Morgunblaðið - 11.03.1999, Qupperneq 12
12 FIMMTUDAGUR 11. MARZ 1999
MORGUNB LAÐIÐ
FRETTIR
Geir H. Haarde fjármálaráðherra og Sólveig Pétursdóttir alþingismaður
Geir H. Haarde fjármálaráðherra og Sólveig framboði til embættis varaformanns Sjálfstæð-
Pétursdóttir, alþingismaður og varaformaður isflokksins á landsfundi fiokksins sem hefst í
þingflokks sjálfstæðismanna, hafa lýst yfir
Laugardalshöll í dag. Kjör forystumanna
Ekki málefna-
ágreiningur
Morgunblaðið/Ásdís
„ÞESSI kosning snýst fyrst og fremst um það hvernig einstakling
fólk sér fyrir sér í þessu forystuhlutverki," segir Geir H. Haarde.
-AF HVERJU sækist þú eftir því að verða
kjörinn varaformaður Sjálfstæðisflokksins?
„Eg tel að ég hafí ýmislegt fram að færa sem
geti gagnast í þessu starfi. Ég hef mjög víð-
tæka pólitíska reynslu bæði innan flokksins og
á Alþingi. Ég held að ég gæti gert gagn í þessu
starfi og mig langar til að fá tækifæri til þess.
Ég hef einnig fundið um nokkra hríð að ýmsir
fleiri eru sömu skoðunar og telja að ég geti lagt
lóð á vogarskálarnar í forystu flokksins."
- Hefurðu hug á að að breyta á einhvern
hátt hlutverki varaformanns efþú nærð kjöri?
„Nei, ég sé ekki fyrir mér miklar breytingar
á þessu starfi. Það er í nokkuð föstum skorðum
og hefur verið svo í Sjálfstæðisflokknum um
áratugaskeið, þótt það fari auðvitað alltaf dálít-
ið eftir því hver skipar það. Það ræðst líka af
samstarfi formanns og varaformanns. Varafor-
maðurinn er auðvitað varamaður formannsins
og hann þarf að vera tilbúinn að gegna störfum
íyrir formanninn í fjarveru hans. Auk þess hef-
ur varaformaður gjaman á vettvangi mið-
stjórnar flokksins sinnt ýmsum verkefnum en
það verður að ráðast hvernig það verður með
mig ef í það færi. Það er mikilvægast að sam-
starf formanns og varaformanns sé gott og að
þeii' skipti með sér verkum eftir því sem hent-
ar hverju sinni.“
Reyna að skapa þá breidd
sein flokknum er nauðsynleg
- Eru einhver sérstök mál sem þú vilt leggja
áherslu á íembætti varaformanns?
„Ég tek það fram að þetta er ekki kosning
um málefni, það er ekki málefnaágreiningur á
milli okkar frambjóðendanna og ég tel því ekki
eðlilegt að tefla fram einhverjum sérstökum
stefnumálum í kosningu sem þessari. Þessi
kosning snýst fyrst og fremst um það hvernig
einstakling fólk sér fyrir sér í þessu forystu-
hlutverki í Sjálfstæðisflokknum. Þar mun við-
komandi að sjálfsögðu tefla fram málflutningi
og stefnu flokksins.“
- Nú hefur verið nokkuð breytiiegt hvernig
þeir sem gegnt hafa varaformennsku í Sjálf-
stæðisflokknum ígegnum tíðina hafa beitt sér í
því embætti. Telurðu að varaformaður eigi að
skipa sér þétt við hlið formanns eða starfa
meira sjálfstætt bæði innan flokksins og út á
við?
„Ég tel það lykilatriði að formaður og vara-
formaður vinni vel saman. Hins vegar hefur
það ævinlega verið þannig í Sjálfstæðisflokkn-
um að varaformennimir hafa verið sterkir af
sjálfum sér og haft burði til þess að verða sjálf-
ir formenn. Sumir hafa síðan orðið það og aðrir
ekki eins og gengur. Varaformaðurinn verður
að vera tilbúinn að taka við hlutverki for-
mannsins hvenær sem er og ég held að það sé
mjög mikilvægt fyrir okkar flokk að í þessu
hlutverki sé aðili sem veldur því.“
- / sögu Sjálfstæðisflokksins hefur val vara-
formanns stundum ráðist af þeim sjónarmiðum
að nauðsynlegt sé að skapa jafnvægi í forystu
flokksins eða endurspegla breidd. Telurðu að
gæta þurfí að þessu í varaformannskosningun-
um á landsfundinum nú?
