Morgunblaðið - 11.03.1999, Qupperneq 28
28 FIMMTUDAGUR 11. MARZ 1999
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Einkasýningar þriggja listamanna í Nýlistasafninu
Væntingar, sjónmál
og kyrralífsmyndir
f NÝLISTASAFNINU við Vatns-
stíg standa yfír þrjár einkasýning-
ar. Þar sýna listamennirnir Rósa
Gísladóttir, Ragnheiður Ragnars-
dóttir og ívar Brynjólfsson kyiTa-
lífsmyndir, innsetningu og ljós-
myndir. Sýningamar eru opnar
daglega kl. 14-18 og þeim lýkur 28.
mars.
Morgunblaðið/Kristinn
SÝNING Rósu Gísladóttur í
Forsal og Gryfju ber yfirskrift-
ina „Kyrralífsmyndir - án titils
- nokkrar tilraunir um form“.
Verkin, sem eru þrívíðar upp-
stillingar úr gifsi, eru unnin á
síðustu fjórurn árum. Rósa seg-
ist tefla saman líkum og ólíkum
hlutum til þess að kanna hvern-
ig einn hlutur kallist á við ann-
an. „Markmiðið er að koma á
fullkomnu innbyrðis jafnvægi á
milli verkanna."
SJÓNMÁL nefnist sýning Ragnheiðar Ragnarsdóttur í Bjai-ta og
Svarta sal. Verkið er innsetning, þar sem hún tekst á við afmarkanir og
opnun, og smíðar sér leið til að tengjast umhverfinu. „List mín fjallar
um leið mína til að takast á við lífið. Eg horfi í gegnum möskva raun-
veruleikans, myrkrið milli mín og hinna, svarbláan strúktúr sem opn-
ast hér og þar, hleypir ljósi og lit í gegn. Gangverkið fær dýpri hljóm.“
SÝNING ívars Brynjólfssonar, „Væntingar", er í Súm-sal. Verkin á
sýningunni eru að hans sögn heimildir um „raunveruleikann" eins og
hann birtist á ofurvenjulegum stöðum.
Æílngar hafnar
á Hatti og Fatti
HJÁ Loftkastalanum standa nú yfír
æfingar á söngleiknum Hattur og
Fattur, nú er ég hissa, eftir Ólaf
Hauk Símonarson.
Hatt leikur Guðmundur Ingi Þor-
valdsson og Felix Bergsson leikur
Fatt.
Söngleikurinn verður frumsýnd-
ur miðvikudaginn 17. mars.
-----------------
Jóhanna Stef-
ánsdóttir sýnir í
Arskógum
NÚ stendur yfír
sýning á málverk-
um eftir Jóhönnu
Stefánsdóttur í fé-
lagsmiðstöð
Reykjavíkur, Ár-
skógum 4.
Á sýningunni eru
39 vatnslitamyndir
sem flestar eru
unnar á þessu ári.
Jóhanna stund-
aði nám í Myndlista- og handíðaskól-
anum árin 1986-90 og útskrifaðist úr
Textíldeild.
Sýningin er opin frá kl. 9-17 alla
virka daga og stendur til 22. mars.
Jóhanna
Stefánsdóttir
Síðustu
N óbelsdraumar
ÚR Nóbelsdraumum.
SÍÐUSTU sýningar
á leikritinu Nóbels-
draumum eftir Árna
Hjartarson verða á
morgun, föstudag og
laugardag í Mögu-
leikhúsinu við
Hlemm.
Skoðað er gang-
virki í leikhúsi sem
er í kröggum. Við-
skiptafræðingur er
fenginn til að bæta
sætanýtinguna og
honum til aðstoðar
(!) leikstjóraglæsipía
sem sótt hefur frama
sinn til útlanda, svo
og skáld sem er búið að vera fullt svo
lengi að það er orðið tómt. Meðal leik-
ara hússins er ekki allt sem sýnist og
stundum stangast á ímyndun og
veruleiki.
Leikstjóri: Sigrún Valbergsdóttir.
Söngstjóri: Þórunn Guðmundsdóttir.
Helstu leikendur: Jóhann Snorrason,
Arnar Hrólfsson, Berglind Steins-
dóttir, Þórunn Guðmundsdóttir, Jó-
hann Hauksson, Einai- Einarsson,
Unnar Unnarsson, Ylfa Helgadóttir,
Sesselja Traustadóttir, Hrefna Frið-
riksdóttir.
