Morgunblaðið - 11.03.1999, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ
UR VERINU
FIMMTUDAGUR 11. MARZ 1999 19
moQO ooooo ooooo nuot
Norðmenn hafa áhyggjur af smáfískadrápi Rússa í Barentshafí
Sameiginlegiir stofn
en ólík veiðistiórnun
NORÐMENN og Rússar eiga
þorskstofninn í Barentshafi sam-
eiginlega og bæði ríkin vilja nýta
hann skynsamlega til að koma í
veg fyrir miklar sveiflur. Gallinn er
bara sá, að þau líta ekki sömu aug-
um á málið, hvorki hvað varðar lág-
marksstærð fisksins né möskva-
stærð í trolli. Afleiðingin er auðvit-
að sú, að fiskveiðistjórnunin missir
marks að sumu leyti.
Norðmenn ákváðu einhliða, að
ekki mætti veiða smærri þorsk en
47 sm langan en tilraunir þeirra til
að fá Rússa til að taka þá reglu upp
hafa engan árangur borið. Rússar
segja, að eðlileg lágmarksstærð í
rússneskum hluta Barentshafsins
sé 42 sm en þar heldur smáfiskur-
inn sig aðaUega.
Arum saman var reynt að kom-
ast að sameiginlegri niðurstöðu um
möskvastærð í trolli en þegar útséð
var um það ákváðu Norðmenn að
auka möskvastærðina í 135 mm
innan sinnar lögsögu og á verndar-
svæðinu við Svalbarða. Rússamir
héldu hins vegar fast við sína 126
mm í sinni lögsögu en fóru þó eftir
norsku reglunum í norsku lögsög-
unni.
Norðmenn vernda, Rússar veiða
Vegna þessa samstöðuleysis
ákváðu Norðmenn að bjóða Rúss-
um að taka stóran hluta af kvóta
sínum innan norsku lögsögunnar
þar sem fiskurinn er stærri og í
þeim tilgangi iyrst og fremst að
hlífa smáfiskinum í rússnesku lög-
sögunni. Voru báðir aðilar ánægðir
með þetta fyrirkomulag, sem gekk
líka vel þar til fyrir um einu ári. Þá
flutti smáfiskurinn sig mikið vestur
Nýtt skip
í V ogana
ÚTGERÐARFYRIRTÆKIÐ
Valdimar ehf. í Vogum á Vatns-
leysuströnd hefur fest kaup á 41,2
metra línubát sem búinn er línu-
beitningavél og tækjum til að
heilfrysta aflann um borð. Bátur-
inn er smíðaður í Noregi og er
með Callesen-aðalvél. Afhending-
artími er áætlaður fyrripart apríl-
mánaðar.
Valdimar ehf. gerir í dag út 3
skip, ísfisktogarann Þuríði Hall-
dórsdóttur GK, dragnótabátinn
Dagnýju GK en nýja skipið mun
leysa af hólmi netabátinn Agúst
Guðmundsson GK sem er að verða
40 ára gamall. Þá rekur Valdimar
ehf. fiskverkun og htið frystihús í
Vogum og vinna um 70 manns hjá
fyrirtækinu, bæði til lands og sjós.
--------------------
Sjávarút-
vegsfundur
í Brussel
SENDIRÁÐ íslands í Brussel,
sjávarútvegsráðuneytið og Út-
flutningsráð íslands standa fyrir
árlegum fundi um sjávarútvegs-
mál í Brussel, í tengslum við sjáv-
arútvegssýninguna European
Seafood Exposition og Seafood
Processing Europe, sem haldin er
20-22. apríl nk.
Á fundinum verður rætt um
sjávarútvegsmál frá ýmsum hlið-
um og má þar nefna málefni eins
og þróun Evrópusambandsins og
stækkun þess, sóknarfæri fyrir lít-
il og meðalstór sjávarútvegsfyrir-
tæki, heilbrigðisreglur ESB;
hvaða reglur gilda við innflutning
jiriðju ríkja á sjávarafurðum?
Hverjir mega flytja inn? og hags-
munavarsla íslenskra fyrirtækja
innan EES svæðisins.
Fundurinn verður haldinn á
Hotel Metropole í Bourgmestres
salnum og stendur frá kl. 19-20.
yfir í norsku lögsöguna og Norð-
menn brugðust við með því að loka
stórum hlutum sinnar lögsögu í
Barentshafi og við Svalabarða fyrir
trollveiðum. Þegar svo var komið
fluttu Rússar sig aftur yfir i sína
lögsögu þar sem þeir miða við 42
sm og 126 mm möskva. Norsku
togararnir, sem höfðu aðgang að
rússnesku lögsögunni, gerðu það
sama og fóru að stunda það, sem
norsk yfirvöld kalla ólöglegt smá-
fiskadráp, en er leyfilegt sam-
kvæmt rússnesku reglunum.
Útkoman var því sú, að reglur
Norðmanna um lágmarksstærð og
lokun miða vegna smáfisks ollu í
raun enn meiri veiði á enn smærri
fiski í rússnesku lögsögunni.
Norðmenn og Rússar eru líka
sammála um, að nota skuli skilju
eða rist í þorsktrollinu en Rússar
fengu fyrst undanþágu frá því
vegna slyss, sem varð um borð í
rússneskum togara í vondu veðri,
en síðan hafa þeir einfaldlega kom-
ið sér undan því að nota hana.
Minnkandi þorskgengd
Fréttir um miklar landanir á
smáþorski valda Norðmönnum
verulegum áhyggjum enda skýra
fiskifræðingar frá því á sama tíma,
að þorskgengd í Barentshafi fari
minnkandi. Þeir munu að sjálf-
sögðu reyna að hlífa smáfiskinum
innan sinnar lögsögu með lokunum
en vandamálið er, að það breytir
engu um smáfiskadrápið í rúss-
nesku lögsögunni. Norðmenn eiga
því úr vöndu að ráða og eina vonin
er sú, að Rússar sýni meiri samn-
ings- og samstarfsvilja frammi fyr-
ir niðursveiflunni, sem nú virðist
eiga sér stað í Barentshafi.
(Heimild: Fiskeribladet)
^rTyffl i f i aHU
ITJ ♦ X hE f 1 k' 1 9
anlagerinnmeð allt að
fyosshátsi og þv. seljum v,ð
ipnpsMg'
M I U M U E
Úlpur frá kr. 4.950
Öndunarflíkur frá kr. 7.450
Hettupeysur frá kr. 1.990
Allir bolir frá kr. 650
Pólóbolir frá kr. 745
Sundbolir frá kr. 59!
Joggingbuxur frá kr. 75(
Kakíbuxur frá kr. 1.9901
Veiðivesti frá kr. 1.990
Golfhanskar frá kr. 690
Barnajoggingbuxur frá kr. 690
2 stk. barna pólóbolir kr. 990
Barna-fleecepeysur frá kr. 1.990
Rrussell AColumbia
ATHLETIC "V Spartowcar Company*
TY^ [ g i l d a m a r x ]
Opid í dag
11-18
Opið föstud. kl. 11-11
tdskur
30-50%
afsláttur
HREYSTI
----sportvömnus
Fosshálsi 1 - Sími 577-5858