„Ég tel að það sé mikilvægast að flokkurinn
á hverjum tíma tefli fram sínum öflugustu for-
ystumönnum í þessa sveit og landsfundarfull-
trúar verða að gera það upp við sig hvaða ein-
staklingar passa best í þessi hlutverk. Ef þessa
sjónarmiðs er gætt munu þessir menn í störf-
um sínum reyna að skapa þá breidd sem
flokknum er nauðsynleg og taka víðtækt tillit
til helstu sjónarmiða sem uppi eru. Það er hlut-
verk manna í þessum stöðum."
- Sú gagnrýni heyrist stundum að forystu-
menn Sjálfstæðisflokksins vanræki fíokks-
starfíð þegar flokkurinn tekur þátt í ríkis-
stjórnarsamstarfí. Náir þú kjöri kjöri munt þú
þá einbeita þér að því að rækta flokksstaiiíð
sem mest?
„Það er rétt að það er viss tilhneiging til
þess að menn einbeiti sér að stjórn landsins ef
þeir sitja í ríkisstjórn og þessi þáttur í stjóm-
málastarfinu líði fyrir það. Þarna verða menn
að gæta nauðsynlegs jafnvægis. Ég hef alla tíð
tekið virkan þátt í
flokksstarfinu, bæði
í Reykjavik og út um
landið. Ég hef í mín-
um störfum, allt frá
því að ég var ungur
maður, meðal annars
sem blaðamaður á
Morgunblaðinu og
formaður SUS, farið
mikið um landið í
tengslum við mín
störf. Ég viðurkenni
fúslega að ég hef
haft mjög gaman af
því og fæ mikið út úr
því að taka þátt í
flokksstarfinu. Ég
mun auðvitað halda
því áfram. Hins veg-
ar er það venja að
varaformaðurinn
sinni frekar innri
málefnum flokksins
en formaðmnnn og
ég er meira en tilbú-
inn til þess.“
- Telurðu að vara-
formaður Sjálfstæð-
isflokksins sé i betri
stöðu en aðrir til að
taka síðar við for-
mennsku í fíokknum
og eigi jafnvel tilkall
til þess ef formaður-
inn víkur?
„Það á enginn til-
kall til formennsku í
Sjálfstæðisflokkn-
um. Það kemur í ljós
hvernig þau mál
æxlast í framtíðinni.
Ég hef ekki gert það
upp við mig hvort ég
muni einhvern tíma
sækjast eftir for-
mennsku í flokknum en ég er ekki að því núna
með þessu framboði mínu. Ég er reiðubúinn að
axla alla þá ábyrgð sem því starfi fylgir, þar á
meðal að gegna fyrir formanninn hans störfum
þegar á þarf að halda.“
-Eðli máls samkvæmt þurfa formaður og
varaformaður Sjálfstæðisflokksins að geta
unnið vel saman. Hvernig hefur samstarf ykk-
ar Davíðs Oddssonar veríð?
„Við Davíð erum gamlir skólafélagar úr
menntaskóla og okkar samstarf byrjaði þar
fyrir 30 árum. Síðan þá höfum við verið vinir
og samstarfsmenn. Við höfum einnig unnið
saman á Alþingi um árabil, hann sem formaður
flokksins og ég sem formaður þingflokksins og
nú í tæpt ár saman í ríkisstjórn. Eg hlakka til
þess ef ég næ kjöri að starfa við hlið hans sem
varaformaður."
Þurfum að endurskipuleggja ýmislegt
-Áttu von á hörðum átökum á landsfundin-
um í varaformannskjörinu?
„Kannski ekki mjög hörðum átökum en ég á
von á heiðarlegri og drengilegri kosningabar-
áttu. Ég held að það geri flokknum gott og sé
eðlilegt í svona stórum flokki að fleiri en einn
af mörgum hæfum sækist eftir trúnaðarstörf-
um. Ég held að það verði aðeins til þess að
hleypa lífi í fundinn og geri hann meú'a spenn-
andi inn á við sem út á við.“
- Hver er skoðun þín á hugmyndum Björns
Bjarnasonar um að embætti varaformanns
verði lagt niður og í stað hans kjörin fímm
manna framkvæmdastjórn, sem starfí með for-
manni flokksins og formanni þingflokksins og
sinni innrí málefnum fíokksins?