Ljóð frá íslandi
í NÝJASTA tölublaði bandaríska
ljóðatímaritsins VISIONS (nr. 59)
er stór hluti helgaður íslenskum
Ijóðum undir fyrirsögninni Ljóð
frá íslandi. Birt eru ljóð eftir
skáldin Gyrði Elíasson, Stefán
Hörð Grímsson, ísak Harðarson,
Jóhann Hjálmarsson, Njörð P.
Njarðvík, Sigurð Pálsson, Stein
Steinarr, Hannes Sigfússon og
Ólaf Jóhann Sigurðsson. Öll ljóðin
nema eitt þýddi Hallberg Hall-
mundsson. Það þýddi Karl Guð-
mundsson.
VISIONS hefur oft áður birt
þýðingar á ljóðum íslenskra skálda
og er framhald þess ráðgert. Það
er myndskreytt og með alþjóðlegu
svipmóti og auk stuttra umsagna
um ljóðabækur koma í því ljóð eftir
samtímaskáld frá ýmsum löndum.
Ritstjóri VISIONS er Bradley
R. Strahan. Ritið kostar í ársá-
skrift 15 dollara að viðbættum 8
dollara póstburðargjöldum. Heim-
ilisfang er Black Buzzard Press,
1007 Ficklen Road, Fredericks-
burg, VA 22405.
Fágun og
gamansemi
TOJVLIST
íslcnska ópcran
SAMSÖNGUR
Sólrún Bragaddttir, Elsa Waage og
Gerrit Schuil fluttu aríur, söngverk
og dúetta eftir ýmis erlend tónskáld.
OFT hefur það verið til umhugs-
unar hversu sjaldan söngvarar nota
íslensku óperuna tO tónleikahalds.
Má vera að alls konar leikstarfsemi
haldi húsinu. Það sem gerir þetta
ágæta og fyrrum fræga hús fyrir
góða hljóman að nokki-u óaðlaðandi
fyrir t.d. söngvara er sú skipan
sviðsins að klæða það tjöldum, svo að
hljómurinn verður eins og úti á víða-
vangi. Trúlega er það tónleikahús
vandfundið, hvar sem leitað væri, að
söngvurum sé boðið upp á svona voð-
klætt umhverfi, er bókstaflega
„þurrkar út“ allt það sem kallað er
eftirhljómur eða svar umhverfisins,
sem er þýðingarmikið fyrir lifandi
hljóman tónsins.
Þrátt fyrir þetta réð glæsileiki
ríkjum á tónleikum Sólrúnai- Braga-
dóttur, Elsu Waage og Gerrit Schuil
sl. þriðjudag í Islensku óperunni,
nánar tiltekið á vegum Styrktarfé-
lags ÍÓ. Þrjú fyrstu viðfangsefnin
voru dúettar eftir Mendelssohn,
Abschiedlied der Zugvögel, Gruss og
Herbslied, sem öll eru úr safni sex
dúetta frá 1845, en alls mun
Mendelssohn hafa samið tólf dúetta
með píanóundirleik. Það er umhugs-
unarefni, að í rómantíkinni verður til
sterk náttúruhyggja og fegurð henn-
ar gjarnan lofsungin, svo sem kemur
fram í þessum fallegu söngverkum,
er fjalla um farfugla, ástina í samlík-
ingu blóma og söknuðinn í haustljóð-
inu. Flutningurinn var sannróman-
tískur, mótaður af hógværð en
djúpri tilfmningu fyrir sérkennilega
tæi-ri hljóman þessara fallegu
söngverka. Stöllurnar skiptust á að
syngja fjögur Ijóð eftir Brahms, Wie
Melodien zieht es og Immer leiser,
sem Sólrún söng mjög fallega, og
Elsa söng einnig mjög fallega
Vergebliches Standchen og Von ewi-
ger Liebe.
