Morgunblaðið - 08.01.1999, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 08.01.1999, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. JANÚAR 1999 23 ERLENT Ecevit reynir Flokkur Netanyahus kynnir vígorð sín í kosningabaráttunni Likud beinir spjótum sínum að Ehud Barak Bandaríkin Ekkert dauðsfall í áætlunar- stjórnar- myndun BULENT Ecevit, leiðtoga tyrk- neskra vinstrimanna, var í gær falin stjómarmyndun að nýju, í annað sinn frá því að stjórn Mesuts Yilmaz, var felld í nóvem- ber sl. Ecevit mistókst stjórnarmynd- un í desember og hefur stjórnarkrepp- an nú varað í tæpa tvo mánuði. Lýsti Ecevit því yfir í gær að hann teldi mikla möguleika á því að honum tækist ætlunar- verkið á fáeinum dögum. 300 lögreglu- menn reknir EISTNESKA lögreglan hefur rekið um 300 rússneska lög- reglumenn og er ástæðan sögð sú að þeir hafi ekki eistneskan ríkisborgararétt og tali ekki nógu góða eistnesku. Þeim var gert að skilyrði að taka upp eist- neskt ríkisfang og fara í eist- neskupróf fyrir 1. janúar sl. en urðu ekki við því. Rússar eru um þriðjungur íbúa Eistlands. Kabila býður til viðræðna LAURENT Kabila, forseti lýðveldisins Kongó, bauð upp- reisnarmönnum í gær óvænt til viðræðna. Hingað til hefur hann þvertekið fyrir að hitta þá en sagði í sjónvarpsávarpi að upp- reisnarmönnum væri velkomið að mæta til viðræðna í höfuð- borginni, Kinshasa. Sprengdu sjálfa sig TVEIR Finnar sem höfðu hótað því að sprengja fjölbýlishús í bænum Pietarsaari og drepa lögreglumenn ef þeir reyndu að koma í veg fyrir það, létu lífið í gær er sprengja sprakk í íbúð þeirra. Ekki urðu skemmdir á öðrum íbúðum. Óljóst er hvaða ástæður lágu að baki hótunum mannanna en talið er að þeir hafi verið undir áhrifum áfengis eða lyfja. Afsögn lög- reglusljóra LÖGREGLUSTJÓRI Malasíu sagði af sér í gær og kvaðst bera fulla ábyrgð á því ofbeldi sem Anwar Ibrahim, fyrrverandi fjáj'málaráðherra landsins, hefði verið beittur í fangelsi. Segja stjómarandstæðingar afsögn hans ekki næga, draga verði þá sem fyrirskipuðu og beittu Anw- ar ofbeldi til ábyrgðar. Mannsfórn í Finnlandi? FINNSKA lögi’eglan rannsakar nú hvort verið geti að þrír ungir djöfladýrkendur, sem hafa játað á sig morð á kunningja sínum, hafi fórnað honum og etið hluta líksins. Lögreglan verst allra frétta en útilokar ekki að um mannát hafi verið að ræða. Ecevit Jerúsalem. Reuters. HÆGRIFLOKKUR Benjamins Netanyahus, forsætisráðherra ísra- els, hóf kosningabaráttu sína form- lega í gær og kvaðst staðráðinn í að hvika hvergi í deilum sínum við Palestínumenn í öryggismálum. Ný skoðanakönnun bendir til þess að Netanyahu hafi aukið fylgi sitt lítil- lega en eigi á brattann að sækja í baráttunni við tvo helstu keppinauta sína, sem eru báðir fyrrverandi yfir- menn hersins. Likud-flokkur Netanyahus lagði áherslu á að hann myndi ekki gefa eftir í deilunum við Palestínumenn og kynnti vígorð sín í kosninga- bai’áttunni: „Við slökum ekki til í öryggismálum" og „við slökum ekki til í deilunni um Jerúsalem“. Flokkurinn beindi einnig spjótum sínum að Ehud Barak, leiðtoga Verkamannaflokksins og fyrrverandi Nazar- bajev spáð sigri í Kasakstan NURSULTAN Nazarbajev, for- seta Kasakstans, er spáð örugg- um sigri í forsetakosningum sem fram fara þar í landi á sunnudag. Kosningarnar hafa verið harðlega gagnrýndar víða um heim, ekki sist sú ákvörðun Nazarbajevs að flýta þeim en ganga átti að kjörborði undir árslok 2000. Segja