Morgunblaðið - 11.03.1999, Síða 57
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 11. MARZ 1999 57
Músíktilraunir Tónabæjar
RLR
► RLR er hljómsveit frá Selfossi og Reykjavík skipuð þeim
Stefáni Ólafssyni snúði og rappara og Georg K. Hilmarssyni
rappara. Þeir segjast spila Hip-Hop og eru á sextánda og
sautjánda ári.
Raddlaus rödd
► ÁRNI Jóhannsson gítarleikari og söngvari, Jóliann Linn-
et bassaleikari og Ólafur Þór Ólafsson trommuleikari eru liðs-
menn Raddlausrar raddar. Þeir Árni og Jóhann eru úr Mos-
fellsbæ, en Ólafur frá Laugarvatni. Þeir félagar leika hrátt
rokk en meðalaldur þeirra er rúm sextán ár.
Fuse
► FUSE er hljómsveit utan af landi, frá Akranesi og Borgar-
nesi, og hana skipa þau Árni Teitur Ásgeirsson hljómborðs- og
tölvuleikari, Bjarni Þór Hannesson trommuleikari, Þorsteinn
Hannesson trommuleikari, Vilberg H. Jónsson bassaleikari og
Guðríður Gunnarsdóttir Ringsted söngkona. Þau spila Drum ‘n
Bass-tónlist og cr meðalaldur hljómsveitarlima nítján ár.
Músíktilraunir, hljómsveitakeppni
Tónabæjar, hefst í kvöld. Arni
Matthíasson spáði í sveitirnar sem
taka þátt, en allar eru þær
bílskúrssveitir víða að.
MÚSÍKTILRAUNIR Tónabæjar hefjast í kvöld, en svo neftiist
hljómsveitakeppni á vegum félagsmiðstöðvarinnar sem opin er bíl-
skúrssveitum hvaðanæva af landinu. í tilraununum keppa hljóm-
sveitir um hljóðverstíma og ýmis önnur verðlaun, en sigur í tilraununum
hefur dugað mörgum sveitum vel til að koma sér áfram í tónlistinni og
margar hafa þær gefið út breiðskífu í kjölfarið.
Tilraunimar að þessu sinni eru þær sautjándu í röðinni frá 1982 og um
sexhundruð sveitir hafa spreytt sig á sviðinu í Tónabæ frá þeim tíma.
Framan af voru tilraunakvöldin þrjú, keppt á þremur fimmtudögum í röð
og síðan úrslit á fóstudagskvöldi, en seinni ár hefur aðsókn að tilraununum
aukist svo mjög að ástæða þótti til að hafa eitt kvöld til. Þannig hefjast til-
raunimar í kvöld, eins og áður sagði, næsta fimmtudag, 18. mars, verður
annað tilraunakvöld, föstudaginn 19. það þriðja og fjórða tilraunakvöldið
verður fimmtudaginn 25. mars. Úrslit verða síðan föstudaginn 26. mars.
í fyrstu tilraununum 1982 sigraði Danshljómsveit Reykjavíkur og ná-
grennis, DRON. 1983 sigraði kvennasveitin Dúkkulísur. Tilraunimar féllu
niður 1984 vegna verkfalls kennara, en 1985 sigraði þungarokkssveitin
Gipsy. 1986 sigraði sumarpoppið með Greifunum, 1987 enn sumarpopp
með Stuðkompaníinu, og lokaskammtur sumarpopps var sigur skag-
strendsku sveitarinnar Jójó 1988. Laglausir úr Hafnarfirði sigmðu 1989
og önnur Hafnarfjarðarsveit árið eftir, Nabblastrengir. Dauðarokkið
komst á kortið þegar Infusoria sigraði 1991, kvennasveitin Kolrassa
krókríðandi 1992, Yukatan 1993, Maus 1994, enn Hafnarfjarðarsveit 1995,
Botnleðja, Stjömukisi 1996, Soðin fiðla 1997 og Stæner á síðasta ári,
þannig að fjórar haftifirskar rokksveitir hafa borið sigur úr býtum á Mús-
íktilraunum.
