Morgunblaðið - 11.03.1999, Page 49

Morgunblaðið - 11.03.1999, Page 49
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR FIMMTUDAGUR 11. MARZ 1999 49 ÓLAFUR Björnsson prófessor heilsar upp á Davíð Oddsson forsætisráðherra í fimmtugsafinæli Davíðs fyrir rúmu ári. Með þeim eru á myndinni Árni Grétar Finnsson hæstaréttarlögmaður og Ásgeir Pétursson fyrrum bæjarfógeti. mikilli alúð, mætti stundvíslega og vel undirbúinn í hvern tíma. Hann skrifaði kennslubók í hagfræði sem var einkum notuð í Lagadeild H.í. og í Verzlunarskóla Islands en einnig skiifaði hann kennslubókina Þjóðarbúskapur Islendinga (1952) sem lýsir hagþróun hér á landi. Það hefur verið mikið þrekvirki að koma þeirri bók saman ef litið er til að- stæðna til upplýsingaöflunar á þeim tíma. Auk fjölda ritgerða um fræði- leg og stjórnmálaleg efni samdi hann bókina Frjálshyggja og alræð- ishyggja sem kom út 1978. Það er erfitt fyrir ungt fólk í dag að gera sér í hugarlund alvöru efna- hagslegrar og stjómmálalegrar um- ræðu um miðbik aldarinnar. I heim- inum var tekist á um tvenns konar hugmyndafræði. Miðstýringu efna- hagslífsins og alræðisvald stjórn- valda annars vegar og dreifstýringu og athafnafrelsi einstaklinga hins vegar. Af hugmyndafræðinni drógu hagkerfin dám, áætlunarbúskapur austantjaldslanda annars vegar og markaðsbúskapur vesturlanda hins vegar. Jafnframt var það yfirlýst stefna ríkja sem aðhylltust miðstýr- ingu að slíku kerfi skyldi komið á í öllum ríkjum heims. Um miðja öld- ina var öllum veigamestu þáttum ís- lensks efnahagslífs „handstýrt". Gengi á innflutningi var mismun- andi eftir vörutegundum og vörur til útflutnings nutu msmunandi út- flutningsuppbóta. Á vinnumarkaði tókust á samtök atvinnurekenda og launþega. Fjármagnsmarkaður var ekki fyrir hendi og vextir voru í raun ákvarðaðir af stjórnvöldum. Þessu vildi Ólafur Björnsson breyta. í ræðu og riti var hann tals- maður markaðsbúskapar. Þótt umræðan um hagkerfin snerist að verulegu leyti um saman- burð á afköstum þeirra lagði Ólafur Bjömsson sérstaka áherslu á ein- staklinginn og valfrelsi hans. Hann taldi engan hæfari en einstaklinginn sjálfan til að segja til um hvaða vör- ur fullnægðu þörfum hans best. Jafnframt var hann þeirrar skoðun- ar að eina upplýsingakerfið sem væri nógu öflugt til að geta komið óskum hvers og eins á framfæri við framleiðendur væri markaðurinn. Umhyggja hans fyrir manninum og frelsi hans náði lengi-a. í skrifum sínum benti hann t.d. á að væri ákvörðun um notkun framleiðslu- tækjanna á einni hendi, þ.e. hjá rík- inu, yrði vald þess svo mikið að aðr- ir einstaklingar en þeir sem stjórn- uðu kerfinu glötuðu frelsi sínu. Ef ríkið á öll framleiðslutækin er að- eins einn vinnuveitandi. Hvert á sá að snúa sér sem möglar og missir vinnuna? Lífsskoðun sinni var Ólaf- ur trúr sama hvað á gekk í darrað- ardansi pólitískrar umræðu. Yfir- burðarþekking og rök voru vopn hans. Nú er eðlilegt að spurt sé hvort maður með svo ákveðnar stjórn- málaskoðanir hafi getað kennt þjóð- hagfræði á hlutlausan hátt? Ég var nemandi Ólafs í samtals sex ár bæði í Verzlunarskóla Islands og í Við; skiptadeild Háskóla íslands. í kennslustundum var aldrei hægt að merkja hvaða stjórnmálaflokki hann tilheyrði. Öllum sjónarmiðum var gert jafn hátt undir höfði. Þessi fræðilega ögun hafði djúpstæð áhrif. Ölafur Bjömsson hafði ekki aðeins áhrif á