Morgunblaðið - 11.03.1999, Síða 4
4 FIMMTUDAGUR 11. MARZ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Aðalfundur Búnaðarbanka íslands hf.
Osáttir með kostnað-
arsama bindiskyldu
FORSVARSMENN Búnaðarbank-
ans eru ósáttir með þann kostnað
sem bindiskylda vegna stofnunar
Fjármálaeftirlitsins á síðasta ári
felur í sér fyrir félagið. Aætlaður
kostnaður bankans vegna þessa eft-
irlits er um 15 m.kr. á árinu 1999 en
áður var þessi kostnaður greiddur
af Seðlabanka.
A aðalfundi Búnaðarbankans hf. í
gær sagði Stefán Pálsson, aðal-
bankastjóri, að bankarnir hafi löng-
um litið bindiskyldu hjá Seðlabank-
anum hornauga vegna þess kostn-
aðar sem hún veldur. Það sé ekki
síst vegna þess hversu lágir vextir
eru greiddir á bundið fé í Seðla-
banka, en tekjur Seðlabankans af
vaxtamun vegna bindiskyldu hafa
meðal annars staðið undir rekstri
Bankaeftirlitsins, sem ásamt Vá-
tryggingaeftirlitinu myndar nú
Fjármálaeftirlitið. „Það voru því
mikil vonbrigði að vextir af bindi-
skyldu væru ekki færðir til jafns
við það sem samkeppnisaðilar á
evrópska efnahagssvæðinu búa við
samhliða stofnun Fjármálaeftirlits.
Almennt bindiskylduhlutfall hér er
nú um 4% en 1,5% af bundnum
innistæðum, lántökum og verð-
bréfaútgáfu til lengri tíma en tólf
mánaða. Bindireglur evrópska
Seðlabankans eru mun takmark-
aðri, eða ýmist 0% eða 2% auk þess
sem greiddir eru markaðsvextir á
bundið fé.“
Stefán sagði að samkvæmt áætl-
Lúti sömu reglum
og erlendir
keppinautar
un bankans kostaði þessi mismunur
á evrópsku reglunum og þeim regl-
um sem Seðlabankinn setur Búnað-
arbankanum um 40 milljónir ár-
lega, auk hlutdeildar bankans í
rekstrarkostnaði Fjármálaeftirlits-
ins. Hann sagði í ræðu sinni ákaf-
lega mikilvægt að íslenskir bankar
byggju við sama starfsumhverfi og
erlendir keppinautar. „Fjármála-
markaðir verða sífellt alþjóðlegri
og samkeppni eykst. Til að stand-
ast þá samkeppni þurfa innlendar
lánastofnanir að starfa eftir sömu
reglum og keppinautarnir. Stimpil-
gjöld af lánveitingum umfram er-
lenda banka, kostnaðarsamar
bindiskyldur og nýlegar lausafjár-
reglui- Seðlabanka eru mikilvægur
angi af þeim meiði. Búnaðarbank-
inn styður þær aðgerðir Seð!a-
banka og stjórnvalda sem miða að
því að viðhalda efnahagslegum
stöðugleika enda mikilvægt að auka
ráðdeild og varkárni á markaði.
Hins vegar verður eðlilegt sam-
keppnisumhverfi markaðsaðila að
vera tryggt og reglur mega ekki
vera íþyngjandi fyrir innlendar
lánastofnanir," að sögn Stefáns.
I ræðu Stefáns kom fram að
reiknað er með því að hagnaður
bankans í ár verði um einn milljarð-
ur króna fyrir skatta en 755 millj-
ónir króna eftir skatta.
Ný þjónusta við aldraða
Á aðalfundinum var gi-eint frá
nýrri þjónustu við aldraða við-
skiptavini bankans sem nefnist
Eignalífeyrir. Með þjónustunni vill
bankinn stuðla að því að eldri borg-
arar geti notið eigna sinna meðan
aðstæður leyfa. Meginþáttur þjón-
ustunnar byggist á því að bankinn
færir umsamda fjárhæð, t.d. mán-
aðarlega, inn á launareikning við-
skiptavinar samkvæmt ósk hvers
og eins og með samningi þar um.
Með þjónustunni er hægt að auka
ráðstöfunartekjur án þess að til
komi skerðing á lífeyrisgreiðslum
Tryggingastofnunar.
Þá var einnig lögð fram tillaga
um stofnun Menningar- og styrkt-
arsjóðs Búnaðarbankans á aðal-
fundinum, en markmið sjóðsins er
að styrkja árlega umhverfis-,
menningar-, mannúðar- og mennta-
mál með fjárframlögum.
