Morgunblaðið - 10.01.1999, Side 32

Morgunblaðið - 10.01.1999, Side 32
32 SUNNUDAGUR 10. JANÚAR 1999 MORGUNB L AÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ pltrgtwMulíllí STOFNAÐ 1913 ÚTGEFANDI FRAMKVÆMDASTJÓRI RITSTJÓRAR Svo mikil umskipti hafa orð- ið á íslandi á þessum ára- tug, að segja má, að við búum í allt öðru þjóðfélagi en á fyrstu fjörutíu árum lýðveldisins og raunar fram undir lok síðasta áratugar. Byltingin er slík, að það þýðir nánast ekki að segja þrítugu fólki hvernig þjóðfé- lagsástandið var, þótt ekki sé farið lengra aftur en á síðasta áratug, þegar hugur þeirrar kynslóðar var bundinn öðru en lífsbaráttu frá degi til dags. Þessi umskipti eru að veru- legu leyti efnahagsleg en þau eru þó mun víðtækari. Ungt fólk, sem er að hefja búskap í dag hefur enga möguleika á að skilja aðstöðu fyrri kynslóða í þeim efnum. Nú er tiltölulega auðvelt að festa kaup á íbúðar- húsnæði með skynsamlegum hætti og í samræmi við fjár- hag kaupenda. Nú er tiltölu- lega auðvelt að festa kaup á bíl með sama hætti en hvort tveggja eru grundvallaratriði í daglegu lífi fólks. Fullyrða má að þær breytingar, sem hafa orðið í þessum efnum séu nán- ast bylting, sem gjörbreyti öllu lífi fólks. Sú tíð er liðin, að ungt fólk Árvakur hf., Reykjavík. Hallgrímur B. Geirsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. geti ekki eignast húsnæði nema með því að leggja nótt við dag í byggingarvinnu eins og algengt var árum og ára- tugum saman. Sú tíð er líka liðin, að verðtryggð lán vegna íbúðakaupa hækki að jafnaði um 50% á ári og í sumum til- vikum enn meira eins og var regla en ekki undantekning á síðasta áratug á sama tíma og vísitölutenging launa var af- numin. Þessi mikla breyting í lífs- kjörum og lífsbaráttu einstak- linga og fjölskyldna hefur end- urspeglast með þeim hætti í atvinnulífi þjóðarinnar, að ís- lenzk atvinnufyrirtæki búa nú við' eðlilegt ástand, sem þau hafa reyndar ekki þekkt allan lýðveldistímann fyrr en nú. Þetta hefur m.a. leitt til betri rekstrar og meiri árangurs í almennu starfi fyrirtækjanna og stóraukinna möguleika þeirra á að bæta kjör starfs- manna sinna. Island hefur líka breytzt á þann veg, að landsmenn horfa ekki lengur til annarra þjóða og spyrja, hvers vegna við Is- lendingar getum ekki búið við sama lífsmáta og þar tíðkast. Munurinn á lífsháttum okkar og nálægra þjóða hefur snar- minnkað á örfáum árum og all- ar líkur á, að hann verði ekki umræðuverður að nokkrum árum liðnum. En fleira hefur breytzt. Sú var tíðin, að almenningur tók með þegjandi þögninni ákvörðunum stjórnvalda, þótt þær þættu ósanngjarnar og óréttlátar. Þetta er líka liðin tíð. Réttarstaða hins almenna borgara hefur gjörbreytzt og er margfalt betri en hún var. Dómstólarnir kveða nú upp hvern dóminn á fætur öðrum, þar sem ákvarðanir stjórn- valda eru hraktar, dæmdar ólöglegar eða athugasemdir gerðar við þær með ýmsum hætti. Skýrt og nýlegt dæmi um þetta er dómurinn um flutning Landmælinga ríkis- ins. Eftir þann dóm má búast við, að ráðherrar gæti vand- lega að sér í ákvörðunum vegna þess, að enginn ráð- herra vill fá yfir sig slíkan dóm. Um leið má búast við að lögfræðingar, sem fengnir eru til þess að semja lögfræðilegar álitsgerðir og