Morgunblaðið - 11.03.1999, Qupperneq 14
14 FIMMTUDAGUR 11. MARZ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
SS Byggi úthlutað 10 einbýlishilsalóðum á Eyrarlandsholti
Stefnt að því að byggja
hús á einni hæð
Morgunblaðið/Kristján
ÁGÆT verkefnastaða er hjá SS Byggi og er fyrirtækið með verkefni
víða á Akureyri. Veturinn hefur verið erfiður til útiverka en í gær
voru starfsmenn fyrirtækisins að vinna við uppslátt og steypuvinnu í
viðbyggingu Lundarskóla.
Guðbjörg ÍS komin úr sínum síðasta
túr fyrir Samherja
Morgunblaðið/Kristján
GUÐBJÖRG ÍS kom til Akureyrar í gærmorgun, úr sínum síðasta túr
fyrir Samherja. Löndun hófst strax en skipið heldur til Þýskalands á
morgun og verður afhent nýjum eigendum í næstu viku.
Heldur til Þýska-
lands á morgun
BYGGINGARFYRIRTÆKIÐ SS
Byggir hefur fengið úthlutað 10
einbýlishúsalóðum við Miðteig og
Mosateig á Eyrarlandsholti á
Akureyri. Lóðirnar voru auglýstar
lausar til umsóknar í lok síðasta
árs, undir einbýlishús á tveimur
hæðum en þá bárust engar um-
sóknir um þær. I kjölfarið sótti SS
Byggir um lóðirnar og fékk þeim
úthlutað nýlega. Sigurður Sig-
urðsson, framkvæmdastjóri SS
Byggis, sagði að sótt yrði um að fá
að byggja einbýlishús á einni hæð
á öllum lóðunum.
Sigurður sagði að markaðurinn
vildi einbýlishús á einni hæð og
hann vonast því til að fá leyfi bæj-
aryfii-valda til þess að byggja
þannig hús á lóðunum. Hann sagði
að til að hægt verði að byggja hús
á einni hæð þurfi að fylla töluvert
upp en sú uppfylling væri þó ekk-
ert meiri en á byggingasvæðum
víða annars staðar í bænum.
Byggingaverktakar
eiga að byggja
„Það er enn snjór yfir öllu
þarna á Eyrarlandsholtinu en við
stefnum að því að hefja jarðvegs-
framkvæmdir með vorinu, reisa
húsin í sumar og næsta haust og
vinna við þau inni næsta vetur.
Húsin verða misstór og ekki öll
eins en það verður mjög vandað til
verks. Markaðurinn fyrir einnar
hæðar hús á þessum stað er fyrir
hendi og ég finn fyrir miklum
áhuga fólks.“
Sigurður sagði það hafa verið
stefna á Akureyri að veita ekki
byggingaverktökum einbýlishúsa-
lóðir en að sú stefna væri alröng
að sínu mati. „Byggingaverktak-
arnir ei'u með fagmenn í vinnu og
þeir einir eiga að fá að byggja
þessi hús sem önnur. Fólk vill í
langflestum tilfellum flytja inn í
fullkláruð hús, enda getur það
haft miklu meira út úr því að vera
í annarri vinnu en að skafa timbur
og naglhreinsa," sagði Sigurður.
Verkefnastaðan er nokkuð góð
að sögn Sigurðar en veturinn hef-
ur verið nokkuð erfiður til úti-
verka og þau gengið nokkuð hægt.
Fyiártækið er með verk víða í
bænum og er m.a. að byggja við
bæði Lundarskóla og Síðuskóla.
Einnig eru starfsmenn að vinna
við innréttingu húsnæðis við Dals-
braut, þar sem opnað verður bak-
arí innan tíðar og við breytingar á
verslunarhúsnæði í Kaupangi, þar
sem opnuð verður Hraðkaups-
verslun. Þá er SS Byggir að
byggja stórhýsi í miðbænum og
sagði Sigurður að framkvæmdir
þar væru á áætlun. Starfsmenn
fyrirtækisins eru 40, auk undir-
verktaka.
