Morgunblaðið - 11.03.1999, Blaðsíða 32
32 FIMMTUDAGUR 11. MARZ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
Myndverk
af djassleikurum
MYMILIST
SI’ROIV f Mjðdd
MÁLVERK
SIGURÐUR ÖRLYGSSON
Opið á afgreiðslutíma útibúsins
mánudaga til föstudaga frá 9.15-16.
Til 9 júlí. Aðgangur ókeypis.
ÍSLENZKIR bankar, og aðrar
fjármálastofnanir, eiga umtalsvert
úrval myndverka, sem þeir hafa
eignazt á ýmsan hátt eins og aðrar
tegundir fasteigna. Og sem ég
margendurtekið hef bent á í pistl-
um mínum í áranna rás, er hér um
mikilvæga og arðbæra fjárfestingu
að ræða sem bandarískar, jap-
anskar og þýzkar fjármálastofnan-
ir gera sér helzt grein í'yrir í heimi
hér, er þá naumast í kot vísað. A
Guggenheim-safninu við Unter
den Linden breiðgötuna í Berlín,
þar sem ég tyllti tá að venju er ég
var þar á ferð í desember sl., tók
ég eftir þrem nýjum og veglegum
bókum sem Deutsche Bank hefur
gefið út um eign sína á samtíma-
list. Bankinn virðist einn helzti
stuðningsaðili núlista í Þýzkalandi,
sem ótvírætt er drjúgt innlegg í
markaðssetningu þeirra innan
lands sem utan, enda verða engir
ásar til í heimslistinni nú um
stundir nema að hafa slíkan með-
vind í bakið. í þessum þrem lönd-
um eru málverk á við öruggustu
verðbréf sem ráða má af því, að
heimskunnir leikarar, poppstjörn-
ur, ofurfyrirsætur og íþróttahetjur
sem mala fljóttekið gull fjárfesta
óspart í eldri sem nýrri myndlist
ekki síður en verðbréfum, standa
hér útsmognir fjármálaráðgjafar
að baki. Jafnframt þykir markaðs-
verð á málverkum einhver örugg-
asti mælikvarði á styrkleika efna-
hagskerfisins á hverjum stað, og
eðhlega em hér Bandaríkjamenn í
fai'arbroddi. Þar er verðgildi meiri
háttar myndverka þekktustu núlif-
andi listamanna löngu komið yfir
milljón dollara og telst ekki til
fréttar nema þau séu slegin á upp-
boðum á yfir 5-10 milljónir, en hið
dýrasta mun hafa komizt upp í 17
milljónir!
Ai' öllu má því ráða að hér er um
lífrænan og gildan atvinnuveg að
ræða en ekki íþrótt né dægrastytt-
ingu, og að auk atvinnuveg sem
krefst mikils af iðkendum sínum,
hæfileika og staðgóðrar menntun-
ar, umfram allt vinnu, vinnu og
vinnu og að vera með á nótunum í
nútíð og fortíð.
Eitthvað mun íslenzka banka
renna grun í þetta í ljósi þess hve
mikið er af myndverkum á veggj-
um þeirra og einstakar markaðar
listkynningar eru ekki óalgengar í
hinum ýmsu útibúum. Er til marks
um að þeir skynji hér auglýsinga-
gildi slíkra athafna.
Ekkert útibú mun þó hafa verið
jafn iðið við kolann og SPRON i
Mjódd, en þar hafa verið listkynn-
ingar frá opnun þess fyrir áratug
eða svo. Hér hafa ráðamenn vand-
að til verka, meðal annars haft
sérfróðan ráðgjafa við val lista-
manna og uppsetningar mynd-
verka, og að ég best veit hefur
Þóra Kristjánsdóttir listsögufræð-
ingur verið það allan tímann. Þótt
veggrými bankans sé ekki sér-
hannað til slíkra kynninga hefur
oftar en ekki vel tekizt til og ber
hér að þakka framtakið er hvörf
verða á þessari starfsemi, og í ljósi
þess ekki úr vegi að minna á ofan-
skráð.
Um þessar mundir er þar uppi
sýning á nýlegum verkum eftir
einn okkar snjallasta listamann af
sinni kynslóð, Sigurð Orlygsson, og
er þá eklri lítið sagt. Um er að ræða
20 máluð verk af andlitum
heimskunnra djassleikara, flestum
úr núliðinni fortíð, ásamt ýmsum
myndrænum tilfæringum fyrir of-
an þau og einmitt í þeim stíl sem
við þekkjum frá hendi listamanns-
ins er pentskúfurinn einn ræður
fór á tvívíðum fleti. Þó koma þessi
verk mörgum vafalítið á óvart og
bera því vitni að enn velli og
kraumi í sköpunarkirnu lista-
mannsins. Allar ei'u myndirnar
jafnstórar og frekar litlar, en sem
rúsínan í pylsuendanum er eitt
stórt málverk látið fylgja með, sem
var málað á árunum 1992-97, en
hin era frá þessu og síðasta ári.
Allar era þessar myndir unnar í
akryl með oh'ulitum í bland að mér
skilst, en mála má með olíu ofan í
akryl en alls ekki öfugt, vel að
merkja. Þetta er mjög heildstæð
og klár framkvæmd og prýði að
henni á staðnum.
Bragi Ásgeirsson
»vjtt í Árwúta
SpÁHskír $óf<sr
Ármúla 7, sími 553 6540.
Heimasíða: www.mira.is
mínúta
frábært útlit
Tafarlaust. Áhrifaríkt. Magnað.
EXTRAIT OF SKIN CAVIAR
FIRMING COMPLEX
Einföld andlitslyfting.