ráðherrar byggja gjarnan ákvarðanir sínar á, verði gagnrýnni á stöðu umbjóðenda sinna en þeir kannski hafa verið. Þessir dómar hafa líka orðið til þess, að fólk hefur öðlast trú á, að það hafi þýðingu að leita réttar síns með tiltækum aðferðum og jafnframt að það þurfi ekki að bíða árum saman eftir niðurstöðu. Þegar við horfum yfir lýð- veldistímabilið verður ljóst, að þrátt fyrir allt hefur okkur á rúmri hálfri öld tekizt að byggja upp heilbrigðara, rétt- látara og betra þjóðfélag, en það, sem forverar okkar bjuggu við framan af öldinni. UMSKIPTI Sturla(n) ILíklegast er að • rithöfundarfer- iU Sturlu Þórðarsonar hafí byrjað með því að hann hafí ungur átt þátt í ritun Sturlu sögu afa síns Þórðarsonar og þá undir hand- leiðslu Snorra frænda síns í Reyk- holti. Síðar hafi hann skrifað hluta úr íslendinga sögu og Þorgils sögu skarða og enn kafla í Islendinga sögu, ásamt Hákonar sögu sem tengist ýmsu í Islendinga sögu, en þá loks Njálu sem minnir að stíl mest á sumt í Sturlu sögu, t.a.m. ummæli Njáls í brennunni, mann- lýsingar og fleira, en þó fremur á einstaka þætti Islendinga sögu, og þó einkum á alla Þorgils sögu skarða, ekki sízt mannlýsingar og sumt í Þórðar sögu kakala. (Nú er þar til máls að taka..., húsþing), en báðar þessar sögur eru að miklu leyti hafðar eftir þeim frændum og Þórðar saga rituð meðan Þórður lifði (Það er orðtak Þórðar...) Sumt í Svínfellinga sögu endur- speglast einnig í Njálu, t.a.m. mannlýsingar; og hún er mun eldri en Arons saga en þó er einsog tengsl séu milli hennar og Islend- inga sögu, s.s. bardagalýsingar sem eru stundum eins frá orði til orðs. Prestssaga Guðmundar byskups er utan við þessa arfleifð þótt sumt minni á hana (sagan af Ingimundi fóstra hans og strandinu, sagan um dúkinn og fleira) enda er Prests- sagan öðrum þræði eins konar ann- áll um samtíma Guðmundar og lof- gjörð eða helgisaga um hann. Þorgils saga og Hafliða, Guðmund- ar saga dýra og Hrafns saga Svein- bjamarsonar eru að sjálfsögðu tengdar þessari samtímasagnaarf- leifð 13. aldar en ekki eins sam- grónar eða samtvinnaðar öðrum sögum og þær sögur sem rekja má HELGI spjall með einhverjum hætti til verkstæðis Sturlu Þórðarsonar og þeirra frænda. 2. Margar eftir- minnilegustu setningar íslenzkrar sögu eru í rit- um Sturlu Þórðarsonar. í Kristni sögu segir til að mynda: „Um hvað reiddust goðin, þá er hér brann hraun er nú stönd- um vér á“, sagði Snorri goði þegar fréttir um eldgos bárust þingheimi við kristnitöku. Þorgeir ljósvetningagoði sagði þessa frægu setningu af sama til- efni. „Ef vér slíutum lögin, þá slít- um vér friðinn.“ I Islendinga sögu eru þessar setningar sem hvað frægastar eru í sagnfræðiritum okkar: Hvort gerðu þeir ekki Solveigu, spurði Sturla Sighvatsson eftir Sauðfellsför. Þeir sögðu hana heila. Síðan spurði hann einskis. Sturla lá í lauginni að Reykjum í Hrútafirði þegar þeir sögðu honum tíðindin. Líklega eru þessar setningar feg- ursta ástarsaga íslenzkrar tungu. Hvar er nú fóturinn minn, sagði Snoni Þorvaldsson Vatnsfirðingur og þreifaði um stúfinn eftir að Her- mundur hafði sneitt hann af. Þá var Snorri 18 vetra. - Aftaka þeirra bræðra Snorra og Þórðar Þorvaldssona, leiðir hugann að af- töku Sturlu Sighvatssonar síðar