Morgunblaðið - 11.03.1999, Side 55
MORGUNBLAÐIÐ
+ Eiríka Elfa Að-
alsteinsdóttir
fæddist í Hermes á
Eskifirði hinn 11.
mars 1948. Hún lést
á Fjórðungssjúkra-
húsinu í Neskaup-
stað hinn 26. febrú-
ar siðastliðinn og
fór útför hennar
fram frá Eskifjarð-
arkirkju 6. mars.
Við vorum átta
fermingarsystkinin
sem fermdumst í
Eskifjarðarkirkju vorið 1962. Elfa
var ein okkar og þótti okkur vænt
um að hún gat fylgt okkur þessa
leið þrátt fyrir fötlun sína. Tilfinn-
ing mín er sú að fermingarsystkini
tengist órjúfanlegum sérstökum
böndum sem endast ævilangt,
sama hverjar aðstæður fólks eru.
Samskipti okkar Elfu voni lítil, en
þegar við hittumst var hún ávallt
glaðleg og skiptumst við á góðum
kveðjum og tíðindum. Elfa naut
ástríkis foreldra, vandamanna og
fjölda vina sem hún eignaðist á
lífsleiðinni. Eg sendi Aðalsteini og
Guðlaugu og fjölskyldum þeirra
innilegar samúðarkveðjur.
Hjörvar.
Þegar kær vinur deyr, hrannast
upp minningar sem geymdar eru í
fylgsnum hugans og snerta strengi
hjartans.
Þú, elsku Elfa mín, hefur svo
ótal oft snert strengi í hjarta mínu,
allt frá því við kynntumst fyrir
nær 35 árum. Mér eru okkar
fyrstu kynni ljóslifandi í minni. Þín
var vænst til Hönnu frænku þinn-
ar og Georgs og við Friðrik, þá ný-
trúlofuð, vorum að koma úr bíó.
Þegar við komum heim varst þú
mætt.
Þú horfðir á mig og sagðir:
„Hvað heitir þú? Ætlar þú að stela
honum frænda frá mér?“ Ég sagði
svo ekki vera, en við gætum bara
átt hann saman, þú samþykktir
það með semingi og svo var spjall-
að fram eftir kvöldi. Þegar kominn
var tími til að hátta tókst þú þétt-
ingsfast utanum mig og hallaðir
höfðinu upp að mér. Síðan hefur
mér alltaf þótt svo undur vænt um
þig;
A þessum árum varst þú á Sól-
heimum og þegar þú komst suður
til Hönnu frænku þinnar komstu
einnig til okkar Friðriks, fyrst á
Suðurgötuna svo í Háaleitið.
Oft var glatt á hjalla hjá okkur
vinkonunum, báðar höfðum við
gaman af tónlist, svo við gátum
sameinast um áhugamálið. Og
mikið varst þú alltaf góð við
krakkana mína. Þú lékst við þau,
fórst með þau út í búð og keyptir
nammi, en bara það sem þér
fannst þau ættu að fá. Það varst þú
sem varst að versla og þú réðir.
Mín kona.
Þau minnast þess nú, eins og svo
oft áður, hvað þú varst þeim góð og
Formáli
minningar-
greina
ÆSKILEGT er að minningar-
greinum fylgi á sérblaði upplýs-
ingar um hvar og hvenær sá,
sem fjallað er um, er fæddur,
hvar og hvenær dáinn, um for-
eldra hans, systkini, maka og
börn, skólagöngu og störf og
loks hvaðan útfór hans fer
fram. Ætlast er til að þessar
upplýsingar komi aðeins fram í
formálanum, sem er feitletrað-
ur, en ekki í greinunum sjálf-
um.
þegar þau fóru í heim-
sókn tfi þín með ömmu
og afa að Sólheimum.
Það er líka ljúf minn-
ingin þegar ég sagði
þér að ég væri ófrísk
að Jóhanni og þú sagð-
ir: „Nei, Anna mín,
ekki eitt enn.“
Og líka er þú komst
stuttu eftir að ég kom
heim af spítalanum
með hann pg þú varst
hjá mér. Ég þurfti að
hengja út þvott og sá
litli lá í vöggunni. Allt í
einu er bankað í niðuna, þá stendur
þú þar með kútinn í örmum þér og
dillar honum. Þegar ég kom inn
MINNINGAR
sagðir þú: „Hann langaði svo til að
frænka lyfti sér.“ Þú varst dásam-
leg.
Ég þakka þér, elsku vinkona, allt
það sem þú gafst mér, kærleika
þinn og skilning á því að það er
ekki allt sjálfgefið í þessum heimi.
Þú varst yndislega góð, hjartahrein
og næm manneskja og nú ert þú ör-
ugglega að syngja og dansa með
englum Guðs í Paradís.
Kæru hjón, Lauga og Alli, við
Friðrik og krakkamir okkar send-
um ykkur innilegar samúðarkveðj-
ur og biðjum Guð að styrkja ykkur.
Einnig biðja Hanna og Georg fyrir
kærar kveðjur.
Að lokum kæra vinkona.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
(V. Briem.)
Þín vinkona.
