Morgunblaðið - 27.08.1999, Blaðsíða 54

Morgunblaðið - 27.08.1999, Blaðsíða 54
154 FÖSTUDAGUR 27. ÁGÚST 1999 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR + Ástkær frænka mín, ÞÓRA SÓLVEIG RÖGNVALDSDÓTTIR, Brúarlandi, Eyjafjarðarsveit, lést á Fjórðungssjúkrahúsi Akureyrar þriðjudaginn 24. ágúst. Útförin auglýst síðar. Fyrir hönd aðstandenda, Sveinn Bjarnason. + Fljartkær móðir okkar, tengdamóðir og amma, DAGBJÖRT FINNBOGADÓTTIR, Selbraut 9, Seltjarnarnesi, sem lést á Sjúkrahúsi Reykjavíkur þriðju- daginn 17. ágúst, verður jarðsungin frá Foss- vogskirkju mánudaginn 30. ágúst kl. 13.30. Hrafnkell Eiríksson, Valgerður Franklínsdóttir, Eiríkur Kristinn Hrafnkelsson, Patrick Hrafnkelsson, Ragnar Ingi Hrafnkelsson, Ingunn Gyða Hrafnkelsdóttir. Elísabet F. Eiríksdóttir, Þórleifur Jónsson, Dagbjört Þórleifsdóttir, Eiríkur Þórleifsson, Unnur Þórleifsdóttir, HARALDUR ÁGÚSTSSON Haraldur Ágfústsson húsa- smíðameistari fæddist í Reykjavík 25. september 1926. Hann Iést 18. ágúst siðastliðinn. For- eldrar hans voru Rannveig Einars- dóttir frá Strönd í Meðallandi, d. 4. mars 1990 og Ágúst Jónsson frá Holtum í Hrunamanna- hreppi, d. 28. júní 1945. Systkini Har- aldar: Ágústa, Jón, d. 1996, Hjörtþór og Sverrir, d. 1982. Þórlaug, Einar og Reynir dóu ung. Haraldur kvæntist á sumar- daginn fyrsta 1954 Sigríði Dag- mar Jónsdóttur frá Syðri-Grund í Svarfaðardal, f. 6. desember 1922, d. 5. maí 1983. Börn þeirra eru: 1) Rannveig, f. 10.8. 1954, maki Gústaf Gústafsson. Þeirra synir eru: a) Haraldur, kvæntur Láru B. Gunnars- dóttur. Börn þeirra eru Rannveig Lóa og Sonja Hhn. b) Gústaf, hans börn eru Hilmar og Soff- ía. c) Ófeigur. 2) Sig- rún, f. 16.9. 1955, maki Jón Gunnar Þorkelsson. Þeirra börn eru: Hildur og Sigurjón Páll. 3) Helga, f. 8.5. 1957, maki Markús Ulfarsson. Þeirra börn eru: Karób'na og Dagmar. 4) Dag- mar, f. 1.4. 1964, maki Pétur Pétursson. Þeirra börn eru: Tara og Pétur Mar. Haraldur útskrifaðist frá Iðn- skólanum í Reykjavík og vann við húsa- og trésmíðar. Allt sem hann gerði var vel gert, enda mikill lista- og hagleiksmaður. Utför Haraldar fer fram frá kirkju Óháða safnaðarins í dag og hefst athöfnin klukkan 15. + Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi og bróðir, HALLDÓR GUNNSTEINSSON frá Nesi, Vallarbraut 1, Seltjarnarnesi, sem lést á hjartadeild Landspítalans laugar- daginn 21. ágúst, verður jarðsunginn frá Seltjarnarneskirkju mánudaginn 30. ágúst kl. 15.00. Blóm og kransar afþakkaðir, en þeim, sem vilja minnast hins látna, er bent á líknarstofnanir. Pálína S. Magnúsdóttir, Guðmundur S. Halldórsson, Brynhildur R. Jónsdóttir, Magnús Halldórsson, Erlendur Þ. Halldórsson, Gunnsteinn Halldórsson, Sólveig A. Halidórsdóttir, Halldór Halldórsson, Hildur Árnadóttir, Sesselja M. Blomsterberg, Magnús H. Magnússon, Sigríður Níní Hjaltested, barnabörn, Sigríður Gunnsteinsdóttir. + Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir og afi, GUÐNIÓLAFSSON útgerðarmaður og skipstjóri, Brimhólabraut 30, Vestmannaeyjum, sem lést á Sjúkrahúsi Suðurlands föstudaginn 20. ágúst, verður jarðsunginn frá Landakirkju í Vestmannaeyjum á morgun, laugardaginn 28. ágúst, kl. 14.00. Gerður Guðríður Sigurðardóttir, Agnar Guðnason, Svanhvít Yngvadóttir, Sigurður Óli Guðnason, Rannveig Þyri Guðmundsdóttir, Bjarki Guðnason, Ragnheiður Guðfinna Guðnadóttir og barnabörn. Sagt er að maður viti ekki hvað átt hefur fyrr en misst hefur. Núna veit ég að það er satt. Halli minn. Ég kynntist þér fyrir 15 árum, í júní 1984, þegar ég varð ástfanginn af dóttur þinni, henni Dagmar. Ég man hvað