Morgunblaðið - 08.01.1999, Síða 55
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 8. JANÚAR 1999 55
BRÉF TIL BLAÐSINS
Kveðja til íraks frá
íslensku þjóðinni
Frá Guðmundi Daníelssyni:
ÞAÐ er eðli mannsins að standa
með sínum líkum, sér skyldum og
þeim sem hjartað nær til. En hvað
af þessu það er sem fær Halldór
Ásgiímsson til að fínna til sam-
kenndar með
sjálfum forseta
Bandaríkjanna
er ekki gott að
sjá, allavega
ekki fyrir þá
sem ekki þekkja
til.
Það er ekki
margt sem kem-
ur manni út af
sporinu í stressi
desembermánaðar. Það er orðið að
jafnfastri venju og sjálfur aðfanga-
dagur. Fátt getur breytt því. Um-
fanginu gengur maður orðið að
sem vísu og hrekkur því nokkuð í
kút þegar utanaðkomandi atburður
nær að brjótast inn í vitund manns
og kalla fram viðbrögð sem fær
mann til að gleyma öllu stressi í
miðri jólaösinni, reiðin brýst fram
gagnstætt öllum boðskap jólanna.
Maður vill helst hverfa í jörðina, í
það minnsta afmá það í vegabréf-
inu sem gefur til kynna þjóðerni
manns. Og það sorglega er að
voðaverkin eru af mannavöldum,
leiðast af hvötum manns, kynhvöt
Bandaríkjaforseta.
Það sem helst ógnar hinum al-
menna borgara í vestrænum heimi
í dag er aukið ofbeldi, vanvirðing
fyrir náunganum. Hverju er kennt
um? Auðveldur aðgangur barna að
ofbeldi, undirokun og misbeitingu
valds gagnvart öðrum manneskj-
um. En frétt af loftárásum á íraka
kveikir þá hugsun hvað aðskilur
börn og fullorðið fólk á stundum
sem þessum.
Manneskjur eru stráfelldar.
Orðið ofbeldi breytist í stríð og
merking þess hnígur að sama skapi
að því að allt sé leyfilegt. Mannslíf
sem deginum áður var ómetanlegt
og allt gert til að bjarga verður
skyndilega minna en einskis vert,
ráðamenn okkar sem deginum áð-
ur gáfu smámynnt í Rauðakross-
bauk jólanna til styrktar stríðs-
hrjáðum ríkjum tala um skyldur
Islands til verndar vestrænum
ríkjum, skyldur til að taka þátt í at-
burðum sem þó stríða gegn alþjóða
samþykktum og aðrar Evrópuþjóð-
ir og önnur heimsveldi fordæma.
Og ekki vantar sannfæringar-
rökin. Öllum þeim fjölmörgu sem
láta sig varða sáttmála þjóða í milli
og gera sér grein fyrir að atburðir
sem þessir auka aðeins á eymd
þjóðarinnar sem í lendir en skilar
ekki árangri eru róaðir með því að
hittni skyttna sé svo mikil að ekki
geti eitt einasta skot geigað frá
hernaðarmikilvægum stöðum eða
að almenningur sé í nokkurri
hættu og þessu til staðfestingar er
myndavél fest á Skud eldflaug og
henni skotið inn um fyrirfram
ákveðinn glugga. Grafíkin kemst
nálægt því sem best gerist í nýj-
ustu tölvuleikjunum. En í bakrunni
lygaraddarinnar eru myndir sem
sýna sprengjurnar berja á híbýlum
Iraka tilviljunarkennt og ljósa-
gangurinn minnir helst á himininn
klukkan tólf á gamlárskvöld hér
heima. Gleðin að vísu orðin að sorg.
Fjölmiðlarnir taka þátt í þessum
blekkingarleik sem þó nokkrum
vikum áður sögðu okkur frá
kanadískum veðurathugunarbelg
sem skapaði stórhættu á flugleið-
um háloftanna en í því tilviki höfðu
hæfustu skyttur Bandaríkahers
eytt vel á annað hundrað skotum á
belginn áður en þeir sneru heim á
leið án þess að hæfa hann. Hann
lenti sjálfviljugur eins og flestir
muna heill á húfi. Það virðist því
ekki gilda sama lögmál hvort um
loftbelg sem er á stærð við gott
einbýlishús eða óbreyttan íraskan
borgara er að ræða.
