Morgunblaðið - 11.03.1999, Qupperneq 2
2 FIMMTUDAGUR 11. MARZ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Kaupmáttur bóta Trygginffastofnimar
Umtalsverð hækkun
orðið á kjörtímabilinu
KAUPMÁTTUR grunnlífeyris al-
mannatrygginga, tekjutryggingar,
heimilisuppbótar og sérstakrar
heimilisuppbótar hefur hækkað
umtalsvert á jTirstandandi kjör-
tímabili og sama er að segja um
kaupmátt launa á almennum mark-
aði, launa opinberra starfsmanna,
atvinnuleysisbóta og lágmarks-
launa, að því er fram kemur í svari
forsætisráðherra vegna fyrir-
spurnar Péturs H. Blöndal á Al-
þingi. Kaupmáttur launa og bóta
lækkaði hins vegar á tveimur fyrri
kjörtímabilum.
I frétt frá forsætisráðherra og
heilbrigðis- og tryggingamálaráð-
herra af þessu tilefni og því að for-
sætisráðherra hefur lagt fram á Al-
þingi skýrslu um stöðu, aðbúnað og
kjör öryrkja að beiðni þingflokks
jafnaðarmanna segir að til viðbótar
þessum umskiptum varðandi kaup-
máttinn hafi verið komið á húsa-
leigubótum. „Pessar aðgerðir hafa
því bætt verulega hag tekjulágra
heimila á því kjörtímabili sem senn
lýkur,“ segir í fréttinni.
Á meðal þess sem kemur fram í
svari forsætisráðheiTa vegna fyrir-
spurnar Péturs H. Blöndal um ör-
orkulífeyri og launatekjur er að
ráðstöfunartekjur manns sem fyrir
örorku var með 120 þúsund kr.
mánaðartekjur eða hærri lækka
nokkuð við örorku, þannig til dæm-
is að maður með 200 þúsund kr.
mánaðartekjur myndi hafa 78-83%
fyrri ráðstöfunartekna eftir því við
hvaða viðmiðunarlífeyrissjóð er
miðað, en þeir eru annars vegar
Lífeyrissjóður verslunarmanna og
hins vegar lífeyrissjóðurinn Fram-
sýn. Hins vegar mundu mánaðar-
tekjur manns sem var fyrh’ örorku
með 80 þúsund kr. mánaðarlaun
aukast um 16-17% við það að hann
yrði 100% öryrki.
Ennfremur segir að í skýrslunni
um stöðu, aðbúnað og kjör öryrkja,
sem unnin er af Þjóðhagsstofnun,
komi fram að á undanfórnum áium
hafi hagur og aðbúnaður öryi-kja
batnað verulega og sé það ekki síst
að þakka þeim öra hagvexti sem
hér hafi verið. Ráðstöfunartekjur
heimilanna hafi verið að hækka
langt umfram verðlag og þannig
hafi kaupmáttur lífeyrisþega sem
njóti óskertrar heimilisuppbótar
aukist um 14% á árunum 1993-98.
Við bætist hækkun frítekjumarks
um síðustu áramót, auk 4% hækk-
unar bóta.
Samkeppnisstofnun
Auglýsi
ekki „örugg-
ari bfla“
SAMKEPPNISSTOFNUN hefur
farið þess á leit við Bílabúð Benna að
fyrirtækið hætti að auglýsa bíla með
fullyrðingunni „öruggari bílar“.
Bifreiðar & landbúnaðarvélar sendu
kvörtun til Samkeppnisstofnunar
vegna þessa máls.
Auglýsinganefnd Samkeppnis-
stofnunar fjallaði um málið 25. janú-
ar sl. og taldi að Bílabúð Benna'hefði
ekki skýrt hvað við væri átt með full-
yrðingunni um að Daewoo séu ör-
uggari bílar. Þá hafi fyrirtækið ekki
sýnt fram á að þeir séu öruggari en
bílar almennt á markaðnum. ,Af þvl’
leiðir að auglýsingarnar eru ófull-
nægjandi, villandi og ósanngjai’nar
gagnvart keppinautum og neytend-
um. Jafnframt vill auglýsinganefnd
benda á að fullyi’ðingai’ um öryggi
bifreiða snerta líf og heilsu einstak-
linga. Þvi þarf að gera miklar kröfur
til auglýsanda þegar öryggi bifreiða
er auglýst."
Breyttu verði
meðan könn-
unin var gerð
VERÐI var breytt í verslun Nóa-
túns meðan á verðkönnun Neyt-
endasamtakanna stóð og kom fram
mikið misræmi milli hilluverðs og
kassaverðs í versluninni, að því er
kemur fram hjá Neytendasamtök-
unum. Nýkaup gerir alvarlegar at-
hugasemdir við framkvæmd og
niðurstöður þessarar könnunar. Að
sögn Nóatúns er tilviljun að verð-
breyting var gerð á sama tíma og
könnunin stóð yfir.
