Morgunblaðið - 11.03.1999, Blaðsíða 76

Morgunblaðið - 11.03.1999, Blaðsíða 76
,/ TVTMÆLALAUST ARIASTI ■KaimasiMKH IBM Netfiíílty <o> NÝHERJI MORGUNBLADIÐ, KRINGLAN 1,103 REYKJAVIK, SÍMI6691100, SÍMBRÉF 5691181 PÓSTHÓLF3040, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1 FIMMTUDAGUR 11. MARZ 1999 VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK Morgunblaðið/Ingvar Guðmundsson LOGREGLA ræðir við afgreiðslustúlku söluturnsins. Gripdeildir í söluturni TVEIR piltar stálu á milli 30 og 40 þúsund krónum úr sjóðsvél í sölu- turninum Toppmyndir í Lóuhólum á níunda tímanum í gærkvöldi. Piltam- ir voru ekki vopnaðir en fengu af- greiðslustúlku til að opna kassann, hirtu peningana og huríú á brott. Lít- ur lögregla því svo á að um gripdeild- ir hafi verið að ræða en ekki rán. Ekki var búið að hafa hendur í hári piltanna þegar blaðið fór í prentun í nótt en í söluturninum var myndavél sem náði myndum af þeim. Lögregla leitar þeirra nú. Piltarnir eru taldir vera 15-16 ára gamlir og voru klæddir hettupeys- um. Lögregla hafði einnig góða lýs- ingu til að styðjast við. Qlafur Baldur Ólafsson um sölu HB á bréfum í SH V orum tilbií nir að kaupa sjálfír „VIÐ vorum reyndar líka tilbúnir að kaupa bréfin í SH sjálfir, en foi-mað- ur stjórnar og forstjóri Haraldar Böðvarssonar hf. höfðu heimild til sölu þeirra og tóku þá ákvörðun að selja þau Róberti Guðfinnssyni og félögum,“ segir Olafur B. Olafsson, einn stærsti hluthafinn í HB hf., í samtali við Morgunblaðið. Hann og bræður hans eiga samtals um fjórð- ung hlutafjár í fyrirtækinu. Hluta- bréf SH hækkuðu á Verðbréfaþingi Islands í gær úr genginu 4,52 í 5, eða um 10,6%. Nýkjörinn stjórnarformaður SH, Róbert Guðfínnsson, átti í gær fund með Friðriki Pálssyni forstjóra. Ræddu þeir stöðu mála eftir aðal- fundinn í fyrradag, að sögn Friðriks, en þó aðallega verkefni næstu vikna og mánaða. Róbert kveðst ánægður með hækkun hlutabréfa SH í gær og telur að líta megi á hana sem traustsyfirlýsingu við þær breyting- ar sem urðu á aðalfundinum. „Eg Salan með hag HB að leiðarljósi, segir Haraldur Sturlaugsson vona sannarlega að nýiTÍ stjóm fé- lagsins takist að standa undir þeim væntingum sem til hennar eru gerð- ar,“ segir Róbert. Stjórnarfundur hefur verið boðaður 19. mars næst- komandi. Ólafur B. Ólafsson lagðist gegn sölu bréfa HB á þriðjudagsmorgun og telur hann að betra hefði verið að ávaxta þau betur og bíða með að selja. „Þeir mátu það svo að með þessu móti fengist hæsta verðið og því hagstæðast fyrir fyrirtækið að selja bréfin. Eg neita því alls ekki að sal- an var mér á móti skapi og segja má að fyrir vikið hafi orðið nokkur trúnaðarbrestur á milli mín og þeirra sem þarna réðu ferðinni. Ég er hins vegar ekki tilbúinn að tjá mig um hver framvindan verður á næstunni og hvort þetta hefur nei- kvæð áhrif á samstarf okkar. Það verður bara að koma í ljós,“ segir Ólafur. „Það sem vakti fyrir okkur með sölu hlutabréfa okkai' í SH, var að færa þessar fjárhæðir inn í fyrirtæk- ið og atvinnulífið á Akranesi og í Sandgerði. Það vakti alls ekki fyrir okkur að hafa áhrif á formannskjör hjá Sölumiðstöðinni. Við fengum mjög gott tilboð í hlutabréfin, kannski á óheppilegum tíma, en með hag Haraldar Böðvarssonar hf. að leiðarljósi ákváðum við að selja Ró- berti Guðfinnssyni og félögum bréf- in,“ segir Haraldur Sturlaugsson, framkvæmdastjóri HB. ■ Betra að/20 ~ Farfugla- heimilið var rýmt AKVEÐIÐ var í gærkvöldi að rýma farfuglaheimilið á