður útbúið ofan við salinn. Það er því ljóst að mikil vinna býður þeirra sem þátt taka í verkinu, en ekki er ljóst hvenær henni verður að fullu lokið. Smið- ir gera þó ráð fyrir að vera að störfum í allan vetur og ef til vill eitthvað fram á næsta sumar. Fram kemur í Kaþólska kirkju- blaðinu að systir Immaculata hafi verið dugleg að safna fé til fram- kvæmdanna og þá var leitað eftir stuðningi hjálparstofnunar kaþ- ólsku kirkjunnar á Norðurlönd- um um hvort hún væri fáanleg til að taka að sér bróðurpart kostn- aðar. Eftir að jákvæð svör bárust var hægt að hefjast handa. Minningartónleikar um Jóhann Konráðsson Agóði um 900 þúsund ÁGÓÐI af minningartónleikum um Jóhann Konráðsson, sem haldnir voru í Iþróttahöllinni á Akureyri í síðasta mánuði, varð um 900 þús- und ki'ónur. Kristján Jóhannsson, sonur Jóhanns, kom fram á tónleik- unum eins og kunnugt er ásamt Sigrúnu Hjálmtýsdóttur, Diddú, og Sinfóníuhljómsveit Norðurlands. Olga Pálsdótth', framkvæmda- stjóri Sinfóníuhljómsveitar Norður- lands, sagði að ekki hefði endanlega verið gengið frá öllum endum en allir stærstu reikningar hefðu borist. Utkoman væri einkar ánægjuleg, eða ágóði upp á um 900 þúsund krónur sem renna í Minn- ingarsjóð Jóhanns Konráðssonar. Frá upphafi var ráðgert að ef hagn- aður yrði af tónleikunum myndi fyrsta úthlutun úr þessum sjóði renna til Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands. Sagði Olga að fjár- magnið yrði notað til að fá einleik- ara eða söngvara til liðs við hljóm- sveitina á einhverjum tónleikum á næstunni. „Það eru allir afar ánægðir með hvernig til tókst en tónleikarnir voru einkar vel heppnaðir og verða lengi í minnum hafðir," sagði hún. ------♦♦-♦----- Vinafundur eldri borgara VINAFUNDUR eldri borgara verður í Glerárkirkju á morgun, fimmtudaginn 12. nóvember, kl. 15. Samveran hefst með stuttri helgi- stund, en gestur fundarins verðm' Sigrún Sveinbjömsdóttir sálfræð- ingm'. Margrét Sigurðardóttir og Magnús Friðriksson syngja einsöng og tvísöng, Guðný Erla Guðmunds- dóttir leikur á píanóið. TILKYNNING UM ÚTBOÐ OG SKRÁNINGU HLUTABRÉFA Á VERÐBRÉFAÞINGI ÍSLANDS SJÁVARÚTVEGSSJÓÐUR ÍSLANDS HF. ✓ Utgefandi: Sjávarútvegssjóður íslands hf., kennitala 591196-2869, Skipagötu 9, 600 Akureyri. Nafnverð hlutabréfa: Nýtt hlutafé að nafnverði að lágmarki 10.000.000 og að hámarki 200.000.000 króna. Gengi hlutabréfanna: Sölugengi bréfanna er í upphafi 1,98. Á útboðstímanum verður gengi sjóðsins reiknað út daglega og munu söluaðilar veita upplýsingar um gengi hverju sinni. Sölutími: Sölutími bréfanna er 16. nóvember 1998 til 15. maí 1999. Þó áskilur félagið sér rétt, að fengnu leyfi Verðbréfaþings íslands, til að framlengja sölutímabilið að sex mánuðum liðnum um frekari sex mánuði, enda sé þá heimild til hlutafjáraukningar ekki fullnýtt. Aðalsöluaðili: Kaupþing Norðurlands hf., Skipagötu 9, 600 Akureyri, sími 460-4700, fax 460-4717. Skráning: Áður útgefm hlutabréf í Sjávarútvegssjóði íslands, að nafnverði 131.107.400 kr., eru skráð á Verðbréfaþingi íslands . Verðbréfaþing íslands hefur samþykkt