Morgunblaðið - 27.08.1999, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 27. ÁGÚST 1999 4 #
Kúmendagar
í Viðey
NÚ ER kúmenið að mestu orðið
fullþroska í Viðey. Því er nú besti
tíminn til að afla sér birgða fyrir
veturinn. Ráðlegt er að hafa með
sér plastpoka og skæri, klippa
sveipina af jurtinni og setja þá í
poka. Þegar heim er komið er gott
að setja fræin í ofnskúffu og verma
þau til að þurrka þau og jafna
þroskann. Kúmenið vex víða í eynni,
en auðveldast er að afla þess með-
fram vegum og stígum.
Á morgun, laugardag, verður að
venju gönguferð um Viðey. Farið
verður frá kirkjunni kl. 14.15, haldið
austur fyrir gamla túngarðinn og
meðfram honum yfir á norður-
strönd eyjarinnar. Henni verður
fylgt austur á Sundbakka og „Stöð-
in“ skoðuð, þorpið sem var þarna á
árunum 1907-1942. Þarna er margt
að sjá, bæði rústir og á ljósmynda-
sýningunni í skólanum. Ennfremur
verður litið inn í Tankinn, hið
skemmtilega félagsheimili Viðey-
inga, sem þarna er í gömlum 150
tonna steyptum vatnsgeymi. Þaðan
verður svo haldið heim að Stofu aft-
ur. Gangan tekur rúma tvo tíma.
Gjald er ekki annað en ferjutollur-
inn, sem er 400 kr. fyrir fullorðna
og 200 kr. fyrir börn.
Á sunnudag verður staðarskoðun,
sem hefst í kirkjunni kl. 14.15.
Ljósmyndasýningin í Viðeyjar-
skóla, sem rekur sögu Stöðvarinnar
á Sundbakkanum, er opin alla virka
daga klukkan 13:30-16:10, en til
17:10 um helgar. Aðgangur er
ókeypis. Þetta er síðasta sýningar-
helgin og næsta vor verður opnuð
ný sýning undir yfirskriftinni
Klaustur á íslandi. Gestir geta
fengið lánuð reiðhjól, en þau standa
mönnum til boða án endurgjalds og
eru geymd við enda bryggjunnar í
Bæjarvör. Hestaleigan er enn að
störfum, en henni verður lokað um
mánaðamótin. Veitingahúsið í Við-
eyjarstofu verður opið til 5. septem-
ber. Bátsferðir um helgina hefjast
kl. 13 og verða á klukkustundar
fresti til klukkan 17, en til lands er
siglt á hálfa tímanum.
Mikið úrval af
fallegum
rúmfatnaíi
Skólavörðustíg 21, Reykjavík, sími 551 4050
AT V I NNUAUGLYSING Æ
hSQDQ
Framtíðarstörf í boði
fyrir jákvæða, duglega og reglusama
einstakimga
í verslun okkar, NETTÓ í Mjódd, vantar nú
þegarfólktil almennra afgreiðslustarfa.
Um er að ræða heilsdags- og hlutastörf. Við-
komandi þurfa að geta hafið störf sem allra
fyrst.
Leitað er eftir jákvæðum, duglegum &
reglusömum einstaklingum sem em til-
búnir til að veita viðskiptavinum verslun-
arinnar góða þjónustu.
Ágæt laun í boði fyrir réttu einstaklingana!
Nánari upplýsingar veitir Lovísa, verslunar-
stjóri NETTO í Mjódd, sími 699 1748.
Umsóknum ber að skila til verslunarstjóra.
Starfsmannastjóri KEA.
Álftanesskóli
Bessastaðahreppi
Grunnskólakennarar
Álftanesskóli óskareftir kennara í bekkjar-
kennslu, 70—100% starf.
Álftanesskóli er einsetinn grunnskóli frá 1.—7. bekk. Fjöldi nemenda
er 215. f skólanum er unnið öflugt og metnaðarfullt skólastarf sem
gerir kröfurtil starfsmanna með áherslu á náttúru og umhverfi.
Laun samkvæmt kjarasamningi KÍ og HÍK
við Launanefnd sveitarfélaga. Auk þess
var gerður samningur við kennara um við-
bótargreiðslur sem gildir til 31. des.
2000.
Umsóknir berist til skólastjóra.
Upplýsingar um störfin veita Sveinbjörn
Markús Njálsson, skólastjóri, í síma 565 3662
eða 565 3685 og Ingveldur Karlsdóttir, aðstoð-
arskólastjóri í símum 565 3662 og 565 2657.
Smiðir óskast
Vanir húsasmiðir/húsgagnasmiðir
óskast sem fyrst
Upplýsingar veitir Gísli Jónsson
ísíma 587 9322
SliÐASTOFAN
Tangarhöfða 11 112 Reykjovík sfmi 587 9322
CAFF
SóLQN IsLANDUS
óskar eftir
vaktstjóra
í fullt starf. Góð laun í boði.
