Morgunblaðið - 11.03.1999, Qupperneq 47
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 11. MARZ 1999 47^.
UMRÆÐAN
„Verkfræðingur óskast“
MECALUX
NOKKUR undan-
farin ár hafa auglýs-
ingar þar sem óskað er
eftir verkfræðingum til
starfa verið mjög áber-
andi í atvinnuauglýs-
ingum Morgunblaðs-
ins. Þessa tók strax að
gæta þegar rétta tók
úr síðustu efna-
hagslægðinni um miðj-
an þennan áratug og
nú er svo komið að fjöl-
mörg fyrirtæki og
stofnanir eiga í erflð-
leikum að fá hæfa
tæknimenn til starfa.
Þetta ástand kemur
þeim sem til þekkja
ekki á óvart. Aðsókn að verkfræði-
deild Háskóla íslands nánast stóð í
stað um langa hríð á sama tíma og
nemendafjöldi við háskólann tvö-
Verkfræðingaskortur
Menntakerfí hverrar
þjóðar er, segir Pétur
Stefánsson, án efa einn
afdrifaríkasti þáttur
samfélagsins til lengri
tíma litið.
faldaðist. Það ástand sem nú hefur
skapast hefur þannig verið fyrirséð
um langt skeið. Um orsakirnar eru
menn hins vegar ekki á einu máli.
Raungreinakennsla í skólum
Margfræg Timss-skýrsla, sem
út kom á árinu 1996, og athugun
sem menntamálanefnd Verkfræð-
ingafélags íslands stóð fyrir sama
ár leiddu í ljós alvarlega stöðu
raungreinakennslu víða á neðri
skólastigum. Helsta orsök vandans
var einkum talin skortur á hæfum
kennurum í raungreinum sem af-
leiðing af lágum launum kennara
ásamt alltof lítilli áherslu á raun-
greinar við Kennaraháskóla Is-
lands. Bent var jafnframt á að
meiri hluti nemenda við KHÍ komi
af málabrautum mennta- og fram-
haldsskólanna og bent var á hina
miklu áherslu á uppeldis- og
kennslufræði á kostnað fagnáms í
menntun kennara. Sú skoðun kom
fram að raungreinakennarar í efri
bekkjum grunnskóla og í fram-
haldsskólum þyrftu að hafa sér-
menntun á sínu fagsviði en á því er
nokkur misbrestur. Afleiðingin er
síðan sú að stúdentar eru gjarnan
illa í stakk búnir að takast á við
erfitt raungreinanám á háskóla-
stigi auk þess sem fáir hafa orðið
til þess að kveikja þann neista í
brjósti þeirra sem er nægur orku-
gjafi í löngu og ströngu tækni-
námi.
mmm
Ný eftirspum
A síðustu árum hefur
fjölbreytni aukist í
tæknináminu og verk-
fræðingar hafa bæði
sótt inn á ný fagsvið og
nýja geira atvinnulífs-
ins. Má þar nefna um-
hverfismál, sjávarátveg
og fjármálakerflð. At-
hyglisverð er hin áber-
andi eftirspum verð-
bréfasjóða og fjármála-
stofnana eftir verk-
fræðingum. Undirrit-
aður spurði nýlega for-
Pétur stöðumann stórrar
Stefánsson fjármálastofnunar
hverju þessi eftirspurn
eftir verkfræðingum sætti. Svarið
var einfalt. „Þeir eru heiðarlegir og
þeir kunna að reikna.“ Þetta er
vissulega ánægjulegur vitnisburður
en bætir síst tæknimannaskortinn í
hinum hefðbundnu gi’einum, þar
sem fjármálastofnanimar standa
sterkt að vígi í samkeppninni um
gott fólk.
Óviðunandi starfsskilyrði
Stór hluti tæknimanna vinnur að
undirbúningi hvers kyns verklegra
framkvæmda. Það er alltof algengt
að stjórnvöld vanmeti stórlega
þann tíma sem nauðsynlegur er til
hönnunar og undirbúnings verk-
legra framkvæmda. Tæknimenn
eru þá neyddir til að hroða af verk-
um sínum og skila af sér oft ófull-
burða hugverkum, sjálfum sér til
hugarangurs og væntanlegum not:
endum og umhverfinu til tjóns. í
sömu veru hníga útboð á undirbún-
ingi framkvæmda sem tíðkast hafa
um nokkurt skeið. Hönnun og
skipulagning framkvæmda er hug-
verk þar sem gæðin ráðast fyrst og
fremst af þeirri þekkingu og alúð
sem í verkin eru lögð. Sé þessum
störfum of þröngur stakkur snið-
inn, bitnar það ekki aðeins á þeim
sem verkin vinna, heldur einnig á
gæðum þeirra mannvirkja sem við
erum að skapa og því umhverfi sem
við erum að búa framtíðinni. Það er
varla tilviljun að Bandaríkin og
Þýskaland setja skorður við ein-
faldri verðsamkeppni um undirbún-
ing opinberra framkvæmda. Það er
heldur varla tilviljun að stúdentar
virðast ekki laðast að hefðbundnum
tæknistörfum. Léleg gæði og lág
laun hafa aldrei heillað metnaðar-
gjamt fólk.
Hvað er til ráða?
Lítil aðsókn að tækninámi er ekki
séríslenskt vandamál, það er út-
breitt og hvað verst á Norðurlönd-
um. Yfirvöld skólamála á Islandi
með menntamálaráðherra í broddi
fylkingar hafa vissulega þegar
VífftU Cjxðl?
