Morgunblaðið - 27.08.1999, Blaðsíða 61

Morgunblaðið - 27.08.1999, Blaðsíða 61
MORGUNBLAÐIÐ í DAG Árnað heilla Í7 AÁRA afmæli. Þriðju- I vjdaginn 31. ágúst verður sjötug Halldóra (Dóra) Guðmundsdóttir, Hverfisgötu lOOb. í tilefni af því tekur hún á móti gest- um laugardaginn 28. ágúst í Hreyfilssalnum, Fellsmúla 26 (gengið inn frá Grensás- vegi), eftir kl. 20. BRIDS IJmsjón Guðmundur l'áll Arnarson ÞÓRÐUR Sigfússon var að blaða í gömlum brids- tímaritum og rakst á þetta spil og sendi þættinum, sem „dæmi um það hvað brids getur verið furðulegt spil“. Norður + Á92 V 543 ♦ 8643 + KD2 Vestur Austur ♦ 1084 + 53 V 8762 V DGIO ♦ KD107 ♦ G952 + 108 + G943 Suður + KDG76 VÁK9 ♦ Á + Á765 Suður spilar fjóra spaða og fær út tígulkóng. Aður en lengra er haldið ætti lesandinn að reyna að finna einhverja leið að tíu slögum. Hún er til. Við borðið, þar sem mað- ur sér aðeins tvær hendur, virðist eðlilegt að taka tvisvar tromp og spila svo laufi þrisvar. Samningur- inn er þá í höfn ef laufíð fellur 3-3, og ennfremur þegar sami mótherji er með tvílit bæði í trompi og laufi, því þá má trompa fjórða laufið í borði. En við sjáum að þessi leið gengur alis ekki eins og legan er. Vinningsleiðin á opnu borði er þannig: Sagnhafi spilar strax spaða og svín- ar níunni! Trompar svo tígul. Hann notar innkom- ur blinds á spaðaás og lauf- kóng til að trompa tvo tígla í viðbót. Fer loks inn í borð á laufdrottningu og spilar spaðatvistinum í þessari stöðu: Vcstur ♦ 10 V 8762 ♦ - *- Norður ♦ 2 V 643 ♦ - ♦ 2 Austur ♦ - V DG10 ♦ - + G9 Suður ♦ - V ÁK9 ♦ - + Á7 Vestur fær óvæntan slag á spaðatíu (sem þó var búið að svína fyrir!), en eftir sem áður tekur sagnhafi fimm slagi á trompið sitt og spaðatvisturinn þvingar austur í hjarta og laufi! ryr|ÁRA afmæli. í dag, föstudaginn 27. ágúst, verða I I/sjötugir tvíburabræðumir Krislján Júlíus Bjarna- son, rafvirkjameistari, Akurgerði 41, Reykjavík og Ólafur Bjarnason, vélfræðingur, Álfliólsvegi 88, Kópa- vogi. Þeir bræður verða að heiman í dag. GULLBRÚÐKAUP. í dag, föstudaginn 27. ágúst, eiga 50 ára hjúskaparafmæli Guðbjörg Svanhildur Jónsdóttir og Gunnar Jón Sigtryggsson, Suðurgötu 7, Sandgerði. Þau eru að heiman í dag. IVIeð morgunkaffinu HÖGNI HREKKVÍSI LJOÐABROT ÚR BERSÖGLISVÍSUM SIGHVATS ÞÓRÐARSONAR Skalat ráðgjöfum reiðast (ryðr það, konungr) yðrum (drottinsorð til dýrðar) döglingur við bersögli. Hafa kveðast lög (nema ijúgi landher) búendr verri endr í Ulfasundum önnur en þú hézt mönnum. Hver eggjar þig höggva, hjaldrgegnir, bú þegna: Ofrausn er það jöfri innan lands að vinna... Greypt er það: Höfðum hneppta heldr og niðr í felda (slegið hefr þögn á þegna) þingmenn nösum stinga. Eitt er mál það, er mæla: Minn drottinn leggr sína eign á óðul þegna. Öfgast búendr göfgir. Rán mun seggr (hinn er sina selr út) í því telja flaums að fellidómi (fóðurleifð konungs greifum). (Um 1135) STJ ÖRNUSPA eftir Franees Drake —i MEYJA Afmælisbarn dagsins: Þú ert útsjónarsamur og kannt að snúa leiknum þér í hag en skortir oft sjálfsaga til þess að fylgja máiunum eftir. Hrútur _ (21. mars -19. apríl) Það er ekki nóg að láta sér líða vel á einu sviði því allt byggist á jafnvægi hlutanna svo þú verður að taka önnur mál með í reikninginn. Naut (20. apríl - 20. maí) Ekki eru allir viðhlæjendur vinir. Hafðu þetta í huga þeg- ar til þín streyma yfirlýsingar frá hinum og þessum um góð- an hug í þinn garð. Tvíburar . (21. maí - 20. júní) nð Gefðu vonirmi byr undir báða vængi og láttu ekkert aftra íér frá því að láta draum þinn rætast. Taktu í útrétta hönd æirra sem vilja aðstoða þig. Krabbi ^ (21. júní - 22. júll) Það þjónar engum tilgangi að líta um öxl í leit að lausn að- steðjandi vandamála. Þú átt