það var gott að koma á Rauðalækinn til ykkar, þín og Dagmarar. Mér leið strax vel í návist þinni. Það gekk á ýmsu hjá mér á þeim tíma, en alltaf varst þú við mig eins og besti vinur. Þú varst minn besti vinur og tengda- faðir í 15 ár. Ég veit að líf þitt var bæði ham- ingjuríkt og erfitt, sérstaklega þeg- ar þú misstir ástina þína, hana Döggu, langt um aldur fram. En aldrei heyrði ég þig kvarta. Þú sást alltaf björtu hliðamar á málunum. Þú varst ríkasti maður sem ég þekkti, ekki i peningum heldur í ást á fólki sem þú þekktir og kynntist út um allt. Þú gafst börnunum mín- um, þeim írisi, Töru og Pétri Mar, svo mikið. Þau muna það alla tíð. Að vera með afa var alltaf yndisleg- ur tími. Fyrir þá ást þakka ég þér, Halli minn. Þú varst hluti af tilveru minni og ég er ríkari eftir og ég mun alltaf minnast þín í hjarta mínu. Oft sát- um við tveir saman og töluðum um Döggu. Alltaf fann ég hvað þú elskaðir hana og saknaðir hennar mikið. Ég veit að þú ert núna hjá henni og svífur um með hana í fanginu í dansi, brosandi út að eyr- um. Halli minn. Þú varst mikill áhugamaður um fótbolta og golf. Einu sinni sem oftar vorum við úti á golfvelli og þá sagðir þú við mig að þú værir til í að deyja á golfvell- inum. 18. ágúst síðastliðinn man ég eftir þér sitjandi milli tveggja góðra drengja í golfbfl hlæjandi eft- ir góðan brandara, keyrandi eftir kúlunum okkar. Ég man þegar ég horfði á ykkur þar sem ég labbaði á eftir golfbflnum og hugsaði hvað þér hlyti að líða vel og hvað þú skemmtir þér vel. Allir sem ég þekki hafa sagt við mig eftir að hafa kynnst þér: „Rosalega er þetta góður karl.“ Einmitt, Halli minn. Þú varst sá besti. Veröldin mín er orðin fátæk- ari, en í minningunni er ég orðinn ríkari. Ég á sem betur fer allar þessar góðu stundir okkar saman í 15 ár. Þær minningar eru mér dýr- mætar. Ég veit það, Halli minn, að þú ert hjá Döggu þinni núna, kannski að fá þér í nefið, eftir að vera búinn að kyssa hana og faðma. Elsku Halli minn. Við eigum eftir að klára þennan hring einhvern tíma seinna, með bros á vör og í golfbfl. Ég elska þig, Haraldur Ágústs- son, og þakka þér fyrir allar stund- ir okkar saman, sem ég hefði óskað að yrðu miklu fleiri. Élsku Dagmar mín Haraldsdótt- ir. Þú gafst pabba þínum alla þína ást og hann elskaði þig af öllu sínu hjarta, sem var mjög stórt. Minn- ingin sem hann á í þér er yndislega falleg og ég veit að hann fann hana alla daga alltaf. Elsku Helga og Markús, Rann- veig og Gústaf, Sigi-ún og Jón Gunnar, börn og barnabörn. Hann Halli elskaði ykkur öll og var óskaplega stoltur af ykkur. Megi Guð styrkja ykkur í sorg ykkar. Halli minn. Kysstu Döggu frá okkur. Handrit afmælis- og minningargreina skulu vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disklingur fylgi útprentuninni. Auðveldust er móttaka svokallaðra ASCII-skráa, öðru nafni DOS-textaskrár. Ritvinnslukerfin Word og Wordper- fect eru einnig auðveld í úrvinnslu. Senda má greinar til blaðsins í bréfsíma 669 1116, eða á netfang þess (minning@mbl.is) — vinsamlegast sendið greinina inni í bréfinu, ekki sem viðhengi. Nánari upplýsingar má lesa á heimasíðum. Það eru vinsamleg tilmæli að lengd greina fari ekki yfir eina örk A-4 miðað við meðallínubil og hæfilega línulengd — eða 2.200 slög. Höfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. + Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, INGVAR FRIÐRIKSSON bóndi, Steinholti, er lést miðvikudaginn 11. ágúst, verður jarðsunginn frá Egilsstaðakirkju laugardaginn v- 28. ágústkl. 