„Ég er andvígur þeim hugmyndum. Ég tel
að það eigi að vera varaformaður í Sjálfstæðis-
flokknum eins og í flestum öðrum samtökum
og félögum sem ég þekki til, þótt ekki væri
nema vegna formannsins sjálfs, þannig að
hann geti um frjálst höfuð strokið. Hins vegar
er starfandi fimm manna framkvæmdastjórn í
flokknum, þrír sjálfkjörnir og tveir sem kosnir
eru af miðstjórn. Ég tel ekki að það skipti höf-
uðmáli með hvaða hætti þessi framkvæmda-
stjórn er kosin. Virkni hennar fer eftir því
hvemig forystan, einkum formaðurinn, kýs að
haga hennar störfum og það myndi ekki breyt-
ast þótt hún yrði kosin beinni kosningu á lands-
fundi. Ég vek einnig athygli á því að ellefu mið-
stjórnarmenn eru Ig'örnir beinni kosningu á
landsfundinum og miðstjórnin gegnir miklu
hlutverki í flokksstarfinu. Auðvitað þarf jafnan
að huga að skipulagsmálum í flokksstarfinu.
Það er ljóst að í kjölfar kjördæmabreytingar
þurfum við að endurskipuleggja ýmislegt, til að
mynda okkar kjördæmisráð og hugsanlega
aðrar skipulagseiningar. Að þessu munum við
væntanlega ganga á næstu misserum og ég
held að það verði mjög spennandi verk.“
- Telurðu að hugmyndir Björns muni koma
til alvarlegrar umræðu og afgreiðslu á lands-
fundinum?
„Ég get ekki svarað því, en mér kæmi á
óvart ef þær kæmu til afgreiðslu með einhverj-
um hætti.“
-Er einhver málefnalegur ágreiningur á
milli ykkar Sólveigar Pétursdóttur?
„Eins og ég sagði áðan tel ég svo ekki vera.
Þetta framboð snýst ekki um málefnalegan
ágreining. Við Sólveig Pétursdóttir höfum
þekkst lengi og unnið vel saman um árabil. En
menn leggja auðvitað með sér á borðið þá
reynslu sem þeir hafa fengið af störfum á veg-
um flokksins og í stjórnmálum innanlands og
utan. Ég geri það að sjálfsögðu. Ég hef gegnt
mörgum pólitískum störfum innanlands og ut-
an um langt árabil. Menn verða síðan að vega
og meta kosti, verðleika og reynslu hvors fram-
bjóðanda fyrir sig.“
-Ertu sáttur við að skipa þriðja sætið á
framboðslista flokksins verðir þú kjörinn vara-
formaður?
„Að sjálfsögðu. Þetta er tillaga uppstillingar-
nefndar, byggð á úrslitum í síðasta prófkjöri,
og engin ástæða til að ætla annað en að þessi
listi sé sigurstranglegur.“
- Miklar umræður eru um að auka þurfí fram-
gang kvenna í Sjálfstæðisflokknum. Hver er
þín skoðun á því? Eiga konur að ganga fyrír við
val í trúnaðarstöður á vegum flokksins til að
koma á meira jafnvægi?
„Ég er sammála því að mjög æskilégt sé að
auka hlut kvenna í Sjálfstæðisflokknum. Ég tel
hins vegar ekki að það eigi að beita aðferðum á
borð við þær að láta konur njóta sérstaks for-
gangs eða beita kvótum í þeirra þágu. Jafnrétt-
isbaráttan í Sjálfstæðisflokknum hefur ævin-
lega snúist um það að konur og karlai' fengju
jöfn tækifæri og væru metin á eigin verðleik-
um. Ef það er gert trúi ég ekki að konur þurfi
neinu að kvíða í framtíðinni innan Sjálfstæðis-
flokksins. Hins vegar var það ævinlega vanda-
mál að fá konur til að taka þátt í stjórnmálabar-
áttunni og mér finnst ánægjulegt að sjá hvað
það er mikið að breytast. Konum mun fjölga
um allt að 100% í þingflokki sjálfstæðismanna
eftir næstu kosningar miðað við það sem líklegt
má telja og við eigum auðvitað að keppa að því
að fá fleiri hæfar konur til þess að starfa með
okkur í flokknum. Ég held að það sé því óskyn-
samlegt að grípa til einhverra sérstakra að-
gerða tO að veita þeim forgang."