að skrá þau bréf sem seld verða í þessu útboði. Niðurstaða útboðs verður birt í viðskiptakerfi VÞÍ ásamt upplýsingum um endanlega dagsetningu skráningar. Þess er vænst að hlutabréfin verði skráð í byrjun júní árið 1999 ef ekki kemur til framlengingar á sölutímabili. Umsjón með útboði: Kaupþing Norðurlands hf., Skipagötu 9, 600 Akureyri, sími 460-4700, fax 460 4717. Skráningarlýsing og önnur gögn um Sjávarútvegssjóð íslands liggja frammi hjá Kaupþingi Norðurlands hf. og Kaupþingi hf. mmmW KAUPÞING NORÐIJRLANDS HF Grímseyingar minnast Fiske GRÍMSEYINGAR halda upp á „Fiske-afmæli“ í dag, miðvikudaginn 11. nóvember, með hátíðardagskrá í eynni, ásamt góðum gestum af fasta- landinu. I þeim hópi verða m.a. Hall- dór Blöndal samgönguráðherra og Day Olin Mount, sendiherra Banda- ríkjanna á íslandi. Þessi dagur er jafnframt nokkurs konar þjóðhátíð- ardagur eyjarskeggja, sem minnast velgjörðarmanns síns, Willards Fiske. Willard Fiske var Bandarílqamað- ur sem var uppi frá 1831-1904. Hann heillaðist mjög af Grímsey og eyjar- skeggjum og gaf m.a. tafl inn á hvert heimili í eynni í sinni tíð. Fiske var mikill skákáhugamaður og var m.a. frumkvöðull að stofnun Taflfélags Reykjavíkur. Boðið verður upp á fjölbreytta dagskrá í Grímsey í tilefni dagsins. Guðný Guðmundsdóttir fiðluleikari og Gerrit Schuil píanóleikai'i leika fyrir gesti en Guðný er barnabarn sr. Matthíasar Eggertssonar sem eitt sinn var prestur í Grímsey. Stórmeistarar seljast að tafli Þá munu tveir af þekkustu stór- meisturum landsins í skák, þeh' Jó- AKSJON 11. nóvember, miðvikudagur 12.00Þ Skjáf réttir 18.15ÞKortér Fréttaþáttur í samvinnu við Dag. Endursýnd- ur kl. 18.45, 19.15, 19.45, 20.15 og 20.45. 21.00ÞRéttað í Gljúfurár- rétt (e). hann Hjartarson og Friðrik Ólafs- son, setjast að tafli, auk þess sem Friðrik mun fjalla um Taflfélag Reykjavíkur. Kristján Karlsson íslenskufræð- ingui’ og Halldór Blöndal flytja ávörp og skólabörn í Grímsey ti-oða upp. Hápunktur dagsins er afhend- ing á minnismerki um Wiilard Fiske, frá Kiwanisklúbbnum Grími til Grímseyinga, eftir Gunnar Árnason myndhöggvara. Þá býður Kvenfélag- ið Baugur til kaffisamsætis í félags- heimilinu Múla. ----------------- Ungt fólk, kynlíf og barneignir ÞARF ungt fólk fræðslu og ráðgjöf um kynlíf og barneignir, t.d. á mót- töku sem veitir slíka þjónustu og er þörf á slíkri þjónustu á Akureyin? Þessum spurningum og fleirum verður velt upp og svarað á fundi fyrii' ungt fólk sem haldinn verður í Kompaníinu (áður Dynheimum) við Hafnarstræti á Akureyri í kvöld, miðvikudagskvöldið 11. nóvember, kl. 20.30. Samkvæmt rannsókn sem Sóley S. Bender hjúkrunai'fræðingur gerði vill ungt fólk á íslandi ekki eignast börn snemma, en barneignir meðal ungra stúlkna hér á landi eru þær hæstu á Norðurlöndum. Sólveig flyt- ur fyrirlestur á fundinum í kvöld, en hún er lektor við Háskóla íslands. Jafnréttisnefnd Akureyrai’ styrkir framtakið en fundarboðandi er Sig- ríður Sía Jónsdóttir ljósmóðir og lektor við Háskólann á Ákureyri.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.