Því hefur oft verið haldið fram að
nútímatónskáld á fyrri hluta aldar-
innar hafi snúist gegn hinni róman-
tísku tilfinningatúlkun, með útúr-
snúningum, leikrænu alvöruleysi og
jafnvel sótt spennuna í ljótleikann,
sem nú er að verða ráðandi tíska í
allri listsköpun. Hvað sem þessu líð-
ur var Britten ávallt nokkuð tvístíg-
andi í tóntúlkun sinni, bæði tilfinn-
ingai-íkur, fjallaði um ástina, átti til
næmi fyrir fallegum blæbrigðum en
lék sér þó á stundum með skringileg-
heitin. í tveimur dúettum, Mother
Comfort og Underneath the Abject
Willow, sem gefnir voru út 1937, má
heyra í þessum skemmtilegu lögum |
tvíhyggju tilfinninga og leikaraskap-
ar, sem var sérlega vel útfærð og
túlkuð af söngkonunum. Næstu tvö
lög voru samin af Rossini er hann
bjó í París, en eftir að hafa samið óp-
eruna Vilhjálm Tell lifði hann nærri
40 ár án þess að snerta við frekari
óperugerð. Frá þessum tíma eru tólf
söngverk, gefin út 1835, undir nafn-
inu Les soirées musicales og úr þess-
um flokki voru tvö þessara kvöldtón-
leikalaga, nr. 10, La pesca, og nr. 9,
La regata veneziana, sem er sérlega
leikrænt söngverk, er var ótrúlega
vel mótað í leik og söng.
Eftir hlé voru eingöngu flutt ein-
söngs- og tvísöngsatriði úr óperum.
Tvísöngsatriðin voru: Bátssöngurinn
úr Ævintýrum Hoffmanns eftir Of-
fenbach, dúettinn fallegi C’est
l’heure úr Lakmé eftir Delibes og
Scuoti quella úr Butterfly eftir
Puccini og voru þessir dúettar allir
mjög vel fluttir. Einsöngsatriðin
voru, ef fyrst eru nefnd þau sem Sól-
rún söng af miklum glæsibrag: Aría
Michaelu úr Carmen eftir Bizet og
Un bel di, vedremo úr Butterfly.
Sami glæsileiki var á söng Elsu en
hennar viðfangsefni voru Habaneran
fræga úr Carmen og ástarsöngur
Dalílu, sem var aldeilis glæsilega
fluttur. Það þai-f ekki að tíunda eitt-
hvað sérstakt í glæsilegum söng Sól-
rúnar og Elsu en vel má, þótt borið
sé í bakkafullan lækinn, geta sam-
leiksins hjá Gerrit Schuil, sem
spannaði ýtrustu fágun og leikræna
gamansemi, eins og t.d. í La regata
venetiana og mörgu öðru, sem féll
einstaklega vel saman við glæsilegan
söng og túlkun Sólrúnar og Elsu, er í
heild var með þeim hætti, að þurr-
legt hljómviðmót sviðsins gleymdist
algjörlega.
Jón Ásgeirsson
Morgunblaðið/Árni Sæberg
VÍNARTONLISTIN æfð: Sigrún Eðvaldsdóttir, Anna Guðný Guð-
mundsdóttir, Páll Einarsson, Sigrún Hjálmtýsdóttir og Sigurður I.
Snorrason. Með Veislutríóinu syngur einnig Óskar Pétursson.
Vínartónar hljóma
í Hóteli Borgarnesi
TÓNLISTARFÉLAG Borgar- Á efnisskránni verða lög af
Qarðar heldur Vínartónleika í
Hóteli Borgarnesi á morgun,
föstudag, kl. 21. Fram koma Sig-
rún Hjálmtýsdóttir sópransöng-
kona, Óskar Pétursson tenór, Sig-
rún Eðvaldsdóttir fiðluleikari
ásamt Veislutríóinu sem auk Sig-
urðar I. Snorrasonar er skipað
Önnu Guðnýju Guðmundsdóttur
og Páli Einarssyni. Þetta er í
þriðja skipti sem Veislutríóið
heimsækir Borgfirðinga með vín-
artónleika.
ýmsum toga Vínartónlistarinnar,
en á þessu ári er haldið upp á 100
ára ártíð Johanns Strauss víða
um heim, en hann Iést í júní 1899.
Þá mun Sigrún Hjálmtýsdóttir
syngja aríur úr Leðurblökunni en
hún syngur hlutverk Rósalindu í
uppfærslu íslensku óperunnar
sem verður frumsýnd í apríl nk.
Þetta starfsár eru einungis
tvennir tónleikar á verkefnaskrá
tónlistarfélagsins og eru þetta
síðari tónleikarnir.