Morgunblaðið - 11.03.1999, Side 10
10 FIMMTUDAGUR 11. MARZ 1999
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Samþykkt að
hefja hvalveið-
ar hið
ALPINGI samþykkti í gær þingsá-
lyktunartillögu um að hefja skuli
hvalveiðar hið fyrsta hér við land
og standi ályktun Alþingis frá 2.
febrúar 1983 um að mótmæla ekki
banni Alþjóðahvalveiðiráðsins við
hvalveiðum ekki í vegi fyrir því. I
þingsályktuninni segir að veiðarnar
skuli fara fram á grundvelli vísinda-
legi-ar ráðgjafar Hafrannsókna-
stofnunarinnar og undir eftirliti
stjórnvalda.
Tillagan í heild var samþykkt
með 37 atkvæðum gegn sjö. Tólf
þingmenn greiddu ekki atkvæði og
sjö voru fjarstaddir. Atkvæði féllu
þvert á flokksbönd; stjómarand-
stæðingarnir Ágúst Einarsson,
Guðmundur Árni Stefánsson,
Ragnar Arnalds og Sighvatur
Björgvinsson voru meðal þeirra
sem greiddu tillögunni atkvæði en
stjórnarþingmaðurinn Gunnlaugur
H. Sigmundsson var andvígur og
stjórnarliðarnir Tómas Ingi Olrich,
Lára Margrét Ragnarsdóttir og
Isólfur Gylfí Pálmason vom í hópi
þeirra sem greiddu ekki atkvæði.
Þorsteinn Pálsson sjávarútvegsráð-
herra var ekki viðstaddur, en aðrir
ráðherrar greiddu tillögunni at-
kvæði sitt.
Kynningarstarfí flýtt
Þingsályktunartillagan, sem
samþykkt var eftir breytingar
meirihluta sjávarútvegsnefndar,
var borin upp í þrennu lagi. 53
þingmenn greiddu öðrum málslið
atkvæði en þar segir að Alþingi
leggi áherslu á óskoraðan fullveld-
isrétt íslands við nýtingu hvala-
stofna á íslensku hafsvæði í sam-
ræmi við alþjóðlegar skuldbinding-
ar um sjálfbæra nýtingu lifandi
auðlinda.
Þriðji efnisliður tillögunnar er sá
að Alþingi feli ríkisstjórninni að
undirbúa hvalveiðar, meðal annars
með því að kynna málstað og sjón-
armið íslendinga meðal viðskipta-
þjóða okkar. „Undirbúningur miði
að því að veiðar geti hafíst sem
fyrst. Kostnaður við kynninguna
verði greiddur úr ríkissjóði. Öllu
kynningarstarfí verði flýtt svo sem
auðið er.“
Fjölmargir þingmenn gerðu
grein fyrir atkvæði sínu við at-
kvæðagreiðsluna.
Skynsemi eða hindurvitni
Valgerður Sverrisdóttir, Fram-
sóknarflokki, sagði marga andstæð-
inga tillögunnar reyna að tala með
og móti málinu en ekki yrði bæði
sleppt og haldið. Pétur H. Blöndal,
Sjálfstæðisflokki, sagði samþykkt
tillögunnar sigur skynsemi og vís-
indalegs hugarfars en ósigur firr-
ingar og hindurvitna. Hann túlkaði
samþykkt tillögunnar þannig að
Refsivert
athæfi ekki til
rannsóknar
Fjármálaeftirlitið sendi í gær
frá sér eftirfarandi yfírlýsingu:
„Vegna fréttar á Bylgjunni í
hádegisfréttum í dag [miðviku-
dag] um að Fjármálaeftirlitið
væri með til rannsóknar ásak-
anir á hendur bankastjóra Bún-
aðarbanka íslands hf. um föls-
un víxla og að hafa gert fyrr-
verandi starfsmann bankans
gjaldþrota, vill Fjármálaeftirlit-
ið taka fram að það hefur ekki
til rannsóknar meint refsivert
athæfí af neinu tagi af hálfu
bankastjóra Búnaðarbanka Is-
lands hf. eða annarra starfs-
manna bankans."
fyrsta
skylt yrði að gefa leyfi til hvalveiða
í síðasta lagi á miðnætti 31. desem-
ber árið 2000.
Guðrún Helgadóttir, þingflokki
Óháðra, sagði samþykkt tillögunn-
ar óviturlega meðan ísland stæði
utan Alþjóðahvalveiðiráðsins og
fleirl þingmenn tóku í þann sama
streng.
Hjörleifur Guttormsson, þing-
flokki óháðra, lýsti efasemdum um
að málið væri tækt til afgreiðslu,
því þar væri hvatt til hvalveiða án
þess að skilgreint væri hvort um
ætti að vera að ræða veiðar á
nokkrum hrefnum eða skipulagðar
stórhvelaveiðar.
