Morgunblaðið - 11.03.1999, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 11. MARZ 1999 13
FRÉTTIR
sækjast eftir embætti varaformanns á landsfundi Sjálfstæðisflokksins
flokksins fer fram á seinasta degi landsfundar-
ins næstkomandi sunnudag. Omar Friðriksson
ræddi við frambjóðendurna um ástæður fyrir
framboði þeirra og áherslumál, hlutverk vara-
formanns Sjálfstæðisflokksins, skipulagsmál
flokksins og stöðu á vettvangi stjórnmálanna.
Undirstrikar
breidd flokksins
Morgunblaðið/Árni Sæberg
„EG er fyrst og fremst sjálfstæðismaður og þingmaður flokksins í
framboði til þessa embættis," segir Sólveig Pétursdóttir.
- AF HVERJU sækist þú eftir því að verða
kjörinn varaformaður Sjálfstæðisflokksins á
iandsfundinum um næstu helgi?
„Eg fékk opinberar áskoranir frá Lands-
sambandi sjálfstæðiskvenna og Hvöt, félagi
sjálfstæðiskvenna í Reykjavík, um að gefa
kost á mér og ákvað að taka þeim áskorunum.
Eg hef lengi starfað í stjórnmálum og hef
meðal annars verið þingmaður Reykvíkinga í
níu ár. Par áður var ég fyrsti varaþingmaður í
Reykjavík og átti einnig sæti í borgarstjórn-
arflokki sjálfstæðismanna í fjögur ár. Eg hef
bæði löngun og vilja til þess að taka að mér
frekari ábyrgðarstörf fyrir Sjálfstæðisflokk-
inn og hef raunar lýst því yfír áður. Pá fínnst
mér líka rétt að stuðla að frekara brautar-
gengi kvenna innan flokksins.“
-Hefurðu hug á að að breyta á einhvern
hátt hlutverki varaformanns ef þú nærð
kjöri?
„Varaformaður í Sjálfstæðisflokknum
gegnir mjög mikilvægu hlutverki að mínu
mati og ég held að ekki sé rétt að draga úr
þýðingu þess. Þó eru ýmsar breytingar fram
undan, meðal annars breytt kjördæmaskipan
sem gerir að verkum að það þai-f að skoða
skipulag flokksins heildstætt. Skipulagsmál
eru alltaf á dagskrá landsfundar þannig að
þau verða áreiðanlega rædd.“
-Eru einhver sérstök mál sem þú vilt leggja
áherslu á í embætti varaformanns?
„Eg er fyrst og fremst sjálfstæðismaður og
þingmaður flokksins í framboði til þessa emb-
ættis. Ég tel að með því að velja konu í þetta
embætti séum við að breikka forystu flokks-
ins og hugsanlega gætum við þá náð til enn
stæiri hóps kjósenda. Mér finnst mjög mikil-
vægt að undirstrika þá breidd sem Sjálfstæð-
isflokkurinn hefur staðið fyrir. Sjálfstæðis-
stefnan byggir bæði á einstaklingsfrelsi og
ekki síður á því að gæta að högum þeirra sem
minna mega sín í þjóðfélaginu. Það finnst mér
mjög mikilvægt og bendi á orðin stétt með
stétt í þessu sambandi. Þó að Sjálfstæðis-
flokkurinn verði að sjálfsögðu að vera trúr
kjölfestunni í sinni stefnu og hafi náð stór-
kostlegum árangri í efnahagsmálum, verður
hann líka að vera sveigjanlegur og ganga inn í
nýja öld með framsýni og bjartsýni í huga.“
- Nú hefur veríð nokkuð breytilegt hvernig
þeir sem gegnt hafa varaformennsku í Sjálf-
stæðisflokknum ígegnum tíðina hafa beitt sér
í því embætti. Telurðu að varaformaður eigi
að skipa sér þétt við hlið formanns eða starfa
meira sjálfstætt bæði innan flokksins og út á
við?