Einnig vantar þjóna í sal. Dag- og/eða kvöld-
vaktir.
Upplýsingar veitir Jón í síma 551 26667 og
898 0863 eða á staðnum.
Sólon hefur verið starfraekturfrá árinu 1992 og þótti við hæfi að skira
hann í höfuðið á listamanninum Sölva Helgasyni. Sólon íslandus
er listamannsnafn Sölva Helgasonar (1820—1889) og er staður þeirra,
sem vilja hvíla sig frá erli og amstri hins íslenska samfélags, njóta
góðra veitinga og listviðburða, hitta vini og ókunnuga, ræða listir,
heimspeki og stjórnmál.
ÍSAFJARÐARBÆR
Grunnskólar
ísafjarðarbæjar
Suðureyri
Kennara vantartil starfa næsta skólaár. Um
er að ræða kennslu yngri barna og sérkennslu.
Frekari upplýsingargefurskólastjóri í síma
456 6119 (heima) og 456 6129 (skóli).
Flutningsstyrkur — staðaruppbót/
niðurgreidd húsaleiga
Umsóknarfrestur er til 30. ágúst 1999.
íslandspóstur hf
Bílstjórar
Vegna aukinna umsvifa vantar starfsmenn í
útkeyrsludeild. Um er að ræða föst störf eða
tímavinnu (t.d. með skóla) við akstur póstsend-
inga á höfuðborgarsvæðinu. Miðað er við að
umsækjendur séu ekki yngri en 20 ára, sam-
viskusamir og hafi góða framkomu.
Nánari upplýsingar gefa Ragna Jóna Helga-
dóttir og Dagný Arnarsdóttir í síma 580 1025.
Umsóknum skal skilað til starfsmannaþjón-
ustu, Pósthússtræti 5,101 Reykjavík, á eyðu-
blöðum sem þar fást.
NSBflHfljy
vesturbæ
Afgreiðslustarf
Björnsbakarí vesturbæ vill ráða duglegan
starfskraft í afgreiðslu nú þegar.
Vinnustaður Austurströnd 14.
Vinnutími frá kl. 13.00—19.00 auk helgarvinnu.
Upplýsingar gefa Kristjana eða Margrét í
símum 561 1433 og 699 5423.
Blaðbera
vantar á Álftanesi, Bessastaðahreppi:
Bjarnastaðavör — Litlabæjarvör —
Sviðholtsvör.
Upplýsingar gefnar í síma 569 1122
Morgunblaðið leggur áherslu á að færa lesendum sinum vandaðar og áreiðanlegar
fréttir og upplýsingar. Morgunblaðið er eina dagblaöið á íslandi sem er i
upplagseftirliti og eru seld að meðaltali rúmlega 54.000 eintök á dag.
Höfuðstöðvar Morgunblaðsins eru í Kringlunni 1 í Reykjavík þar sem eru yfir
300 starfsmenn. Á Akureyri er starfrækt skrifstofa i Kaupvangsstræti 1.
Morgunblaðið kom fyrst út 2. nóvember 1913.
Árvakur hf. er útgefandi Morgunblaösins.
Ertu
metnaðargjarn/gjörn?
Elskarðu að ferðast?
Ertu samviskusamur/söm og áreiðanleg/ur,
en ert ekki með þau laun sem þú vildir hafa?
Viltu geta vaxið með fyrirtæki í sífelldum vexti
á heimsmælikvarða?
Ef þetta á við þig, hafðu þá samband í síma
881 6230. Þekking á interneti og tungumálum
mjög æskileg.
Verkamenn
Óskum eftir að ráða verkamenn í
byggingavinnu. Næg verkefni framundan.
Upplýsingar í síma 892 2588.
ÍSTAK
Ármannsfell ht
Verkamenn
Verkamenn vantar til starfa á Stórhöfða.
Upplýsingar gefur Gunnar í síma 897 3772 og
á skrifstofu í síma 577 3700.
Ferðamannaverslun
í miðbænum
óskar eftir starfsfólki til afgreiðslu- og lager-
starfa. Um er að ræða bæði heilsdags- og
hlutastörf. Tungumálakunnátta nauðsynleg.
Umsóknirsendisttil afgreiðslu Mbl., merktar:
„Ferðamannaverslun", fyrir 3. september.
Söngfólk óskast
Kór Hafnarfjarðarkirkju auglýsir eftir söngfólki
í allar raddir, sérstaklega karlaraddir. Spennandi
verkefni framundan. Kórinn er launaður kór.
Allar upplýsingarveitir Natalía Chow, kórstjórL*
í símum 555 1346 og 699 4613.