Gunnlaugur M. Sigmundsson,
Framsóknarflokki, sagði að megin-
vandi íslendinga í hvalveiðimálinu
væri að hafa ekki mótmælt hval-
veiðibanninu 1983 og öllum mætti
vera ljóst að hvalveiðar meðan
landið stendur utan Alþjóðahval-
veiðaráðsinsværu varhugaverðar.
Magnús Árni Magnússon, þing-
flokki Samfylkingarinnar, sagði að
með samþykkt tillögunnar á sama
tíma og Kyoto-bókunin hefði ekki
verið undirrituð tímanlega væri
verið að sverta ímynd íslands í um-
hverfismálum.
----------------
Fellt að
fjalla um
aukinn
kvóta
ALÞINGI felldi í gær tillögu um að
taka á dagskrá frumvarp Sighvats
Björgvinssonar til breytinga á físk-
veiðistjórnarlöggjöfinni í því skyni
að úthluta 15.000 tonna þorskkvóta
til að bæta hag strandveiðiflotans
og landvinnslunnar.
Tillaga um að taka málið á dag-
skrá var felld með 36 atkvæðum
gegn 20, að viðhöfðu nafnakalli. Sjö
þingmenn sátu hjá. Einar Oddur
Kristjánsson stjórnarþingmaður
var meðal þeirra sem vildu taka
málið á dagskrá.
Meðal fjölmargra sem gerðu
grein fyrir atkvæði sínu var Stein-
grfmur J. Sigfússon, þingflokki
óháðra, sem gerði kröfu um að fram
færi utandagskrárumræða til að
ræða viðskilnað ríkisstjórnarinnar í
sjávarútvegsmálum almennt og
stöðu strandveiðiflotans.
-------♦-♦-♦----
Þingi frestað í dag
36 þingmál
afgreidd
ALLS 36 þingmál voru afgreidd frá
Alþingi í gær, þar af 14 sem álykt-
anir Alþingis og 22 sem lög frá Al-
þingi. Enn fleiri þingmál bíða af-
gfreiðslu í dag en miðað er við að
þingi verði frestað um hádegi fram
til 25. mars nk. Þá verður atkvæða-
greiðsla um kjördæmamálið svo-
kallaða en samkvæmt stjómar-
skránni mega ekki líða fleiri en 45
dagar frá því að stjómarskrár-
breyting er samþykkt og þar til
þingkosningar verða.
Að lokinni atkvæðagreiðslu hinn
25. mars nk. verður tilkynnt um
þingrof og hin hefðbundna kveðju-
athöfn forseta Alþingis fer fram.
Forseti Islands flutti setningarræðu á
sjávarútvegsráðherrafundi FAO
Mælti fyrir afnámi ríkis-
styrkja til sjávarútvegs
ÓLAFUR Ragnar Grímsson, forseti
íslands, flutti í gærmorgun setning-
arræðuna á sjávamtvegsráðherra-
fundi Matvæla- og landbúnaðar-
stofnunar Sameinuðu þjóðanna í
Róm (FAO). Helsta viðfangsefni
fundarins er að fjalla um starfsregl-
ur og ábyrga þróun í sjávarútvegi og
alþjóðlegt samkomulag í þeim efn-
um.
í ræðunni fjallaði forsetinn um þá
þróun að málefni hafsins og sjálfbær
nýting á auðlindum þess yrðu meðal
helstu viðfangsefna mannkyns á
næstu öld. Hann sagði að nauðsyn-
legt væri að stórefla rannsóknir á
hafínu og auðlindum þess og stuðla
að gerð alþjóðlegra samninga sem
tryggðu verndun lífríkis hafsins. Þá
sagði hann að með ábyrgu og öflugu
alþjóðlegu samstarfí gæti FAO
stuðlað að farsælli þróun sjávarút-
vegs.
I ræðunni lýsti forsetinn árangii
íslendinga við nýtingu sjávarauð-
linda og hvemig sjávarútvegur hefði
fært Islendingum efnahagslegai’
framfarir og velferð á þessari öld. Þá
sagði hann að reynsla Islendinga á
sviði gæðastjómunai- og við stjómun
sjálfbærrar nýtingar fiskistofna gæti
orðið öðram þjóðum lærdómsefni.
