Morgunblaðið - 11.03.1999, Side 68
68 FIMMTUDAGUR 11. MARZ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
KVIKMYNDIR/Bíóhöllin og Laugarásbíó hafa
tekið til sýninga gamanmyndina Patch Adams,
með Robin Williams í aðalhlutverki.
Hláturinn
lengir lífíð
MÉR hefur alltaf fundist það
óheppilegt og furðulegt að
fólk sýnir reiði og leyfir sér
að vera afundið án þess að hugsa sig
um en er hikandi við að sýna já-
kvæðar tilfinningar," segir Patch
Adams, sá sem söguhetjan í mynd-
inni er byggð á. „Við vitum öll hvað
kærleikur er mikilvægur en hve oft
lætur fólk eftir sér að fínna til kær-
leiks og sýna þá tilfinningu? Marga
sjúklinga hrjá einmannakennd, leiði
og ótti; það er ekki til nein pilla sem
læknar þetta.“
Myndin fjallar um árekstra
óhefðbundinna aðferða hins unga
Patch Adams og fulltrúa hins hefð-
bundna viðhorfs í heilbrigðiskerf-
inu. Myndin er byggð á sannri sögu
læknanemans, sem vildi ekki bara
lækna sjúkdóma, heldur láta fólki
líða betur.
A námsferilsskrá Hunter „Patch“
Adams í læknadeildinni var skrifað
að hann væri óhóflega hamingju-
samur. Námsráðgjafi við deildina
sagði við hann: Ef þú vilt vera trúð-
ur þá ættirðu að ganga í sirkus.
Patch vildi vera trúður en hann vildi
líka vera læknir og hann sameinaði
þessar ólíku hliðar persónuleika
síns og varð hvort tveggja.
Patch ákvað að verða læknir eftir
að hafa á unglingsaldri verið lagður
á geðdeild vegna þunglyndis.
Sem læknanemi var Patch sífellt
að reka sig á það sem stjórnendum í
heilbrigðiskerfinu fannst viðeigandi
en í barnadeildinni átti hann auð-
veldast með að koma sínum hug-
myndum á framfæri og þar sem
gamansemi hans hjálpaði yngstu
sjúkiingunum oft til að yfirstíga ótt-
ann við sjúkdóm sinn. Patch leyfði
sjálfum sér að sýna veikleika sinn í
anda þeirrar hugmyndafræði að
best sé að fást við eigin vandamál
með því að verða öðrum að liði. Þótt
hann hafi gert marga fráhverfa sér
náði hann sambandi við aðra og
tókst að vinna hugmyndum sínum
hljómgrunn eftir því sem þær fóru
að bera árangur.
Pateh notaði óvenjulegar og
stundum stórfurðulegar aðferðir til
þess að draga úr kvíða sjúklinga og
ýta undir að þeir næðu heilsu. Hann
ýtti undir framgang þeirrar hug-
myndar, sem þótti stórundarleg
fyrir um 25 árum, að læknar ættu
að lækna fólk en ekki bara sjúk-
dóma og sýna sjálfu fólkinu sem
þeir meðhöndla áhuga, samúð og
samlíðan, en þetta segir Patch að
séu jafnmikilvæg lækningatæki og
ný lyf og tækniframfarir.
I dag rekur hann vinsælt fyrir-
tæki í Virginiu, Gesundheit Institu-
te, þar sem lögð er áhersla á per-
sónulega heilbrigðisþjónustu. Hug-
myndafræði hans hefur breiðst út
undanfarin ár og Patch hefur skrif-
að metsölubók um ævi sína og starf.
„Fólk var búið að afgreiða Patch
þannig að hann væri með ranghug-
myndir, einhver Don Kíkóti,“ segir
Robin Williams. „En það skín af
honum áhuginn, greindin og ein-
lægnin. Hann er ekki að eltast við
vindmyllur heldur að gera allt sem
nauðsynlegt er til þess að hjálpa
fólki. Heilbrigðisþjónusta er orðin
hálfsjálfvirk og verksmiðjukennd.
