Morgunblaðið - 11.03.1999, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 11. MARZ 1999 15
Morgunblaðið/Gunnlaugur Árnason
STARFSMENN Vegagerðarinnar og Veðurstofu útskýra vegaáætlanir
fyrir gestura sem mættu á opið hús um skýrsluna um umhverfismat
vegna fyrirhugaðs vegar um Vatnaheiði.
Vegur yfír Vatnaheiði
Mat á umhverf-
isáhrifum kynnt
Stykkishólmi - Vegagerð ríkisins var
með opið hús að Skildi í Helgafells-
sveit mánudaginn 8. mars. Þar var
kynnt ný leið yfir Snæfellsnesfjall-
garð um Vatnaheiði. Ef af verður
kemur sá vegur í stað leiðarinnar yf-
ir Kerlingarskarð. Núverandi vegur
yfir Kerlingarskarð hefur verið mik-
ill farai-tálmi í samgöngum einkum á
vetrum og hafa Snæfellingar beðið
lengi eftir að úrbætur yrðu gerðar.
A fundinn mættu fulltrúar frá
Vegagerðinni, Veðurstofu, Skipu-
lagstofnun og Náttúruvemd ríkis-
ins. Þar lágu fyrir drög að skýrslu
um mat á umhverfisáhrifum vegna
fyrirhugaðs vegar yfir Vatnaheiði. I
skýrslunni er gerð grein fyrir for-
sendum leiðarvals, niðurstöðum
náttúrurannsókna og úttekt á ör-
yggi samgangna.
Það kom fram hjá Auðuni Hálf-
dánarsyni hjá Vegagerðinni að
margir aðilar hafa komið að gerð
skýrslunnar um umhverfismat. Far-
ið hefur fram könnun á gróðri,
fuglalífi og náttúruminjum sem eru
á þessari leið. Veðurstofan er með
fjórar veðurstöðvar á nýrri veglínu
og eins á Kerlingarskarði til saman-
burðar. Þá hefur Vegagerðin einnig
kannað möguleika á að endurbæta
veg yfir Kerlingarskarð þannig að
bera megi þessa kosti saman.
Meira umferðaröryggi
á vegi yfir Vatnaheiði
Að sögn Auðuns leggur Vegagerð-
in til að gerður verður nýr vegur um
Vatnaheiði. Vatnaleiðin er um 1 km
styttri en núverandi leið um Kerling-
arskarð. Ekki er mikill munur á
kostnaði og er ætlaður kostnaður við
hvora leið 450 til 500 milljónir ki-óna.
En rökin fyrir að fara Vatnaheiðina
eru þau að á þeirri leið er umferðar-
öryggi mun meira. Könnun á um-
ferðaröryggi bendir til þess að vegur
yfii’ Vatnaheiði verði a.m.k. 50% ör-
uggari, en endurbætur Kerlingar-
skarðsvegar og því umtalsvert ör-
uggari en núverandi vegur. Þá ligg-
ur vegur um Vatnaheiði hæst í 228
metrum eða um 90 metrum lægi’a en
Kerlingarskarðsvegur. Brekkur
verða mun minni á nýju leiðinni og
verður mesti halli um 8% en um 9%
halli ef núverandi vegstæði yrði end-
urbætt. Beygjur verða ekki jafn
krappar á nýrri leið. Auk þess benda
athuganir á veðurfari til þess að það
valdi minni röskun á samgöngum á
vegi yfir Vatnaheiði en á vegi yfir
Kerlingarskarð. En Auðunn segir að
á móti komi að nýr vegur fari yfir
óraskað land. Fyrirhuguð veglína er
yflrleitt vel gróin. Vegurinn mun
ekki útiýma sjaldgæfum gróðurteg-
undum, en hann mun skerða vaxtar-
svæði skollakambs. Auðunn segir að
Vegagerðin muni vanda til við frá-
gang efnistökustaða og þeir aðlagað-
ir landslagi. Eins veður lagður fljót-
andi vegur yfir votlendi til að raska
þeim svæðum sem minnst.
Nýr vegnr kominn eftir
tvö til þrjú ár
Tillaga Vegagerðarinnai- um nýj-
an veg yfir Vatnaheiði og skýrsla
um umhverfismat mun fara til
Skipulagsstofnunar eftir 2 vikur.
Skipulagsstofnun auglýsir eftir at-
hugasemdum og úrskurður skipu-
lagsstjóra liggur fyrir 8 vikum síð-
ar. Þann úrskurð er síðan hægt að
kæra til ráherra umhverfismála.
Endanleg ákvörðun um hvor leiðin
verði fyrir valinu getur legið fyrir í
haust og mun þá verkið verða boðið
út. Áætlað er að nýr vegur verði til-
búinn árið 2001 eða 2002.
HÖNNUNARSAMKEPPNI FLUGSTÖÐ
LEIFS EIRÍKSSONAR
-SÝNING Á SAMKEPPNISTILLÖGUM-
í tilefni af verðlaunaafhendingu í hönnunarsam-
keppni um stækkun Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar
verður opnuð sýning á tillögum þeim er bárust í
samkeppnina.
Sýningin verður í Borgartúni 22 og verður opin
á virkum dögum frá klukkan 13:00 - 16:00 og
laugardag og sunnudag frá klukkan 13:00 -
18:00 fram til 18. mars.