Anna Jónsdóttir.
t
Útför systkinanna,
SIGRÍÐAR SIGURSTEINSDÓTTUR,
Lönguhlíð 1b,
Akureyri,
sem lést á FSA sunnudaginn 28. febrúar
OG
STEINGRÍMS PÁLMA SIGURSTEINSSONAR,
Bjarmastíg 3,
Akureyri,
sem lést á FSA þriðjudaginn 23. febrúar, verður gerð frá Akureyrarkirkju
föstudaginn 12. mars kl. 13.30.
Þeim, sem vildu minnast þeirra er bent á Fjórðungssjúkrahúsið
á Akureyri.
Fyrir hönd aðstandenda,
Steinþór Friðriksson,
Hanna Sigurðardóttir,
Bernharð Haraldsson,
Daggeir Pálsson.
t
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
KRISTÍN SALÓMONSDÓTTIR,
áður Dalalandi 14,
verður jarðsungin frá Bústaðakirkju föstu-
daginn 12. mars kl. 13.30.
Gústav Óskarsson, Elsa Haraldsdóttir,
Sigrún Þóra Óskarsdóttir,
Rut Hallgrímsdóttir, Emil Ágústsson,
Anna Hallgrímsdóttir, Arngrímur Hermannsson,
ína Salóme Hallgrímsdóttir, Gunnar Borgarsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Flugheilar þakkir sendum við öllum þeim, sem
heiðruðu minningu eiginmanns míns, föður
okkar, tengdaföður og afa,
GÍSLA JÓNSSONAR
prófessors emeritus,
Brekkuhvammi 4,
Hafnarfirði.
Kærar þakkir færum við öllum sem auðsýndu
okkur samúð, hlýhug og vináttu. Sérstakar
þakkir færum við læknum og hjúkrunarfólki á gjörgæsludeild og á
deildum 6A og 7A á Sjúkrahúsi Reykjavíkur fyrir einstakt viðmót og
hjúkrun.
Einnig sendum við hjúkrunarsamtökunum Karítas inniiegar þakkir.
Guð blessi ykkur öll.
Margrét Guðnadóttir,
Elín Gísladóttir, Gunnar Linnet,
Guðni Gíslason, Kristjana Þórdís Ásgeirsdóttir,
Ingunn Gísladóttir, Halldór J. Ágústsson
og barnabörn,
EIRIKA ELFA
AÐALSTEINSDÓTTIR
FIMMTUDAGUR 11. MARZ 1999 55
t
Innilegar þakkir til allra þeirra er sýndu okkur
samúð og hlýju við andlát og útför elskulegrar
móður okkar, tengdamóður, ömmu og langöm-
mu,
LÁRU ÁSGEIRSDÓTTUR NIELSEN,
Bergþórugötu 14,
Reykjavík.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki deildar
4-B, Borgarspítala og deildar K-l á Landakotsspítala
fyrir góða umönnun og hlýju.
Börn, tengdabörn, barnabörn
og barnabarnabörn.
t
Þökkum öllum sem sýndu okkur samúð og
hlýhug við fráfall og útför
SIGURRÓSAR SIGMUNDSDÓTTUR,
Hjallabraut 25,
Hafnarfirði.
Sérstakar þakkir til starfsfólks deildar 11 -E á
Landspítalanum.
Fyrir hönd aðstandenda,
Hólm Dýrfjörð.
t
Þökkum öllum þeim er sýndu okkur samúð og
hlýhug vegna andláts og útfarar hjartkærs
eiginmanns míns,
HILMARS ÞORBJÖRNSSONAR
aðstoðaryfirlögregluþjóns,
Engjateigi 17.
Sérstakar þakkirtil lögreglunnar í Reykjavík og
Lögreglukórsins.
Fyrir hönd aðstandenda,
Ágústa Ósk Guðbjartsdóttir.
t
Innilegar þakkir sendum við öllum þeim, sem
sýndu okkur samúð, hlýhug og vináttu við
andlát og útför konu minnar, móður okkar,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
HELGU JÓNÍNU MAGNÚSDÓTTUR
frá Blikastöðum,
til heimilis á Hlaðhömrum,
Mosfellsbæ.
Sigsteinn Pálsson,
Magnús Sigsteinsson, Marta Sigurðardóttir,
Kristín Sigsteinsdóttir, Grétar Hansson,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Hjartans þakkir sendum við öllum þeim sem
sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og
útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og
langömmu,
HÖNNU HELGASON,
Aflagranda 40,
Reykjavík.
Torfi Jónsson, Jónína H. Gísladóttir,
Helgi V. Jónsson, Ingibjörg Jóhannsdóttir,
Hallgrímur G. Jónsson,
Sigurveig I. Jónsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Lokað
Vegna jarðarfarar ANDRÉSAR GUÐLAUGSSONAR verður fyrir-
tækið lokað frá kl. 13.00 í dag, 11. mars.
Stoð hf.
Lokað
Skrifstofur Viðskipta- og hagfræðideildar og Félagsvísindadeildar
Háskóla íslands verða lokaðar eftir hádegi fimmtudaginn 11.
mars vegna útfarar ÓLAFS BJÖRNSSONAR, fyrrv. prófessors.