á Örlygsstöðum. Lýsingar þeirra bræðra í Islendinga sögu eru fyrir- myndir eftirminnilegra mannlýs- inga í íslendinga sögum og ein- stæðar í íslenzkum sagnfræðiritum til foma. Þær sýna svo ekki verður um villzt að mannlýsingar Islend- inga sagna eru runnar úr lífinu sjálfu, því umhverfi sem Sturla Þórðarson lýsir og skrifað er inní rit einsog Njálu, ef svo mætti að orði komast. Hér skal ég vinna, sagði Gizur Þorvaldsson að Örlygsstöðum, tók breiðöxi úr hendi Þórðar Valdason- ar og hjó í höfuð Sturlu Sighvats- syni sem þar lá særður til ólífis, hljóp svo báðum fótum upp við einsog segir í sögunni er hann hjó Sturlu, svo að loft sá á milli fótanna og jarðarinnar. Snorri Sturluson og Órækja son- ur hans eru með Skúla hertoga í Niðarósi veturinn eftir Örlygs- staðafund 1238, en Þórður kakali í Björgvin með Hákoni konungi. Næsta vor kom bréf til þeirra Snorra og stóð það á að konungur bannaði þeim öllum Islendingum að fara út á því sumri einsog segir í sögunni. Þeir sýndu Snorra bréfin og svarar hann þá: Út vil ek. Eigi skal höggva, sagði Snorri áður en hann var veginn í Reyk- holti 1241. Það vil ég gera þegar þú ert dauður, segir Gizur Þorvaldsson við Þórð Andrésson þegar hann biður Gizur íyrirgefningar á því sem hann hafi afgert við hann, einsog segir í lok Islendinga sögu. Allt eru þetta setningar sem hafa læst sig í þjóðarvitund Islend- inga enda næsta goðsögulegar og öðrum setningum þekktari úr forn- um ritum og eftirminnilegri. Allar eru þær úr penna Sturlu Þórðar- sonar. Þær leiða hugann að eftir- minnilegum setningum í helztu ís- lendinga sögum einsog Gísla sögu Súrssonar, Gunnlaugs sögu, Njálu og Grettis sögu sem vitað er að Sturla Þórðarson ritaði; að minnsta kosti er hann höfundur frum- grettlu. Ef það er rétt sem Elena í Vanja frænda segir, að snilli sé dirfska, frjálslyndi og víðsýni - þá var Sturla Þórðarson snillingur. Allt eru þetta einkenni verka hans, auk snilldartaka á stíl og efni. M. SUNNUDAGUR 10. JANÚAR 1999 33 REYKJAVÍKURBRÉF Laugardagur 9. janúar Morgunblaðið er mikilvægur vett- vangur íýrir skoð- anaskipti fólks um málefni lands og þjóðar. Dag hvern birtist í blaðinu mik- ill fjöldi aðsendra greina, bréfa til blaðsins og bréfa til Velvak- anda, þar sem hinn almenni borgari lýsir skoðunum sínum á þeim málefnum og ein- staklingum, sem eru til umræðu eða í sviðs- ljósinu hverju sinni eða á málum, sem við- komandi greinarhöfundur hefur áhuga á að koma af stað umræðum um. Slíkur vettvangur er mikilvægur fýrir lýðræðið í okkar landi. Tjáningarfrelsið er einn þýðingarmesti þátturinn í lýðræðis- legri stjórnskipan og okkur ber skylda til að standa vörð um það. I nafni þess gengur Morgunblaðið býsna langt í mati á því hvað telst hæfilegt að birta á prenti. Þeim, sem verða fyrir gagnrýni eða í sumum tilvikum hörðum persónulegum árásum, finnst oft of langt gengið. Þarna er vandratað meðalhóf en helzta viðmiðun blaðsins er sú, að birta grein eða bréf, ef það telst ekki vera brot á lagaákvæðum um ærumeiðingar. Þá getur í vissum tilfellum verið nauðsynlegt að hafna greinum af siðferðilegum ástæðum. Tjáningarfrelsi er að vísu viðurkenndur þáttur í lýðræðisþjóðfélögum Vesturlanda og öðrum heimshlutum. En í fáum löndum á hinn