„Ég tel að varaformannsembættið feli í sér
ýmsa möguleika. Auðvitað er varaformaður-
inn mjög náinn samstarfsmaður formanns
flokksins og getur þurft að vera staðgengill
hans, en hann er líka ákaflega mikilvægur í
flokksstarfinu. Við sjálfstæðismenn höfum
verið svo lánsamir að eiga að margt gott fólk
sem er tilbúið að ljá okkur lið. Við þurfum
einnig að vera reiðubúin að rétta öllu því fólki
hjálparhönd, aðstoða við skipulagningu og
gæta þess að flokksstarfið sé í góðu lagi hvar
sem er á landinu."
Á ekki von á hörðum átökum
í varaformannskjörinu
-1 sögu Sjálfstæðisflokksins hefur val
varaformanns stundum ráðist af þeim sjónar-
miðum að nauðsyniegt sé að skapa jafnvægi í
forystu flokksins eða endurspegla breidd.
Telurðu að gæta þurfí að þessu í varafor-
mannskosningunum um helgina?
„Já, það er mín skoðun og ég hef lagt
áherslu á það. Þetta er ekki síst mikilvægt
þegar litið er til þess að það eru mjög mikil-
vægar alþingiskosningar framundan og auð-
vitað ber okkur skylda tii þess að gera allt
sem við getum til þess að tryggja áframhald-
andi stjórn Sjálfstæðisflokksins og forystu
hans í ríkisstjórn. En það er að sjálfsögðu
landsfundarfulltrúa að leggja mat á hagsmuni
flokksins í þessu
sambandi.“
- Sú gagnrýni
heyríst stundum að
forystumenn Sjálf-
stæðisflokksins van-
ræki fíokksstarfíð
þegar fíokkurínn
tekur þátt í ríkis-
stjórnarsamstarfí.
Náir þú kjöri munt
þú þá einbeita þér
að því að rækta
fíokksstarfíð sem
mest?
„Það er rétt að
þessi gagnrýni hef-
ur heyrst og hefur
vafalaust komið
fram í öllum stjórn-
málaflokkum. Ég
tel að það séu allir
möguleikar á því að
varaformaðurinn
geti ræktað flokks-
starfið þrátt fyrir að
flokkurinn eigi aðild
að ríkisstjórn. Yfir-
leitt getur þetta
tvennt farið vel
sarnan."
- Telurðu að
varaformaður Sjálf-
stæðisflokksins sé í
betrí stöðu en aðrir
til að taka síðar við
formennsku í
flokknum og eigi
jafnvel tilkall til
þess ef formaðurínn
víkur?
„Sagan hefur
sýnt að þetta tvennt
þarf ekki að fara
saman þannig að
varaformaður taki við af formanni. Hins veg-
ar er þetta mjög mikilvægt starf og felur
vafalaust í sér einhverja möguleika í þessa
veru. A því eru þó vafalaust skiptar skoðanir.
Það má vel vera að flokksmenn líti öðrum
augum á það og að það séu aðrar forsendur
fyiir því hvern þeir kjósa í varaformanns-
embættið en sem formann."
- Hefur þú áhuga á að sækjast eftir for-
mennskunni þó síðar verði?
„Það er alveg ótímabær umræða. Við erum
svo heppin að hafa Davíð Oddsson sem for-
mann flokksins, en hann er afskaplega flinkur
pólitíkus og traustur leiðtogi og ég vona bara
að hann sitji sem lengst."
- Eðli máls samkvæmt þurfa formaður og
varaformaður Sjálfstæðisfíokksins að geta
unnið vel saman. Hvernig hefur samstarf
ykkar Davíðs Oddssonar veríð?
„Samstarf okkar Davíðs Oddssonai- hefur
verið með ágætum. Við unnum saman í borg-
arstjórnarmálum og síðast liðin átta ár hef ég
verið formaður allsherjarnefndar Alþingis, en
sú nefnd fjallar um mál sem heyra undir for-
sætisráðuneytið og okkar samstarf þar hefur
verið prýðilegt."
- Áttu von á hörðum átökum á landsfundin-
um í varaformannskjörinu?
