Morgunblaðið - 11.03.1999, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
Bók aldarinnar
Morgunblaðið/Kristinn
BESTA íslenska bók aldarinnar verður valin af
landsmönnuni dagana 12. til 21. mars: „Vafa-
laust telja margir sig vita hvaða bækur verða í
efstu sætum hér heima en flóran er mikil og fjöl-
breytt og því aldrei að vita hvað kemur upp úr
kössunum á Degi bókarinnar."
BÓK ALDARINNAR á íslandi
verður valin dagana 12. til 21. mars
næstkomandi. Allir landsmenn geta
tekið þátt en atkvæðaseðlar verða
birtir í dagblöðum á morgun, föstu-
dag. Atkvæðaseðlar munu einnig
liggja frammi í öllum bókasöfnum
og bókabúðum landsins sem jafn-
framt taka við seðlunum. Enn frem-
ur er hægt að greiða atkvæði á vef-
bókasafninu en þar er slóðin
www. vefbokasafn.is.
Hver og einn þátttakandi getur
valið þrjár bækur sem hann raðar í
fyrsta, annað og þriðja sæti en bæk-
umar verða að vera skrifaðar af ís-
lenskum höfundi og gefnar út á
þessari öld. Niðurstaða könnunar-
innar verður tilkynnt á Degi bókar-
innar, 23. apríl næstkomandi.
Búist við mikilli þátttöku
Anna Elín Bjarkadóttir, stjórn-
armaður í Bókasambandi íslands
sem stendur fyrir vali á bestu bók
aldarinnar, segir í samtali við
Morgunblaðið að markmiðið með
valinu sé fyrst og fremst að beina
athygli að bókum og bóklestri.
„Auðvitað er þetta til gamans gert
í aðra röndina en við væntum þess
einnig að töluverð umræða muni
spinnast um íslenskar bókmenntir
á öldinni. Það er ekki ólíklegt að
umræðan verði fjörug þegar bóka-
þjóðin sjálf fer að velta fyrir sér
hvaða bók sé í raun og veru sú
besta á öldinni. Þegar horft er yfir
sviðið er úr mörgum stórvirkjum
að velja. Það skal haft í huga að
hér er ekki aðeins verið að velja
um skáldverk heldur bækur af öllu
tagi, ævisögur, fræðirit, bækur al-
menns efnis og svo framvegis.
Vafalaust á sitthvað eftir að koma á
óvart eins og raunin hefur orðið í
svipuðum könnunum í öðrum lönd-
um. Það er til dæmis spennandi að
sjá hvaða bækur eru íslenskum
börnum og ungmennum efst í
huga.“
Anna Elín sagði að Bókasam-
bandið byggist við góðri þátttöku en
allt hefði verið gert til þess að auð-
velda hana. ,Ailir, bæði ungir og
aldnir, eru hvattir til þess að greiða
atkvæði í könnuninni. Því fleiri sem
taka þátt, þeim mun marktækari
verður niðurstaðan."
Aðspurð segir Anna að rétt hafi
þótt að gefa landsmönnum öllum
kost á að velja bók
aldarinnar í stað
þess að láta ein-
hverja útvalda
spekúlanta um valið
eins og gert var í
frægri Random
House-könnun á
síðasta ári. „Könn-
un með þessu sniði
fór fram í Svíþjóð á
síðasta ári og tókst
mjög vel. Niður-
stöður hennar
komu ýmsum á
óvart en það var
skáldsagan Vestur-
faramir eftir Vil-
helm Moberg sem
valin var bók aldar-
innar þar. Lína
Langsokkur eftir
Astrid Lindgren
var í öðru sæti en
Lindgren átti líka
bækurnar sem urðu
í þriðja, sjötta, átt-
unda og níunda
sæti. Selma La-
gerlöf varð einnig
ofarlega í könnun-
inni, Göran Tunström og fleiri.
Vafalaust telja margir sig vita
hvaða bækur verða í efstu sætum
hér heima en flóran er mikil og fjöl-
breytt og því aldrei að vita hvað
kemur upp úr kössunum á Degi
bókarinnar."
Að Bókasambandi íslands standa
Rithöfundasamband íslands, Félag
íslenskra bókaútgefenda, Félag
bókagerðarmanna, Samtök gagn-
rýnenda, Samtök iðnaðarins, Hag-
þenkir - Félag höfunda fræðirita og
kennslugagna og Bókavarðafélag
Islands.
Til hvers?
KVIKMYNPIR
Iláskólabfó
PSYCHO, (‘98)
irk
Leikstjóri Gus Van Sant. Handrits-
höfundur Joseph Stefano e. sögu
Roberts Bloch. Kvikmyndatöku-
stjóri Christopher Doyle. Tónskáld
Bernard Herrmann. Aðalleikendur
Vince Vaughn, Anne Heche, Juli-
anne Moore, Viggo Mortensen,
William H. Macy, Chad Everett,
Philip Baker Hall. 109 mín. Banda-
rísk. Universal 1998.