Forsetinn lagði áherslu á fimm at-
riði í alþjóðlegu samstarfi á sviði
sjávarútvegs. I fyrsta lagi að samn-
ingar næðust um nýtingu fiskistofna
á alþjóðlegum hafsvæðum utan við
200 mílna fiskveiðilögsögu. I öðra
lagi að draga þyrfti úr of stóram
fisMsMpaflota víða um heim og að
vænlegasta leiðin til þess væri að af:
nema ríMsstyrM til sjávarútvegs. I
þriðja lagi að beita ætti alþjóðlegri
gervihnatta- og tölvutækni til að
tryggja öraggar upplýsingar um
veiðar á öllum hafsvæðum og auð-
veMa eftirlit með sjálfbæm nýtingu
auðlinda hafsins. I fjórða lagi að
frjáls verslun með sjávarafurðir og
afnám tæknilegra hindi'ana á við-
sMptum ættu að vera meðal helstu
efnisþátta í næstu samningalotu Al:
þjóða viðsMptastofnunarinnar. I
fimmta og síðasta lagi að gæðaeftir-
lit væri besta leiðin til að tryggja í
senn sanngjamt verð íyrir sjávaraf-
urðir og hagsmuni neytenda.
Þorsteinn Pálsson sjávarútvegs-
ráðherra hélt einnig ræðu á fundin-
um í gær. Hann lagði áherslu á að
varast yrði ofveiði og mengun í sjó.
Hann sagði nauðsynlegt að gerður
yrði ákveðinn fiskveiðistjómun-
amammi, sem ríM heims gætu farið
eftir, en að hægt væri að útfæra
hann á marga vegu. Hann bætti því
við að fiskveiðistjómun íslendinga
hefði reynst vel og væri skref í rétta
átt í þessum efnum.
Þegar setningarathöfninni var
loMð skoðaði forsetinn upplýsinga-
kerfi FAO í sjávarútvegi og landbún-
aði og kynnti sér heimsatlas um út-
höfin. Forsetinn snæddi síðan há-
degisverð með Jacques Diouf, fram-
kvæmdastjóra FAO, og sjávarút-
vegsráðherram aðildarríkja stofnun-
arinnar.
Frá Róm hélt forsetinn til Pól-
lands, en opinber heimsókn hans
þangað hefst í Varsjá í dag.
—
Morgunblaðið/Kristinn
Baráttan um brauðið skipulögð
MIKIL samkeppni og valdabar-
átta einkennir fuglalífið við
Tjörnina í Reykjavík og er ekki
óalgengt að sjá harðvítugt kapp-
hlaup tegunda um brauðbitann
sem góðhjartaðir borgarbúar
kasta í vatnið. Það er ekki lengur
svo að fólk fari þangað til að
ARI Edwald, ritstjóri Viðskipta-
blaðsins, sem sóttist eftir sæti á
lista Sjálfstæðisflokksins í Reykja-
vík, kvaðst í samtali við Morgun-
blaðið í gær ekM vera hættur af-
skiptum af stjórnmálum, þótt hann
væri ekki á lista fiokksins fyrir
þingkosningarnar 8. maí.
Ari sagði að hann hygðist taka
þátt í prófkjöri flokksins fyrir
næstu kosningar. Hann væri nokk-
uð viss um að þá yrði haldið próf-
gefa öndunum eingöngu, heldur
er viðbúið að til dæmis gæsir,
álftir og mávar gleypi einnig
brauðmetið í sig. Grágæsirnar
við Tjörnina fylktu liði í gær og
skipulögðu baráttuna um brauð-
ið, um það leyti sem Ijósmyndari
Morgunblaðsins átti leið hjá.
kjör og bætti við að hann væri til-
tölulega bjartsýnn fyrir það. Hann
sagði að samkvæmt niðurstöðu
kjörnefndar Sjálfstæðisflokksins í
Reykjavík væri ekki gert ráð fyrir
að hann skipaði 10. sætið eða sæti
ofar en það og hann myndi una því.
Ari sagðist ekM vilja tjá sig um
það hvort rétt hefði verið hafa próf-
kjör nú í stað þess að stilla upp
lista, ákvörðun hefði verið tekin og
ekkert meira væri um það að segja.
Smygl fannst
í Rauðanúpi
LÍTILSHÁTTAR smygl fannst í
togaranum Rauðanúpi frá Raufar-
höfn er hann kom til heimahafnar
frá Póllandi á þriðjudag en þar
hafði hann verið til gagngerra
breytinga.
Að sögn lögreglunnar á Húsa-
vík, sem stjórnaði leit um borð í
togaranum við komuna til Raufar-
hafnar, fundust nokki’ir tugir
flaskna af sterkum vínum faldir í
skipinu en ekki lá fyrir hvert
magnið nákvæmlega var.
Ennfremur fannst tóbak í sMp-
inu umfram það sem sMpverjar
mega hafa með sér eða þeir gáfu
upp.
Þá kom með Rauðanúpi talsvert
af farangri til Pólverja sem búsett-
ir eru hér á landi, einkum þó á
Raufarhöfn. í þessum farangi’i
reyndist m.a. vera miMð af áfengi
og tóbaki.
Ari Edwald, ritstjóri Viðskiptablaðsins
Ekki hættur í pólitík