Morgunblaðið - 11.03.1999, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 11.03.1999, Blaðsíða 24
24 FIMMTUDAGUR 11. MARZ 1999 ERLENT MORGUNBLAÐIÐ ÁRAIMGUR fyrir L LuAkk Bonino for- seti Italíu? Frönsk blöð gagnrýna sýknudóm í „blóðhneykslismálinu“ Valdastéttin sögð njóta óviðunandi sérréttinda París. Reuters. FRÖNSK dagblöð gagniýndu í gær sýknudóminn yfir Laurent Fabius, fyrrverandi forsætisráðherra, og einum af meðráðheri'um hans vegna „blóðhneykslisins" svokallaða og sögðu hann til marks um að fransk- ir stjómmálamenn væru hafnir yfir lögin. Málið snýst um 3.600 manns, er sýktust af alnæmi á árunum 1984-85 eftir að hafa fengið smitað blóð, sem ekki hafði verið skimað. Sérstakur dómstóll, Lýðveldisdóm- stóllinn, sem dæmir aðeins í málum háttsettra embættismanna, sýknaði ráðhen-ana fyiTverandi í málinu en undirmaður þeirra á þessum tíma var sakfelldur fyrir manndráp af gáleysi. Hann fékk þó aðeins skil- orðsbundinn fangelsisdóm þar sem dómstóllinn taldi hann hafa þjáðst nóg í þau fimm ár sem rannsókn málsins hefur staðið. „Ætti að vera einn dómstóll fyrir alla“ France Soir sagði að dómurinn renndi stoðum undir þá skoðun margra Frakka að franskir stjórn- málamenn séu séjréttindastétt og hafnir yfir lögin. „I sérstökum dóm- stólum eru það alltaf hinir valda- mestu sem fara með sigur af hólmi. Það ætti að vera einn dómstóll fyrir alla.“ Le Figaro tók undir þetta og sagði að niðurstaða Lýðveldisdóm- stólsins beindi sjónum manna að „óviðunandi forréttindum" stjóm- málamanna. „Frakkar ættu að fara að dæmi nágrannaríkjanna þar sem allir eru jafnir fyrir lögunum. Hvorki Bretland né Ítalía og Þýska- land hafa slíkan sérdómstól fyrir stjómmálamenn." Liberation sagði að Lýðveldis- dómstóllinn, sem er skipaður dóm- uram og stjórnmálamönnum, hefði „dæmt sjálfan sig til dauða“ með sýknuúrskurðinum. „Niðurstaðan endurspeglar samsetningu hans og hann mun ekki halda velli“. Fólk, sem smitaðist af alnæmi við blóðgjöf á árunum 1984-85, segir að stjórnvöld hafi vitað um hættuna á alnæmissmiti en látið hjá líða að grípa nógu snemma í taumana til að vernda almenning. „Stjórnmála- menn eru eins og glæpamenn - standi menn þá ekki að verki er ekki hægt að refsa þeim,“ sagði Syl- vie Rouy, ein þeirra sem sýktust af alnæmi. Brussel. Reuters. EMMA Bonino, sem á sæti í fram- kvæmdastjórn Evrópusambands- ins, hefur gefið kost á sér í emb- ætti forseta Ital- íu og talsmaður hennar sagði í fyrradag að það bryti ekki í bága við nýjar reglur ESB um tak- markanir við pólitískum störf- um fram- kvæmdastjórnarmanna. Kjörtímabili Oscars Luigis Scalfaros, forseta Ítalíu, lýkur í maí og flokkarnir hafa þegar hafið baktjaldamakk um hver eigi að taka við af honum. Pietro Petracci, talsmaður Bonino, sagði að ákvörð- un hennar værí „táknræn" og lagði áherslu á að forsetinn væri kjörinn í leynilegri atvæðagreiðslu á þing- inu. Þannig er Bonino ekki form- lega í framboði en þó „fræðilega mögulegt“ að hún yrði kjörin. Vetrarríki í Banda- ríkjunum Washington. Reuters. MIKIL snjókoma hefur truflað samgöngur og sett líf fólks úr skorðum á austurströnd og í mið- vesturríkjum Bandaríkjanna undanfarna daga. Þrjú dauðaslys má rekja til veðursins. I Minnea- polis náði snjórinn 30 cm þykkt en var víðast hvar á bilinu 15-30 cm þykkur. Snjókoman olli töfum á flugi á öllum helstu flugvöllum í austurhluta Bandaríkjanna. í Washington voru ríkisstarfsmenn sendir heim vegna veðursins en sú ráðstöfun olli umferðaröng- þveiti í höfuðborginni en íbúar hennar áttu sér einskis ills von er úrkoman