almenni borgari jafn greiðan aðgang að vettvangi til Jjess að lýsa skoðunum sín- um og hér á Islandi. Álmennir borgarar eiga í fæstum tilvikum möguleika á að fá birtar greinar eða bréf í höfuðblöðum á Vesturlöndum, hvort sem er í Evrópu eða Bandaríkjunum. Raunar er aðgangur að þeim blöðum mjög takmarkaður. Sjómaður í Grimsby getur hugsanlega fengið birta grein eftir sig í staðarblaði þar en líkurnar á því, að hann geti fengið slíkt efni bii-t í Lundúnablöðunum eru nánast engar. Um það eru dæmi, að einstaka sendiherrar Is- lands í öðnim löndum hafi leitazt við að fá birt bréf í erlendum dagblöðum og ekki tek- izt og jafnvel, að milliganga þeirra um að fá slíkt efni birt frá íslenzkum ráðherrum hafi líka verið árangurslaus. Þessi opni aðgangur íslenzks almennings að fjölmiðlum hér er einn af beztu kostum okkar lýðræðislega þjóðskipulags, þáttur í þjóðfélagskerfí okkar, sem ber að varðveita. I því felst hins vegar ekki, að hann geti ver- ið nánast stjómlaus. Dagblað er hvorki sorptunna né póstkassi. Vandi útvarps- stöðva og sjónvarpsstöðva er meiri í þessum efnum en vandi dagblaða. Nýlegt dæmi um það er, að einstaklingur, sem fram kom í út- varpsviðtali í beinni útsendingu, hafði uppi rógburð um annan nafnkunnan einstakling. Það gengur auðvitað ekki að hver sem er geti fengið að segja hvað sem er um hvern sem er í fjölmiðlum. Dagblöðin eiga auðveldara með að hafa eftirlit með slíku og staðreyndin er sú, að nú orðið er mun algengara en áður t.a.m. fyrir áratug að Morgunblaðið neiti um birtingu á aðsendu efni. Ástæðan er sú, að svo virðist, sem sumir einstaklingar hafi algerlega tap- að áttum um það, hvað hæfir að setja á prent og hvað ekki. I sumum tilvikum er slíkt rusl sent til birtingar að með ólíkindum er og í of mörgum tilfellum á máli, sem tæp- lega getur talizt íslenzka, að ekld sé talað um stafsetningu. í þeim efnum hefur orðið mikil breyting til hins verra og umhugsun- arefni hvað veldur. Af þessum sökum hafa dagblöðin orðið að taka upp mun strangari ritstýringu en áður var nauðsynlegt. Ástæða er til að benda á, að hin almenna þátttaka fólks í umræðum um þjóðfélagsmál á síðum dagblaðanna hefur breytzt mjög mikið. Fyrir þremur til fjórum áratugum var hún í þeim farvegi, að það voru helzt Sjálfstæðismenn, sem skrifuðu greinar í Morgunblaðið, Framsóknarmenn í Tímann, kratar í Alþýðublaðið og sósíalistar í Þjóð- viljann. Þótt Morgunblaðið hafi þá þegar verið opið fyrir skrifum stuðningsmanna annarra flokka en Sjálfstæðisflokksins tók það töluverðan tíma fyrir fólk að átta sig á þeirri breytingu, sætta sig við hana og í sumum tilvikum gat verið erfitt fyrir stuðn- ingsmenn annarra flokka en Sjálfstæðis- flokks, af tilfinningalegum ástæðum, að senda Morgunblaðinu gi'ein til birtingar. Allt er þetta breytt og dagblöðin þrjú eru nú öll opinn vettvangur fyrir fólk til þess að skrifa í og taka með þeim hætti þátt í al- mennum umræðum. En eftir því sem dag- blöðunum hefur fækkað hafa kröfumar til þeirra, sem eftir eru, aukizt að mun í þessu sambandi. mmmmmmmmm einn helzti Lengd vandi Morgunblaðs- ins í sambandi við greiild, birtingu efnis af þessu tagi hefur lengi verið lengd þein-a greina, sem óskað er birtingar á. Að vísu hefur mikið áunnizt