Sigurlaun Músíktilrauna em jafnan hljóðverstímar, auk fleiri verðlauna.
Að þessu sinni hreppir sigursveitin 25 tíma í Sýrlandi frá Skífunni. Fyrir
annað sæti fást 25 tímar í Gijótnámunni sem Spor gefur, en þriðju verð-
laun em 20 tímar frá Stúdíó Hljóðsetningu. Tónabúðin verðlaunar besta
söngvarann að vanda, Rín besta gítarleikarann, Samspil besta trommai--
ann, Hijóðfærahús Reykjavíkur besta bassaleikarann, en það gefur einnig
verðlaun besta tölvumanninum sem BT gerir einnig. Tónastöðin verðlaun-
ar sérstaklega besta söngvarann og besta gítarleikarann og Japis gefur
sigursveitunum geisladiska og verðlaunar sérstaklega besta rapparann
með plötuúttekt.
Styrktaraðilar Músíktilrauna em fleiri en þeir sem gefa verðlaun, því að
keppninni koma auk Tónabæjar Hard Rock Café, Domino’s Pizza, Flugfé-
lag íslands, Flugleiðir, Pizzahúsið, Rás 2, Vífilfell, sem verður með beina
útsendingu frá keppninni á www.coca-cola.is, Undirtónar, Skífan og Hljóð-
kerfisleiga Marteins Péturssonar.
Eins og jafnan hita ýmsar sveitir upp áður en hljómsveitakeppnin hefst
hvert kvöld og á meðan atkvæði em talin í lokin. í kvöld em það Unun og
Bellatrix sem troða upp.
Trekant
►HLJÓMSVEITIN sem ber þetta sérkennilega nafn
Trekant er af Reykjavíkursvæðinu. Hana skipa
Ingólfur Magnússon gítarleikari, Hafþór Helgason
trommuleikari og Logi Helgu bassaleikari, en hann
var einnig í Kóngulóarbandinu sem glöggir kannski
muna eftir. Þeir félagar segjast spila tilfínningarokk
og er meðalaldurinn í hljómsvcitinni m'tján ár.
Freðryk
► EYVINDUR Karlsson söngvari og gítarleikari og
Fróði Árnason tölvu- og bassaleikari skipa hljóm-
sveitina Freðryk. Þeir koma báðir úr Reykjavík og
segjast vera undir áhrifum frá veröldinni og um-
hverfínu en spila þó tilraunakennda raftónlist.
Meðalaldur þeirra er átján ár.
600 sveitir spreytt sig
Kruml
► KRUML er hljómsveit héðan úr Reykja-
vík og hana skipa Agnar Burgess söngvari, Jón Þór Ólafs-
son gítarleikari, Steingrímur Þórarinsson bassaleikari og Da-
víð Örn Hlöðversson trommuleikari. Þeir segjast einfaldlega
spila rokk og eru allir á sextánda ári.
Leggöng Tunglsins
► HLJÓMSVEITIN Leggöng Tunglsins er af Reykjarvíkur-
svæðinu, en hana skipa þau Hákon Aðalsteinsson gítarleikari
og söngvari, Haukur Þór Jóhannsson bassaleikari, Heimir Örn
Hólmarsson trommuleikari og Björk Viggósdóttir hljómborðs-
leikari og bassaleikari. Einnig fer Björk með ljóð. Þau segjast
spila rokk og er meðalaldur í hljómsveitinni nítján ár.
Mínus
► HLJÓMSVEITIN Minus er skipuð þeim Frosta Logasyni gít-
arleikara, Oddi Hrafni Björgvinssyni söngvara, Birni Stefáns-
syni trommuleikara, ívari Snorrasyni bassaleikara og Bjarna
Sigurðarsyni gítarleikara, Þeir koma frá Stór-Reykjavíkur-
svæðinu og segjast spila noisemetalhardcore. Meðalaldur í
hljómsveitinni er nítján ár.
Við viljum fylgja bílnum sem við seljum þér úr hlaði.
Notfærðu þér ókeypis skoðun í fullkominni skoðunarstöð okkar.
JJ 0 { Œ> TOYOTA 1 1 Betri notaóir bílar J
^ J