GUÐBJÖRG ÍS, frystitogari Sam-
herja hf„ kom til löndunar á Akur-
eyri í gær úr sínum síðasta túr fyrir
fyrirtækið. Eins og komið hefur
fram, hefur skipið verið selt til
þýska dótturfyrirtækisins Deutsche
Fischfang Union, DFFU, sem er að
99% í eigu Samherjasamstæðunnar.
Skipið var selt án veiðiheimilda og
mun veiða úr kvóta DFFU.
Þorsteinn Már Baldvinsson, for-
stjóri Samherja, sagði að ráðgert
væri að Guðbjörgin héldi áleiðis til
Þýskalands á morgun, föstudag, og
skipið afhent nýjum eigendum í
næstu viku. Ahöfn skipsins var
sagt upp störfum í kjölfar sölunnar
en Þorsteinn Már sagði að 8-9
skipvei'jar yrðu áfram um borð til
að byrja með. Hann sagði unnið að
því að finna öðrum skipverjum,
sem þess óskuðu, pláss á öðrum
skipum Samherja og líklegt að
hægt yrði að leysa mál flestra
þeirra.
75 milljóna króna aflaverðmæti
Guðbjörgin var um einn mánuð á
veiðum, víða við landið. Aflaverð-
mætið í þessum síðasta túr skipsins
undir íslensku flaggi, var um 75
milljónir króna og afli upp úr sjó
rúm 500 tonn. Aflinn var blandaður
en uppistaðan þorskur.
Verkfræðistofa Sigurðar Thoroddsen 35 ára
Jónas tekur við úti-
búinu af Haraldi
UM ÞESSAR mundir eru liðin 35 ár
frá því útibú Verkfræðistofu Sigurðai'
Thoroddsen, VST var stofnað á Akur-
eyri. Fyrsti útibússtjóri á Akureyri
var Pétur Pálmason sem gegndi stöð-
unni þar til hann lést árið 1984. Við
starfi hans tók Haraldur Sveinbjörns-
son sem verið hefur útibússtjóri þar
til nú fyrir skömmu að hann lét af
störfum að eigin ósk og við tók Jónas
V. Karlesson. Haraldur starfar enn
hjá fyrirtækinu sem sérfræðingur í
burðarvii'kjum og verður með faglega
umsjón í ýmsum öðrum verkum.
Jónas hóf störf hjá verkfræðistofunni
árið 1975. Alls starfa nú sjö starfs-
menn hjá VST á Akureyri og eru fjór-
ir þeirra meðeigendur.
Útibúið á Akureyri hefur annast
alhliða þjónustu á sviði byggingar- og
vélaverkfræði. VST hefur kappkost-
að að vera í fremstu röð með nýjung-
ar í tölvu- og samskiptatækni og hef-
ur útibúið verið með í þeirri fram-
sækni. Með samtengingu útibúa og
höfuðstöðva þess í Reykjavík eiga
allir starfsmenn greiðan aðgang að
sérfræðingum fyrirtækisins á hverju
sviði og því er hægt að bjóða við-
skiptavinum upp á meiri og ódýrari
þjónustu en áður. Aukin samskipta-
tækni hefur einnig gert kleift að
sækja fram og sinna verkefnum víða
um land. Þannig hafa starfsmenn á
Akureyri unnið að verkefnum hjá
Fiskimjöli og lýsi í Grindavík, við
brunavarnahönnun stórfyrirtækja í
Reykjavík og nú síðast að hönnun
hitaveitu í Stykkishólmi svo nýleg
dæmi séu tekin. Fyrh' fáum árum sá
útibúið á Akureyri um hönnun burð-
arvirkis fjölbýlishúss í Þýskalandi
sem íslenskur byggingaverktaki
hafði umsjón með. Meðal viðameiri
verkefna á undanförnum árum má
einnig nefna mannvirki Fjórðungs-
sjúkrahússins á Akureyri, Hita- og
vatnsveitu Akureyrar, Sæplast á
Dalvík og skólp- og fráveitukerfi
Akureyrar.
