Morgunblaðið - 08.01.1999, Blaðsíða 24
24 FÖSTUDAGUR 8. JANÚAR 1999
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
ÍVAR Brynjólfsson: Uppeldisstöðvar I, 1997. Eitt verkanna á sýningunni.
Farandsýning mynd-
og ljódskálda opnuð
á Landspftalanum
MYNDLISTAR- og Ijóðasýningin
Lífæðar verður opnuð á Landspítal-
anum í dag kl. 14. Um er að ræða
farandsýningu, sem menningarsam-
steypan art.is gengst fyrir, og verð-
ur hún sett upp í tíu öðrum sjúkra-
húsum víðsvegar um land áður en
árinu lýkur. Tilgangur sýningarinn-
ar er, að sögn Hannesar Sigurðs-
sonar sýningarstjóra, að lífga upp á
sjúkrahúsin, gleðja sjúklinga,
starfsfólk og gesti sjúkrahúsanna,
auk þess að vekja athygli á list og
listafólki.
Lífæðar eru hugsaðar sem eins-
konar sýnishorn af því sem hefur
átt sér stað í myndlist og Ijóðlist á
Islandi síðustu ár og áratugi. Tólf
myndlistarmenn sýna samtals 34
myndverk og tólf ljóðskáld birta
átján ljóð. Sum verkanna hafa kom-
ið almenningi íyrir sjónir áður, önn-
ur ekki. Listamennii-nir eru á ólíku
aldursreki en allir leggja þeir út af
lífinu og tilverunni. Hannes segir
hópinn í raun endurspegla helstu
strauma og stefnur í myndlist og
ljóðagerð frá síðari heimsstyrjöld til
dagsins í dag.
Myndlistarmennirnir eru: Bragi
Asgeirsson, Eggert Pétursson, Ge-
org Guðni, Haraldur Jónsson,
Helgi Þorgils Friðjónsson, Hreinn
Friðfinnsson, Hulda Hákon, ívar
Brynjólfsson, Kristján Davíðsson,
Ósk Vilhjálmsdóttir, Ragnheiður
Jónsdóttir og Tumi Magnússon.
Ljóðskáldin eru: Bragi Olafsson,
Gyrðir Elíasson, Hannes Péturs-
son, Ingibjörg Haraldsdóttir, ísak
Harðarson, Kristín Ómarsdóttir,
Sigurður Pálsson, Sjón, Matthías
Johannessen, Megas, Vilborg Dag-
bjartsdóttir og Porsteinn frá
Hamri.
Frá Landspítalanum fer sýningin
til Akraness en aðrir sýningarstaðir
eru Isafjörður, Sauðárkrókur,
Akureyri, Húsavík, Vopnafjörður,
Seyðisfjörður, Selfoss, Keflavík og
sýningunni lýkur á Sjúkrahúsi
Reykjavíkur í desember.
Ópnunarathöfnin í dag fer fram í
nýjum aðalinngangi Landspítalans,
svokallaðri K-byggingu. Ingibjörg
Pálmadóttir heilbrigðisráðherra
opnar sýninguna en ávörp flytja
Hannes Sigurðsson, Kristján Sverr-
isson framkvæmdastjóri Glaxo
Wellcome á Islandi, sem er helsti
styrktaraðili verkefnisins, og Magn-
ús Pétursson forstjóri sjúkrahúsa
Reykjavíkur.
Gerðuberg á morgun
Ljóðskáldið Mao
Zedong kynnt
MENNINGARVAKA
með ljóðum Mao
Zedongs verður haldin
í Gerðubergi á morg-
un, laugardag kl 14.
Kínversk-íslenska
menningarfélagið
stendur fyrir vökunni
ásamt sendiráði Kín-
verska alþýðulýðveld-
isins og Félagi Kín-
verja á Islandi.
Dagskráin hefst með
erindi kínverska sendi-
herrans á Islandi,
Wang Ronghua um
ljóð Mao Zedongs. Síð-
an syngur Natalia
Chow tvö lög við ljóð
Maos, Anna Guðný Guðmundsdótt-
ir leikur undir.
Matthías Johannessen, ritstjóri,
les nokkrar þýðingar sínar á Ijóð-
um Maos og Guð-
mundur Sæmundsson,
skólastjóri, les úr þýð-
ingum sínum.
Xu Wen syngur tvö
lög við ljóð Maos við
undirleik Önnu Guð-
nýjar Guðmundsdótt-
ur og Wang Ronghua
flytur tvö ljóð Maos á
kínversku.
Alda Arnardóttir,
leikkona, les nokkrar
þýðingar eftir Einar
Braga og Jón Óskar á
ljóðum Maos og Stein-
gi'ímur Þorbjarnar-
son, mannfræðingur,
flytur erindi: Ljóðmæli
Maos í kínverskum samtíma.
Dagskráin hefst kl. 14 og er
áætlað að hún standi um hálfa aðra
klukkustund.
Forsíðan á heildaút-
gáfu ljóða Maos.
Kammerkór Suðurlands í Salnum í Kópavogi
Astarsöngvar frá
ymsum
ÁSTARSTIKL U R er yfírskrift tón-
leika Kammerkórs Suðurlands sem
haldnir verða í Salnum í Tónlistar-
húsi Kópavogs á sunnudaginn kl. 17.