Fólk hefur minna samband en áður
við lækna og hjúkrunarfólk. Patch
neitar að gefa upp á bátinn hug-
myndir sínar um að það skipti máli
um að koma blíðlega og af um-
hyggju fram við sjúklingana."
Auk stórstjörnunnar Robin Willi-
ams er í stóru hlutverki Monica
Potter úr Martha Meet Frank,
Daniel and Laurence. Leikstjóri er
Tom Shadyac, sá sem gerði Ace
Ventura, Liar, Liar og Nutty Pro-
fessor myndmnar.
Geir Ólafsson söngvari stefnir á heimsfrægð
Frank Sinatra
í uppáhaldi
Sön^varinn með skæru röddina, Geir
✓
Olafsson, hefur gert garðinn frægan með
hljómsveitinni Furstunum. Dóra Osk Hall-
dórsdóttir hitti Geir og spjallaði við hann
um sönginn og framtíðina.
SEGIÐ ÖLLUM fréttirnar,
ég er að fara í dag... New
York, New York“ söng
Frank Sinatra um árið en lagið
gæti vel átt við Geir Ólafsson sem
auk þess að vera á leiðinni vestur
um haf næsta sumar syngur mörg
lög Frank Sinatra með hljómsveit-
inni Furstunum.
- Syngurðu bara Sinatra?
„Nei, nei, ég syng mörg önnur
lög. En Sinatra er í uppáhaldi og lög
frá því tímabili með söngvurum eins
og Dean Martin og Bing Crosby."
- Nú ert þú ungur maður.
Hvaðan kemur þetta dálæti á
söngvurum sem voru upp á sitt
bcsta um miðja öldina?
„Eg er bara mikill smekkmað-
ur. Eg hef alltaf haft gaman af
hlutum sem eru gamlir og flottir.
Sjáðu bara klæðaburðinn á þessu
tímabili. Þetta voru glæsilegir
tímar. Því miður sér maður ekki
sama stælinn í dag, ekki nema í
gömlum bíómyndum. En hugsan-
lega má rekja dálæti mitt á þess-
ari tónlist til heimahaganna því
faðir minn, Ólafur Benediktsson,
var mikið í tónlist á sínum yngri
árum. Hann var trommari í Sóló
og í Lúdó og Stefáni. Það var því
.mikið spilað af þessari skemmti-
'legu tónlist á heimilinu.“
Rosalega
rómantískur
- Höfðar þessi tónlist ekki
meira til eldri hóps en þinna jafn-
aldra?
„Það er svo merkilegt við þessa
tónlist að hún höfðar til allra. Ég
hef oft tekið eftir því að þegar ég
hef verið að syngja kemur fólk á
öllum aldri. Það er alveg sama
hvort fólk er ungt eða gamalt, það
skemmta sér allir jafnvel. Þetta er
svo melódísk og rómantísk tónlist.
Og ég er rosalega rómantískur.“
-Klæðirðu þig kannski líka í
anda þessa tímabils, með hatt og í
frakka?
„Nei, kannski ekki með hatt. En
ég hef gaman af því að vera fínn
og er oft í jakkafötum. Þegar ég
kem fram vil ég vera smekklega
klæddur.“
- Hvernig hófst þetta samstarf
þitt við þessa landskunnu djassara
í Furstunum?
„Ég byrjaði að læra á slagverk
hjá Guðmundi Steingrímssyni og
þar má eiginlega segja að ferill
minn hafi byrjað. Mér bauðst að
koma fram á veitingastað fyrir
þremur árum og þá ákvað ég að
hafa samband við þá Arna Schev-
ing, Karl Möller og Guðmund
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
GEIR í Sinatra-sveiflu,
Steingríms, og þá varð hljómsveit-
in Furstarnir til.“
Stefnir hátt
- En er það rétt að þú sért að
fara utan?