nemendur með kennslu sinni. Virðing hans fyrir fyrir þeim, virðing hans fyrir skoð- unum annarra, jákvætt hugarfar til manna og málefna endurspegluðu hans innri mann. Hann var göfug- menni. Ég vil fyrir hönd kennara og starfsfólks Viðskipta- og hagfræði- deildar Háskóla Islands þakka Ólafi Björnssyni fyiár allt starf hans í þágu deildarinnar og Háskólans. Ég vil jafnframt þakka eftirlifandi eiginkonu hans, Guðrúnu Aradótt- ur, fyrir þá gestrisni sem þau hjónin sýndu starfsmönnum og erlendum gestum deildarinnar í áranna rás. Guðrúnu, sonum þeirra Ólafs og fjölskyldum þeirra bið ég guðs þlessunar í sorginni. Megi minning Ólafs Bjömssonar lifa. Brynjólfur Sigurðsson. í átta ár var Ólafur Bjömsson formaður Bandalags starfsmanna ríkis og bæja. Árið 1947 var hann kjörinn varaformaður bandalagsins og ári síðar fonnaður og gegndi hann formennskunni til ársins 1956. Áður hafði Ólafur tekið þátt í undir- búningi að stofnun Starfsmannafé- lags ríkisstofnana en það félag átti síðan drjúgan þátt í því að hrinda af stað stofnun Bandalags starfsmanna ríkis og bæja árið 1942. Enda þótt Ólafur léti af formennsku í BSRB árið 1956, skömmu eftir að hann tók sæti á Alþingi, tók hann mjög virkan þátt í starfsemi bandalagsins allt til 1969 þegar félag hans, Starfsmanna- félag háskólans, gekk úr bandalag- inu. Til sögulegrar upprifjunar má geta þess að í aðdragandanum að stofnun BSRB var um það rætt að bankamenn ættu aðild að hinum nýju samtökum og má ráða af ýms- um ummælum Ólafs að hann hefði sjálfur talið slíkt æskilegt. Ólafur var jafnan talsmaður þess að efla heildarsamtökin og taldi óráðlegt á sínum tíma fyrir háskólamenn að mynda eigin samtök utan BSRB. Enda þótt nú sé langt um liðið frá formannstíð Ólafs Björnssonar í BSRB er það engu að síður svo að launafólk hjá riki og sveitarfélögum hefur notið starfs hans og verka í ýmsu allt fram á þennan dag. Ólafur beitti sér mjög til að efla réttindi starfsmanna ríkisins og vildi hann að um þau giltu skýrar reglur. Lög- in frá 1954 um réttindi og skyldur opinberra starfsmanna voru merk- ur áfangi í kjarabaráttu launafólks enda árangur af miklu og þrotlausu starfi. Þegar tekist var á um þá lagasetningu reyndist lóð Ólafs Björnssonar mjög þungt til hags- bóta fyrir launafólk. Sjálfur lýsti hann eitt sinn í viðtali mikilvægi þessara laga á eftirfarandi hátt: „Mikið af þeim tíma sem mér var unnt að verja í þágu málefna banda- lagsins fór fram að setningu þessar- ar löggjafar í það að sinna eilífum kvörtunum um yfirtroðslur stjórn- valda, bæði þeirra er ráða málum ríkisins og bæjar- og sveitarfélaga hvað snertir uppsagnir, stöðuveit- ingar og annað er réttindamál varð- aði. Þó að ég teldi mig gera mitt besta í þeim málum ... þá hafði ég sjaldnast erindi sem erfiði, enda engum lagalegum rétti til að dreifa af hálfu þeirra, er töldu sig órétti beitta.“ Fleiri réttarbætur en lögin frá 1954 mætti nefna, sem náðust á þessum árum, og mun sá tími koma að þessi saga verður skráð. Þá mun koma í ljós hve mikilvægt framlag Ólafs Björnssonar var á þessum vettvangi. Ólafur Björnsson var mjög hóg- vær maður og ekki fyrir það gefinn að berja sér á brjóst. En hann var sterkur og áhrifamikill og markaði djúp spor í samtíma sinn. Þegar Olafur Björnsson lét frá sér heyra í ræðu eða riti þá var lagt við hlustir. Þekking hans var óvenju yfirgrips- mikil, en það