FRAMKVÆMDASÝSLA
RÍKISINS
LANDIÐ______________
Kveikt á fyrstu götu-
vitunum í Garðinum
RÓBERT Aron Ólafs kveikir á fyrstu götuvitunum í Garðinum.
Morgunblaðið/Arnór
HEIÐARTÚN 4, húsnæði Kiwanisklúbbsins Hofs
og Skátafélagsins Bergbúa.
Garði - Kveikt var á fyrstu götuvit-
unum sem settir eru upp í bænum í
fyrradag. Ljósin eru beint upp af
barnaskólanum og eru gangbraut-
arljós sem fyrst og fremst eru ætluð
skólabörnunum til að komast yfir
Garðbrautina.
Hugmyndin að því að setja upp
gangbrautarljós við skólann kvikn-
aði í haust hjá tveimur félögum í
Lionsklúbbnum Garði þeim Kjart-
ani Steinarssyni og Antoni Hjör-
leifssyni. Hugmyndinni var vel tek-
ið í klúbbnum og var rætt við ýmis
fyrirtæki í bænum að styrkja fram-
kvæmdina og síðan unnið í nánu
sambandi við hreppsnefnd. Vitamir
vora síðan afhentir í gær og kveikt
á þeim með viðhöfn. Það var Pálmi
Hannesson, formaður klúbbsins, og
svæðisstjóri Lions sem afhenti Sig-
urði Ingvarssyni oddvita búnaðinn.
Róbert Aron Ólafs, ungur piltur í
hjólastól, kveikti síðan fonnlega á
ijósunum.
Þrettán manns eru í lionsklúbbn-
um um þessar mundir. Helztu
tekjuleiðir lionsmanna eru að reka
útfararþjónustu sem er 10 ára um
þessar mundir. Þeir eiga þrjá lík-
bfla, þar af eru tveir af gerðinni Ca-
dillac árgerð 1975 sem þeir keyptu
fyrir vestan og fluttu sjálfir inn.
Lionsmenn leggja mesta áherzlu á
yngri borgarana í bænum. Þeir hafa
t.d. gefið öllum 7 ára börnum
hjálma undanfarin ár.
Þá má og geta þess að einnig er
starfandi klúbbur yngri lionsmanna,
Leoklúbburinn Siggi, en hann var
fyrsti klúbburinn sem stofnaður var
á Islandi. Einnig má geta þess að í
sumar fer ung stúlka, Hafrún Ægis-
dóttir, á vegum Lions í unglinga-
búðir til Hollands í einn mánuð.
Lions borgar fyrir hana farið og
uppihald og einnig fær hún ein-
hverja vasaaura.
Kiwanisklúbburinn
Hof kaupir húsnæði
I Garðinum er einni starfandi
Kiwanisklúbburinn Hof. Þeir félag-
ar festu kaup á húsnæði nú um ára-
mótin, keyptu neðri hæð, um 130
fm, af Sveini Björnssyni í Heiðar-
túni 4.
Málið hafði nokkurn aðdraganda.
I bænum er kröftugt skátafélag
sem ber nafnið Bergbúar og eru
starfandi skátar milli 40 og 50. Þeir
fóru þess á leit við kiwanismenn að
þeir aðstoðuðu sig við að fá einhvers
staðar inni í bænum. Þessum þreif-
ingum lauk með því að kiwanismenn
keyptu sér aðstöðu sem nýtist bæði
þeim og skátunum. Nú er unnið að
því að standsetja húsnæðið og hafa
skátamir og aðstandendur þeirra
lagt virka hönd á plóginn við að
koma húsnæðinu í það horf sem
hentar félögunum.
Helzta fjáröflun kiwanisklúbbsins
gegnum tíðina hefur verið flugelda-
sala. Kiwanismenn koma víða við. Má
t.d. nefna að þeir gefa yngstu borgur-
unum endurskinsborða og stangir og
veifur á reiðhjólin. Þá fær björgunar-
sveitin Ægir veglega styrki frá þeim
ár hvert og einstaklingar sem lenda í
veikindum eða erfiðleikum eru
styrktir. Félagar í kiwanisklúbbnum
Hofi eru nú fjórtán.
ARSFUNDUR 1999
verður haldinn 25. mars 1999, kl. 17:15 í Þingsal 1, Hótel Loftleiðum.
Dagskrá:
1. Fundarsetning.
2. Skýrsla stjórnar.
3. Ársreikningur 1998.
4. Tillögur um breytingar á samþykktum ALVlB.
5. Kynning á Ævisöfnum ALVÍB.
6. Onnur mál.
Þeim sjóðfélögum sem vilja kynna sér tillögur um breytingar á reglugerð ALVÍB
er bent á að hægt er að nálgast reglugerðina á eftirfarandi hátt.
1. Reglugerðin er fáanleg hjá VÍB, Kirkjusandi.
2. Hægt er að fá reglugerðina senda. Hafið samband við VÍB í síma 560 8900.
3. Hægt er að fletta upp á reglugerðinni á vefnum*, slóð http://www.vib.is
* Undir lífeyrismálum.
Sjóðfélagar eru hvattir til að mæta á fundinn.
REKSTRARAÐILI:
Verðbréfamarkaður íslandsbanka hf. • Aðili að Verðbréfaþingi íslands,
Kirkjusandi, 155 Reykjavík. Sími: 560-8900. Myndsendir: 560-8910.