Á efnisskránni eru ástai'söngvar
frá ýmsum löndum, allt frá madrí-
gölum að popptónlist. Meðal laganna
sem kórinn flytur á tónleikunum er
íslenska þjóðlagið „Stóðum tvö í
túni“, enski madrígalinn „Come aga-
in“ og „And so it goes“ eftir Billy
Joel. Kristjana Stefánsdóttn djass-
söngkona syngur einsöng með kórn-
um í laginu „Tillágnan“ eftir sænska
tónskáldið Monicu Dominique.
löndum
Kammerkór Suðurlands vai' stofn-
aðm' 1997.1 honum erum um 20 söngv-
arar sem búsettii' era víða um Suður-
land og eru allir vii'kir tónlistamienn í
sinni heimabyggð, að því er fram kem-
ur í fréttatilkynningu frá kómum.
Þetta er í annað sinn sem kórinn
heldur tónleika á höfuðborgarsvæð-
inu. Hinir fyrri voru haldnir í Digi'a-
neskirkju í Kópavogi í mai's sl. og
voru þá eingöngu flutt hákirkjuleg
verk. Stjórnandi kórsins er Hilmar
Örn Agnai'sson, organisti í Skál-
holtsdómkirkju, og undfrleikari er
Ámi Heiðar Karlsson.
Islandsviku lýkur í Berlín
Sögu-sinfónía
Jöns Leifs flutt í
Fílharmóníunni
Upplestri úr íslendingasögunum vel tekið
Þýsk-íslenskri viku
lauk á miðvikudag í
Berlín með flutningi
Sögu-sinfóníu Jóns
Leifs í Fílharmóníunni.
Susanne Reinhard-
Karlmann fylgdist með
kynningu á íslandi, þar
sem gestum var veitt
innsýn í menningu og
sögu lands og þjóðar.
SAMFARA íslandsvikunni stóð yfir
22. tónlistarvika þýsk-skandínavísku
æskulýðshljómsveitarinnar í Berlín.
Þema vikunnar var að þessu sinni
norrænu sögumar sem margar
hverjar hafa verið innblástur að
stærri verkum tónskálda norðurs-
ins. Hljómsveitarstjórinn heitir
Andreas Peer Káhler og stofnaði
hann sveitina árið 1981 með því
markmiði að kynna tónverk norð-
ursins í Þýskalandí. Á hverju ári
hittist unga tónlistarfólkið, sem
flest er nemar við þýska og skand-
ínavíska tónlistarháskóla. Leiðbein-
endur hljómsveitarinnar eru m.a.
frægir einleikarar tónlistarhúsanna
í Berlín og BBC Fílharmóníusveit-
arinnar í London sem ákveða verk-
efnaskrána ár hvert í samvinnu við
hljómsveitarstjórann.
Sögu-sínfónía Jóns Leifs var á
tónleikunum frumflutt í Þýskalandi,
en tónleikamir hófust á Sögu-
draumi Danans Carls Nielsens.
Koila Blacher, fyrsti konsertmeist-
ari berlínsku Fflharmóníusveitar-
innar, var einleikari tónleikanna og
var honum ákaft fagnað. Hann
sagðist sjálfur heillaður af samvinn-
unni við hljómsveitina. Hann hældi
ekki aðeins listahæfileikum unga
tónlistarfólksins heldur sagði það
einnig fullt af eldmóði og hrifningu
á viðfangsefninu. „Þau eru ekki vön
fastavinnunni sem of títt vill slæðast
inn í leik atvinnumanna og lamar
þannig heilu verkin.“ Þetta era orð
að sönnu enda er það mikill gæða-
stimpill fyrir svo unga hljómsveit að
ráðast í flutning á eins þungu verki
og Sögu-sinfóníunni.
Aukinn áhugi Þjóðverja og
Berlínarbúa á Islandi og Norður-
pMM ni m.y enm 1'
i. §m . - ~ *3sLriij
, Morgunblaðið/Jim Rakete
ÞYSK-skandinavíska æskulýðshljómsveitin í Berlín frumflytur Sögu-sinfóníu Jóns Leifs í Þýzkalandi.
Otto Andreas
Sanders Peer Kahler
löndunum kom glögglega í ljós á
tónleikunum og á öðrum uppákom-
um tengdum landinu. Næstum var
uppséit ’í 2.200 sæti berlínsku Ffl-
Örn Ingimundur
Magnússon Sigfússon
harmóníunnar. Húsfyllir var síð-
astliðinn laugardag á fyrirlestri ís-
lenska sendiherrans í Þýskalandi,
Ingimunds Sigfússonar þar sem
hann kynnti land
og þjóð í máli og
myndum. Sömu
sögu er að segja
af upplestri leik-
arans Otto Sand-
ers úr íslend-
ingasögunum ein-
um degi fyrr, en
hann vakti mikla
kátínu viðstaddra
með leikrænum
tilþrifum og lifandi framkomu. Örn
Magnússon píanóleikari spilaði
undir verk Jóns Leifs báða dag-
ana.
Kolja
Blache