Morgunblaðið - 11.03.1999, Page 70
70 FIMMTUDAGUR 11. MARZ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
STRAX
eftir ræktina
FÓLK í FRÉTTUM
Vöfflur
með rjóma
✓
Hinn 6. mars hélt Bellatrix tónleika í Arós-
um í Danmörku, og lauk þar með tveggja
mánaða tónleikaferðalagi um Evrópu. Nú er
sveitin á leið til Bandaríkjanna og fer síðan
aftur til Bretlands. Baldur A. Krístinsson
tók Elízu, forsöngvara sveitarinnar, tali í
Arósum til að spyrja hana nánar um ferðina.
FYRIR UM hálfu ári voruð
þið valin besta hljómsveitin
með lausa samninga á „In
the City“-hátíðinni í Manchester.
Hvaða þýðingu hefur þetta haft fyrir
ykkur hingað til?
„Það hefur verið alveg ómetanlegt.
Reyndar má segja, að allt sem er að
gerast hjá okkur núna sé sprottið af
þeirri viðurkenningu. Áhuginn á okk-
ur hefur hreinlega margfaldast."
Síðan um áramótin hafíð þið verið
á tónleikaferðalagi um Evrópu. Hvar
hafíð þið verið?
„I janúar vorum við í Hollandi,
Belgíu, Englandi og á Irlandi. Svo
tókum við tveggja vikna frí. í febrú-
ar og marsbyrjun höfum við verið í
Noregi og Danmörku og síðan höld-
um við til Bandaríkjanna. Við ljúkum
þessari törn með nokkrum tónleik-
um í Englandi í lok mars.“
Það má líta svo á, að útgáfa „G“ og
þessi tónleikaferð sé byrjunin á aI-
þjóðaferlinum hjá ykkur. Finnið þið
einhver viðbrigði? Hafíð þið Iært
eitthvað af þessu nú þcgar?
„Við höfum í rauninni verið at-
vinnuhljómsveit í tvo mánuði, og
auðvitað eru það mikil viðbrigði mið-
að við gamla rólið. Við erum laus við
allar skuldbindingar á Islandi (nema
hvað ég þarf að ljúka söngnáminu nú
í vor), og einbeitum okkur algerlega
að tónlistinni. Þetta er miklu strang-
ari og þéttari dagskrá en við höfum
þurft að fylgja áður, með tónleika
allt að því daglega. Við höfum þurft
að venjast því að taka því rólega á
milli tónleika, sofa reglulega, lesa
góða bók fyrh' háttinn frekar en að
þjóra fram á nótt, o.s.frv. I stuttu
máli að líta á þetta sem vinnu frekar
en skemmtun. Þar að auki held ég að
við höfum lært að sýna hvert öðru
meira umburðarlyndi, sem er alger
nauðsyn af því að svona ferðalag tek-
ur oft mikið á taugarnar."
Vinnu frekar en skemmtun, seg-
irðu. Vonandi finnst ykkur ekki
skemmtunin vera að hverfa úr tón-
leikahaldinu?
„Nei, nei, þetta hefur verið feiki-
gaman; annars værum við náttúru-
lega ekki að þessu. Það er stundum
erfitt og stressandi að vera á svona
flakki, en góðir tónleikar og
skemmtilegar uppákomur vega það
upp og meira til. Það var t.d. mjög
gaman að vera í Noregi, þar sem all-
ir tóku okkur ákaflega vel. A einum
staðnum tóku tónleikahaldararnir á
móti okkur með vöfflum og rjóma.
Svo komumst við að því, að við eig-
um þar einkar harðan kjarna af að-
dáendum. Ein unglingasveitin í Nor-
egi tekur „coverlög" með okkur, og
syngur þau meira að segja á ís-
lensku! Og það er alltaf að gerast
eitthvað óvænt. Þegar við héldum
tónleika í Kaupmannahöfn fyrr í vik-
unni kynnti ég síðasta lagið, og sagði
sem svo, að ef fólk vildi heyra meira,
vissi það hvað þyrfti að gera. En í
stað þess að klappa okkur upp eins
og venjan er, stukku tveir áhorfend-
ur upp á sviðið og kysstu okkur!
Auðvitað neyddumst við til að spila
meira...“
Nú eruð þið á leiðinni til Bandaríkj-
anna. Hvers væntið þið af þeirri ferð?
„Við förum á tónlistarhátíð í Texas
sem heitir „South by Southwest".
