Morgunblaðið - 11.03.1999, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 11. MARZ 1999 29
LISTIR
Norræna húsið
Dagskrá
um spennu-
sögur
SPENNUSÖGUR á Norðurlönd-
um vei'ða í brennidepli í Norræna
húsinu laugardaginn 20. mars kl.
15-19. Þá munu rithöfundar frá
Danmörku, Finnlandi, Noregi og
Svíþjóð kynna bækur sínar og rit-
störf.
Þessir rithöfundar eiga það sam-
eiginlegt að skrifa spennusögur
eða reyfara og njóta þeir allir vin-
sælda og eiga fastan lesendahóp í
heimalöndum sínum. Bækur þeiri'a
hefa einnig verið þýddar á önnur
tungumál, m.a. á íslensku. Rithöf-
undarnir eru Leif Davidsen frá
Danmörku, Leena Kartiina Lehto-
lainen frá Finnlandi, Fredrik
Skagen frá Noregi og Hákan Ness-
er frá Svíþjóð.
í lok dagskrárinnar verða pall-
borðsumræður sem Kristján Jó-
hann Jónsson bókmenntafræðing-
ur stýrir. Þátttakendur eru rithöf-
undarnir og Arnaldur Indriðason
sem fulltrúi íslenskra spennu-
sagnahöfunda.
Aðgangur ókeypis.
---------------
Kóramót
íslenskra kóra
í Ósló
KÓRAMÓT íslenskra kóra í Evr-
ópu verður haldið í Ósló laugardag-
inn 13. mars. Slíkt mótið er haldið
annað hvert ár og er nú röðin komin
að íslendingakórnum í Ósló að
halda mótið.
Alls verða sjö kórar frá fimm
löndum sem taka þátt í ár, eða um
180 söngelskir Islendingar. Að
morgni laugardagsins munu kór-
arnir koma saman og æfa sín lög og
sameiginleg lög. Þau verða flutt á
tónleikum í Forgner-kirkju við
Bygdöy Allé í miðborg Óslóar.
------♦-♦-♦----
Lesið úr
þýðingum
Kópavogsskálda
UPPLESTUR á vegum Ritlistar-
hóps Kópavogs verður í kaffistofu
Gerðarsafns í dag, flmmtudag, frá
kl. 17-18.
Að þessu sinni munu þeir Gylfi
Gröndal, Hjörtur Pálsson, Hrafn A.
Harðarson og Eyvindur P. Eiríks-
son lesa úr þýðingum Kópavogs-
skálda.
Aðgangur er ókeypis og öllum
heimill.
------♦-♦-♦----
„Masterklass“
í píanóleik
í Gerðubergi
ÍSLANDSDEILD EPTA (Evrópu-
samband píanókennara) stendur
fyrir námskeiði í píanóleik fyrir
byrjendur sem og lengi'a komna í
Menningarmiðstöðinni Gerðubergi
helgina 13.-14. mars. Leiðbeinend-
ur verða Sigríður Einarsdóttir,
Anna Guðný Guðmundsdóttir og
Peter Máté píanóleikari.
Súrefnisvörur
Karin Herzog
Kynning
ídag kl. 14-18 í
Breiðholts Apóteki
og Rima Apóteki.
Kynningarafsláttur
Sjálfstæðisstefnan í sjötíu ár
Þrír opnir fundir um Sjálfstæðisflokkinn og sjálfstæðisstefnuna
á Hótel Sögu fimmtudaginn 11. mars kl. 21.00
Frelsi og framtarir í sjötíu ár Hó
Hótel Saga, Skáli.
SigríðurAnna Þórðardóttir, Ingvi Hrafn Oskarsson, Arnbjörg Sveinsdóttir,
formaður þingflokks formaður Heimdallar alþingismaður
sjálfstæðismanna
SteingrímurAri Arason,
framkvæmdastjóri
Fundarstjóri
Drífa Hjartardóttir,
bóndi
Frjáls þjóð í frjálsu landi
Hótel Saga, A-salur.
Björn Bjarnason,
menntamálaráðherra
Stefanía Óskarsdóttir,
stjómmálafræðingur
Tómas Ingi Olrich,
alþingismaður
María E. Ingvadóttir,
viðskiptafræðingur
Fundarstjóri
Sigurjón Pálsson,
verkfræðingur
Sjálfstæðisstefnan í nútíð og framtíö Hó
Hótel Saga, Arsalur.
Fundarstjóri
Hannes Hólmsteinn Gissurarson,
prófessor framkvæmdastjóri
Þórunn Gestsdóttir,
sveitarstjóri
Þorgerður K. Gunnarsdóttir,
lögfræðingur
Sigríður Hrönn Elíasdóttir,
fyrrverandi oddviti
Y
Sjálfstæðisflokkurinn 70 ára