Morgunblaðið - 11.03.1999, Side 20
20 FIMMTUDAGUR 11. MARZ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
ÚR VERINU
Greinir á um sölu
Stærstu hluthafarnir í Haraldi Böðvarssyni hf.
Þeir 22 hluthafar sem eiga meira en 1% hver
1. Burðarás hf. 10,16%
2. Grandi hf. 9,89%
3. Ólafur B. Ólafsson 6,58%
4. Jón Ægir Ólafsson 6,39%
5. Gunnar Þ. Ólafsson 6,38%
6. flsgeir B. Ólafsson 7. Skeljungur hf. 4,80% 4,54%
8. Rannveig Böóvarsson 9. Nafta hf. (Olís) 4,52% 3,85%
10. Tryggingamiðstöðin hf. 11. Haraldur Sturlaugsson 12. Sturlaugur Sturlaugsson 13. Matthea Kr. Sturlaugsd. 3,61% 1,91% 1,57% 1,45%
14. Þróunarfélag íslands 15. Lífeyrissj. Framsýn 16. Hlutabréfasjóðurinn hf. 1,42% 1,38% 1,37%
17. Lífeyrissj. Norðurlands 1,34%
18. VÍB sjóður 6 1,33%
19. Helga 1. Sturlaugsdóttir 20. Sveinn Sturlaugsson 21. ísi. hlutabr.sjóðurinn hf. 1,32% 1,28% 1,20%
22. íslenski fjársjóðurinn hf. 1,04%
Fjöldi hluthafa 31. des. 1998: 1.123
Ekki gert ráð
fyrir átökum
EKKI virðist sem átaka sé að
vænta innan stjórnar Haraldar
Böðvarssonar, þrátt fyrir ágrein-
ing innan stjórnar fyrirtækisins
um sölu hlutabréfa þess í SH til
Róberts Guðfinnssonar og félaga.
Ólafur B. Ólafsson og bræður hans
eiga um fjórðung hlutafjár og eiga
tvo menn í stjórn. Þeir voi-u and-
vígir sölunni og höfðu jafnframt
áhuga á kaupum á bréfunum, en
ekkert varð úr því.
Ólafur segir að nokkur trúnað-
arbrestur hafi orðið á milli sín og
formanns stjórnar og fram-
kvæmdastjóra HB en vill ekki tjá
sig um hugsanleg eftirmál. Har-
aldur Böðvarsson, framkvæmda-
stjóri HB, segist ekki eiga von á
öðru en menn muni halda góðu
samstarfi áfram eins og í þau 92
ár, sem liðin eru frá stofnun fyrir-
tækisins. Fullti-úar olíufélaganna
OLÍS og Skeljungs búast heldur
ekki við eftirmálum vegna sölunn-
ar en þeir höfðu ekki afskipti af þvf
hverjum bréfin voru seld.
Ólafur B. Ólafsson
Betra að ávaxta
bréfín frekar
„ANDSTAÐA mín við sölu hluta-
bréfa HB í SH til Róberts Guð-
finnssonar og félaga mótaðist ekki
af því að ég myndi þá falla út úr
stjóm SH. Mér fannst einfaldlega
að það gæfi meiri
verðmæti að halda í
þau, en selja. Nýta þau
til ávöxtunar og síðan í
fjárfestinguna vegna
skipakaupa og annarr-
ar uppbyggingar,"
segir Ólafur Baldur
Ólafsson, stjómarmað-
ur í HB og fyrrverandi
varaformaður stjómar
SH, í samtali við
Morgunblaðið.
Ólafur B. Ólafsson
hefur setið í aðal-
stjórn SH lengur en
nokkur annar, eða frá
1978. Síðustu 11 árin
hefur hann verið vara-
formaður Jóns Ingvarssonar.
Ólafur er einnig einn af stærstu
hluthöfunum í Haraldi Böðvars-
syni hf, en hann og bræður hans
eiga samtals um 25% hlutafjár í
fyrirtækinu.
Ólafur var eindreginn stuðnings-
maður Jóns Ingvarssonar í stjóm-
arkjörinu og var andvígur sölu
bréfanna til Róberts Guðfinnsson-
ar. Ólafur segir að vissulega hefði
verið heimild til sölu bréfanna,
enda hefði því verið lýst yfir að þau
væm til sölu, meðal annars til að
fjármagna skipakaup. Skoðun hans
hefði hins vegar verið sú, þegar til-
boðið frá Róbert og félögum hefði
borizt, að réttara hefði verið að
bíða og láta bréfin
ávaxtast því það væri
aðeins spurning um
tíma hvenær gengi
þeirra hækkaði. Á
meðan hefði mátt fjár-
magna skipakaupin
með lánsfé.