„Já, ég er að fara til New York í
sumar að öllu óbreyttu. Þegar ég
var úti í Bandaríkjunum í fyrra
ákvað ég að þræða alla staðina á
Manhattan þar sem flutt var lif-
andi tónlist. Þar var bara tekið vel
MYNPBÖND
Blandað
saman nútíð
og fortíð
Leit Artúrs
(Arthur’s Quest)__
Fjölskyldumynd
"★‘/2
Framleiðandi: Steven Paul. Leik-
stjóri: Neil Mandt. Handrit: Gregory
Poppen. Aðalhlutverk: Arye Gross,
Eric Olsen og Katie Johnston. (92
mín) Bandaríkin. Skffan, mars 1999.
Myndin er öllum leyfð.
ÞEGAR illa seiðkvendið Morg-
ana ógnar lífi hins þriggja ára Ar-
túrs sem á að verða konungur
Englands, send-
ir galdrameist-
arinn Merlin
drenginn til 20.
aldarinnar í
gegnum tíma-
göng. Artúr vex
því úr grasi sem
venjulegur
bandarískur
piltur, þar til
Merlin og Morgana koma að vitja
hans tíu árum síðar.
Hér er blandað saman nútíð og
fortíð, goðsögu og hversdagsleika,
og búin til meðalgóð sjónvarps-
mynd fyrir fjölskylduna. Allt sem
fram kemur hefur sést oft og
mörgum sinnum í kvikmyndum en
er útfært nokkurn veginn skamm-
laust hér. Líklega má segja að
menn hvorki græði né tapi á því að
sjá þessa kvikmynd.
Heiða Jóhannsdóttir
á móti mér og ég fékk að syngja á
nokkrum stöðum. Svo hitti ég á
hljómsveit sem ég söng með í eitt
skiptið og þeir urðu svo hrifnir af
minni háu, skæru rödd að þeir
ákváðu að ráða mig. Hljómsveitin
heitir Perfect Squares og spilar á
klúbbum á Manhattan á sumrin.“
Geir segir að von sé á plötu frá
sér í september. „Það er stórvinur
minn Sverrir Stormsker sem sem-
ur lög og texta. Platan verður í
svona „sving“-stíl. Kannski fær
eitt lag með Sinatra að fljóta með,
það er aldrei að vita.“
Geir kemur fram á Rán í Kefla-
vík í kvöld með Furstunum. „Það
jafnast ekkert á við að syngja fyr-
ir hóp af fólki.“
-Er utanferðin liður í því að
leggja undir sig heiminn?
„Ég hef sagt það áður að ég
stefni að því að verða heimsfræg-
ur söngvari. Hins vegar verður
tíminn bara að leiða það í ljós
hvort það tekst. En ef maður er
með slíka drauma eru bara þrír
staðir sem koma til greina, New
York, Los Angeles eða London.“
- Nú hefur hún Alda Björk gert
það gott í Englandi, og hún hefur
eins og þú unnið með Sverri
Stormskeri.
„Já, þarna sérðu. Allir sem
Sverrir vinnur með komast langt,“
segir Geir og hlær. _„En ég er
mjög hrifinn af Öldu. I fyrsta lagi
er hún frábær skemmtikraftur og
svo er hún ekki síður skemmtileg-
ur persónuleiki. Það er það sem
skiptir máli, finnst mér.“
Geir segir að núna ætli hljóm-
sveitin að spila á sem flestum
stöðum. í kvöld syngur Geir á Rán
í Keflavík og á sunnudagskvöldið í
Vestmannaeyjum. „Stefnan er að
spila á sem flestum stöðum út um
landið og miðla sjálfum mér til
fólksins. En langtímamarkmiðið
er að verða stöðugt betri, betri í
dag en í gær. En ég er ekki í sam-
keppni við nokkurn mann, þótt ég
vilji ná eins langt og hægt er,“
segir Geir að lokum.