í því að fá höfunda til að stytta mál sitt en betur má ef duga skal. Það er augljóst, að þeir sem vilja fjalla um mál á opinberum vettvangi verða nú orðið a.m.k. að taka mið af þeim miðli, sem þeir koma fram í. Einnar mínútu viðtal er býsna langt í sjónvarpi og þeir, sem koma fram í þeim miðli, verða að gæta þess, að svör við spumingum fréttamanna séu skýr og hnitmiðuð. Þeir verða einnig að sæta því að viðtöl em klippt og einungis brot af þeim era send út. Margir þeir, sem fram koma í sjónvarpi, telja, að sjónarmið þeirra komist illa til skila eða brenglist af þessum sökum. Hið sama á við um útvarpsviðtöl, þótt með öðram hætti sé og skaplegri. Þeir, sem senda frá sér skrifaðan texta, verða að taka mið af því, hvort þeir era að skrifa grein, sem hugsanlega á að birtast í bók, hvort þeir era að skrifa grein, sem á að birtast í tímariti eða jafnvel fræðiriti, eða hvort þeir era að skrifa í dagblað. Þeir, sem vilja skrifa í dagblað, stefna augljóslega að því að ná til sem flestra lesenda. Þess vegna hljóta þeir að skrifa slíka grein á annan veg en ef þeir væra að skrifa í tímarit, svo að dæmi sé nefnt. Tími fólks er dýrmætur og ekki við því að búast, að stór hópur lesenda hafi tíma til að lesa mjög langar greinar í dagblaði. En jafnframt er augljóst, að pláss í dagblaði er takmörkuð auðlind, svo að notað sé vinsælt hugtak. Dagblöðunum eru sett ákveðin stærðarmörk af margvíslegum ástæðum. I Morgunblaðinu er leitazt við að hafa ákveðið hlutfall á milli efnis og auglýsinga. Þótt blaðið hafi sett sér það mark, að auglýsing- ar séu að jafnaði um 37% af heildarefninu næst það hlutfall ekki nema þegar mjög vel árar í auglýsingum. Dagblöðum eru líka sett stærðarmörk af öðram ástæðum. Ein er sú, að þau geta orð- ið of stór, þung og óþjál fyrir hinn almenna lesanda. Dæmi um slíkt era sunnudagsblöð, sem gefin era út beggja vegna Atlantshafs- ins og má nefna sunnudagsútgáfu New York Times sem dæmi. Þyngd þeirra blaða er með ólíkindum. I góðæri síðasta áratugar og aftur nú hefur Morgunblaðið staðið frammi fyrir margvíslegum vandamálum vegna stærðar blaðsins, sem hinn almenni lesandi kemur kannski ekki alltaf auga á. Þannig er augljóst, að því stærra og þyngra, sem blaðið verður, þeim mun 61410313 er fyrir blaðbera að koma því til kaupenda á réttum tíma. Þá hefur einnig borið við, að bréfalúgur era einfaldlega of litlar, þegar blaðið fer yfir ákveðna stærð. Þá er á það að líta, að eftir því sem grein- ar verða lengri komast færri þeirra í blaðið dag hvern. Margir höfundar aðsendra greina kvarta undan því, og með réttu, að þeir þurfi að bíða of lengi eftir birtingu greina. Eftir því sem greinarnar verða styttri er augljóst, að fleiri greinar komast í blaðið dag hvern og þar með styttist biðtími eftir birtingu þeirra öllum til hagsbóta. Hinn opni aðgangur fólks að dagblöðun- um hér hefur leitt til þess, að í sumum til- vikum hefur hann verið misnotaður og í öðr- um hafa menn tekið upp heldur hvimleiðar aðferðir til þess að kynna þau mál, sem þeir vilja berjast fyiir eða vinna framgang. Dæmi um þetta era prófkjörin og kosn- ingabarátta af ýmsu tagi. Eðlilegt er að frambjóðendur í prófkjöri eða í kosningum hafi greiðan aðgang að fjölmiðlum til þess að