Morgunblaðið - 11.03.1999, Síða 1

Morgunblaðið - 11.03.1999, Síða 1
58. TBL. 87. ÁRG. FIMMTUDAGUR 11. MARZ 1999 PRENTSMIÐJA MGRGUNBLAÐSINS „Enginn árangur“ af fundi Holbrookes með Júgóslavíuforseta Milosevic fellst ekki gæslulið í Kosovo Belgrad, Ivaja. Reuters. SLOBODAN Milosevic, forseti Júgóslavíu, ítrekaði í gær andstöðu sína við erlent gæslulið í Kosovo í viðræðum sínum við Richard Holbrooke, sendimann Bandaríkjastjórnar. Var það haft eftir júgóslavnesku frétta- stofunni Tanjug. Bandarískur fulltrúadeildarþingmaður sagði í gær- kvöld, að fundur þeirra Holbrookes og Miiosevic hefði mistekist. Vilja veiða sex háhyrn- inga Ósló. Morgunblaðið. TALSMENN alþjóðlegra um- hverfísverndarsamtaka og hagsmunaaðila í norskum ferðaiðnaði mótmæltu í gær óskum, sem komnar eru frá eigendum sædýrasafns í Jap- an, um leyfi til að veiða sex há- hyrninga við strendur Noregs og flytja þá lifandi í safnið. Fulltrúar sædýrasafnsins ætla að fara til Noregs í næstu viku til að ræða við þarlend stjórnvöld. Ráðgert er að opna skemmtigarð við safnið eftir tvö ár og koma þar fyrir sex lifandi háhyrningum til að laða að ferðamenn. Ekki er þó víst að norsk stjómvöld vilji ræða við Japan- ina enda eru háhyrningar frið- aðir í Noregi. „Við höfum enga þörf fyrir slíkan fund og höfum vísað þeim á sjávarútvegsráðu- neytið,“ sagði embættismaður í norska umhverfisráðuneyt- inu. Veiðum mótmælt Talsmaður ferðamiðstöðvar- innar í Týsfirði á Norðlandi sagði í gær, að nær væri fyrir Japanina að fara í skipulagða hvalaskoðunarferð en reyna að fangelsa dýrin og undir það tók Alþjóðanáttúruverndar- sjóðurinn, WWF, sem sagði, að yrði Japönunum leyft að veiða háhyrningana myndi það verða Norðmönnum til skammar. Samtök, sem berjast fyrir auknum hvalveiðum við Noreg, eru lfka andvíg hugmyndum Japananna og segja, að vilji þeir hval, geti þeir fengið nóg af hvalkjöti og rengi. Olía hækkar London. Reuters. OLÍUVERÐ hækkaði verulega í verði í gær vegna þeirra yfirlýsinga framleiðenda í Persaflóaríkjunum, að nausynlegt væri að draga mikið úr framleiðslunni. A fundi olíumálaráðherra ríkj- anna í Sádí-Arabíu var ákveðið að vinna að því, að olíuríki innan og ut- an OPEC drægju mikið úr fram- leiðslunni og varð það til þess, að heimsmarkaðsverðið hækkaði næst- um um einn dollara og fór hæst í 12,63 dollara. ■ Verðlækkanir/C8 Benjamin Gilman, fonnaður nefndar alþjóðlegra samskipta í fulltrúadeildinni, sagði í gærkvöldi á fundi um Kosovo og hafði eftir embættismönnum í utanríkisráðu- neytinu, að „alls enginn árangur" hefði orðið af fundi Holbrookes og Milosevic. Holbrooke fór til Belgrad til að reyna að sannfæra Milosevic um nauðsyn þess, að um 30.000 manna NATO-herlið héldi uppi gæslu í Kosovo næðust samningar um friðartillögurnar, sem lagðar voru fram á ráðstefnunni í París í síð- asta mánuði. A hún að hefjast aft- ur á mánudag. Vestrænir stjórnar- erindrekar segja, að Milosevic sé að reyna að skilja á milli friðar- samninganna og friðargæslunnar eða með öðrum orðum að koma í veg fyrir árásir NATO-hersins án þess að hleypa honum inn í Kosovo. Lögðu þorpin í rúst Barist var í Kosovo í gær en í fyrradag lögðu serbneskir her- menn þorpið Ivaja í rúst og drápu allan búpening þar. Fundu frétta- menn nokkur lík í bænum en flest- ir þorpsbúanna komust undan á flótta. Ibúar í öðru þorpi, Kotlina, segja, að serbnesku hermennimir hafi komið þangað í fyrradag og byrjað á því að stela öllu steini léttara. Síðan drápu þeir skepn- ui-nar og þegar íbúamir, sem flýðu inn í skóginn, komu aftur stóð ekki steinn yfir steini í þorpinu. Fullyrt hefur verið síðustu daga, að fulltrúar Frelsishers Kosovo muni skrifa undir friðartillögurnar á hverri stundu en það er þó tvennt, sem þeir setja fyrir sig. Annars vegar ákvæði um, að þeir afvopnist og hins vegar, að ekki skuli