Morgunblaðið - 11.03.1999, Síða 58
MORGUNBLAÐIÐ
58 FIMMTUDAGUR 11. MARZ 1999
Alþjóðleg hundasýning Hunda-
ræktarfélags Islands
Mikil framför
í hundarækt
hérlendis
ALÞJÓÐLEG hundasýning
Hundaræktarfélags Islands var
haldin í reiðhöll Gusts í Kópavogi
. um helgina. Að sögn Emilíu Sigur-
steinsdóttur sýningarstjóra var
þetta stærsta vorsýning sem félag-
ið hefur haldið, en um 300 hundar
voru sýndir. Þá var húsfyllir báða
dagana en rúmlega 600 manns
sóttu sýninguna.
Hundaræktarfélagið heldur al-
þjóðlegar sýningar tvisvar á ári, á
vorin og haustin. Erlendir dómar-
ar eru þá fengnir til landsins, en
dómararnir nú voru Terry Thom
frá Englandi og Cecilia Holmstedt
frá Svíþjóð. Að sögn Emilíu voru
dómaramir mjög ánægðir með
fyrirkomulag sýningarinnar sem
þeir sögðu vera á heimsmæli-
^ kvarða, en einnig þótti þeim
stemmningin meðal áhorfenda og
sýnenda góð. A alþjóðlegum sýn-
ingum gefst þeim íslensku hund-
um, sem þykja framúrskarandi,
tækifæri til að vinna sér inn al-
þjóðleg meistarastig, en þegar
hundur hefur hlotið fjögur alþjóð-
leg meistarastig er hann útnefnd-
ur alþjóðlegur meistari af Alþjóða-
samtökum hundaræktarfélaga
(FCI).
Emilía sagði að merkja mætti
greinilega uppsveiflu í íslenskri
hundarækt og að tilkoma einangr-
ÚLFAR Snær Arnar-
son og Airdale terri-
er-hundurinn Stan-
stead Double Trou-
ble Jokyl, en hann er
fyrsti og eini hundur
sinnar tegundar hér
á landi.
BESTI öldungurinn
var enski Springer
spaniel-hundurinn
Jökla-Ottó. Frá
vinstri: Terry
Thorn, dómari frá
Englandi, og Ellert
Þór Hlíðberg, eig-
andi Jökla-Ottós.
unarstöðva hefði haft mjög jákvæð
áhrif á ræktina. Hún sagði að
næsta stórverkefni Hundaræktar-
félagsins yrði sýning sem haldin
yrði í tilefni 30 ára afmælis félags-
ins. Sýningin verður haldin í lok
ágúst en þá mun einnig þing
Norænna hundaræktarfélaga
verða haldið hér á landi.
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
ÞÓRHILDUR Bjartmarz, formaður Hundaræktarfélagsins, og Hjördís H. Ágústsdóttir, eigandi besta hunds
sýningarinnar, þýska fjárhundsins Gildewangens Aramis.
TÍBESKUR spaniel var valinn besti ræktunar- og afkvæmahópurinn en hér er hann
með ættmóðurinni Tíbrá Tinda.
CECILIA Holmstedt skoðar tennur í Standard poodle-hundinum
hennar Sóleyjar Höllu Möller.
ÍSLENSKI fjárhundurinn Galtnes-Röskva ÍSLENSKI fjárhundurinn Freyjavar í
var valin best sinnar tegundar. Eigandi öðru sæti sem besti hvolpur sýningarinn-
hundsins er Amþrúður Heimisdóttir. ar. Eigandi er Anna Dóra Markúsdóttir.
ViÐ GiítíÐfy'' [£ID
HLU
• -
Pf 1
MARIGLEN Midnight Sun var valinn besti enski setterinn. Frá vinstri: Terry Thorn
dómari og Sigurður H. Sigurðarson eigandi.