Seyðisfirði vegna snjóflóðahættu. Önnur hús á staðn- um eru ekki talin á hættusvæði. Veðurstofan gaf út snjóflóðavið- vörun í gærkvöldi. Spáð er norðaust- an átt með úrkomu næstu daga. Tals- vert snjóaði í bænum í gær. Þrettán pólskir verkamenn voru í farfugla- heimilinu sem er norðan megin í firð- inum utan byggðar. Fengu þeir gist- ingu annars staðar í bænum. -------------- Hvalveiðar verði hafnar ALÞINGI samþykkti í gær þings- ályktunartillögu um að hefja skuli hvalveiðar hið fyrsta hér við land og standi ályktun Alþingis frá 2. febrú- ar 1983 um að mótmæla ekki banni Alþjóðahvalveiðiráðsins við hvalveið- um ekki í vegi fyrir því. Tillagan var samþykkt með 37 atkvæðum gegn 7. ,, I þingsályktuninni segir að veið- '■'•^írnar skuli fara fram á grundvelli vísindalegrar ráðgjafar Hafrann- sóknastofnunarinnar og undir eftir- liti stjórnvalda. ■ Samþykkt að/10 Morgunblaðið/RAX Skipið málað TVÖ erlend skip eru nú í Hafnar- ijarðarhöfn, annað í flotkví en hitt liggur við bryggju. Menn notuðu bliðuna sem var á suðvestanverðu landinu í gær til þess að mála skrokkinn. Bók aldarinnar á Islandi valin Öll áhöfn Goðafoss úrskurðuð í gæsluvarðhald til 15. mars kærir úrskurðinn Áhöfnin DÓMARI við Héraðsdóm Reykja- víkur úrskurðaði alla áhöfnina af Goðafossi í gæsluvarðhald til 15. mars á þriðjudagskvöld og aðfara- nótt miðvikudags vegna smyglmáls- ins í Goðafossi. Hafa skipverjarnir allir sem einn kært úrskurð dómar- ans til Hæstaréttar í samráði við lög- menn sína á grundvelli réttarstöðu 7*innar. Hugsanlegt er að Hæstirétt- 'dv taki afstöðu til kæranna fyrir helgi, en gæsluvarðhald mannanna rennur út á mánudaginn. Gæsluvarðhald skipverjanna rask- ar ekki áætlun Goðafoss, því skipið verðui- mannað á ný og leggur úr höfn til Ameríku og Kanada á fostu- dag samkvæmt áætlun. Losun skips- ins er lokið en þó er líklegt að tafir verði á afhendingu einstakra gáma. Ákveðnar reglur gilda um það hjá Eimskipafélaginu hvernig tekið er á málum ef starfsmenn félagsins eru viðriðnir smygl og verður unnið eftir þeim, þegar málið upplýsist. Hafa ber þó í huga að rannsókn stendur enn yf- ir segir í tilkynningu frá Eimskip. Rannsóknardeild lögreglunnar í Reykjavík heldur áfram rannsókn málsins í samvinnu við Tollgæsluna, sem heldur áfram neðansjávarleit með aðstoð kafara að hugsanlegu smygli í nágrenni Garðskaga. Á MORGUN og næstu tíu daga gefst landsmönnum kostur á að velja bók aldarinnar á íslandi. Allir landsmenn geta greitt atkvæði en atkvæðaseðlar munu liggja frammi í bókasöfnum og bókabúðum lands- ins, auk þess að verða birtir í dag- blöðum á morgun, föstudag. Hver og einn þátttakandi getur vaiið þrjár bækur sem hann raðar í fyrsta, annað og þriðja sæti en bæk- urnar verða að vera skrifaðar af ís- lenskum höfundi og gefnar út á þessari öld. Könnunin stendur dag- ana 12. til 21. mars en niðurstaðan verður kynnt á Degi bókarinnar, 23. apríl næstkomandi. Að sögn Önnu Elínar Bjarka- dóttur, stjórnarmanns í Bókasam- bandi íslands, sem stendur fyrir könnuninni, er búist við mikilli þátttöku en markmiðið með henni er fyrst og fremst að beina athygl- inni að bókum og bóklestri. „Áuð- vitað er þetta til gamans gert í aðra röndina en við væntum þess einnig að töluverð umræða muni spinnast um íslenskar bókmenntir á öldinni. Og vafalaust á sitthvað eftir að koma á óvart eins og raunin hefur orðið í svipuðum könnunum í öðr- um löndum.“ ■ Bók aldarinnar/25
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.