Það sorglegasta í þessu öllii sam-
an er þó það að hver einast Islend-
ingur tekur þátt í ofbeldinu. Hvort
við tökum í gikkinn eða ekki gildir
einu. Ég vil benda þeim, sem þetta
lesa, á það að okkar hæstvirti utan-
ríkisráðherra styður fyrir okkar
hönd, íslensku þjóðarinnar, mis-
kunnarlaus morð á óbreyttum
borgurum í miðjum undirbúningi
helstu hátíðar íraka sem gengur í
garð nú um helgina.
Hvað það er sem fær hann til
þess er ekki gott að segja. En það
er ýmislegt sem baldin börn og
unglingar gera til að falla inn í hóp
hinna stóru, vera með. Hundur
mannsins fylgir húsbóndanum til
þess að komast hjá skömmum og ef
hann hlýðir í einu og öllu á hann
meira að segja von á leggnum af
jólalærinu, í heimi barnanna er
slíkt að fínna. Sá sem er of lítill, of
stór, með of stór eyru eða of feitur
gerir allan fjandann fyrir þann sem
ekki er of eitthvað til þess að fá að
vera með. Hvort einhver þessara
skýringa á við skal ósagt látið hér,
en það er sjálfsagt þægilegi-a að
vera með en á móti í slíku máli.
Ekki nema samviskan nagi og sam-
kenndin sé svona sterk hjá ráð-
herra utanríkismála Islands með
Bandaríkjaforseta, sem átti jú að
kæra rétt nokkrum klukkustund-
um eftir að árásirnar hófust fyrir
óheilindi og lygar.
Það er tímasetningin. Það læðist
að manni sá grunur að tímasetn-
ingin sem varð fyrir valinu hjá
„okkur hinum stóru þjóðum vest-
ræna heimsins" sé engin tilviljun.
Allir sem það vildu vita vissu jú að
innrás hers sameinaðra vestur-
velda var hafin á helsta fréttatíma
bandarísku þjóðarinnar. Að vísu
um miðja nótt hjá okkur en við
verðum nú samt að telja það mis-
tök að fréttatími Stöðvar tvö hafi
ekki ráðið tímasetningunni ef mark
er takandi á orðum utanríkisráð-
herra um áhrif og mikilvægi okkar
í þátttöku í árásinni.
Nú er annað uppi á teningnum.
Veldi alvalds heims fer hnignandi.
Og það ýtir við vitundinni að þetta
er í þriðja sinn sem hitnar undir
forseta Bandaríkjanna í valdatíð
hans og í kjölfarið hefur í öll skipt-
in verið gripið til árása á írak. Og
aldrei hefur snaran þrýst jafnfast
að hálsi forsetans og nú og ekki
nema eitt að gera. Fullnægja þjóð
sinni. Jú, og þörfum Tony Blairs
sem allt í einu er orðinn talsmaður
stríðsglaðrar ábyrgrar þjóðar sem
hefur frekar verið þekkt fyrir að
tapa stríðum en vinna þau í gegn-
um tíðina. I skjóli Clintons er jú
gott að vinna bug á minnimáttar-
kenndinni á þessu sviði. En hvaða
kenndir það eru sem fá Halldór As-
gi-ímsson til að styðja þetta er ekki
gott að sjá, ekki nema um sam-
kennd sé að ræða með forseta
Bandaríkjanna.
Einstaklingsframtak er tískuorð
ráðamanna þjóðarinnar. Það fram-
tak að senda flugþotu fulla af hjálp-
argögnum fyrir sál og líkama
stríðshrjáðra einstaklinga líkt og
forsvarsmenn samtakanna Friðar
2000 gerðu síðastliðið ár og er með
í undirbúningi nú er vinaleg jóla-
kveðja frá smáríki í vestri. Það er
viðmót sem allir Islendingar geta
verið stoltir af og á eftir að kasta
skæru ljósi á Island í framtíðinni ef
kjarkmenn standa við stýrið við
Austurvöll. Sem betur fer hafa ís-
lenskir ráðamenn einnig tekið af
skarið í heimi þjóðanna og þjóðin
staðið stolt af þeirra ákvörðunum.
