Morgunblaðið - 20.05.1999, Síða 45
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 20. MAÍ 1999 45 C
UMRÆÐAN
formlega kröfu“ og jafnframt átti
hann „ekki von á því að amazt yrði
við verðlækkun nú“. Landssíminn
beið því ekki lengur með að láta
viðskiptavini sína njóta góðrar af-
komu farsímakerfanna á síðasta ári
og lækkaði verðið.
5. Bjöm segir að Landssíminn
hafí ekki séð ástæðu til að hagga
verðlagningu í þeim hluta rekstrar-
ins, þar sem 2/3 hagnaðarins
myndast, þ.e. í öðram rekstri en
farsímaþjónustu. Þetta er ekki
rétt. Verð á millilandasímtölum var
t.d. lækkað um 14% að meðaltali á
síðasta ári, þótt samkeppni væri
þar óveraleg, gjaldskrá háhraða-
netsins var lækkuð og þeim, sem
nota símann mikið á kvöldin og um
helgar, t.d. vegna tengingar við
Intemetið, var boðinn sérstakur
25% afsláttur.
6. Bimi er leigulínuverðskrá
Landssímans hugleikin. Gagnrýni
hans hefur áður verið svarað; verð-
skráin er mun lægri en hjá mörg-
um símafélögum í Evrópu og mun
jafnframt breytast á næstunni.
Samkvæmt tillögum, sem Lands-
síminn hefur lagt fyrir Póst- og
fjarskiptastofnun og byggðar eru á
nýrri kostnaðargreiningu, mun
verð lengri lína lækka umtalsvert
en verð styttri lína hækka nokkuð.
Þess er nú beðið að Póst- og fjar-
skiptastofnun myndi sér skoðun á
tillögunum.
7. Bjöm spyr hvers vegna sparn-
aðarleiðin Vinir og vandamenn
standi ekki til boða í almenna síma-
kerfínu. Það mun hún gera fljót-
lega. Nýtt reikningagerðarkerfi
var í fyrra tekið í notkun fyrir far-
símakerfi Símans og er það ástæða
þess að þar hefur verið hægt að
bjóða upp á margar nýjungar af
þessu tagi. Sömu möguleikar hafa
ekki verið fyrir hendi í almenna
símakerfinu. Nú hefur nýja kerfið
verið tekið í notkun fyrir almenna
símakerfið og má búast við að senn
verði boðið upp á lausnir, sem
henta ákveðnum hópum viðskipta-
vina, t.d. þeim sem hringja mikið
tO útlanda eða nota Intemetið mik-
ið.
8. Loks kallar Bjöm Landssím-
ann „ósnertanlegan“ í samkeppni.
Agætur árangur ýmissa keppi-
nauta Símans, t.d. í farsímaþjón-
ustu, á Internetmarkaði og í sölu
notendabúnaðar, sýnir að þessi
fuliyrðing á ekki við rök að styðj-
ast. í þessum greinum ríkir virk
samkeppni, nema hvað Landssím-
anum era settar strangari skorður
i samkeppninni af hálfu hins opin-
bera en keppinautunum. Lands-
síminn hefur raunar ekki gert at-
hugasemdir við að þurfa að lúta
strangara aðhaldi en aðrir nema
þegar sýnt þykir að aðgerðir
stjórnvalda séu farnar að hamla
gegn samkeppni og stuðla að
hærra verði. SÚkt verður nú æ tíð-
ara og kannski ætti Björn frekar
að hafa áhyggjur af því en stærð og
afkomu Landssímans.
Höfundur er forstöðumaður upplýs-
iriga- og kynningarmála hjá Lands-
si'ma íslands.
Tilboð til mánudags
sÆ
þrjár plöntur í pakkningu
Bergsteinbrjótur
Saxifraga paniculata
Fjölær steinhæðaplanta,
bleik eða hvít blóm í júní,
20 cm, harðgerður.
Embla
- kynbætta birkið vex hraðar.
Hentar vel sem stakt tré
og í limgerði.
Hjá okkur færðu faglega ráðgjöf
Þrenna
Heildarverð áður 2.555,-
Himalajabláeinir
Juniperus squamata „Meyeri"
Sígrænt bláleitt barr, háifuppréttur,
útsveigðar greinar, góður í steinhæðir,
harðgerður.
v *
Fjalldrapi (ísB ^
Betuia nana
Lágvaxinn
runni,
hentar vel
í steinhæði
harðgerður.
NÚ 1470,-
Kynnjng
"s
Afgreiðslutími:
Virka daga Id. 9.00 - 21.00
Laugardag Id. 9.00 -18.00
Hvítasunnudag lokað
Annar í hvítasunnu opið til ki. 18.00
Um hvítasunnuhelgina verður
nýtt og spennandi plóntuefni kynnt.
Eftir 14 ára tiiraunir á víðiklónum úr Aiaskasöfnuninni 1985,
verða nú útvaldir klónar til sölu hjá okkur.
Pétur Ólason verður á staðnum og veitir uppiýsingar um efnið.
Verið velkomin.
• Pöntunarþjónusta fýrir landsbyggðina
• Allir runnar í pottum eru þriggja ára piöntur
GROÐRARSTOÐÍN
STJðfmÆmiF m siw s$t 42mf fax sst 222»
Sækið sumaríð tii okkar
Plöntulistinn okkar
auðveldar valið
Tiiboðið gildir frá fimmtudegi
tii mánudags eða á meðan ^
byrgðir endast.
4®
1
;
alvöru
hjól fyrir krakka
hjólin eru ekki aðeins í fárarbroddi
í fullorðinshjólum, TVXJEVC.framleiðir jafnframt
l.flokks barnahjól fyrir stráka og stelpur, með
fótbremsum. Ævilöng ábyrgð á stelli og gaífli.
A
V