Morgunblaðið - 11.03.1999, Side 61
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
FIMMTUDAGUR 11. MARZ 1999 61
Sófi og tveir stólar
verð kr. 162.955.-
áður kr. 250.700.-
Rýmum til og bjóðum
nokkur sófasett, borð og
skápa á kostnaðarverði!
\/IéM
7vKRISTALL
Faxafeni
Húsgagnadeild
Stúdentaráð
fagnar
ákvörðun
ríkisstjórnar
„STÚDE NTARÁÐ fagnar því að
ríkisstjórnin hefur nú komið til
móts við kröfur námsmanna og
hækkað bæði grunnframfærslu
Lánasjóðs íslenskra námsmanna
og frítekjumarkið. Verulega er
komið til móts við kröfur náms-
manna og um leið viðurkennt að
ástandið var algjörlega óviðunandi.
Breytingin er því skref í rétta átt,“
segir í samþykkt Stúdentaráðs.
„Stúdentaráð Háskóla íslands
hefur nú í rúmt ár lagt sérstaka
áherslu á hækkun frítekjumarks
og grunnframfærslu Lánasjóðs ís-
lenskra námsmanna. Lögð var
áhersla á að grunnframfærslan
þarf að hækka til samræmis við
aðrar þær hækkanir sem aðrir
hópar í þjóðfélaginu hafa fengið í
kjölfar síðustu kjarasamninga og
frítekjumarkið þarf að taka mið af
lágmarkslaunum í landinu.
Ljóst er að menntamálaráðherra
tekur skref í þá átt að viðurkenna
nám sem fulla vinnu og mikilvægi
þess að öllum sé tryggður réttur til
náms án tillits til efnahags," segir
ennfremur.
------------
Leiðrétt
0,07%
munur
Munurinn á frambjóðendum í
kosningu formanns á aðalfundi SH
var 0,07%, en ekki 0,7% eins og
misritaðist í fyrirsögn og texta
fréttar á miðsíðu blaðsins í gær.
Beðist er velvirðingar á mistökun-
um.
Hörn en ekki Hrönn
Misritun varð í millinafni þess
frambjóðanda sem skipar 10. sæti
lista VG í Norðurlandi eystra, sem
birtist á þriðjudaginn. Frambjóð-
andinn heitir Hulda Hörn Karls-
dóttir. Beðist er velvirðingar á mis-
tökunum.
Stuttmynda-
dagar í
Reykjavík
1999
KVIKMYNDAFÉLAG íslands ehf.
auglýsir eftir stuttmyndum í keppn-
ina Stuttmyndadagar í Reykjavík
sem haldin verður 25., 26. og 27. maí
næstkomandi. Öllum er heimil þátt-
taka um fímm bestu stuttmyndimar
og veitir Reykjavíkurborg verðlaun
íyrir íyi-stu þrjú sætin, segir í frétta-
tilkynningu.
Tekið er á móti myndum á SP,
VHS, SP Beta, HI 8 og DV foi-mati
hjá Kvikmyndasjóði Islands, Hall-
veigarstöðum, Túngötu 14, 2. hæð,
alla virka daga frá kl. 10-12 og 13-16
hjá Sigríði Jónsdóttur, starfsmanni
Kvikmyndasjóðs. Æskileg lengd
myndai- er frá 3-20 mín.
Þátttökugjald er 1.500 kr. fyrir
hverja mynd og þarf að fylla út sér-
stök eyðublöð sem fást hjá Kvik-
myndasjóði. Frestur til að skila inn
myndum rennur út 7. maí næskom-
andi.
Auk stuttmyndasýninga verður
fjöldi fyrirlestra um kvikmyndagerð
og skyld mál og sýnishorn úr nýjum
íslenskum kvikmyndum.
Nánari upplýsingar gefur Bryndís
Jóhannsdóttir, framkvæmdastjóri
Stuttmyndadaga í Reykjavík.
Þingmenn á
Kiwanisfundi
Á FUNDI Kiwanismanna í Garða-
bæ í kvöld, fimmtudag kl. 20, í
Kiwanishúsinu við Faxatún mæta
alþingismennirnir Siv Friðleifsdótt-
h' og Guðmundur Ámi Stefánsson.
Þau eru alþingismenn Reykjanes-
kjördæmis og munu skiptast á
skoðunum á fundinum.
Veislukaffi Skag-
firsku söngsveit-
arinnar
HIÐ árlega veislukaffi Skagfirsku
söngsveitarinnar i Reykjavík verð-
ur haldið sunnudaginn 14. mars í
Félagsheimilinu Drangey v/Stakka-
hlíð. Húsið verður opnað kl. 14.30.
Boðið verður upp á kaffiborð og
skemmtun. Söngsveitin tekur létta
sveiflu, söngkonan Kristín R. Sig-
urðardóttir syngur nokkur lög og
tveir ungir herramenn leika á selló
og fiðlu. Allir velkomnb.