11.00. Karólína Sigurborg Ingvarsdóttir, Alfreð Steinar Rafnsson, Guðný Valgerður Ingvarsdóttir, Friðrik Ingvarsson, Sigurbjörg Ásta Guðmundsdóttir, Haukur Ingvarsson, Aðalheiður Sigurlín Óskarsdóttir, Anna Gunnhildur Ingvarsdóttir, Þráinn Skarphéðinsson, barnabörn og barnabarnabörn. + Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vináttu við andlát og útför föður okkar, tengdaföður og afa, HELGA ENOKSSONAR rafvirkjameistara, Skúlaskeiði 42, Hafnarfirði. Helga Helgadóttir, Heba Helgadóttir, Kristján ívar Ólafsson og barnabörn. í gegnum tárin geisli skín, gleði og huggun vekur, göfugandansáhrifþín, enginn frá mér tekur. (Erla) P.S. Ég veit hvað þú vildir að ég gerði. Þinn besti vinur og tengdasonur, Pétur Pétursson. Elsku besti afi minn. Ég sakna þín alveg rosalega mikið og ég vildi óska að þú værir hérna. En ég veit að þú ert hjá elskunni þinni, sem þú hefur saknað svo lengi eins og ég sakna þín. Mér þykir alveg ofboðs- lega vænt um þig! Ég var að sjá ljóð sem þú samdir um mig þegar ég varð 14 ái-a og langar mig að senda þér það ljóð til þín um þig: Stjaman afi, skært hún skín og sendir geisla bjarta, þannig var ætíð ævi þín, þú vermdir okkar hjarta. (Haraldur/Tara) Ég sakna þín svo mikið að það er alveg ólýsanlegt. Ég fæ svo skrýtna tilfinningu og mér finnst allt vera svo tómt. Afsakaðu tárin, þau bara flæða út um allt. Æ afi! Það er svo erfitt að lifa án þín og brandaranna þrnna og þess sem þú kenndir mér. Ég gleymi því aldrei, aldrei, aldrei... Þúsund, millj- ón, trflljón þakkir fyrir að vera svona góður afi, fyrir að hjálpa mér þegar ég þurfti svo mikið á einhverj- um að halda og fyrir að hafa ein- hvern tfl að tala við. Þú hefur verið tfl staðar allt mitt yndislega líf, en núna allt í einu þá ertu bara floginn á braut. Ég vona að þú komir tfl mín í draumi og segir mér að það sé allt í fína og að þér líði svo vel og hvernig það sé að vera uppi í himnariki. Þú veist hvað ég er forvitin! Ég man að alltaf þegar þú hlóst þá leið mér svo vel og ég faðmaði þig og fannst þá lífíð vera svo full- komið. Það voru alltaf allir í kring- um mig að segja að ég væri svo heppin að eiga svona góðan og besta afann. Ef afi ársins væri val- inn þá værir þú alltaf í fyrsta sæti! Ég elska þig afi minn. Þín ástkæra stelpa, Tara Pétursdóttir. Hvert blóm sem grær við götu mína er gjöf frá þér. A þig minnir allt hið fagra sem augað sér. Sól og jörð og svanir loftsins syngjaumþig. Hvert fótspor sem ég færist nær þér friðar mig. (Davíð Stefánsson.) Elsku afi, þú varst alltaf skemmtilegur og góður. Ég mun alltaf sakna þín. Passaðu þig á „bönkernum" í Himnaríki. Þú manst, afi. Þinn afastrákur Pétur Mar Pétursson. Elsku Halli minn. Það er svo sárt að hugsa til þess að eiga ekki eftir að hitta þig aftur í þessu lífi, fá kröftugt faðmlag frá þér og koss á kinn. Þú varst ekki bara tengdafaðir Péturs bróður míns. Þú varst vinur hans og félagi. Þú varst ekki bara pabbi dætra þinna fjögurra, Dagmarar, Helgu, Sigrúnar og Rannveigar. Þú varst vinur þeirra og félagi. Þú varst ekki bara afi bama- barnanna þinna. Þú varst vinur þenra og félagi. Þú varst ekki bara pabbi mág- konu minnar. Þú varst vinur minn og félagi. Elsku Halli minn. Þú varst ein- staklega góður og hlýr maður og ég þakka fyrir að ég og fjölskylda mín fengum tækifæri til að kynnast þér. Allir sem kynntust þér fundu hlýj- una þína. Guð varðveiti þig. Elsku Dagmar og Pétur, Helga og Markús, Sigrún og Jón Gunnar, Rannveig og Gústaf, börn, barna- börn og aðrir aðstandendur. Guð styrki ykkur í sorginni. „Fimmta stelpan þín,“ Margrét Rósa Pétursdóttir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.