sem ekki síður skipti máli var viska hans og innsæi. Ólaf- ur Björnsson var heilsteyptur mað- ur. Ætíð gátu menn treyst því að hann talaði af heilindum. Þess vegna naut hann jafnan mikillar virðingar jafnt í hópi pólitískra sam- herja sem andstæðinga. Innan BSRB verður Ólafs Björnssonar ætíð minnst með virð- ingu. Við sendum eiginkonu hans og fjölskyldu hlýjar samúðarkveðjur. Ogmundur Jónasson, form. BSRB. Skilafrestur minningargreina EIGI minningai’grein að bh*tast á útfarardegi (eða í sunnudagsblaði ef út- fór er á mánudegi), er skilafrestur sem hér segir: I sunnudags- og þriðju- dagsblað þarf grein að berast fyrir hádegi á fóstudag. I miðvikudags-, fimmtudags-, fóstudags- og laugai’dagsblað þarf greinin að berast fyrh- há- degi tveimur virkum dögum fyrir birtingardag. Berist gi’ein eftir að skila- frestur er úti-unninn eða eftir að útfór hefur farið fram, er ekki unnt að lofa ákveðnum birtingardegi. Þai- sem pláss er takmarkað getur þurft að fresta birtingu greina, enda þótt þær berist innan hins tiltekna skilafrests. GYÐRÍÐUR JÓNSDÓTTIR + Gyðríður Jóns- dóttir frá Ytri- Tungu fæddist á Keldunúpi í Vest.ur- Skaftafellssýslu 17. apríl 1907. Hún lést á Hrafnistu í Reykjavík 4. mars síðastliðinn. For- eldrar hennar voru Jón Jónasson, f. 16.2. 1850 íÞykkva- bæ, d. 11.12. 1923 á Núpum, og Guðrún Ólafsdóttir, f. 22.2. 1863 á Núpum und- ir Eyjafjölluin, d. 13.12. 1950 í Reykjavík. Gyðríður bjó í Ytri-Tungu í Vestur-Skaftafellssýslu með Kristmundi Ólafi Guðmunds- syni bónda, f. 18. apríl 1897, d. 23. aprfl 1962. Börn þeirra: 1) Unnur Kristmundsdóttir, f. 1.4. 1924, d. 22.1. 1975. 2) Guðmunda Kristmundsdóttir, f. 1.5. 1925. 3) Kristín Kristmundsdóttir, f. 20.3. 4) Hrefna Kristmundsdóttir, f. 13.7. 1942. Seinni sambýlismaður og síðar eiginmaður Gyðríðar var Sig- urður Jón Guð- mundsson, verka- maður, f. 25. júlí 1895, d. í janú- ar 1993. títför Gyðríðar fer fram frá Fossvogskapellu í dag og hefst athöfnin klukkan 10.30. í dag kveð ég kærleiksríkustu manneskju í heimi, hana Gyðu. f huga mínu er sorg og söknuður yf- ir því að ég á aldrei aftur eftir að hitta hana Gyðu. í hjarta mínu er samt gleði því ég veit að Gyða fer nú örugglega á betri stað og hittir hann Sigga sinn aftur. Ef það er einhver sem kemst til himna, þá er það hún Gyða. Ég kynntist henni Gyðu og honum Sigga fljót- lega eftir að ég kynntist henni Gyðu minni. Ég var dreginn í heimsókn á Urðarstíginn því það varð að kynna mig fyrir ömmu og afa. Ég gleymi aldrei þegar ég kom inn í litla húsið á Urðarstígn- um og hitti þau fyrst, að farast úr stressi. En það var ástæðulaust. Það fyrsta sem ég hugsaði var að þau pössuðu fullkomlega við húsið, eins og litla Gunna og litli Jón og full af gleði og kærleik. Og mér var sannarlega tekið opnum örm- um, strax orðinn hluti af fjölskyld- unni og boðið upp á pönnukökur og kaffi. Og það varð oft sem við stoppuðum við að fá smákaffi og spjalla, Gyða mín sat hjá ömmu sinni í eldhúsinu meðan við karl- mennirnir sátum inni í stofu og ræddum málin. Þetta voru góðar og ánægjulegar stundir. Maður lærði um lífsbaráttuna fyrr á ár- um, fékk sagt af fyrstu hendi frá Gúttóslagnum og verkalýðsbarátt- unni, af manni sem hafði sjálfur upplifað hlutina. Og Gyða hafði líka upplifað margt og þurft að hafa fyrir lífinu þegar hún bjó fyr- ir austan á Ytri-Tungu. Þá voru engir vatnskranar til