Morgunblaðið - 27.08.1999, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 27.08.1999, Blaðsíða 6
6 FÖSTUDAGUR 27. ÁGÚST 1999 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Allied Resource Corp. vill byggja tvær verksmiðjur á Austurlandi Aðstæður kannaðar um mánaðamót Grímu- klæddur þjófur á ferð GRANNUR, svartklæddur maður með grímu reyndi að skríða inn um glugga á bak- hlið húss við Ingólfsstræti um klukkan fjögur í fyrrinótt. Kona, sem býr í íbúðinni, vaknaði við innbrotstilraun- ina og kom að manninum þar sem hann var kominn hálfur inn um gluggann. Þegar mað- urinn gerði sér grein fyrir því að hann var ekki einn hrökkl- aðist hann í burtu og lét sig hverfa. Kallað var á lögregl- una og sendi hún nokkra lög- reglubíla á staðinn til að leita í nánasta umhverfl en ekki tókst að hafa hendur í hári innbrotsþjófsins. FULLTRÚI bandaríska fyrirtækis- ins Allied Resource Corp. er vænt- anlegur hingað til iands um næstu mánaðamót til skrafs og ráðagerða með fulltrúum Lífeyrissjóðs Aust- urlands um möguleika á byggingu kísilmálmverksmiðju á Austurlandi, og einnig til að kanna aðstæður fyr- ir slíka framkvæmd. Viðræður þess- ara tveggja aðila hófust 20. maí síð- astliðinn að sögn Gísla Marteins- sonar, framkvæmdastjóra Lífeyris- sjóðs Austurlands, en sjóðurinn á um 10% hlut í Allied Resource. Gísli segir fullan vilja fyrir því að reisa slíka verksmiðju á Austur- landi og er þá verið að horfa til byggingar tveggja verksmiðju, þ.e. annars vegar kísilmálmverksmiðju og hins vegar úrvinnsluverksmiðju sem vinnur frekar úr hráefninu. Byggist á orku „Þessar hugmyndir byggjast al- farið á að við fáum orku. Við þurfum 500 gW-stundir á ári til að búa til aðalverksmiðjuna og 150 í úr- vinnsluverksmiðjuna. Það þarf kannski 250.000 kW-stundir til að framleiða eitt tonn, þannig að við erum aðeins að tala um örfá tonn. Við getum notað afgangsorku því að við getum slökkt á ofnunum í slíkri verksmiðju með tíu mínútna fyrir- vara og haft þá lokaða í allt að þrjá- tíu daga samfleytt," segir Gísli. Hann segir að bæði hafi verið rætt við Landsvirkjun og iðnaðarráðu- neytið í sambandi við málið og eigi að hefja frekari rannsóknir í sam- bandi við þessi áform innan skamms. „Við ætlum að ljúka við skýrslu í byrjun október sem við sendum iðnaðarráðuneytinu og í kjölfarið skýrast þessi mál frekar," segir hann. Að sögn Gísla myndi verksmiðj- an sem um ræðir veita á annað hundrað manns vinnu en úr- vinnsluverksmiðjan þrjátíu til fjörutíu manns. Hann segir menn ekki bundna af því að hafa þessar verksmiðjur á sama stað og sé horft til ýmissa staða á Austur- landi í sambandi við þessar hug- myndir, m.a. til Reyðarfjarðar þar sem hægt væri að samnýta hafnar- aðstöðu, orkulínur og mötuneyti svo eitthvað sé nefnt með álverk- smiðju. „Kísilmálmur er fram- leiddur við 1.400 til 1.600 gráðu hita og settur í stangir sem síðan eru notaðar t.d. sem þéttiefni, í gúmmí, í gervibrjóst, í sólarsellur sem settar eru á þök til orkufram- leiðslu fyrir heimili og margt fleira,“ segir Gísli. Hann