„Nei, ég á ekki von á hörðum átökum. Við
erum öll fyrst og fremst samherjar í Sjálf-
stæðisflokknum en auðvitað skiptast menn á
skoðunum og láta álit sitt í ljós. Mönnum get-
ur runnið kapp í kinn en ég get fullvissað þig
um að að landsfundi loknum munum við snúa
bökum saman og ganga sigurreif til kosninga-
baráttunnar. Ég tel að það sé lýðræðislegur
réttur landsfundarfulltrúa að fá að kjósa á
milli manna og ég hef ekki orðið vör við annað
en að um það ríki fullkomin sátt.“
- Hver er skoðun þín á hugmyndum Björns
Bjarnasonar um að embætti varaformanns
verði lagt niður og í stað hans kjörin fímm
manna framkvæmdastjórn, sem starfí með
formanni fíokksins og formanni þingflokksins
ogsinni innrí málefnum flokksins?
„Við erum nú þegar með bæði fram-
kvæmdastjórn og miðstjórn og aðrar stofnan-
ir innan flokksins, sem eru mjög virkar. En
ég hef þegar bent á að það eru ýmsar breyt-
ingar framundan og þess vegna er bæði rétt
og skylt að ræða skipulagsreglur flokksins en
ég hef ekki tekið undir þá skoðun að embætti
varaformanns verði lagt niður, því þá væri ég
ekki að gefa kost á mér í þetta starf. Þar að
auki tel ég mjög mikilvægt að trúnaðarmenn
Sjálfstæðisflokksins, það er að segja lands-
fundarfulltrúarnir, hafi bein áhrif á hvernig
forysta flokksins er skipuð.“
Gerði ekki athugasemdir við
skipan framboðslistans
- Telurðu að hugmyndir Björns muni koma
til alvarlegrar umræðu og afgreiðslu á lands-
fundinum?
„Það má vel vera að þær verði ræddar. Það
er ekkert óeðlilegt við það. Skipulagsmálin
eru liður á dagskrá landsfundarins og það má
vel hugsa sér að þær hugmyndir verði ásamt
ýmsum fleiri hugmyndum ræddar í einhven'i
sérstala-i nefnd sem verði sett á fót á milli
landsfunda.
- Er málefnalegur ágreiningur á niilli ykk-
ar Geirs H. Haarde?
„Nei, ég held að svo sé ekki. Fyrst og fremst
erum við bæði sjálfstæðismenn, tveir hæfir
einstaklingar í þessu kjöri. Við höfum unnið
náið saman og ég hef ekki orðið vör við að það
væri einhver málefnaágreiningur okkar í milli.
Auðvitað höfum við að einhverju leyti mismun-
andi áherslur og höfum ef til vill komið að ein-
hverju leyti að mismunandi málaflokkum, til
dæmis í nefndarstörfum á Alþingi."
- Ertu sátt við að skipa fjórða sætið á fram-
boðslista flokksins hér í Reykjavík verðir þú
kjörín varaformaður?
„Kjörnefnd er kosin sérstaklega til að gera
tillögur um skipan listans í Reykjavík og full-
trúaráðið hélt fund síðast liðið þriðjudags-
kvöld og samþykkti þann lista. Ég gerði ekki
athugasemdir við þá skipan sem þar var gerð
tillaga um og samþykkt."
-Miklar umræður eru um að auka þurfí
framgang kvenna í Sjálfstæðisflokknum.
Hver er þín skoðun á því? Eiga konur að
ganga fyrir við va1 í trúnaðarstöður á vegum
flokksins til að koma á meira jafnvægi?
„Sjálfstæðismenn hafa ekki talið rétt að
hafa kynjabundna kvóta, þótt sú umræða
hafi átt sér stað innan flokksins. Konur í
Sjálfstæðisflokknum hafa náð nokkuð góðum
árangri að undanförnu, meðal annars í sveit-
arstjórnum og prófkjörum, sem haldin hafa
verið nýlega. Það má einnig benda á að kona
er formaður þingflokksins og kona er oddviti
okkar sjálfstæðismanna í borgarstjórn. Hins
vegar verðum við að huga vel að þessum
málum. Sjálfstæðisflokkurinn var fyrsti
stjórnmálaflokkurinn sem kom konum til
raunverulegra áhrifa í íslenskum stjórnmál-
um og við viljum að sjálfsögðu viðhalda
þeirri þróun.“
- Hver eru þín helstu baráttu- og hugsjóna-
mál í stjórnmálum?