kynna sig og sín sjónarmið. En til viðbót- ar hefur sú venja orðið til á allnokkram und- SKREYTINGAR íjarlægðar í Hafnarfírði. Morgunblaðið/GoUi anförnum áram, að stuðningsmenn próf- kjörsframbjóðenda eða t.d. frambjóðenda í forsetakosningum hafa hafið eins konar kapphlaup um það, hverjir muni ná að fá birtar sem flestar greinar til stuðnings sín- um frambjóðanda. Oft og einatt hefur verið um algerlega innihaldslaust efni að ræða og engu líkara en það eitt sé markmiðið að koma nafni greinarhöfundar og mynd á framfæri. Fyrstu merki þess, að baráttuað- ferð af þessu tagi væri komin út í öfgar var í forsetakosningunum 1980, þegar Morgun- blaðið yfirfylltist af stuðningsgreinum ein- stakra frambjóðenda. Þá hefur það borið við hin seinni ár, að fé- lagasamtök, sem berjast fyrir góðum mál- efnum, hafa ákveðið að vinna þeim fram- gang með því að óska eftir birtingu á mikl- um fjölda greina um viðkomandi málefni. Stundum era slíkar óskir settar fram í sam- ráði við fyrirtæki á sviði almannatengsla, sem gefa ráðgjöf um það, hvernig bezt sé að standa að málum. I kjölfarið koma svo óskir um birtingu kannski 10 greina á nokkrum dögum um sama málefnið. Þetta era eins konar greinaherferðir. Þótt málefnin séu góð gefur augaleið, að þessi baráttuaðferð getur haft þveröfug áhrif. Lesendur verða einfaldlega leiðir á að sjá dag eftir dag greinar um sama málefnið. Reiði lesenda yfir greinafári í prófkjörum var orðin slík fyrir nokkram áram að Morg- unblaðið hóf að birta prófkjörsgreinar í sér- stökum blöðum, þannig að þeir lesendur, sem ekki hefðu áhuga á þessu efni gætu lagt það til hliðar, ef þeim sýndist svo. Það var hins vegar dýr aðferð í Ijósi þess pappírs- magns, sem í það fór. Af þessum margvíslegu ástæðum hefur Morgunblaðið á undanförnum áram beint þeim áskoran til höfunda aðsendra gi-eina, að þeir stytti mál sitt og taki þar með tillit til sjónarmiða lesenda, aðstöðu blaðsins og geri sjálfum sér jafnframt þann greiða að skrifa á þann veg, að líklegt sé að þeir nái til mun stærri hóps lesenda en ella. Hins vegar hefur blaðið ekki viljað loka alveg fyrir birt- ingu lengri greina vegna þess, að stundum er það réttlætanlegt og raunar full ástæða til. Því miður er það hins vegar staðreynd, að höfundar ganga á lagið og undanfarna mán- uði hefur fjölgað veralega mjög löngum greinum, sem blaðinu era sendar til birting- ar. Af þeim sökum er óhjákvæmilegt að gera nýtt átak í að stytta þetta efni og er um það fjallað í sérstakri frétt á bls. 2 í þessu tölublaði Morgunblaðsins. Netútgáfan kemur til sögunnar MORGUNBLAÐIÐ á Netinu er nýr fjöl- miðill, sem nýtur vaxandi vinsælda. Á því tæpa ári, sem lið- ið er frá því að Fréttavefur Morgunblaðsins hóf starfsemi sína, hefur fjöldi notenda hans tvöfaldast og segja má, að um stöðuga aukningu sé að ræða. Líklegt má telja, að notendum hans mundi fjölga enn meira, ef sá kostnaður, sem símakerfíð tekur til sín, væri lægri. I því skyni að tryggja höfundum að- sendra greina dreifingu á því efni, sem þeir láta frá sér fara og almenningi aðgang að sama efni tók Morgunblaðið upp þann hátt í prófkjöri Sjálfstæðismanna í Reykjanes- kjördæmi að birta einungis greinar fram- bjóðenda í blaðinu sjálfu og var þá miðað við