kveðst þekkja persónulega þá aðila sem tengjast málinu er- lendis og hafa verið í tengslum við þá síðan 1993. Vegna starfs síns sem framkvæmdastjóri lífeyris- sjóðsins viiji hann að sjóðurinn njóti góðs af þessum tengslum. Stærsti eigandi Allied Resource er Safeguard Scientifícs Inc., sem veltir um tveimur milljörðum doll- ara á ári og er eitt af 500 stærstu fyrirtækjum í Bandaríkjunum. Nokkrir íslenskir aðilar fyrir utan lífeyrissjóðinn eiga smáa hluti í Allied Resource, sem kaupir, rek- ur, breytir, bætir og selur fyrir- tæki sem eru á byrjunarreit í ein- hverri tækni. Allied Resource á ásamt Eignarhaldsfélaginu Al- þýðubankanum hf. hlutafélagið Allied Efa hf., sem á helmings hlut í norska fyrirtækinu Promeks A.S. Einn helsti forkólfur fyrirtækisins er austurríski athafnamaðurinn Heinz Schimmelbusch. , Morgunblaðið/Halldór Margir hafa rétt Lettunum hjálparhönd. I gærkvöldi var þeim t.d. boðið í mat á Café Óperu. Kirkjan styrkir skipveija Odincovu STJÓRN Hjálparstarfs kirkjunn- ar hefur ákveðið að gefa áhöfn togarans Odencovu, sem liggur í Reykjavíkurhöfn, um þrjú hund- ruð þúsund króna aðstoð í formi matvæla og fjármuna. Páll Pét- ursson félagsmálaráðherra segir að stjórnvöld geti lítið gert skip- verjunum til aðstoðar, umfram það sem þeim hefur þegar verið boðið, að greiða fyrir þá fargjald heim. í fréttatilkynningu frá'Hjálpar- starfi kirkjunnar segir að ósk um aðstoð til handa lettneskri áhöfn Odencovu hafí borist gegnum Gylfa Jónsson, héraðsprest Reykjavíkur- prófastsdæmis vestra, og Toshiki Toma, prest nýbúa, sem verið hafí í sambandi við skipverja og kynnt sér aðbúnað þeirra. Nefnd hefur verið skipuð undir forystu forsætisráðuneytis til að vinna að málefnum áhafnarinnar. í henni eru einnig fulltrúar fé- lagsmála- og dómsmálaráðuneyt- is. „Við erum búnir að bjóðast til að kosta þá heim til sín, en þeir vilja ekki fara,“ segir Páll Péturs- son félagsmálaráðherra. „Við höf- um lítil ráð með að hjálpa þeim. Ekki getum við farið að borga kaupið fyrir Sæmund [Árelíusson, eiganda Odincovu]. Við erum allir af vilja gerðir til að hjálpa þessum mönnum við að ná rétti sínum, en félagið er skráð úti í Lettlandi og aflinn er í Kanada, og þangað til búið er að gera hann að peningum fá þeir ekki neitt.“ Páll segir að það hefði varhuga- vert fordæmisgildi ef ríkið greiddi laun skipverjanna. „Þá myndu hugsanlega aðrir skáka í því skjól- inu, og spila á það. Það er því ekki nothæft fordæmi." fslendingar taki þátt í mótmæl- um áhafnarinnar Tveir útvarpsmenn á útvarps- stöðinni X-inu, þeir Snorri Jóns- son, sem jafnframt er eigandi tíma- ritsins Undirtóna, og Eldar Ást- þórsson, hafa sent frá sér fréttatil- kynningu þar sem þeir hvetja ís- lendinga til að ganga í lið með skip- verjum Odincovu sem staðið hafa fyrir mótmælum í miðborg Reykja- víkur frá byrjun mánaðarins. Til- gangurinn er sá, eftir því sem fram kemur í fréttatilkynningunni, að sýna þeim samstöðu, og einnig til að „þrýsta á íslensk stjórnvöld um að leysa þetta mál strax með þeim hætti að þeir fái laun