„Þau eru margvísleg og bæði mjúk og hörð,
ef menn aðhyllast slíka flokkun mála. Þannig
var ég formaður Barnaverndai-nefndai-
Reykjavíkur um árabil og er núna formaður
NATO-nefndar Alþingis. Óneitanlega verður
ákveðin verkaskipting í þinginu eftir nefnd-
um. Sem formaður allsherjarnefndai’ hef ég
til dæmis átt þess kost að vinna að málum
sem snerta bætta réttarstöðu einstaklingsins
í þjóðfélaginu, sem mér finnst afar þýðingar-
mikið. Byggðamál heyra einnig undir sömu
nefnd en þau hafa einmitt verið mikið í um-
ræðunni upp á síðkastið og greinilegt að full
ástæða er til þess að vera vel á verði í þeim
efnum. Þá hef ég einnig unnið mikið að mál-
efnum sem tengjast heilbrigðis- og trygginga-
málum og efnahags- og viðskiptamálum. Aðal
hugsjónamál mitt í stjórnmálum er þó fyrst
og síðast að vinna sjálfstæðisstefnunni braut-
argengi."
Eigum að stefna ákveðið að því
að leiða næstu ríkisstjórn
- Munt þú sækjast eftir því að gegna ráð-
herraembætti verði Sjálfstæðisflokkurínn að-
ili að næstu likisstjórn og er eitthvað i-áðu-
neyti sem þú hefur áhuga á öðrum fremur?
„Þetta er ótímabær umræða þar sem enn
eru tveir mánuðir til kosninga og við verðum
að sjá hver úrslitin verða. Ég held hins vegar
að það hafi almennt farið saman að varafor-
maðurinn sé jafnhliða ráðherra ef þær að-
stæður hafa skapast."
- Hvernig meturðu stöðu Sjálfstæðisflokks-
ins í dag?
„Sjálfstæðisflokkurinn býr við afskaplega
sterka stöðu enda byggir hann á stefnu sem
hefur náð langmestri hylli á Islandi saman-
borið við aðrar stjórnmálastefnur. Ég held að
hún falli mjög vel að eðli íslendinga. Nú erum
við að ganga inn í nýja öld. Aðstæður eru að
breytast og umheimurinn er að opnast. Ungt
fólk á núna ótrúleg tækifæri til menntunar,
starfa og búsetu. Við sjálfstæðismenn þurfum
að tryggja að þessari þróun sé viðhaldið en
við þui’fum líka að rækta okkar eigin garð og
tryggja að við séum talsmenn allra stétta í
landinu."
-Ertu þeirrar skoðunar að æskilegast sé
að Sjálfstæðisflokkurínn og Framsóknar-
ílokkurinn endurnýji stjómarsamstarf sitt að
loknum kosningum eða telurðu að Sjálfstæð-
isflokkurinn eigi fleiri kosta völ?
„Ég tel ekki skynsamlegt að útiloka neina
kosti í stjórnmálum. Auðvitað ganga þessir
flokkar óbundnir til kosninga. Hins vegar tel
ég að núverandi stjórnarsamstarf hafi gengið
mjög vel. Ríkisstjórnin hefur náð mjög góðum
árangri, til dæmis við að skapa festu í efna-
hagslífi þjóðarinnar. Mér finnst því ekki ótrú-
legt að lögð verði áhersla á slíkt samstarf
áfram. Við verðum hins vegar að bíða og sjá
hvernig atkvæðin verða talin upp úr kjörköss-
unum.“
- Eiga sjálfstæðismenn að stefna að því að
hafa forystu ínæstu ríkisstjórn?
„Mín skoðun er sú að við eigum að stefna
ákveðið að því að leiða næstu ríkisstjórn. Ég
tel að það sé þjóðinni farsælast."