ÞAÐ fyrsta sem kom upp í
hugann er þær ótrúlegu fréttir
bárust að Hollywood væri að end-
urgera Psycho, var einfaldlega, til
hvers? Myndin sem Hitehcock
gerði á milli stórmyndanna North
By Northwest, (‘59) og The Birds,
(‘63), átti reyndar aldrei að verða
annað en smábrandari, gerður
fyrir skiptimynt. Það fór á annan
veg. Smámyndin varð umsvifa-
laust sígild og svo vinsæl að hún
færði leikstjóranum mest í vas-
ann - og að líkindum mesta frægð
um allan heim.
A yfirborðinu hefur fátt
breyst annað en að atburðarásin
er færð fram til samtímans, and-
litin ný og ‘98-útgáfan er í lit.
Sagan mikið til óbreytt. Marion
Crane (Ann Heche), stenst ekki
freistinguna, og rænir 400 þús-
und dölum í reiðufé frá við-
skiptavini húsbónda síns. Stúlk-
an áir loks á afskekktu vega-
móteli, reknu af Norman Bates
(Vince Vaughn) og dularfullri
„móður“ hans. Ferð Marion
verður ekki lengri, hún hverfur
sjónum samferðamanna. Einka-
spæjari (William H. Macy)
kemst á sporið og í kjölfar hans
kærasti Marion (Viggo Morten-
sen) og systir hennar (Julian
Moore). Ef einhver þekkir ekki
frægasta söguþráð hryllings-
myndasögunnar, er ekki rétt að
fara lengra.
Leikstjórinn, Gus Van Sant,
hefur lagt á það áherslu að
myndin sé eftirlíking, ekki end-
urgerð. Það má til sanns vegar
færa. Myndavélinni er oftast
beitt frá sömu sjónarhornum,
framvindan tíunduð í smáatrið-
um, gömlu titlarnir eru meira að
segja til staðar. Og tónlistin hans
Bernards Herrmann lúrir yfir og
allt um kring og er reyndar það
eina sem tekur gömlu myndinni
fram. Hljóðið er vitaskuld mikl-
um mun betra og drungaleg tón-
listin nýtur sín sem aldrei fyrr
undir hljóðstjórn Dannys
Elfrnan. Allt annað er unnið fyrir
gýg og færir mönnum heim
sanninn um að láta eigi gömul
listaverk í friði. Það fer einfald-
lega enginn í fotin hans
Hitchcocks.
Psycho, (‘98) vaknar aldrei til
lífsins. Gus Van Sant, sá snjalli
kvikmyndagerðarmaður, stend-
ur uppi með steingelda mynd,
eftirlíkingu, eða endurgerð,
hvort sem hann vill hafa það. A
Perfect Murder, (‘98), hroð-
virknisleg en ekki alfarið vond
eftiröpun Dial M For Murder,
(54), reyndist mun betri afþrey-
ing. Psycho verður aldrei annað
en blóðlaus spegilmynd, þrátt
fyrir litina. Leikararnir, allir
sem einn, hjálpa ekki uppá sak-
irnar - jafnvel þó þeim sé hlift
við samanburðinn við Perkins,
Leigh, Balsam, og þau öll. Út-
koman örlítið forvitnileg mistök
á mistök ofan fyrir aðdáendur
Hitch, ungum gestum ráðlegg ég
eindregið að leigja gamla meist-
araverkið og fá ósvikna gæsa-
húð.
Sæbjörn Valdimarsson
Casares
Einn af bók
menntajöfr-
um Argen-
tínu látinn
Buenos Aires. Reuters.
ARGENTÍNSKI rithöfundurinn
Adolfo Bioy Casares lést á
mánudag, áttatíu og fjögurra ára
að aldri. Varð hjarta- og
lungnabilun honum að aldurtila,
að sögn argentínskra fjölmiðla.
Casares var þekktur fyrir verk
eins og Morel’s Invention, en
fyrir hana fékk hann spænsku
Cervantes-verðlaunin árið 1991,
og bókina Diary of The War of
the Pig. Hann ritaði einnig
smásagnasafn í samvinnu við
rithöfundinn þekkta Jorge Luis
Borges, en þeir Borges og
Casares voru góðvinir frá
barnæsku. Það var einmitt
Borges og annar rithöfundur,
Silvina Ocampo, sem töldu
Casares á að segja skilið við
heimspekinám sitt og helga sig
bókmenntaskrifum. Casares
gekk síðan að eiga Ocainpo árið
1940.
FIMMTUDAGUR 11. MARZ 1999 25
Fyrstu 300
sem panta miða
á Hatt og Fatt,
Nú er ég hissa!
fá ávísun á
geisladiskinn
úr sýningunni sem er
væntanlegur
eftir tvær vikur.
Forsala
aðgöngumiða
hefst í dag!
Sýningar:
Miðvikudaginn 17. mars
kl. 18.00 frumsýning
Sunnud. 21. mars kl. 14.00
Laugard. 27. marz kl. 14.00
|pft
kasIáONm
Miðasölusími 552 3000
Glænýr,fjörugur og íslenskur söngleikur
fyrir börn eftir Ólaf Hauk Símonarson.
fieir sem voru börn á milli 1970 og 80 muna eftir lögum eins og:
Ryksugulagið
Það vantar spýtur og það vantar sög
Ég heyri svo vel
Eniga meniga
O.fl. o.fl.
Nú er kominn tími til að börnin þeirra fái að njóta þeirra í nýjum
útsetningum Margrétar Örnólfsdóttur í líflegum söngleik á sviði
Loftkastalans.