sín greidd og geti snúið aftur til Lettlands." Akureyrarbær hafnar tilboðiVÍS í hlutabréf ÚA BÆJARRÁÐ Akureyrar samþykkti í gær að hafna tilboði Vátrygginga- félags íslands í hlutabréf Akureyr- arbæjar í ÚA að nafnverði 4 milljón- ir króna. Bæjarráð felur þess í stað bæjarstjóra að leita tilboða í hluta- bréfin hjá aðilum sem hafa óskað eftir að kaupa bréfin eftir að aug- lýstur tilboðsfrestur rann út. Ásgeir Magnússon, formaður bæjarráðs, sagði í viðtali við Morgunblaðið að ekki væri hægt að gefa upp að svo stöddu hvaða aðilar það væru. „Strax eftir að þessum tilboðs- fresti lauk höfðu samband við okk- ur nokkrir aðilar sem lýstu áhuga sínum á þessum bréfum en höfðu með einum eða öðrum hætti ekki getað boðið í þau áður en fresturinn rann út. Það var álit okkar að rétt væri að leita eftir hversu mikill áhugi þessara aðila væri áður en farið yrði út í að selja bréfin í smærri skömmtum," sagði Ásgeir. Aðspurður sagði Ásgeir að ekki hefði komið til tals að láta verð- bréfafyrirtæki sjá um sölu bréf- anna fyrir Akureyrarbæ. „Það kemur vissulega til greina, án þess að það hafi verið rætt. Við viljum einfaldlega kanna hug þessara aðila og taka endanlega aðstöðu til þeirra tilboða. Ef út úr því kemur ekkert viðunandi munum við ein- faldlega selja bréfin í smáum skömmtum. Okkur liggur ekkert á,“ sagði Ásgeir Magnússon. ♦ ♦♦----- Fjárveitingar til eftir- iits við Mýrdalsjökul Tekið upp á ríkisstjórn- arfundi STEFNT er að því á vegum Vatna- mælinga Orkustofnunar að setja upp sjálfvirkar vöktunarstöðvar með fjarskiptabúnaði í fleiri ár sem koma frá Mýrdalsjökli svo mögulegt sé að gefa út aðvaranir ef verulegar hrær- ingar verða í jöklinum. Ekki hefur tekist að setja upp slíkan búnað vegna skorts á fjárveitingum. Finnur Ingólfsson iðnaðarráð- herra sagði aðspurður í gær að er- indi þetta hefði borist til sín fyrir nokkrum dögum og hann hygðist taka það fyrir á ríkisstjórnarfundi nk. þriðjudag. Andlát INGILEIF ÓLAFSDÓTTIR INGILEIF Ólafsdóttir, hjúkrunarfræðingur og fræðslufulltrúi Krabba- meinsfélags Reykjavík- ur, lézt á líknardeild Landspítalans í fyrri- nótt. Ingileif var 45 ára, fædd í Reykjavík 19. janúar 1954, dóttir hjónanna Ólafs Einars- sonar, sem er látinn, og Ásu Friðriksdóttur. Ingileif útskrifaðist frá Hjúkrunarskóla ís- lands 1978, lauk nómi í uppeldis- og kennslu- fræði frá Kennaraháskóla íslands 1991 og BS-prófi í hjúkrun 1997. Hún starfaði lengst af að fræðslu- störfum og forvörnum gegn reyk- ingum hjá Heilsuverndarstöð Reykjavíkur og Krabbameinsfélagi Reykjavíkur. Hún tók þátt í rannsóknum á þessu sviði og fjallaði um þessi mál í ræðu og riti. Meðal þess sem hún vann að var stofn- un Félags hjúkrunar- fræðinga gegn reyk- ingum. Ingileif Ólafsdóttir sat í ýmsum nefndum, sótti ráðstefnur og hélt námskeið víða um land. Hún var gift Ágústi Inga Jónssyni, fréttastjóra á Morg- unblaðinu, og eignuðust þau tvö börn; Ólaf Bjarka, 20 óra, sem er að hefja háskólanám, og önnu Dröfn, 14 ára, grunnskólanema.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.