Morgunblaðið - 20.05.1999, Page 59
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
FIMMTUDAGUR 20. MAÍ 1999 59 t
Endurgreiðsla á tannlæknakostnaði
fatlaðra og langveikra barna
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi fréttatilkynning frá
Landssamtökunum Þroskahjálp:
„Aö undanfömu hafa staðið yfir
deilur vegna þátttöku Trygginga-
stofnunar ríkisins í kostnaði við
tannlækningar fatlaðra bama. Af
þvl tilefni vilja Landssamtökin
Þroskahjálp taka fram eftirfarandi
í reglum um kostnað við tann-
lækningar vegna alvarlegra afleið-
inga fæðingargalla, sjúkdóma og
slysa frá 1996 var að finna ákvæði
um að stofnunin skuli greiða 90%
tannlæknakostnaðar þeirra barna
sem skilgreind hafa verið fötluð
eða langveik og falla undir 1. og 2.
flokk reglugerðar um umönnunar-
bætur. Við endurskoðun á reglun-
um um síðustu áramót var börnum
sem fá umönnunarbætur skv. 3.
flokki bætt í hóp þeirra sem fá 90%
endurgreiðslu tannlækna-kostnað-
ar þannig að nokkur fjölgun var á
þeim sem njóta þessa réttar. Sam-
kvæmt sömu reglum greiðir
Tryggingastofnun einnig 90%
tannlæknakostnaðar þeirra
þroskaheftra 17 ára og eldri sem
búa á vistheimilum eða sambýlum.
Þátttaka Tryggingastofnunar í
tannlæknakostnaði án umsóknar
takmarkast við kr. 30.000 á ári.
Ekki eru aðrar takmarkanir á
greiðslunum, hvorki er varðar flú-
ormeðferð né aðrar forvarnir og
tekið skal fram að Þroskahjálp veit
ekki um dæmi þess að umsóknum
vegna endurgreiðslu á kostnaði yf-
ir kr. 30.000 hafi verið hafnað.
Athygli Landssamtakanna
Þroskahjálpar var vakin á því fyrir
nokkru að Tryggingastofnun hefði
hafnað greiðslum á tilteknum reikn-
ingum og að það væri ekki í sam-
ræmi við áðurnefndar reglur. Sam-
tökin óskuðu skýringa frá Trygg-
ingastofnun vegna þessa og trygg-
ingayfirtannlæknir upplýsti að
greiðslur á tannlæknakostnaði
þessa hóps væru samkvæmt settum
lögum og reglum enda hefði það
aldrei vakað fyrir stofnuninni að
skerða réttindi eða þjónustu fatl-
aðra bama. Samtökin fengu síðar til
athugunar nokkra reikninga frá
tannlæknum sem Tryggingastofnun
hafði hafnað greiðslu á og er nánari
upplýsinga var óskað frá stofnun-
inni kom fram bæði frá trygginga-
yfirtannlækni og hjá lögfræðingi
sjúkratryggingadeildar TR að svo
virtist sem mistök hefðu verið gerð
og reikningum frá tannlæknum
hafnað sem stofnunin hefði með
réttu lagi átt að greiða og að það
yrði kannað þá þegar og leiðrétting-
ar gerðar.
Landsamtökin Þroskahjálp
fengu síðar skýrslu Trygginga-
stofnunar um ítarlega athugun á
afgreiðslu reikninga vegna tann-
læknakostnaðar 913 fatlaðra og
langveikra barna frá upphafi árs
1997. I skýrslunni kemur fram að
afgreiðsla Tryggingastofnunar á
þessum reikningum var samkvæmt
settum reglum með örfáum undan-
tekningum og var niðurstaða at-
hugunarinnar sú að mistök við af-
greiðslu umræddra reikninga voru
langtum færri en óttast var í upp-
hafi. Þess ber þó að geta að sam-
tökunum er kunnugt um nokkra
reikninga sem var hafnað við fram-
vísun tannlækna og eru enn í
þeirra vörslu en ekkert er nú til
fyrirstöðu að þeir verði greiddir.
Einnig kann það að hafa gerst að
tannlæknar hafi hagað meðferð
með öðrum hætti vegna þess að
þeir töldu að forvarnaliðir fatlaðra
barna færu eftir ákvæðum al-
mennrar reglugerðar. Á fundi
Þroskahjálpar og Tryggingastofn-
unar var það sameiginlegt mat að-
ila að fara þyrfti yfir verklagsregl-
ur Tryggingastofnunar til að
tryggja en betur örugga og rétta
afgreiðslu reikninga vegna tann-
læknakostnaðar fatlaðra og einnig
að nauðsynlegt væri að endurskoða
reglur um þessar greiðslur.
Landssamtökin hafa bent á
tvennt sem breyta þyrfti. Annars
vegar að afnema úr reglum það há-
mark sem sett er á greiðslur án
sérstakrar umsóknar og hins vegar
að 90% endurgreiðslur verði óháð-
ar búsetu þannig að þeir sem eru
eldri en 16 ára og búa utan sam-
býla og vistheimila eigi einnig
þennan rétt.
Landssamtökin Þroskahjálp vita
ekki til þess að nokkur atriði hvað
varðar endurgreiðslu tannlækna-
kostnaðar fatlaðra barna séu nú
óljós og deila sú sem uppi hefur ver-
ið hljóti því að vera úr sögunni.
Samtökin munu síðar taka upp við-
ræður við Tryggingastofnun um
breytingar á reglum þessum.“
UNDIR-
FATALÍNA
Wg/l p 1 gjg m
» j ■pg§
■ %:?;j
Dýnur sem eru tilvaldar í bústaðinn,
tjaldið eða tjaldvagninn.
i SVAMPDÝNUR 25% afsl.
70x200x12 EGGJABAKKADÝNUR
5,700 kr. - margar stærðir
verfl frá.
2.100 kr
BREIÐASTA
OG MÝKSTA
Sérstakt
kynningarverð
Á VIÐARRÚMUM
RAFMAGNS-
RÚMB0TNAR
FJAÐRADÝNUR
SVEFNHERBERGIS-
HÚSGÖGN
TILB0Ð
GESTADÝNUR
190x70x9 m/áklæði
3,800 kr.
SÉRVINNUM
ÚR SVAMPI
pullur, púða o.fl.
ÚRVAL LANDSINS AF
DÝNUM OG RÚMUM
Lystadún-Snæland býður upp á mjög fjölbreytilegt úrval dýna af
öllum stærðum og gerðum. Þú lætur okkur vita hvað þig vantar
og við eigum það til eða sníðum það fyrir þig.
Heiisukoddarnir frá HEILSU-
DUnlOplllO LATEXDÝNUR
VERSLUNIN
Skútuvogí 11» Sími 568 5588
i