-Hver eru þín helstu baráttu- og hugsjóna-
mál í stjómmálum ?
„Mín grundvallarsjónarmið eru þau sem
Sjálfstæðisflokkurinn var svo lánsamur að gera
að sínum strax í upphafi, það er að segja sam-
bland af frjálslyndi og flialdssemi, þar sem
kostir hins frjálsa markaðskerfis eru hagnýttir
til hins ítrasta en jafnframt séð til þess að hag-
ur þeirra sem minna mega sín sé ekki fyrir
borð borinn. Eitt af grundvallaratriðunum í
stefnu flokksins frá upphafi hefur verið að
standa vörð um sjálfstæði og öryggi landsins
og ég hef unnið töluvert á sviði utanríkis- og al-
þjóðamála. Ég tel að áherslur í þjóðfélaginu af
okkar hálfu eigi áfi-am að vera þær að byggja á
því trausta atvinnulífi sem frjálst framtak
skapai' og nota afraksturinn af því til þess að
byggja upp í skólamálum, í heilbrigðismálum,
fyiú' sjúka, aldraða og öryrkja. Slíkt verður
best gert á grundvelli frjálsræðis."
Framsóknarflokkur njóti líka
þess sem vel hefur verið gert
-Munt þú sækjast eftir ráðherraembætti
verði Sjálfstæðisfíokkurinn aðili að næstu íikis-
stjórn og hefurðu þá áhuga á að vera áfram í
fjármálaráðuneytinu eða hefurðu augastað á
öðru ráðuneyti?
„Ég hef haft mikla ánægju af því starfi sem
ég gegni núna og vildi mjög gjarnan sinna því
áfram. Ég hef áhuga á að sitja áfram í ríkis-
stjórn ef Sjálfstæðisflokkurinn verður aðili að
henni. Hins vegar er það þingflokkurinn sem
ákveður skipan ráðherraembætta og það á eng-
inn nein störf, hvorki í ríkisstjóm né annars
staðar, þegar Sjálfstæðisflokkurinn er annars
vegar. Þarna verður ái'eiðanlega reynt að stilla
upp skynsamlegri blöndu, en þó þannig að ráð-
herraembættin hæfi viðkomandi persónum
vel.“
-Hvernig meturðu stöðu Sjálfstæðisflokks-
ins í dag?
„Ég tel að hún sé mjög sterk. Ég tel að Sjálf-
stæðisflokkurinn geti vænst þess að njóta
verka sinna í ríkisstjórninni á undanförnum ár-
um og að við eigum mjög góða möguleika á að
halda okkar hlut og hugsanlega styrkja okkur í
sessi. Mér þætti það líka mjög miður ef Fram-
sóknai-flokkurinn myndi ekki líka í einhverjum
mæli njóta þess í næstu kosningum sem vel
hefur verið gert í núverandi ríkisstjórn. Ég tel
að annað væri ósanngjarnt.“
- Ertu þeirrar skoðunar að æskilegast sé að
Sjálfstæðisfíokkur og Framsóknarflokkur end-
urnýi stjórnarsamstarf sitt að loknum kosning-
um eða telurðu að Sjálfstæðisflokkurínn eigi
fíeiri kosta völ?
„Ég tel að þetta ríkisstjómarsamstarf hafi
verið mjög farsælt og út frá því sjónarmiði væri
ekki óeðlilegt að það héldi áfram ef aðstæður í
þinginu verða þannig. Hins vegar er ómögulegt
að segja fyrir um þessa hluti og við göngum
óbundnir til þessai'a kosninga eins og aðiir. Það
er óvíst hvað út úr þeim kemur og hvaða flokk-
ar eða flokksbrot verða eftir á vinstri vængnum
og hvaða áhrif staðan þar getur haft.“
- Hvert á að vera meginmarkmið sjálfstæðis-
manna í komandi kosningum?
„Það á að vera að efla stöðu flokksins til að
tryggja áframhaldandi góðæri og árangur fyrii'
alla. Ég held að við eigum sóknarfæri í ýmsum
kjördæmum. Við eigum líka að stefna ótrauðir
að því að hafa forystu fyrir næstu ríkisstjórn.“