Y’efííu Barbour....
Baðinnréttinqar
Vandaðar og fallegar innréttingar
frá Belgíu á hagstæðu verði.
Sniðiö að þínum þörfum!
OpiS frá Id. 9-18 virka daga
og kl. 10-14 laugardaga
Laugavegur 54 • S: 552 2535
Póstsendum bækling
MMMMBMBHMMMSHIMMSMMHH^"
Vib Fellsmúla
Sími 588 7332
brugðist við, m.a. með breytingum
á námsskrá og breytingum í kenn-
aranámi. Ai’angur þeirra aðgerða
er að sjálfsögðu lítt kominn í ljós.
Forstöðumaður norsku tæknisafn-
anna (Teknoteket), Dag Kjelldal,
sem hér var á ferð nýlega lýsti því
hvernig norsku tæknisöfnin færu
með sérsniðnar sýningar inn í skól-
ana til að vekja áhuga nemendanna.
Sama tilgang hefur fræðsluefni sem
norska tæknifræðingafélagið hefur
látið gera og nefnist „teknologie í
skolen". Dag Kjelldal hélt því jafn-
framt fram að hugmyndir barna um
það hvaða störf þeim hentuðu í líf-
inu kviknuðu jafnan innan við 10
ára aldur. Páll Skúlason háskóla-
rektor sagði einnig í útvarpsviðtali
íyrir nokkrum dögum að hann teldi
áhrif lærifeðra á nemendur sína
vera vanmetin. Hafi báðir rétt fyrir
sér, er nauðsynlegt að beina sjónum
að neðri bekkjum grunnskólans.
Skortur á kennurum með raunvís-
indabakgrunn og ójöfn kynskipting
í kennaraliði skólanna kann því að
vega þungt í þeirri takmörkuðu að-
sókn að tækninámi sem verið hefur
áberandi um langt skeið. Það er því
mikið í húfi að stjórnendur og
skólanefndir gnmnskólanna taki
þessi mál föstum tökum, nú þegar
ábyrgð á rekstri grunnskólanna
hefur alfarið færst á herðar sveitar-
félaganna.
Niðurlag
Menntakerfi hverrar þjóðar er án
efa einn afdrifaríkasti þáttur samfé-
lagsins til lengri tíma litið. Skólakerf-
ið er þungt í vöfum og það getur tek-
ið áratugi að koma við endurbótum.
Af báðum þessum ástæðum þarf
skólakerfið að vera undir stöðugri
smásjá. Gylfi Þ. Gíslason segh’ í einni
kennslubók sinni að það sé ekki
nægilegt að gera áætlanir, það þm-fi
líka að hafa eftirht með því hvemig
þær ganga eftir. Árið 1993 var að til-
hlutan Verkfræðingafélagsins gerð
óháð úttekt, svokölluð ABET-úttekt,
á námi við verkfræðideild Háskóla
Islands. I ljósi mikilvægis skólakerf-
isins er sú spuming hins vegar áleitin
hvort ekki sé nauðsynlegt að gera
óháða úttekt á skólakerfinu í heild
með vissu millibili til að rannsaka ár-
angur þess, kanna hvemig það mætir
þörfum atvinnulífsins og hve vel það
samræmist metnaði þjóðarinnar. Svo
mikið er víst að sú þjóð sem ekki
leggur alúð við vísindi og tækni mun
fljótlega heltast úr forustusveit þró-
aðra þjóða.
Höfimdur er formaður
Verkfræðlngafélags íslands.
Bjóðum mjög hentuga fataskápa.
Aðeins vönduð vata úr gæðastáli.
Mjög gott verð!
ÞjónusE • NUáo
MECALUX
- gæði fyrir gott verð
_ UMBOÐS- OG HEILDVERSLUN m m
S&ausnur&itf
SUNDABORG 1 • SlMI 568-3300
t-
V
HEIMABIO
r*
Nýjasta og fullkomnasta tækni á einstöku verði!
#
Fallegt útlij
vönduð hönnun
Super-5 Digital Blackline
myndlampi
Digital Comb Filter
165Wmagnari
6 framhátalarar
2 bassatúbur
2 bakhátalarar
Öflugur miöjuhátalari
2 Scarttengi að aftan,
Super VHS (DVD) og
myndavélatengi að framan
Glæsilegur skápur
á hjólum með innbyggðum
miðjuhátalara
TOSHIBA
heimabíósprengjan
2878 DG kostar aðeins
Kr. 124.740stgr*
með þessu öllu!!
TOSHIBA Pro-Logic tækin
eru magverðlaunuð af
tækniblöðum í Evrópu og
langmest seldu tækin í Bretlandi
TOSHIBA ERU FREMSTIR í TÆKNIÞRÓUN
Hönnuðir Pro-Logic heimabíókerfisins -
DVD mynddiskakerfisins og Pro-drum myndbandstækjanna.
Önnur TOSHIBA 28" tæki
kosta frá kr. 66.510 stgr.
‘Staðgreiðsiuafsláttur er 10%
:ÁÐU ÞÉR FRAMTÍÐARTÆKI HLAÐIÐ ÖLLU ÞVÍ BESTJ
ÞAÐ B0RGAR SIG!
Einar
Farestveit & Co. hf.
Borgartiíni 28 S: 562 2901 og 562 2900