Morgunblaðið - 27.08.1999, Blaðsíða 16
16 FÖSTUDAGUR 27. ÁGÚST 1999
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
Metár í heimsóknum
landans til Grímseyjar
Grímsey. Morgunblaðið
ÓVENJU marg-ir íslendingar, alls
staðar að af landinu og þó sérstak-
lega frá höfuðborgarsvæðinu, hafa
sótt Grímsey heim í sumar, að sögn
Sigrúnar ðladóttur, sem rekur
nyrsta gistiheimili Islands, gisti-
heimilið Bása í Grímsey. „Ég heyri
það að fólk vill komast úr stressinu
og hefur það almennt verið alsælt
yfir kyrrðinni og fegurðinni sem
eyjan býr yfir.“
Sigrún hefur rekið Gistiheimilið
Bása í níu ár og segir þetta metár
hvað varðar heimsóknir íslenskra
ferðamanna tO Grímseyjar. Hún
segir að orðið hafi aukning á ferða-
mönnum frá fyrra ári og að sumar-
ið hafi verið gott. Sigrún tekur á
móti ferðamönnum frá öllum
heimshornum og má þar nefna lönd
eins og Japan, Ástralíu, Nýja-Sjá-
land, Bandaríkin og flest lönd Evr-
ópu. Hún býður upp á gistingu og
fæði og leiðsögn um eyjuna og er
mikið um að litlir hópar ferðist til
Grímseyjar og stoppi í einn til tvo
daga.
Auk þess koma ferðalangar til
eyjarinnar á eigin vegum til að
skoða eyjuna en með tilsögn frá
Sigrúnu og stoppa þá jafnvel ein-
göngu í eina klukkustund. Helsta
aðdráttaraflið er það að komast
norður fyrir heimskautsbaug,
skoða fuglalífið og sjá fegurð og
finna kyrrð eyjarinnar. Sigrún
bætti við að í sumar hafi verið
minna um hópa en áður og meira
um að fólk komi á eigin vegum.
Frá stofnun Bása hefur Sigrún
verið í stöðugu sambandi við
Ferðaskrifstofuna Nonna á Akur-
eyri, BSÍ fyrir sunnan og Umferð-
armiðstöð Akureyrar. Einnig er
hún í sambandi við Tour Office á
Keflavíkurflugvelli og bókar nú
a.m.k. einn hóp á ári frá Ferða-
skristofunni Atlantic. „Sem dæmi
má nefna að hingað komu 100 Italir
sumarið 1997 og voru hér tíu flug-
Morgunblaðið/Margit Elva
Sigrún Óladóttir í leiðsögn með erlenda ferðamenn frá Bandaríkj-
unum og Sviss, en hún fer með þá að norðurheimskautsbaugi og
yfír hann.
vélar samtímis sem er afar óvenju-
legt,“ sagði Sigrún.
Húsið mikið endurbætt
Frá stofnun Bása hefur Sigrún
leigt húsið en hún festi kaup á því í
vor. „Miklar endurbætur hafa verið
gerðar á húsinu og ég er enn að
vinna í þeim. Húsið var klætt að ut-
an í sumar með múrhúðunarefni og
þakið verður teldð í vetur og öll
pípulögn. Þá var húsið mikið endur-
bætt að innan fyrir þremur árum.“
Gistiheimilið Básar, sem rúmar
mest 13 manns í gistingu, verður
opnað með fullri þjónustu síðustu
vikuna í maí og er opið til 1. sept-
ember en að sögn Sigrúnar er húsið
opið yfir veturinn en án þjónstu.
„Draumur minn er að markaðssetja
Bása yfir veturinn sem góðan stað
fyrir listamenn sem vilja sinna
vinnu sinni í kyrrð og ró.“
Sigrún Óladóttir er með BS gráðu
í ferðamálafræði frá Hawaii Pacific
University og lauk námi í janúar
1993. Á vetuma rekur hún ásamt
eiginmanni sínum, Birgi Pálssyni,
Ljósmyndabúðina í Sunnuhlíð á
Akureyri en tekur sér frí þaðan á
sumrin til að reka Bása.
Menningarnótt verður haldin á laugardag
Höfðum til hins
almenna bæjarbúa
AKUREYRINGAR eiga þess nú kost
í fyrsta sinn að upplifa menning-
arnótt, í líkingu við þá sem haldin hef-
ur verið í Reykjavík síðastliðin ár. Að
sögn Magnúsar Más Þorvaldssonar
er þetta tilraunaframtak sem vonandi
tekst það vel að það verði að árlegum
viðburði. Menningamóttin verður
sett í Lystigarðinum á Akureyri kl. 14
laugardaginn 28. ágúst og síðan taka
ýmsir viðburðir við. Lokapunktur há-
tíðarinnar verður síðan flugeldasýn-
ing við Leirutjamir um miðnættið.
Magnús Már sagði í samtali við
Morgunblaðið að skipuleggjundur
menningarnæturinnar renndu nokk-
uð blint í sjóinn með framtakið.
„Þetta er náttúrulega einhvers kon-
ar tilraun og er enn í þróun, en ein-
hvers staðar verður að byrja. Annars
eru það bæjarbúar sem fyrst og
fremst gera þessa hátíð að veruleika.
Við erum að reyna að höfða til þeirra
og vonum að þeir mæti sem flestir og
gæði bæinn okkar lífi. Eins höfum
við átt í viðræðum við eigendur fyrir-
tækja í miðbænum um að þeir hafi
opið um kvöldið fyrir gesti og gang-
andi og bjóði kannski upp á lítils
háttar hressingu. Þannig getum við
gætt miðbæinn lífi. Mörg fyrirtækin
tóku vel í þetta og þarna mun t.d.
vera tískusýning og þjóðdansar,“
sagði Magnús Már.