Við kjör í bankaráð bankans varð
ein breyting. Elín Sigfúsdóttir full-
trúi eftirlaunasjóðs starfsmanna
kemur í stað Sigríðar Stefánsdótt-
ur. Aðrir stjórnannenn eru Pálmi
Jónsson formaður, Þórólfur Gísla-
son varaformaður, Hrólfur Ölvisson
og Haukur Helgason. Þá sam-
þykktu fundarmenn tillögu stjórnar
um 8% arðgreiðslu til hluthafa.
Sendiráðið fylgist með afdrifum
íslenskrar konu í Brussel
I fangelsi fímm
árum eftir dóm
BELGÍSKA lögreglan handtók
fyrir skemmstu íslenska konu
sem hefur verið búsett í Brussel
um tíu ára skeið og situr hún nú í
fangelsi fimm árum eftir að dóm-
ur gekk í máli hennar. Islenska
sendiráðið í Brussel hefur leitað
eftir skýringum á þessu máli hjá
belgíska utanríkisráðuneytinu en
samkvæmt upplýsingum sem
sendiráðið hefur aflað sér hlaut
konan þriggja ára fangelsisdóm
árið 1994 vegna ráns sem hún
framdi tveimur árum fyrr.
Sendiráðið hefur ekki fengið
nákvæmar upplýsingar frá
belgískum stjórnvöldum. Sendi-
ráðið fylgist grannt með málinu
og bíður eftir að fá dóminn og
málsatvik send.
Finnbogi Rútur sendiráðu-
nautur í Brussel sagði að sendi-
ráðið hefði fengið það upplýst
símleiðis frá belgíska dómskerf-
inu að konan hefði hlotið fangels-
isdóm árið 1994. Eftir sömu leið-
um fékk sendiráðið það upplýst
frá skrifstofu saksóknara í Brus-
sel að þarna væri um þriggja ára
dóm að ræða en sendiráðið hefur
ekki upplýsingar um hvers vegna
svo langur dráttur hefur orðið á
afplánun dómsins.
Konan leitaði eitt sinn aðstoðar
íslenska sendh'áðsins í Brussel
vegna annars máls þessu ótengdu
en hefur ekki sett sig í samband
við sendiráðið nú. Hún býr ein 1
Brussel, að því best er vitað.
„Sendiráðið mun fylgjast með
málinu og framvindu þess. Við
höfum skrifað utanríkisráðuneyt-
inu og óskað eftir upplýsingum
ásamt afriti af dómnum. Sam-
kvæmt þeim upplýsingum sem
við höfum stendur til að hún
verði leidd fyrir dómara og þegar
það verður munum við fylgjast
með og vera viðstaddir,“ sagði
Finnbogi Rútur.
Árekstur á
ÖKUMENN tveggja fólksbifreiða
og farþegi úr annarri þeirra voru
fluttir á Sjúkrahús Selfoss efth-
árekstur við vestari enda Þjórsár-
brúar um klukkan 10.30 í gær. Einn
þurfti að leggjast inn á sjúkrahúsið,
en meiðslin voru ekki alvarleg að
sögn lögreglunnar.
Þjdrsárbrú
Loka varð brúnni fyrir umferð í
klukkustund meðan lögregla og
sjúki-alið athöfnuðu sig á vettvangi-
Bifreiðarnai' skemmdust talsvert og
varð að flytja þær á brott með 1
kranabifreið.
Lögreglan segir að hálka á brúnni
hafi valdið slysinu.
Áfangaskýrsla auðlindanefndar
Eru að smíða þyrlu 1 bflskúr í Kópavogi
Ekki tímabært að
láta frá sér tillögur
AUÐLINDANEFND, sem kjörin
var á Alþingi hinn 2. júní á síðasta
ári og ætlað er að fjalla um auðlind-
ir, sem eru eða kunna að verða þjóð-
areign og kanna möguleika á að nota
auðlindagjald til að tryggja að af-
rakstur sameiginlegi'a auðlinda skili
sér á réttmætan hátt til þeirra, sem
hagsmuna hafa að gæta, hefur sent
frá sér áfangaskýrslu.