samt að hafa dregið lærdóm af reynslunni sem getur hjálpað þér áfram. Ljón (23. júlí - 22. ágúst) Það er yfir margan þröskuld- inn að fara til að ná því tak- marki sem þú hefur sett þér. En nú sannast það að þolin- mæðin þrautir vinnur allar. Meyja (23. ágúst - 22. september) tS^. Ef þú leggur þig allan fram þá átt þú auðveldlega að geta mætt þeim kröfum sem til þín eru gerðar. Það er allavega engin þörf að kvarta. Vog rrx (23. sept. - 22. október) öi Það getur reynst þér skeinu- hætt að hlaupa í blindni eftir athugasemdum annarra. Veltu málunum vandlega fyr- ir þér áður en þú lætur til skarar skríða. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóvember) Með örlítilli þolinmæði og smá hugkvæmni átt þú að geta fellt alla hluta saman þannig að úr verði heil mynd. Leyfðu henni svo að leiða þig áfram. Bogmaður m ^ (22. nóv. - 21. desember) CbO Þér finnst þú ekki standa nógu traustum fótum í starfi þínu en þótt þú getir ekki stöðvað tímann þá getur þú dregið úr áhrifum hans á starf þitt. Steingeit (22. des. -19. janúar) +S? Varastu að rugla hlutunum saman. Haltu öllum verkefn- um aðskildum og raðaðu þeim upp í forgangsröð og leystu þau síðan eitt af öðru. Vatnsberi (20. janúar -18. febrúar) VLSTI Þú hefur meðbyr í seglin og átt að geta notfært þér hann. Láttu öfund annarra sem vind um eyru þjóta því þú einn veist hvað þér er fyrir bestu. Fiskar ftl (19. febrúar - 20. mars) Þú stendur frammi fyrir því að vera sammála þeim sem þú síst vildir. Láttu það þó ekki hindra þig í að þjóna sannleikanum. Stjörnuspána & að lesa sem dægrudvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda. FÖSTUDAGUR 27. ÁGÚST 1999 61, KIRKJUSTARF Safnaðarstarf Hagakirkja á Barðaströnd 100 ára HAGAKIRKJA á Barðaströnd er 100 ára. Af því tilefni verður haldin þar hátíðarguðsþjónusta 29. ágúst og hefst hún kl. 14. Fyrrverandi sóknarprestar taka þátt í helgi- haldi, sem og aðrir prestar pró- fastsdæmisins. Sr. Bragi Bene- diktsson prófastur prédikar. Að messu lokinni býður sóknarnefnd Hagasóknar til kaffisamsætis í Fé- lagsheimilinu Birkimel. Allir eru hjartanlega velkomnir. Messa í Skálmarnesmúlakirkju ÁRLEG messa verður í Skálmar- nesmúlakirkju í Reykhólahreppi, áður Múlasveit, Áustur-Barða- strandarsýslu, ’ laugardaginn 28. ágúst kl. 14. Prestur verður sr. Bragi Benediktsson. Boðið upp á kaffi á Firði að lokinni messu. Von- ast er til að sem flestir sjái sér fært að koma. Laugameskirkja. Morgunbænir kl. 6.45. Mömmumorgunn kl. 10-12. *? Hofskirkja. Kirkjuskóli kl. 13.30._ Sjöunda dags aðventistar á Is- landi: Aðventkirkjan, Ingólfsstræti: Bi- blíufræðsla kl. 10.15. Guðsþjónusta kl. 11.15. Ræðumaður Björgvin Snorrason. Safnaðarheimili aðventista, Blika- braut 2, Keflavík: Guðsþjónusta kl. 10.15. Biblíufræðsla eftir guðsþjón- ustu. Ræðumaður Einar Valgeir Arason. Safnaðarheimili aðventista, Gagn- heiði 40, Selfossi: Biblíufræðsla kl. f. 10. Guðsþjónusta kl. 11. Ræðumað- ur Sigríður Kristjánsdóttir. Aðventkirkjan, Brekastíg 17, Vestmannaeyjum: Biblíufræðsla kl. 10. Loftsalurinn, Hólshrauni 3, Hafn- arfirði: Samkoma kl. 11. Ræðu- maður Eric Guðmundsson. AFMÆLISVIKA í dag hefst afmælisvikan og stendur til 4. september. 10-50% afsláttur Koffortið Sími 555 0220, Strandgötu 21, Hafnarfirði. Sjón er sögu ríkari Electrolux Frvstikistu- tUboð * Frystikistur í öllum stærðum á tilboðsverði. 180-460 lítra. Verð frá 31.990 kr. HUSASMIDJAN Stmi 525 3000 • www.husa.is HUGBUNAÐUR FYRIRWINDOWS Yfir 1.400 notendur KERFISÞROUN HF. Fákaleni 11 • Simi 568 8055 www.islandia.is/kerlisthroun Stimpilklukkukerfi Bkerfisþróun hf. Fákateni11 • Sími 568 8055 www.islandia.is/kerfisthroun
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.