mannrétt- indasamtök og fleiri að með því að flýta kosningunum hafí and- stæðingum forsetans nær eng- inn tími gefíst til að heyja kosn- ingabaráttu. Þá hefur það verið harðlega gagnrýnt að fyrrver- andi forsætisráðherra landsins, Akezhan Kazhegeldin, skyldi vera meinað að bjóða sig fram vegna smávægilegra brota á starfsreglum er hann sat í embætti. yfirmanni hersins. „Barak forðast ábyrgð", stóð á einu kosningaspjald- anna og var það túlkað sem skírskot- un til_ásakana um að Bai-ak hefði lát- ið hjá líða að bjarga hermönnum sem særðust á heræfingu þegar hann var yfirmaður hersins. Likud-flokkurinn vitnaði einnig til ummæla Baraks í sjónvarps- spjallþætti á liðnu ári þess efnis að hann myndi vera í hreyfingu hermd- arverkamanna ef hann væri Palestínumaður. Netanyahu með mest fylgi í fyrri umferðinni I vígorðunum var ekkert minnst á annan íyrrverandi yfirmann hersins, Amnon Lipkin-Shahak, sem hefur ákveðið að bjóða sig fram gegn Net- anyahu í forsætisráðherrakosningun- um 17. maí og stofna nýjan miðflokk. Likud-flokkurinn kvaðst hafa snið- gengið Lipkin-Shahak þar sem hann hefði ekki enn kynnt stefnu sína. Ný Gallup-könnun, sem birt var í dagblaðinu Maariv, bendir til þess að Netanyahu fái mest fylgi í fyrri um- ferð forsætisráðherrakosninganna 17. maí en þó ekki nógu mikið til að ná kjöri. Samkvæmt könnuninni fær Netanyahu 33% atkvæðanna í fyrri umferðinni, Barak 32% og Lipkin- Shahak 20%. Fái enginn meirihluta at- kvæðanna í kosningunum 17. maí verður kosið á milli tveggja efstu frambjóðendanna 1. júní. Gallup- könnunin benti til þess að Lipkin- Shahak myndi fá mest fylgi í síðari umferðinni og bera sigurorð af Net- anyahu með 53% fylgi. Barak myndi einnig sigra forsætisráðherrann en með minni mun. flugi í fyrra Washington. Reuter. BANDARÍSK áætlunarflugfélög fluttu 615 milljónir farþega árið 1998 og það verður skráð á spjöld sögunnar að það er fyrsta árið sem ekkert dauðsfall verður í farþegaflugi í Bandaríkjunum. Frá því Óryggisnefnd samgöng- umála (NTSB) hóf að skrá dauðs- föll í farþegaflugi með kerfis- bundnum hætti árið 1967 hefur það aðeins tvö önnur ár gerst, að enginn farþegi hafi beðið bana í farþegaþotum, hið seinna var 1993. Bæði árin fórust þó farþegar af slysforum með smærri áætlunar- flugvélum, aðallega ski-úfuþotum. Arið 1998 er í hróplegri mótsögn við árið 1996 er gífurleg gagnrýni var sett fram varðandi flugöryggi í kjölfar þess að breiðþota TWA sprakk skömmu eftir flugtak frá New York og ValuJet þota stakkst ofan í fenja- svæðin á Flórída. I þessum tveim- ur slysum fórust 340 manns. Síðasti farþeginn, sem beið bana í áætlunarflugi bandarísks flugfélags var kona er dó af völd- um höfuðáverka sem hún hlaut í flugvél United Airlines 28. desem- ber 1997. Þotan var á leið frá Tókíó til Honolulu er hún lenti í mikilli ókyrrð. Síðasta mannskæða flugslysið í áætlunarflugi innanlands í Band- aríkjunum átti sér stað 8. nóvem- ber 1997 er Cessna 208B flugvél Hageland-flugfélagsins fórst í Barrow í Alaska með þeim af- leiðingum að sjö manns biðu bana. iw bi3a ' 'a3apoaesa ‘NT'an TDEN^ Reuters STUÐNINGSMENN Nazarbajevs veifa kosningaspjöldum á diskósýningu sem efnt var til honum til stuðnings. í GÓDU EGLU BOKHALDI... * Lll STÆRÐIN LIKA! É Egla bréfabindin fást í öllum helstu bókaverslunum landsins ROÐ OC REGLA Múlalundur Vinnustofa SÍBS Sími: 562 8500 Símbréf: 552 8819
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.