„Við vomm reynd-
ar líka tilbúnir að
kaupa bréfin sjálfir,
en formaður stjórnar
og forstjóri höfðu
heimild til sölu þeirra
og tóku þá ákvörðun
að selja,“ segir Ólaf-
ur. „Þeir mátu það
svo að með þessu móti
fengist hæsta verðið
og því hagstæðast fyrir fyrirtækið
að selja bréfin. Eg neita því alls
ekki að salan var mér á móti skapi
og segja má að fyrir vikið hafí
orðið nokkur trúnaðarbrestur á
milli mín og þeirra sem þarna
réðu ferðinni. Ég er hins vegar
ekki tilbúinn að tjá mig um hver
framvindan verður á næstunni og
hvort þetta hefur neikvæð áhrif á
samstarf okkar. Það verður bara
að koma í ljós,“ segir Ólafur Bald-
ur Ólafsson.
Ólafur B. Ólafsson
NÆR öll hlutabréf Haraldar Böðvarssonar hf. í Sölumiðstöðinni hafa nú verið seld. Ekki var samstaða meðal
eigenda fyrirtækisins um söluna.
„Ákváðum að selja með
hag HB að leiðarljósi“
„ÞAÐ sem vakti fyrir okkur með
sölu hlutabréfa okkar í SH, var að
færa þessar fjárhæðir inn í fyrir-
tækið og atvinnulífið á Akranesi og
í Sandgerði. Það vakti alls ekki fyr-
ir okkur að hafa áhrif á
formannskjör hjá Sölu-
miðstöðinni. Við feng-
um mjög gott tilboð í
hlutabréfin, kannski á
óheppilegum tíma, en
með hag Haraldar
Böðvarssonar hf. að
leiðarljósi ákváðum við
að selja Róberti Guð-
finnssyni og félögum
bréfin," segir Haraldur
Sturlaugsson, fram-
kvæmdastjóri HB hf., í
samtali við Morgun-
blaðið.
„Fyrirtækið hefur
að undanförnu verið í
mikilli þróun, samein-
ingum, uppstokkunum
og fjárfestingum," segir Haraldur.
„Mikið þróunarstarf hefur einnig
átt sér stað. Við erum að reisa
loðnuþurrkunarverksmiðju í
Sandgerði og stöndum í mikilli
þróun fiskafurða, meðal annars
með Islenzk-frönsku eldhúsi á
Akranesi og höfum að auki byggt
nýja fiskimjölsverksmiðju. Við er-
um einnig að endurnýja skipastól-
inn og í haust ákváðum við að
kaupa tvö ný skip, erum að láta
smíða skip í Chile og keyptum
annað nýtt frá Noregi, sem kom
til landsins í janúar. Það er Óli í
Sandgerði AK 14.
Þegar við sömdum um kaup á
þessum nótaskipum gáfum við út
fréttatilkynningu 7. október, þar
sem við tilkynntum þær ákvarðan-
ir. Þar segjum við að áætlað sé að
fjármögnun þessara
skipa verði að mestu
mætt með sölu eigna
og að viðbótar skuld-
setning fyrirtækisins
vegna þessara kaupa
verði ekki umfram
250 til 300 milljónir á
hvort skip.
Hafa selt eignir fyr-
ir meira en milljarð
Á þessum tíma höf-
um við verið að selja
eignir, hlutabréf og
skip, fyrir á annan
milljarð með þessari
síðustu sölu. I desem-
ber síðastliðnum seld-
um við hlutabréf okk-
ar í Olíufélaginu og Tryggingamið-
stöðinni fyrir á annað hundrað
milljóna. Frá því í október höfum
við verið að þreifa fyrir okkur með
sölu hlutabréfanna í SH og menn í
þessum geira hafa vitað að við
hefðum áhuga á að selja. Það hefur
hins vegar ekki verið mikil eftir-
spurn eftir bréfunum og gengið
frekar lágt. Þama er um mikla
fjármuni að ræða og í þessari upp-
stokkun okkar höfum við talið
nauðsynlegt að hafa þessi verð-
mæti inni í fyrirtækinu. Með sölu
hlutabréfanna í SH erum við að
færa 470 milljónir inn í fyrirtækið
Haraldur
Sturlaugsson
og þar með inn í atvinnulífið á
Akranesi og í Sandgerði.
Full samstaða
um sölu eigna
Það var full samstaða meðal
stjómarmanna og hluthafa um það
að selja þyrfti eignir á móti aukn-
um fjárfestingum. Það var hins
vegar óheppilegt að tilboðið í bréf-
in skyldi koma nokkmm klukku-
tímum fyrir aðalfundinn. Það er oft
þannig að mikil spenna myndast
fyrir þessa fundi, sérstaklega þeg-
ar mikil gerjun er í gangi. Við stóð-
um frammi fyrir ákveðnum hlutum
og þetta æxlaðist einfaldlega
svona,“ segir Haraldur.
