Morgunblaðið - 11.03.1999, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
Lífeyrissjóðagreiðslur eru að
2/3 hlutum fjármagnstekjur
NÚ ER komið á 3ja
ár síðan byrjað var að
leggja á fjár-
magnstekjuskatt. Er
hann 10% af arði af
fjármagni sem greiðist
jafnóðum og arður er
greiddur.
Af 1 í feyri s sj ó ð s te kj -
um, sem allur þorri
eftirlaunafólks fær, er
greiddur skattur rúm-
lega 38,34%.
Hér hallast mikið á,
því að útreikningar
Bjama Þórðarsonar
tryggingarfræðings
sýna að um 60-70% af
greiddum lífeyri koma frá arði af
fjármagni í vörslu dugmikilla og
forsjálla stjórna sjóðanna, sem
ávaxta fé það sem greitt var á
vinnualdri sjóðsfélaga. Lengst af
greiddum við ekki skatt af okkar
framlagi.
Það er því ótrúlegt misræmi og
óréttlæti sá mismunur sem kemur
fram í skattlagningu ávöxtunar
„sparifjár", því að þeir sem keyptu
hlutabréf eða fjárfestu í arðbærum
eignum sleppa með 10%, en lífeyi'-
isþegar gi-eiða nær fjórum sinnum
hærri skatt.
Nokkuð áunnist!
Við í Félagi eldri borgara í
Reykjavík höfum reynt að vinna því
fylgi að leiðrétting fengist á þessu.
Landsfundm- Framsóknarflokks-
ins samþykkti ályktun í þessa átt
nú nýverið og stjóm-
arandstöðuflokkar
hafa samþykkt breyt-
inguna. Fjánnálaráð-
herra kvað þetta í at-
hugun, svo að nú þarf
að fylgja þessu vel eft-
ir, svo að undirbúningi
ljúki og leiðréttingin
komi til framkvæmda.
Aðalfundur FEB sam-
þykkti svohljóðandi
tillögu á aðalfundi sín-
um 7. mars sl.:
Tillaga um skatt-
lagningu tekna frá líf-
eyrissjóðum. Aðal-
fundur Félags eldri
borgara í Reykjavík og nágrenni,
haldinn 7. mars 1999, leggur tU að
tekjur fólks frá lífeyrissjóðum verði
að tveim þriðju hlutum skattlagðar
á sama hátt og aðrar fjár-
magnstekjur, með 10% skatt.
Það er óþolandi misrétti sem
beitt er gagnvart þeim sem farnir
eru að taka við greiðslum frá líf-
eyrissjóðum, í sambandi við skatt-
lagningu slíkra greiðslna.
Höfuðstóllinn, sem greitt er af,
byggist á uppsöfnuðum sparnaði á
20 til 40 ára starfsævi.
Höfuðstóllinn er skv. trygginga-
fræðilegu mati, m.v. 3,5% rauná-
vöxtun síðustu 40 ára, tilkominn að
einum þriðja hluta af gi-eiddum ið-
gjöldum launafólks og atvinnurek-
enda, en að tveim þriðju hlutum
sem fjármagnstekjur sjóðsins á
söfnunartímanum.
Lífeyrisgreiðslur
Ég veit að__________
flokksbræður mínir í
Sj álfstæðisflokknum
vænta þess fastlega,
segir Páll Gíslason, að
landsfundurinn
samþykki jákvæða
ályktun um réttindamál
lífeyrisþega.
Þegar tekinn var upp fjár-
magnstekjuskattur fyrir tveim ár-
um eða svo, var ákveðið að hann
skyldi vera 10%.
Það hefur því myndast mikið
ósamræmi í skattlagningu fjár-
magnstekna, eftir því hvemig
þeirra er aflað, því að fjár-
magnstekjur lífeyrissjóða eru
skattlagðar með 38,34% þegar þær
koma til greiðslu.
Þegar þetta er skrifað er lands-
fundur Sjálfstæðisflokksins
framundan. Eg veit að flokksbræð-
ur mínir í Sjálfstæðisflokknum
vænta þess fastlega og vona að
flokksþing samþykki ályktun já-
kvæða um framkvæmd þessa rétt-
lætismáls lífeyrisþega.
Höfunduv er læknir.
Páll Gíslason
FIMMTUDAGUR 11. MARZ 1999 43
• Lítil og létt en
ótrúlega öflug
• 1350W
• Axlaról
• Stillanlegur
sogkraftur
•Afastur
af[) urrk u ri arb u r s ti
HÚSASMIÐJAN
Sími 525 3000
Rowenla
Fréttir á Netinu ^mbl.is
ALLTAf= GITTH\SA£} NÝTl
ATVINNU ÆUGLYSINGA
algroup alusuisse
primary materials
íslenska álfélagið
Áhersla er lögð á reglusemi, stundvísi,
árvekni og góða samstarfshæfni.
Tölvukunnátta er einnig æskileg en ekki
nauðsyn.
Umsóknir óskast sendar til ISAL, pósthólf
244,222 Hafnarfirði, eigi síðar en 19. mars
næstkomandi.
Umsóknareyðublöð fást hjá íslenska
álfélaginu hf. í Straumsvík, bæði á
aðalskrifstofu og hjá hliðverði. Eyðublöð
eru einnig á heimasíðu ISAL á Internetinu;
www.isal.is og þar er að finna nánari
upplýsingar um fyrirtækið.
ISAL
Leikskólastjóri
Dagvist barna óskar að ráða leikskólastjóra
til afleysinga í leikskólann Drafnarborg.
Um er að ræða eins árs tímabii frá 1. maí
1999-1. júní 2000.
Leikskólakennaramenntun áskilin.
Leikskólinn er tveggja deilda þar sem dvelja
34 börn samtímis.
Nánari upplýsingar veitir Margrét Vallý Jó-
hannsdóttir, deildarstjóri, og Ingveldur H.
Björnsdóttir, leikskólaráðgjafi, hjá Dagvist
barna í síma 563 5800.
Undanfarin ár hefur staðið yfir markviss vinna við stefnumótun hjá
Dagvist barna. Meginmarkmið er að bæta og styrkja alla þjónustu
við börn og foreldra þeirra.
Þjónustan byggir á þekkingu á þörfum barnanna og á góðu faglegu
starfi í náinni samvinnu við foreldra. Hjá Dagvist barna í Reykjavik
starfa um 1650 starfsmenn og allt kapp er lagt á aðfá dugmikið og
áhugasamt fólk til starfa hjá metnaðarfullri stofnun.
Umsóknir berist skrifstofu Dagvistar
barna, Hafnarhúsinu, Tryggvagötu 17.
li,
istffba
DagvistJ Fbarna
Atvinna
í boði
Vegna mikilla anna fram-
undan óskum við eftir fag-
lærðu framreiðslufólki og
aðstoðarfólki i sal.
Ath. kvöld- og helgarvinna.
Einnig vantar aðstoðarmann í eldhús.
Upplýsingar í síma 562 6766.