í skýrslunni kemur fram, að
nefndin telur ekki tímabært að láta
tillögur frá sér fara á þessu stigi
enda sé mikilvægt að auðlindamálin
verði skoðuð sem heild og samræmi
verði á milli einstakra þátta í tillögu-
gerðinni. Hins vegar telur nefndin
gagnlegt fyrir almennar umræður
um þessi mál að senda frá sér
nokkrar sérfræðilegar skýrslur, sem
unnar hafa verið fyrir nefndina, þótt
hún hafi ekki tekið efnislega afstöðu
til þeirra.
I bréfi nefndarinnar til forsætis-
ráðherra, segir m.a.: „Til að gefa
hugmynd um vinnu sína vill nefndin
þó nefna eftirfarandi atriði, sem
verða fyrirferðarmikil í tillögugerð
hennar.
Fyrirkomulag eignarhalds og
skilgreining á þeim auðlindum, sem
taldar eru í þjóðareign. Meginstefna
heimilisbankinn
og markmið varðandi nýtingu þess-
ara auðlinda.
Uttekt á þróun og reynslu af hag-
rænum stjórntækjum á sviði um-
hverfis- og auðlindastjórnunar.
Samræming gjaldtöku á sviði auð-
linda- og umhverfismála, tengsl
hennar við almenna skattlagningu
og líkleg áhrif á tekjuskiptingu og
samkeppnisstöðu atvinnuvega.
Mat á reynslunni af núgildandi
fiskveiðistjórnunarkerfi og hugsan-
legar endurbætur á því innan
ramma samræmdrar auðlinda-
stefnu."
Áfangaskýrslu auðlindanefndar
fylgir skýrsla Þorgeirs Örlygssonar,
prófessors, um auðlindir samkvæmt
íslenzkum rétti. Skýrsla prófessor-
anna Sigurðar Líndals og Þorgeirs
Örlygssonar um nýtingu fiskistofna
og töku gjalds fyrir nýtingu þeirra.
Skýrsla Þjóðhagsstofnunar um þró-
un sjávarútvegs, kvótakerííð, auð-
lindagjald og almenna hagstjórn.
Skýrsla Tryggva Felixsonar um um-
hverfisgjöld og umhverfisskatta.
Skýrsla Þorkels Helgasonar um
skattlagningu orkufyrirtækja í Nor-
egi. Minnisblað Anthony Scott til
auðlindanefndar. Skýrsla Phil Major
um fiskveiðistjórnun á Islandi.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
ÞYRLAN kom í pörtum frá Arizona í Bandaríkjunum, en verið er að
setja hana saman í bflskúr í Kópavogi.
ÞYRLAN, sem hefur 150 hest-
afla hreyfil, er tveggja manna
og hefur tveggja tíma flugþol.
Kostar svipað og góður jeppi
TIU ævintýramenn eru að
smíða þyrlu í bflskúr í Kópa-
vogi, en búist er við að jómfrú-
arflugið verði 17. júní. Páll
Halldórsson, flugstjóri Land-
helgisgæslunnar, sagði að þyrl-
an yrði skemmtileg viðbót í
þyrluflota landsmanna.
„Eg hef ekki trú á öðru en
þetta verði fín þyrla enda með
skemmtilegri þyrlum sem ég
www.bi.is
hef tekið í,“ sagði Páll. Hann
sagðist hafa kynnst þyrlunni á
ferðalagi í Arizona í Banda-
ríkjunum og eftir að hafa próf-
að hana hefði hann hreinlega
fallið fyrir henni.
Páll sagði að þyrlan hefði
komið í pörtum til landsins
þann 9. febrúar, en hann gekk
frá kaupunum sjálfur þegar
hann var staddur í Arizona í
a rettri
ókeypis aðgangur til ársins 2000
®bCnaðarbankinn
Traustur banki
nóvember. Hann sagði að hún
hefði kostað um 6 milljónir,
svona svipað og góður jeppi.
Verksmiðjan sem framleiðir
þyrluna er í borginni
Chandler, rétt fyrir utan
Phoenix, en um 25 ára þróun-
arvinna liggur að baki smíði
þyrlunnar. Páll sagði að um
400 þyrlur þeirrar tegundar
sem þeir keyptu, hefðu verið
seldar vítt og breitt út um all-
an heim. Þyrlan er tveggja
manna með tveggja tíma flug-
þol og er tæknilega fullkomin
með 150 hestafla hreyfik
Hópurinn sem tók sig saman
og keypti þyrluna samanstend-
ur af flugvirkjum, ljósmyndur-
um, læknum og flugmönnum.
Páll sagði að flugvirkjarnir
stjórnuðu smfðinni og að þeir
sem ekki hefðu flugréttindi
væru nú á bóklegu flugnám-
skeiði.