hófst á þriðjudag. Óánægðir áhorfendur kvörtuðu yfir beinum útsendingum sjón- varpsstöðva af veðri og færð og vildu fá að sjá uppáhalds síðdeg- issápurnar sínar refjalaust. Skokkarinn á myndinni lét færð- ina á The Mall, almenningsgarði í miðborg Washington, greini- lega ekki á sig fá. i Reuters Annar dagur opinberrar heimsóknar Khatamis, forseta frans, til Ítalíu Khatami segir heiminn þreyttan á ofbeldi MOHAMMAD Khatami, forseti Irans, sagði á öðrum degi opin- beraar heimsóknar sinnar til Ítalíu í gær að heimurinn væri þreyttur á ofbeldi og hryðjuverkum og vildi frið, byggðan á gagnkvæmri virð- ingu og réttlæti. Hin þriggja daga Ítalíuheimsókn Khatamis er í fyrsta sinn sem íranskur þjóðar- leiðtogi kemur til Vesturlanda frá því klerkastjórnin tók við völdum í Iran í byltingunni árið 1979. Khatami, sem átti í gær tveggja tíma viðræður við Massimo D’Alema, forsætisráðherra Ítalíu, sagði að meðal þjóða heimsins hlyti að vera vilji til að ti-yggja að frelsi, lýðræði og mannréttindi festi ræt- ur. „Við erum sammála um, að heimurinn hefur - meira nú en nokkru sinni - þörf fyrir frið og samlyndi," tjáði Khatami frétta- mönnum í gegnum túlk, eftir fund- inn með D’Alema. „Heimurinn er þreyttur á að horfa upp á eilíft ofbeldi og hryðju- verk, en viðleitni til að koma á sönnum friði verður að haldast í hendur við baráttuna fyrir endur- reisn réttlætis," bætti Khatami við. Hann sagði Irani vera að velja sér „nýja leið“, sem hann sagðist sann- færður um að yrði árangursrík. Italska stjórnin hefur hvatt Vesturlönd til að styðja við bakið á Khatami og fylgismönnum hans, sem eiga í viðureign við valdamikil íhaldssöm öfl í Iran. „Eg er stoltur af því að við lok 20. aldar skuli ég, sem forseti lands míns, hafa komið af stað rökræðu milli heilla siðmenninga og ólíkra þjóða,“ sagði Khatami. Ekki minnzt á Bandaríkin I öllu því sem Khatami hefur sagt opinberlega í heimsókninni hefur hann ekki minnzt orði á Bandaríkin, en ummælum hans er tvímælalaust beint að miklu leyti til stjómvalda í Washington og í öðrum löndum sem álíta Iran hafa stimplað sig út úr samfélagi þjóð- anna með stuðningi við hryðjuverk og fleira í þeim dúr. Bandaríkjastjórn sakar Irani enn um að styðja við alþjóðlega hryðjuverkastarfsemi og að leitast við að koma sér upp gereyðingar- vopnum, auk þess að gagnrýna ástand mannréttindamála í land- inu. Að stíga skref í átt að bættum samskiptum við Iran hefur Wash- ington-stjórnin skilyrt við að íranir geri hreint fyrir sínum dyram í þessum málum. Efnahagur Irans er bágborinn vegna lágs olíverðs á heimsmark- aði og viðskiptabanns Bandaríkj- anna. Landið þarfnast sárlega fjár- festinga, en í för með Khatami er sendinefnd sem gerir sér vonir um að ná samningum við Itali um við- skipti og lán. Reiknað er með að viðskiptaviðræðurnar snúist fyrst og fremst um olíu- og gasiðnaðinn, í kjölfar eins milljarðs dollara samninga ítalska orkurisans ENI og franska olíufyrirtækisins Elf- Aquitaine. Mótmælendur kasta málningu Þrátt fyrir miklar öryggisráð- stafanir tókst mótmælendum úr hópi útlægra írana að kasta máln- ingarfylltu eggi í bfl Khatamis er hann var á leið frá hótelinu þar sem hann dvelur í miðborg Rómar. Þrettán mótmælendur vora hand- teknir í kjölfarið. Khatami er umbótasinnaður sííta-klerkur, en hann er jafnframt menntaður í vestrænni heimspeki. Bók eftir hann kemur út á Ítalíu í þessari viku, undir titlinum „Trú, frelsi og lýðræði". Hann mun eiga viðræður við Jóhannes Pál II páfa í dag, fimmtudag.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.