helmingi styttri greinar en þegar um al- mennar greinar er að ræða eða 3.000 tölvu- slög. Jafnframt var ákveðið að birta greinar stuðningsmanna frambjóðenda á netútgáfu blaðsins en stuttan útdrátt í blaðinu sjálfu auk myndar af höfundi og tilvísunar. Þetta fyrirkomulag mæltist vel fyrir bæði hjá les- endum og höfundum. Sami háttur verður á hafður í prófkjöram Samfylkingarinnar á næstu vikum, prófkjöri Sjálfstæðismanna í Suðurlandskjördæmi og öðram prófkjörum, sem fram kunna að fara. Nú hefur Morgunblaðið ákveðið að hafa sama hátt á um annað efni. Frá og með þessari helgi verður rík áherzla lögð á að aðsendar greinar verði ekki lengii en 6.000 tölvuslög. Höfundum verður boðið að birta lengri útgáfu á Netinu og jafnframt verður þeim boðin aðstoð starfsmanna ritstjómar við að stytta greinar, þannig að lengd þeirra uppfylli þessi skilyrði. Jafnframt verði vísað til þess að lengri útgáfu sé að finna á Net- inu. Þeir lesendur blaðsins sem ekki hafa aðgang að Netinu geta fengið lengri útgáf- una prentaða gegn mjög vægu gjaldi. Morgunblaðið hefur birt mjög langar greinar undir efnisheitinu Skoðun. Slíkar greinar verða nú einungis birtar í sunnu- dagsblaði og þá ein grein í hverju tölublaði. Þeir, sem telja sér nauðsynlegt að skrifa svo langar greinar, geta þá valið á milli þess, að bíða eftir birtingu, sem í sumum tilvikum getur verið nokkrar vikur, eða að fá hina lengri útgáfu birta strax á netútgáfu blaðs- ins og jafnframt styttri útgáfu að hámarki 6.000 tölvuslög í blaðinu sjálfu. Hið sama á við um þetta efni, að þeir lesendur, sem ekki hafa aðgang að Netinu, geta fengið þær prentaðar. Jafnframt hefur blaðið ákveðið að taka upp frekari flokkun á aðsendu efni en tíðk- azt hefur. Stundum er tekizt hart á um ákveðin málefni vikum og jafnvel mánuðum saman. Nýleg dæmi um það era gagna- grannsframvarpið og hálendismálin og allir þekkja að deilurnar um kvótakerfið hafa staðið m.a. hér á síðum blaðsins í meira en áratug. Skoðanaskipti um slík málefni verða framvegis birt undir sérstöku efnisheiti og leitast verður við eftir því sem kostur er að andstæð sjónarmið birtist dag hvern. Það er þó að sjálfsögðu undir því komið að greinar með andstæðum sjónarmiðum liggi fyrir til birtingar. Loks ber þess að geta að framvegis verð- ur sá háttur hafður á birtingu raðgreina um ákveðin málefni að verði óskað eftir birtingu fleiri greina en þriggja verður þeim vísað á Netið. Um þetta hefur verið fjallað hér í Reykja- víkurbréfi til þess, að lesendur blaðsins og höfundar aðsends efnis skilji þau rök, sem liggja því til grandvallar, að blaðið leggur nú enn ríkari áherzlu á það en nokkra sinni fyrr að slíkt efni sé af hæfilegi-i lengd. Með því að sameina annars vegar þá kosti, sem Morgunblaðið sjálft býður upp á, og hins vegar möguleika netútgáfunnar telur Morg- unblaðið að eðlilegum óskum hins almenna borgara um að koma sjónarmiðum sínum á framfæri sé komið vel til skila. „Einn helzti vandi Morgunblaðsins í sambandi við birt- ingu efnis af þessu tagi hefur lengi verið lengd þeirra greina, sem óskað er birtingar á. Að vísu hefur mikið áunnizt í því að fá höfunda til að stytta mál sitt en betur má ef duga skal.“

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.