Hefur þetta einhver áhrif á af-
stöðu ykkar til SH?
„Fyrirtæki okkar hefur selt í
áratugi í gegnum Sölumiðstöð
hraðfrystihúsanna. Aðalatriðið hjá
okkur hefur verið að vera góðir
framleiðendur og það verðum við
áfram. Við höfum alla tíð stutt þá,
sem verið hafa við stjórnvölinn hjá
SH hverju sinni, og það munum við
gera áfram. Við verðum áfram
hluthafar í Sölumiðstöðinni og
höldum áfram að selja afurðir okk-
ar í gegnum hana,“ segir Haraldur.
Aðspurður telur Haraldur að þó
ágreiningur hafi verið milli stórra
hluthafa um sölu bréfanna, að hann
muni ekki hafa áhrif á samstarf
þeirra innan fyrirtækisins. „I HB
hafa menn geta talað saman í 92 ár
eins og í góðu hjónabandi. Ég á alls
ekki von á að þar verði breyting á,“
segir Haraldur Sturlaugsson.
Eftirmál talin ólíkleg
FRAMKVÆMDASTJÓRAR olíu-
félaganna, OLÍS og Skeljungs, í
stjórn HB gera ekki ráð fyrir eftir-
málum innan fyrirtækisins eftir söl-
una á hlutabréfum þess í SH til Ró-
berts Guðfinnssonar og félaga. Þeir
segja að formaður stjómar og fram-
kvæmdastjóri hafi haft heimild
stjórnar til sölu bréfanna. Þeir sem
stjómarmenn hafi veitt þeim slíkt
umboð á sínum tíma, en ekki á
nokkum hátt haft afskipti af því
hverjum bréfin yrðu seld.
Einar Benedilrtsson, fram-
kvæmdastjóri OLIS, segist ekki
gera ráð fyrir því að salan á hluta-
bréfum Haraldar Böðvarssonar til
Róberts Guðfinnssonar og félaga
eigi eftir að draga dilk á eftir sér
hvað varði starfsemi HB. Formaður
stjómar og framkvæmdastjóri hafi
haft heimild stjórnar til sölu hluta-
fjárins. Það geti komið fyrir að
menn greini á og meirihluti taki
ákvörðun andstæða minnihluta.
Slíkt þurfi ekki að hafa nein eftir-
köst í för með sér og hann búist
ekki við neinu slíku nú.
Með hagsmuni
HB fyrir augum
„Það vildi þannig til að þetta
gerðist að hluta til í þessu húsi hér,“
segir Kristinn Björnsson, fram-
kvæmdastjóri Skeljungs hf. og
stjórnarmaður í HB. „Klukkan 10 á
þriðjudagsmorgun stóð yfir stjórn-
arfundur í Skeljungi, þar sem verið
var að skrifa undir reikninga fyrir
síðastliðið ár. Þar mættu meðal
annarra framkvæmdastjóri og
stjómarmaður í Haraldi Böðvars-
syni. Gunnar Þór Ólafsson hefur
verið hér í stjórn í áratugi og Har-
aldur Sturlaugsson líka. Þannig
varð það úr að ég og fleiri, sem
koma að fyrirtækinu, komu til fund-
ar hér í húsakynnum Skeljungs og
var farið yfir hlutina. Mér finnst svo
skammur tími liðinn frá, að ég átta
mig ekki á því hvort þetta muni
hafa einhver eftirmál. Ég efast ekk-
ert um það, að þeir sem sjá um dag-
legan rekstur á Haraldi Böðvars-
syni hf. voru að gera það sem þeir
töldu HB fyrir beztu. Þeir voru að
selja eignir á hæsta mögulegu verði
og ég tek orð þeirra góð og gild um
að þetta hafi verið gert með hags-
muni fyrirtækisins fyrir augum.
En auðvitað hefur þetta víðfeðm
áhrif á það hvemig aðalfundur Sölu-
miðstöðvarinnar þróaðist. Hvort
það hafi svo einhver eftirmál í fór
með sér, treysti ég mér ekki til að
meta á þessu stigi.
Ég hafði á sínum tíma samþykkt
að bréfin yrðu seld og fram-
kvæmdastjóra yrði síðan falið að fá
fyrir þau bezta fáanlegt verð. Það
var afstaða mín á þeim tíma og hún
lá Ijós fyrir löngu áður en ljóst lá
fyrir hvernig framboðsmál myndu
skipast á aðalfundi SH. Ég var bú-
inn að ítreka það við framkvæmda-
stjórann að hann hefði samþykki
mitt fyrir sölu bréfanna. Ég tók
enga afstöðu til þess hverjum bréf-
um yrðu seld,“ segir Kristinn
Björnsson.