Þetta er svipuð hátíð og „In the
City“, bara mun stærri í sniðum. Á
leiðinni þangað höldum við líka eina
tónleika í New York, aðallega í því
skyni að gefa fulltrúum nokkurra
plötuúgefenda færi á að heyra í okk-
ur. Við erum semsagt bara að freista
gæfunnar og þreifa fyrir okkur um
nýjan markað vestanhafs.“
;
f K-daffiino’é ^
Var Lag
i 1 4 Ladyshave 2. skipti á toppinn Gus Gus
HJ 1 King 01 Snake llHtlnnionnlá mmmmú
» 9 Charlie Big Potato Skunk Anansls
| 4 5 Why Dont You Get A Job? Offsprlng
« 2 Fragments Of Life Rfly Vedas
» 8 Freak On A Leash Korn
8 ' 13 My Own Wopst Enemy Ut
li ..8 :i 8 1 Tender Btar
» You Stole The Sun... Manic Street Proachens
10 3 Whisky in The Jan MfltaHira liluLCUIiuw
« 10 Every You Every Me Pteceto
Tequila Terrorvtemi
15 It's Over l\low Neve
7 Walk Like A Panther The All Seing I
F? 16 Yoo Hoo Imperial Teen
17 - Be There U.N.K.L.E. & !an Brown
18 18 Sheep Go To Heaven Cake
19 14 Every Morning Sugar Ray
20 17 Cold Brains Beck
21 24 Neðanjarðar 200.000 Nagibitar
22 20 Secret Smiie;) Semisonic
18 One Hit Wonder
Out 01 My Head
Orbital
Fastball
Fínn enda-
sprettur
TOMjIST
Musikcafeen
BELLATRIX-TÓNLEIKAR
BELLATRIX-tónleikarnir í Árós-
um byrjuðu ekki sérlega vel en
lokakaflinn var frábær. Hljómsveitin
kynnti G eftirminnilega fyrir Árósa-
búum og lék einnig fáein ný
lög sem lofa góðu.
Tónleikarnir voru haldnir í
Musikcafeen, sem er á jarðhæð í
gömlu bakhúsi í útjaðri Latínu-
hverfisins. Þetta er
vel þekktur neðan-
jarðarklúbbur sem
hefur mjög bland-
aða, allt að því sér-
viskulega dagskrá:
mestmegnis rokk og
djass, en einnig
þjóðlagatónlist,
rapp, ljóðaupplestur
og jafnvel brand-
arakvöld. Pláss er
fyrir um 150 manns.
Tónleikamir voru
ekki nema miðlungi
vel sóttir: um 80
manns mættu, þar
af 15-20 íslendingar. Á laugardags-
kvöldi er satt best að segja of mikið
um að vera í næturlífi Árósa til þess
að íslensk hljómsveit, sem enn er
nær óþekkt í Danmörku, fái neina
verulega aðsókn.
Fyrri hluta tónleikanna virtist
sveitin svolítið þreytt og óupplögð,
sem kannski ekki er svo óeðlilegt í
lok langs tónleikaferðalags. Að vísu
byrjuðu þau vel með fínni útgáfu af
„Once More“, mun bragðmeiri og
kröftugri en á G. Hér lék fiðlan mik-
ilvægt hlutverk og magnaði lagið
upp. En í næstu fjórum til fimm lög-
um var flutningurinn ögn þvingaður
og óeðlilegur hjá þeim. „Silverlight"
varð til dæmis hálf þunglamalegt,
jafnvel skrykkjótt á köflum. Söngur
og hljóðfæraleikur voru tæknilega í
góðu lagi, en það virtist vanta til-
finningu og eindrægni í þetta hjá
þeim. Þau náðu heldur ekki al-
mennilegu sambandi við áheyrend-
ur. Eins og annað fór það þó batn-
andi er á leið.
Með „2U“ (sem er nýtt lag) og
„Ikarus" um miðbik tónleikanna
léku þau sig í stuð, urðu mun frjáls-
legri og óþvingaðri, og unnu um leið
betur saman. Síðari helmingurinn
var í stuttu máli
framúrskarandi.
Sérstaklega leist
mér vel á kraftmikla
og beinskeytta út-
gáfu af „Great Ex-
pectations“. Og svo
má ekki gleyma
skemmtilega pönk-
uðum flutningi
þeirra á Beatles-lag-
inu „AU Together
Now“.
Eins og vera ber
voru þau klöppuð
tvisvar upp og settu
lokapunktinn með
einu elsta lagi sveitarinnar (eða öllu
heldur Kolrössu krókríðandi): „0,
ég er svo svöng“.
Bellatrix hefur margt það til að
bera sem hún mun þurfa á að halda
til að geta öðlast þann frama sem
hún sækist eftir: góð lög, góðan
söng og hljóðfæraleik, og síðast en
ekki síst þann frískleika og kraft,
sem einkenndu síðari hluta þessara
tónleika. Spurningin er bara hvort
þetta sé nóg, eða hvort eitthvað
vanti upp á í stíl eða í snilld. Það
mun framtíðin ein leiða í ljós.
Baldur A. Kristinsson
Morgunblaðið/Baldur