Nýkaup segir að keppinautar
komist upp með að breyta verði á
meðan könnun er framkvæmd.
„Það er ábyrgðarhluti hjá Neyt-
endasamtökunum að birta niður-
stöður þrátt fyrir að hafa komið
auga á að verið væri að fram-
kvæma umfangsmiklar verðbreyt-
ingar á meðan könnunin var fram-
kvæmd,“ segir í fréttatilkynningu
frá Nýkaup.
Takmarkað gildi kannana
N eytendasamtakanna
Finnur Ái’nason, framkvæmda-
stjóri Nýkaups, segir að athuga-
semdirnar beinist fyrst og fremst.
að Nóatúni. Verðkönnun Neyt-
endasamtakanna nær til 100 vöru-
liða og var framkvæmd 3. mars sl.
Finnur segir að Nýkaup fram-
kvæmi vikulega verðkannanir sem
nái til 950 vöruliða.
„Við fengum staðfestingu hjá
Neytendasamtökunum á að breyt-
ingar voru gerðar á verði meðan á
könnuninni stóð. Við fengum
einnig staðfestingu starfsmanns
þar á að verðbreytingar hefðu ver-
ið í gangi meðan könnunin var
gerð. Menn gera sér almennt ekki
grein fjrir því að það tekur ótrú-
lega skamman tíma að breyta
verði,“ sagði Finnur.
Finnur segir að verðkönnun
Neytendasamtakanna hafi einnig
takmarkað gildi vegna þess að
stjórnendur matvöruverslana
ganga að því vísu hvaða vörur
lenda í verðkönnunum. „Menn vita
hvaða 90 vörutegundir verða tekn-
ar og hvaða 90 vörutegundir verða
teknar eftir þrjá eða sex mánuði
vegna þess að það er verið að bera
saman sama grunn,“ sagði Finnur.
Einar Jónsson, kaupmaður í
Nóatúni, segir að verðbreytingar
eigi sér stað daglega í versluninni
og vinnureglan sé sú að fyrst komi
þær fram á kassa og síðan á hillu.
„Verð á kassa er endanlegt verð. í
þessu tilfelli var einmitt gerð verð-
könnun á sama tíma og verðbreyt-
ing átti sér stað. Eingöngu var því
um tilviljun að ræða,“ sagði Einar.
I verðkönnuninni, sem gerð var
á vegum samstarfsverkefnis Neyt-
endasamtakanna og verkalýðsfé-
laganna á höfuðborgarsvæðinu
kemur fram að verð á matvörum er
lægst í Bónusi en fast á hæla fylgir
KEA-Nettó og síðan Fjarðarkaup.
■ Bónus með/16
Morgunblaðið/Golli
Loðnan smá og mjóslegin
LOÐNUVEIÐIN gekk treglega í
gær en skipin voru þá að veiðum við
Hrollaugseyjar og við Vestmanna-
eyjar. Að sögn Dagbjarts Þórðarson-
ar, skipstjóra á Júpíter ÞH, er nú
hvergi loðnu að finna en hann vill þó
ekki blása vertíðina strax af.
„Það hefur sáralítið fundist af
loðnu síðustu daga þó að allar að-
stæður séu til fyrirmyndar. Þó að við
séum ekki bjartsýnir í augnablikinu
verðum við að vona að við finnum
meira. En útlitið er satt best að segja
ekki gott. Það litla sem fæst er lítil og
mjóslegin loðna og einn bátur fékk
hrygnda loðnu hér upp í fjöru í morg-
un [gærmorgun]. Maður hefur því á
tilfinningunni að vertíðin sé á síðasta
snúningi en vonar að sjálfsögðu það
besta,“ sagði Dagbjartur í gær.
í gær höfðu um 541 þúsund tonn
af loðnu borist á land á vetrarvertíð-
inni. Loðnuafli fiskveiðiársins er
samtals orðinn um 834 þúsund tonn
og þvi rúm 160 þúsund tonn eftir af
kvótanum.
Vorverkin
framundan
ÞEGAR sól hækkar á lofti fer
fólk að huga að vorverkunum, til
dæmis snyrtingu runna og trjáa,
eins og þessi maður sem var að
snyrta runna við Ásmundarsal í
hægviðrinu í vikunni. Veðrið í
dag er þó ekki sumarlegt, enda
ekki kominn miður mars. Spáð er
0-4 stiga hita á landinu og slyddu
fyrir norðan.
tti. SðMM
• •••••••••••••••••••••••••••••
Sigurður Valur og læri-
• sveinar lögðu Val / B1
* •••••••••••••••••••••••••••••
: Helgi Sigurðsson hetja
: íslands í Lúxemborg / B2
Flug-
leiðir
Olíuverð
lækkar
151 milljón í
hagnað/C1
Verðhækkanir
ólíklegar/C8
Fylgstu
með
nýjustu
fréttum
www.mbl.is