Þjónusta við
skattgreiðendur
á Húsavík verði
ekki skert
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi ályktun frá bæjaiTáði
Húsavíkur sem samþykkt var á
fundi 4. marz sl.:
„Bæjarráð Húsavíkur skorar á
skattayfirvöld að tryggja að
þjónusta við skattgreiðendur í
bænum verði ekki skert við
starfslok núverandi starfsmanns
Skattstofu Norðurlands eystra á
Húsavík.
Jafnframt tekur bæjarráð undir
hugmyndir sem hafa verið til
umræðu þess efnis að fjölga
svokölluðum útstöðvum hjá
skattayfirvöldum og bæta þannig
aðgengi íbúa á landsbyggðinni að
þessari þjónustu ríkisvaldsins.
Að lokum minnir bæjarráð á þá
staðreynd að hvert starf í opinbem
þjónustu á landsbyggðinni er
mikilvægt og þar er Húsavík engin
undantekning.“
Gjöftil
Kvennadeild-
ar Landspít-
alans
SVÖLURNAR, líknarfélag nú-
verandi og fyrrverandi flug-
freyja, afhentu rafskurðar-
tæki til aðgerða á eggjaleiður-
um kvenna, að verðmæti yfír
átta hundruð þúsund kr., á 50
ára afmæli Kvennadeildar
Landspítalans í janúar.
Af því tilefni er þessi mynd
tekin: Rannveig Ásbjörnsdótt-
ir, formaður Svalanna, Auðólf-
ur Gunnarsson, læknir, Gerð-
ur Gunnarsdóttir, varaformað-
ur, Margrét Ríkarðsdóttir,
fráfarandi formaður, Auður
Aradóttir, formaður jólakorta-
nefndar, Inga Eiríksdóttir,
gjaldkeri, og Helga Kristín
Einarsdóttir, yfirhjúkrunar-
kona á skurðdeild Kvenna-
deildarinnar.
Aðalfundur Skógræktarfélags
Hafnarfjarðar í kvöld
FRÁ skógarreitnum í Gráhelluhrauni.
Skógrækt í þéttbýli
- Bæjarskógurinn
AÐALFUNDUR Skógræktarfé-
lags Hafnarfjarðar verður haldinn
í Sverrissal í Hafnarborg í kvöld,
fimmtudaginn 11. mars, og hefst
hann kl. 20.30. Auk hefðbundinna
aðalfundarstarfa mun Hallgrímur
Indriðason, framkvæmdastjóri
Skógræktarfélags Eyfirðinga
flytja erindi með myndum er hann
nefnir „Skógrækt og útivist í þétt-
býli - Bæjarskógurinn“.
Skógræktarfélag Hafnarfjarðar
er áhugamannafélag þar sem
margir hafa lagt gjörva hönd að
verki við að græða upp bæjarland-
ið og klæða það skógi. Hefur orðið
mikill árangur af þessu fórnfúsa
starfi og er óhætt að segja, að
skóglendið á vegum þess sé nú ein
af útivistarperlunum á höfuðborg-
arsvæðinu. Er nú unnið að
deiliskipulagi í landi félagsins við
Hvaleyrarvatn.
Skógræktarfélagið sinnir einnig
fræðslu um ýmis mál, sem tengjast
uppgræðslu og náttúrvernd og má
í því sambandi nefna, að félagið
hefur komið upp trjásýnilundi í
Höfðaskógi við Hvaleyrarvatn í
samvinnu við Búnaðarbanka ís-
lands. Má þar sjá mikið af trjám
og trjákenndum gróðri, sem unnt
er að rækta hér á landi, segir í
fréttatilkynningu. Eru allar teg-
undir vel merktar og lundurinn öll-
um opinn. Þess má geta, að 8. júlí
nk. mun félagið standa fyrir göngu
um trjásýnilundinn í fylgd fag-
manna.
Fuglarnir í skóginum
Síðastliðið sumar lét Skógrækt-
arfélagið útbúa veglegt veggspjald,
sem hefur titilinn „Fuglarnir í
skóginum og við Hvaleyrarvatn"
og sýnir það þær tegundir, sem
hafast við í skóglendum félagsins
og næsta nágrenni.
Þeir, sem hafa áhuga á að ganga
til liðs við Skógræktarfélag Hafn-
arfjarðar geta fengið upplýsingar
um starfsemina í símum félagsins.
LAGERSALA
Áhúsgögnum • Síðastidagur
London
frá kr. 16.645
f sumar með
Heimsferðum
Heimsferðir bjóða nú beint leiguflug vikulega til London í sumar,
en við höfum stórlækkað verðið fyrir íslenska ferðalanga til
þessarar mestu heimsborgar Evrópu. Nú getur þú valið um að
kaupa flugsæti eingöngu, flug og bíl eða valið um eitthvert
ágætis hótel Heimsferða í hjarta London. Brottför alla miðviku-
daga í sumar. Bókaðu strax og tryggðu þér lága verðið.
Verð kr. 16*645 Verðkr. 19*990
M.v. hjón með 2 born. 2-11 ára, flugsæti og skaftar. Flug og skattur.
Austurstræti 17, 2. hæð • sími 562 4600 • www.heimsferdir.is
Aðsendar greinar á Netinu
<^j> mbl.is
Al.LTAf= 6/777/l^£7 /VÝTT