Dæmi um það er ákvörðum um
staðfestingu sjálfstæðis Eystra-
saltsríkjanna. Það segja þeir sem
til þekkja að þar sé Islendingum
tekið sem einstaklingum sem til-
heyra stórhugsandi, kjarkmikilli lít-
illi þjóð. En það þarf kjarkmikinn
mann til að standa á bak við slíka
ákvörðun því hún er mikil að taka.
Það að fljóta með og bera á borð
fyrir íslensku þjóðina ótrúverðug
rök, sem hallast öll í raun að klofi
Bandaríkjaforseta, er smánarlegt
fyi-ir þann sem það gerir, til
skammar fyrir þá þjóð sem sá mað-
ur tilheyrir og gegnir utanríkisráð-
herrastöðu fyrir. Sá sem styður
ái'ásir og morð á ódæmda borgara
hefur mannslíf á samviskunni.
Það er döpur jólakveðja sem
Halldór Asgrímsson sendir írösk-
um almenningi á þeirra hátíðar-
stundu sem nú fer í hönd.
GUÐMUNDUR DANÍELSSON,
Stuðlaseli 38, Reykjavík.
ÆTTFRÆÐINÁMSKEIÐ
- ÆTTBÓKAVEISLA
Frá og með næstu viku hefjast ættfræðinámskeið á ný hjá
Ættfræðiþjónustunni. Verður boðið upp á grunnnámskeið fyrir byrjend-
ur (21 klst.) og framhaldsnámskeið fyrir lengra komna (15 klst.).
Fullkomin aðstaða til kennslu og rannsókna í nýju húsnæði fyrirtækisins.
Þátttakendur fá fræðslu og þjálfun í leitaraðferðum og skipulegri saman-
tekt ættfræðiverka með notkun frumheimilda og fjölda ættar- og hjálp-
arbóka. Leiðbeinandi er Jón Valur Jensson, cand. theol., sem kennt hefur
á þessum námskeiðum í 13 ár. Uppl. og skráning þátttakenda ( síma
552-7100. - Hjá Ættfræðiþjónustunni eru fáanlegar allar Sögusteins-
bækur (þ. á m. Reykjaætt öll, Briemsætt, Knudsensætt, Hreiðars-
staðakotsætt, Ölfusingar og tugir annarra titla) auk fjölda annarra
ættfræðiverka, stéttatöl, búendatöl o.m.fl. Nýtið ykkur Ifábært til-
boðsverð (til 5. febrúar). Bókalisti sendur þeim sem þess óska.
Ættfræðiþjónustan (M)
Hallveigarstöðum, Túngötu 14, s. 552-7100, 552-2275
Útsalan
hefst á
morgun
Bitte Kai Rand,
Skólavörðustíg 38,
101 Rvík, sími 552 4499
Augsburg viðhafnarbikar frá cndurreisnarcímanum.
Seldur hjá Bruun Rasmussen í Kaupmannahöfn fyrir 3.300.000 danskar kr.
Bruun Rasmussen Kunstaukúoner er stærsta uppboðshús í Skandinavíu
með veltu upp á 250.000.000 danskar kr.
Við leitum að eldri og nýrri listaverkum og antíkmunum á alþjóðleg
uppboð okkar í Danmörku.
Sérfræðingur okkar í mati á list- og antíkmunum, Sven Juhl Jorgensen,
verður tíl viðtals í Reykjavík 11. og 12. janúar.
Hægt er að koma á matsfundi í gegnum farsíma
nr. 0045 40 469644 eða á aðalskrifstofu okkar
í Kaupmannahöfn í síma 0045 33 136911.
BRUUN RASMUSSEN
KUNSTAUKTIONER
Bredgade 33, 1260 Kobenhavn K, Danmörku.
Sími 0045 33 136911. Fax 0045 33 324920.
TEENO
Laugavegi 56, sími 5522201
hefst í báðum búðunum
samtímis á fyrramálið kl. 10.00
Vönduð ogfalleg föt á börninfrá
þekktum framleiðendum
á verulega lœkkuðu verði
Golimini
ENGtABÖRNÍN
Laugavegi 56, sími 5522201
CTImúHEiIÍI
■IkCKLeMt/S/tocy
T J J J J
0 AF AF
E M F A N T