Fínar línur hverfa.
Farðinn endist lengur.
Frábært.
Kynning í dag fimmtudag
og á morgun föstudag
kl. 13-18.
jnyrtivöruverátun
Kringlunni 8-12 • S. 533 4533
Aðrír útsölustaóir:
FIYGEA Austurstræti 16, HYGEA Laugavegi 23, LIBIA í Mjódd.
AGNES snyrtistofa, Listhúsínu v/Engjateig, Snyrtistofan Jóna
Hamraborg 10, Snyrtístofan MANDÝ, Laugavegi 15,
GALLERY FÖRÐUN Hafnargötu 25, Keflavík.
Tertuspaði til mannvíga
LEIKLIST
Leikfélag Dalvfkar
Ungó, Dalvík
FRUMSÝNING
eftir Hjörleif Hjartarson. Leikstjóri:
Sigrún Valbergsdóttir. Leikmynd:
Hjörleifur Hjartarson og hópurinn.
Ljósahönnun: Ingvar Björnsson.
Búningar: Hjördís Jónsdóttir, Ásrún
Yngvadóttir, María Jónasdóttir,
Auður Kimberg. Aðstoðarmaður
leikstjóra/sýningarstjóri: Guðbjörg
Antonsdóttir, Ragnheiður Eiríks-
dóttir. Leikendur: Lovísa María Sig-
urgeirsdóttir, Dagur Óskarsson,
Guðný Helga Bjarnadóttir, Dana
Jóna Sveinsdóttir, Steinþór Trausta-
son, Egill Einarsson, Julíus G. Júlí-
usson, Auður Helgadóttir, Björn
Björnsson, Sigurður Gísli Lúðvígs-
son, Sigurbjörn Hjörleifsson, Linda
Björk Holm, Hjörleifur Halldórsson,
Eyþór Antonsson, Lárus Sveinsson,
EÍsa Heimisdóttir, Katrín Sif Árna-
dóttir, Sergej Kuznezov, Friðrik
Gígja, Olga Albertsdóttir, Friðrik
Ómar Hjörleifsson. Frumsýning
laugardaginn 6. mars.
LEIKFÉLAGIÐ á Dalvík er
hálfsextugt um þessar mundir og
svo sem til að sýna að engin séu á
því ellimörkin setur félagið á svið
nýtt frumsamið leikrit eftir einn fé-
laganna, Hjörleif Hjartarson, af svo
miklum fítonskrafti og kunnáttu að
það er saga til næsta bæjar. Hjör-
leifur hefur lagt leikfélaginu til
ágætlega samið skemmtileikrit með
léttri fléttu, smellnum hugmyndum,
hnyttnum tilsvörum og fjölþættri
samtímalegri og sögulegri skírskot-
un að hætti Hugleiks.
Á frumsýningunni blésu leikend-
ur í þetta leikrit slíku lífi að þegar
áhorfendur orguðu ekki beinlínis af
hlátri mátti finna hvað öllum var vel
skemmt og margvíslega. Því hér
mátti hafa gaman af mörgu: tilburð-
um leikaranna, persónusköpun
þeirra, búningum, spaugilegum
uppákomum, orðaleikjum, samspili
hins kátlega og alvarlega, endur-
tekningum og yfirleitt öllu þvi sem
einkennir gott skemmtileikrit.
Leikstjórinn, Sigrún Valbergs-
dóttir, hefur haft hér úr miklu að
moða, efni og ekki síður hæfileikum.
Hún hefur unnið alla þætti þessarar
sýningar einkar vel og næmlega og
því verður sýningin heilsteypt og
grípandi. Leikendur ganga allir
fram af öryggi þess sem veit að eitt-
hvað gott er að gerast og að hann á
þátt í að skapa það.
Framsögnin er með því allra
besta sem heyrist, skýr, fallega
rödduð og hljómmikil, hjá jafnt hjá
hinum yngri sem eldri. Ýmsir ung-
lingar á suðvesturhominu hefðu
gott af því að heyra þetta tungutak,
einkum þeir sem halda að íslenska
sé það sama og að svelgjast á fílak-
aramellum.
Þá eru búningarnir góðir og
leggja drjúgan kómískan skerf tii
sýningarinnar. Leikhópur nokkur
(það skyldu þó ekki vera Dalvíking-
ar?) er að setja Skuggasvein á svið.
Frumsýningin er alveg að bresta á.
Þegar áhorfendur ganga í salinn
verða fyrir þeim þrír lögreglumenn
sem standa framan við tjöldin á
sviðinu og fylgjast grannt með því
hver mætir. Friðrik Gígja í hlut-
verki Frikka, hins nærsýna lög-
reglumanns, skapar strax stemmn-
inguna fyrir það sem koma skal,
leggur áhorfendum línuna með
sprenghlægilegri og vel mótaðri
persónusköpun.
Og það er einmitt þessi skýra
persónusköpun sem tekst svo vel
hjá hverjum einasta leikara í hópn-
um og endurspeglar breiddina í
Leikfélagi Dalvíkur. Gamlir jaxlar á
borð við Björn Bjömsson og Sigur-
björn Hjörleifsson sýna frábæra
takta, yngra fólkið á sumt sína
óskastund á sviðinu, t.d. þau Lovísa
María Sigurgeirsdóttir og Dagur
Óskarsson, og unglingamir eiga
góðan merkisbera í Steinþóri
Traustasyni.
En ég ætla ekki að segja meira
frá því sem gerist á Frumsýningu.
Það gerir leikhópurinn sjálfur þeg-
ar sýningin kemur til Reykjavíkur.
Guðbrandur Gíslason
I
I
i
i
I
I