Morgunblaðið/Kristján
STARFSMENN Verkfræðistofu Stefáns Thoroddsen á Akureyri, frá
vinstri eru Haraldur Sveinbjömsson, Pétur Torfason, Jónas V. Karles-
son, Þorsteinn Sigurðsson, Magnús Magnússon og Sævar Gunnarsson
en á myndina vantar Arngrím Ævar Ármannsson.
•••• •
Ályktun aðalfundar sundfélagsins Óðins
N emendur
S
syna
Þak verði sett á
nýju sundlaugina
SUNDFÉLAGIÐ Óðinn samþykkti
ályktun á aðalfundi félagsins nýlega,
þar sem þeirri áskorun er beint til
bæjarstjómar að setja nú þegai' þak
yfir nýju sundlaugina í Sundlaug
Akureyrar til að hún nýtist að fullu
sem kennslu-, æfinga- og keppnis-
laug. Þar að auki myndi sú ráðstöfun
borga sig upp á fáeinum árum vegna
sparnaðar í hitunarkostnaði.
Mikil aðstöðubreyting hefur orðið
hjá sundfélaginu Óðni með tilkomu
nýju 6 brauta, 25 metra laugai'innar
við Þingvallastræti, segir í fréttatil-
kynningu frá félaginu. Sundlaugin
var tekin í notkun síðastliðið sumar
og nú í fyrsta skipti í sögu félagsins
hefur það sundlaugina út af fyrir sig
á æfingatímum. Fram til þess voru
æfingabrauth' tvær í gömlu Iauginni
og synti almenningur við hlið þeirra.
Sundfélagið bendir á að nýja laug-
in sé mjög góð til æfinga og keppni
en þó mætti gera enn betur með því
að byggja yfir hana þak. Yrði það
gert væri hægt að halda stórmót árið
um kring en einungis er hægt að
halda mót þar að sumarlagi, önnur
en lítil innanfélagsmót. Rúmlega 100
börn og unglingar á aldrinum 6-19
ára æfa sund hjá félaginu í 5 flokk-
um og er það mikil fjölgun frá síð-
ustu árum. Auk þess er Garpadeild
innan félagsins og eru þar um 25
áhugasundmenn frá 25 ára aldri.
Mikill fengur í Hrafnhildi
Yfirþjálfari félagsins er Hrafnhild-
ur Guðmundsdóttir sunddrottning en
henni til aðstoðar eru Dýrleif Skjól-
dal og Karen Malmquist. Félagið tel-
ur það mikinn feng að hafa fengið
Hrafnhildi til starfa þar sem hún sé
einn albesti sundþjálfaí'i landsins. Á
komandi hausti eru 37 ár frá stofnun
sundfélagsins Óðins. Fyrsti formaður
var Óli G. Jóhannsson en núverandi
formaður er Margrét Ríkarðsdóttir.
SAMKOMULAG hefur orðið milli
forsvarsmanna Teríunnar og
Myndlistarskólans á Akureyri um
að nemendur skólans sýni verk
sín á veggjum veitingastaðarins
og gildir það í eitt ár. Nú stendur
yilr sýning á verkum nema í graf-
ískri hönnunardeild, en gert er
ráð fyrir að hún standi í um tvo
mánuði og þá taki við sýning á
verkum nemenda úr öðrum deild-
um skólans. Fyrir jól var opnuð á
Teríunni sýning á verkum nokk-
urra nemenda úr málunardeild
Myndiistarskólans og voru viðtök-
ur það góðar að sögn Páls Jóns-
sonar veitingasljóra að ákveðið
var að halda áfram. „Þetta mælt-
ist mjög vel fyrir og okkur þykir
ánægjulegt að geta skapað vett-
vang fyrir nemendur skólans, sem
flestir hafa ekki mörg tækifæri til
að sýna verk sín.“
Á myndinni eru frá vinstri Páll
Jónsson, veitingastjóri Teríunnar,
Friðrik Haraldsson, sem stýrir
grafísku hönnunardeildinn í
Myndlistarskólanum á Akureyri,
og Helgi Vilberg skólastjóri.