neitt ákveðið með þjóðarat- kvæðagreiðslu síðar um fullt sjálf- stæði. Reuters ALA al-Hams, 18 ára gamall palestínskur unglingur, var jarðsettur á Gaza í gær, sama dag og hann féll fyrir byssukúlum palestínskra lög- reglumanna. Féll einnig annar unglingur, 17 ára, en þeir tóku þátt í mótmælum, sem brutust út eftir að liðsmaður í Hamas-hreyfing- unni var dæmdur til dauða. Kristnir menn og múslimar berjast í Indónesíu „Stríðsástand44 í Ambon Jakarta. Reuters. KRISTNIR menn og múslimar börðust á götum Ambon-borgar í Indónesíu í gær og beittu jafnt bensínsprengjum sem sveðjum og spjótum. Skutu hermenn á flokk- ana til að stía þeim sundur og féllu þá tveir menn og að minnsta kosti 50 særðust. í Jakarta, höfuðborg Indónesíu, komu um fimm hundr- uð námsmenn saman og í borginni Bandung, sem er um 140 kíló- metra suðaustur af höfuðborginni, ki’öfðust um eitt þúsund manns þess að Wiranto, hershöfðingi og yftrmaður hersins, yrði dreginn til ábyrgðar á ástandinu og ráðleysi hersins. „Hér er stríðsástand,“ sagði einn íbúanna í Ambon þegar hann leit yfir vígvöllinn í gær að átökun- um loknum en meira en 200 manns hafa látið lífið í tveggja mánaða löngum ófriði milli kristinna manna og múslima í Ambon-borg og á Ambon-eyju. Hefur ástandið kynt undir mikilli heift meðal indónesískra múslima, sem eru langfjölmennasti trúarhópurinn í landinu, og hafa þeir efnt til mót- mæla næstum daglega og stundum hvatt til heilags stríðs gegn kristnu fólki. Undirrót átakanna er í raun ekki trúarleg, heldur efnahagsleg og stafar af aukinni fátækt vegna efnahagserfiðleikanna í landinu. I skýrslu sem Alþjóðabankinn birti í gær segir að ólgan í Indónesíu geti gert að engu þann litla vísi sem sjá megi að efnahagsbata. Reuters MÚSLIMSKIR námsmenn efndu til mótmæla í borginni Bandung á Jövu í gær vegna átakanna í Ambon. Hér heldur einn þeirra á dag- blaði þar sem hvatt er til heilags stríðs gegn kristnum mönnum. Sótt að Habibie Ráðgert er að forsetakosningar fari fram í Indónesíu í nóvember og hafa forystumenn Golkar-flokksins, sem fer með völdin í landinu, birt lista með nöfnum fimm hugsan- legra frambjóðenda. Er B.J. Hab- ibie, forseti landsins, einn þeirra og líklegastur til að verða útnefndur. Margir óttast þó að hann njóti ekki nægilegs stuðnings meðal almenn- ings og vilja því eiga kost á að velja einhvem annan. Mótmæli og átök íl (jrílZíl Gaza. Reuters. PALESTÍNSKIR öryggislögreglu- menn skutu í gær til bana tvo ung- linga á Gazasvæðinu. Tóku þeir þátt í miklum óeirðum, sem brutust út eftir að palestínskur dómstóll hafði dæmt til dauða einn liðsmann Hamas- hreyfingarinnar. Var hann fundinn sekur um að hafa myrt lögreglu- mann. ,Arafat, kallaðu hundana þína heim,“ kallaði mannfjöldinn, sem tók þátt í mótmælunum í gær, og grýtti lögreglumennina. Beittu þeir skot- vopnum og féllu þá tveir unglingar, annar 18 ára en hinn 17 ára. Fyllti reykjarsvæla frá brennandi dekkjum loftið og var ástandið líkast því, sem það var í uppreisn Palestínumanna gegn ísraelum á árunum 1987-1993. Til óeirðanna kom eftir að Raed al- Attar, 25 ára liðsmaður í Hamas- hreyfingunni, var dæmdur til dauða fyrir að myrða palestínskan lögreglu- mann í febrúar sl. Var félagi hans dæmdur í ævilangt fangelsi og annar í fangelsi í 15 ár. Skyndiréttarhöld gagnrýnd Yasser Arafat, leiðtogi Palestínu- manna, getur mildað dóminn yfir Att- ar og Ahmed Yassin, stofnandi Hamas-hreyfingarinnar, kvaðst vona, að hann gerði það. Sagði hann dóm- inn yfir Attar óréttlátan og neitaði jafnframt, að Hamas-hi'eyfingin bæri nokki-a ábyrgð á dauða lögreglu- mannsins. Engin vitni báru, að Attai' hefði skotið lögreglumanninn og al- þjóðleg manm-éttindasamtök hafa oft gagnrýnt skyndiréttarhöldin, sem palestínska heimastjórnin ástundar.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.