að skrúfa frá. Ef maður þurfti vatn þá sótti maður það í lækinn, í hvaða veðri sem var. Þar draup ekki smjörið af hverju strái, þar þurfti að hafa fyrir lífinu til að hafa í sig og á. Á seinni árum var Gyða farin að tapa sjóninni vegna kölkunar í augnbotnunum og gláku. Ég man alltaf eftir því hversu lipur hún var þrátt fyrir slæma sjón, hvern- ig hún skaust niður í kjallara á Urðarstígnum til að sækja eitt- hvað og upp aftur. Ég átti sjálfur erfítt með að staulast niður þessar bröttu tröppur. En heyrnin var í lagi og það var sniðugt hvernig Gyða og Siggi vógu hvort annað upp. Hann heyrði illa en sá vel, en hún sá illa en heyrði vel. En mað- ur merkti aðeins á pönnukökunum hennar Gyðu að sjónin var ekki góð því stundum var eins og það hefði farið góður slatti af bökunar- dropum í deigið. En þær voru góð- ar þrátt fyrir það. Síðar fluttu þau Gyða og Siggi á Hrafnistu og áttu góð ár saman þar. Siggi lést 1993 og maður skynjaði að Gyða saknaði ástvinar síns mikið. Hún var samt alltaf glöð og það var gott að heimsækja hana í litla herbergið og fá smá- kaffí, sem hún lagaði sjálf. Við fluttum síðan út á land þannig að heimsóknirnar urðu færri en sím- inn var þeim mun meira notaður til að heyra í henni Gyðu sinni. Ég gleymi aldrei síðasta skipti sem ég sá hana Gyðu rétt áður en við fluttum út til Danmerkur. Við átt- um yndislegan sunnudag saman, það var sól og vor í lofti og Gyða ljómaði af ánægju yfir því að fá að sjá hana Gyðu sína aftur. Það er akkúrat þannig sem ég man hana Gyðu. Gyða var þannig manneskja að «fc öllum hlaut að líka við hana. Hún var alltaf glöð og mátti aldrei neitt aumt sjá, hvorki menn né málleys- ingja. Hún var trúuð og guðhrædd og það var ein hennar mesta gleði að komast í kirkju hjá Fíladelfíu, þar sem hún var sóknarbarn. Og henni þótti ótrúlega vænt um hana Gyðu mína og alltaf gat maður leitað til hennar ef eitthvað bjátaði á, Gyða hafði alltaf skynsamleg- ustu lausnina. Ég hugsa til baka með gleði í hjarta og þakka fyrir^t þau forréttindi að hafa fengið að kynnast henni þér, Gyða, og kær- leika þínum. Ef allir væru eins og þú, Gyða, þá væri heimurinn góð- ur. Gunnar. Elsku amma mín, ég fékk frétt- irnar kvöldið áður en þú kvaddir að þú varst orðin veik. Mikið hefði ég viljað vera hjá þér og halda í höndina á þér þegar þú kvaddir. En ég veit að við eigum eftir að hittast aftur og það yljar mér um hjartarætur. Ég ætla að kveðja þig með þessu Ijóði: •fi Þú gafst mér akur þinn, þér gef ég aftur minn. Ast þína á ég ríka, eigðu mitt hjarta líka. (Höf. ók.) Mér finnst þetta ljóð segja allt um kærleikann sem var á milli okkar, amma mín. Við vorum og erum bundnar svo nánum bönd- um. Alltaf gat ég leitað til þín, amma mín, þegar eitthvað bjátaði á og alltaf varstu svo ráðagóð og skilningsrík. En veistu, elsku amma mín, nú veit ég að þér líður vel og ert núna hjá afa. Sofðu rótt, elsku amma mín. Þín . Gyða. Kveðja til ömmu minnar. Hvar hún finnur sinn hvíldarstað herrann sýnir þér líka; hönd guðs þíns fóður heitir það, hugsa um ræðu slíka. Hún finnur ekkert hryggðarstríð, hörmung né mæðu neina, í friði skoðar ætíð blíð ásjónu drottins hreina. Minn Jesú, andlátsorðið þitt í mínu hjarta eg geymi, sé það líka síðast mitt, þá sofna eg burt úr heimi. (Hallgrímur Pétursson.) Guð geymi þig elsku amma mín.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.