V erðlaunaafhendingar
Hátíðin verður sett kl. 14 í Lysti-
garðinum en kl. 10 um morguninn
mun lúðrasveit fara um bæinn til að
vekja bæjarbúa. Ýmislegt verður
síðan að gerast um daginn t.d. í
Listagilinu, en framkvæmdanefndin
hefur átt ágætissamstarf við þá að-
ila. Þar mun meðal annars Akureyr-
ar Akademían veita ýmsum bæjar-
búum fjölbreytileg verðlaun fyrir
störf þeirra á öldinni. Verðlaunaf-
hendingin fer fram í Ketilhúsinu kl.
22 um kvöldið. Aðaldagskrárliðirnir
verða þó um kvöldið og má þar nefna
skrúðgöngu sem farin verður að
Leirutjörnum kl. 23:30. Þar munu
börn fleyta kertum.
Magnús Már sagði að skipulagn-
ing Menningarnætur kostaði tals-
vert fé en framkvæmdanefndin hefði
verið svo lánsöm að fá til liðs við sig
fimm styrktaraðila sem eru Tal hf.,
KEA, Sparisjóður Norðurlands, Tu-
borg léttöl og Akureyrarhöfn. „Eins
og ég sagði áðan vonast ég til þess
að Menningarnótt verði árviss við-
burður og verði ekki síðri en nafna
hennar í Reykjavík.“
Safnahúsið á Húsavík
ÞORRI Hringsson heldur mál-
verkasýningu í Safnahúsinu á
Húsavík dagana 28. ágúst til 5.
september. Þorri nefnir sýning-
una „Sumamótt í Aðaldal" en hér
er um olíumálverk að ræða. Sýn-
ingin verður opnuð laugardaginn
28. ágúst kl. 16. Opnunartími sýn-
ingarinnar verður annars kl. 13-
18 alla daga.
Morgunblaðið/Jónas Baldursson
Nýr leikskóli byggður á Grenivík
Blaðbera
vantar í eftirtalin hverfi:
Furulundur/Hrísalundur
Akurgerði
Munkaþverárstræti
Melasíða/Múlasíða
Huldugil
Blaðburður verður að hefjast um leið og blaðið kemur
í bæinn.
Góður göngutúr sem borgar sig.
► I Morgunblaðið
I Kaupvangsstræti 1, Akureyri, sími 461 1600
Morgunblaðið leggur áherslu á að færa lesendum sínum vandaðar og áreiðanlegar fréttir og
upplýsingar. Morgunblaðið er eina dagblaðið á íslandi sem er í upplagseftirliti og eru seld að
meðaltali rúmlega 54.000 eintök á dag. Höfuðstöðvar Morgunblaðsins eru í Kringlunni 1 i Reykjavík
þar sem eru yfir 300 starfsmenn. Á Akureyri er starfrækt skrifstofa i Kaupvangsstræti 1.
Morgunblaðið kom fyrst út 2. nóvember 1913.
Árvakur hf. er útgefandi Morgunblaðsins.
Börnin hófu framkvæmdir
Grjrtubakkahreppi. Morgunblaðið.
BÓRNIN á leikskólanum á Greni-
vík tóku á dögnnum fyrstu
skóflustungumar að nýjum leik-
skóla í sveitarfélaginu. Skólinn er
hannaður af Arkitekta- og verk-
fræðistofu Hauks á Akureyri og er
um 150 fermetrar að stærð. Samið
hefur verið um verkið og verður
Jónas Baldursson byggingarmeist-
ari þess. Gert er ráð fyrir að nýi
leikskólinn verði tekinn í notkun í
byrjun apríl á næsta ári. Leikskóli
hefúr verið rekinn á Grenivík í
gömlu verslunarhúsnæði Kaupfé-
lags Eyfirðinga á staðnum sl. 16 ár
og var honum í upphafi ætlað að
vera til bráðabirgða í því húsnæði.
Á myndinni em leikskólabömin
sem hófu framkvæmdir við verkið
og eins og sést era þau vel vopnum
búin.
Ferðafélag Akureyrar
Gengið á
Kerlingu
FERÐAFÉLAG Akureyrar stendur
fyrir gönguferð á Kerlingu í Eyja-
firði laugardaginn 28. ágúst.
Lagt verður af stað frá skrifstofu
Ferðafélagsins við Strandgötu kl. 9,
ekið að Finnastöðum, gengið upp á
fjallið að suðaustanverðu og komið
sömu leið til baka.
Skráning í gönguna fer fram á
skrifstofu félagsins og skal henni
lokið í síðasta lagi föstudaginn 27.
ágúst. Skrifstofan er opin frá kl.
16-19 og síminn er 462-2720.
mbl.is
Afnot af íbúð
í Davíðshúsi,
Akureyri
Eins og áður hefur komið fram, þá gefst fræðimönnum
og listamönnum kostur á að sækja um 1—6 mánaða
dvöl í lítilli íbúð í Davíðshúsi, til að vinna að fræðum sín-
um eða listum.
Ákveðið hefur verið að frestur til að skila umsóknum um
afnot af íbúðinni árið 2000 renni út 20. september nk.
Umsóknir ber að senda til: Akureyrarbær, c/o Ingólfur
Ármannsson, skrifstofu menningarmála, Glerárgötu 26,
600 Akureyri.
Nánari upplýsingar á skrifstofu menningarmála,
sími 460 1461.
k
í:
r
L