Morgunblaðið - 27.08.1999, Síða 18
18 FÖSTUDAGUR 27. ÁGÚST 1999
MORGUNBLAÐIÐ
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
Viðurkenn-
ingar fyrir
fegrun um-
hverfisins
Viðurkenning var veitt fyrir endurgerð
hússins að Sunnubraut 22.
Umhverfíð
skiptir
miklu máli
Vigdís S. Björnsdóttir og
Þórir F. Helgason hafa að-
eins búið í nýju húsi við Iða-
Iind 3 í eitt og háift ár.
Hverfið er allt í uppbygg-
ingu og mörg handtökin
eftir við frágang lóða við
húsin þar. Þau hjónin lögðu
þó mikla áherslu á að
ganga strax frá lóðinni við
húsið, enda segja þau um-
hverfið skipta miklu máli.
Þórir segist einnig hafa
hellulagt strax til að losna
við að sandur bærist inn í
húsið.
Þau fluttu úr einbýlishúsi
við Fífuhvamm með grónum
garði sem Vigdís segist svo
sannarlega sakna. Astæðan
fyrir því að þau fóru að
byggja nýtt hús var sú að
eldra húsið var á þremur
hæðum en nýja húsið er á
einni hæð. Þórir segir að
þau endist örugglega lengur
á einni hæð, auk þess sem
skipulagið sé þægilegra.
Þau segjast þó ekki vera
búin að ganga frá lóðinni.
Það sé töluvert eftir því
næstu hús séu ennþá í bygg-
ingu og ekki hægt að klára
lóðina fyrr en framkvæmd-
um við þau lýkur. Eftir er
að setja upp skjólveggi í lóð-
inni en húsið stendur ofar-
lega í Lindahverfínu og þar
er nokkuð vindasamt. Þó er
norðanáttin ekki eins slæm
og búast hefði mátt við, seg-
ir Vigdís.
UMHVERFISRÁÐ Kópa-
vogs veitti í gær viðurkenn-
ingar fyrir frágang lóða og
húsa í Kópavogi. Einnig var
veitt viðurkenning fyrir end-
urgerð húsnæðis. Víghólastíg-
ur var valin fegursta gata
Kópavogs árið 1999.
Vigdís S. Björnsdóttir og
Þórir F. Helgason hlutu viður-
kenningu fyrir frágang húss
og lóðar á nýbyggingarsvæði,
en þau búa í Iðalind 3. Fram-
kvæmdir við húsið hófust síðla
árs 1996 og fluttu þau inn í
mars 1998. Þá þegar var hafist
handa við frágang lóðarinnar
og gengið frá hellulögn. Unnið
er ennþá að lokafrágangi lóð-
arinnar. Hönnun og gerð lóð-
arinnar hefur að mestu verið í
höndum eigenda og í máli Ás-
dísar Ólafsdóttur, formanns
umhverfisráðs, kom fram að
yfirbragð húss og lóðar beri
vott um vandvirkni og smekk-
vísi þeirra hjóna, þar sem
glögglega megi sjá áhuga
þeirra fyrir garðrækt og fal-
legu umhverfi. „Frágangur
húss og lóðar við Iðalind 3 ber
af öðrum lóðum á nýbygging-
arsvæðum bæjarins þetta árið
og er gott fordæmi um það
hversu fljótt og vel hægt er að
fegra sitt nánasta umhverfi."
Steinþór Einarsson og Syl-
vie Primel fengu viðurkenn-
ingu fyrir endurgerð hússins á
Sunnubraut 22. Upphaflega
voru teikningar að húsinu
samþykktar í byggingarnefnd
árið 1952. Þau Steinþór og
Sylvie fluttu inn í húsið um
haustið 1993 og hafði þá við-
haldi hússins verið nokkuð
ábótavant um árabil. Fram-
kvæmdir við endurbætur
hófust árið 1994 og var þá
hlaðinn kantur á lóðarmörkum
sunnan við húsið og sökkull
steyptur að vinnustofu við bfl-
skúr. Vinnustofa var síðan
reist og fullgerð árið 1995.
Fyrir tveimur árum voru sam-
þykktar nýjar teikningar að
viðamiklum breytingum á hús-
inu, þar sem byggt var við
húsið sunnanmegin. Húsið var
klætt að utan með bárujárni
og gluggum og kvisti breytt.
Efri hæð var fullgerð 1998, en
eftir er að ljúka frágangi á
neðri hæð og lóð. Arkitekt að
breytingum á húsinu er Óli
G.H. Þórðarson. í máli for-
Morgunblaðið/Golli
Iðalind 3. Eigendur hússins fengu viðurkenningu fyrir
frágang húss og lóðar á nýbyggingarsvæði.
manns umhverfisráðs kom
fram að breytingamar auki
gildi hússins og „endurgerð
hússins að Sunnubraut 22 sé
framúrskarandi góð, bæði stfl-
hrein og einfóld.
Skógræktarfélag Kópavogs
og Vinnuskólinn hlutu viður-
kenningu fyrir merkt framlag
til ræktunarmála. Markviss
skógrækt hófst í landi Kópa-
vogs árið 1990. í umsögn um-
hverfisráðs kom fram að fram-
lag Skógræktarfélagsins og
Vinnuskólans til umhverfis- og
útivistarmála með gróðursetn-
ingu og umhirður trjáræktar-
svæða í Kópavogi eigi tví-
mælalaust eftir að auka mögu-
leika og gæði landsins til úti-
vistar þegar fram líða stundir.
Smáratorg, verslunar- og
þjónustumiðstöð, hlaut viður-
kenningu fyrir frágang húss
og lóðar á nýbyggingarsvæði.
Einnig hlutu arkitektamir
Jakob E. Líndal og Kristján
Ásgeirsson viðurkenningu íyr-
ir hönnun tónlistarhúss Kópa-
vogs.
Morgunblaðið/Halldór Kolbeins.
Vigdís S. Björnsdóttir og Þórir F. Helgason taka við við-
urkenningu fyrir frágang húss og lóðar á nýbyggingar-
svæði. Asdís Ólafsdóttir, formaður umhverfisráðs,
afhenti viðurkenuinguna.
Mikil vinna en margir kostir
Steinþór Einarsson og Syl-
vie Primel eru ánægð með
húsið sitt en þau hlutu við-
urkenningu fyrir endurgerð
hússins Sunnubraut 22. Þau
segjast fyrst hafa leitað að
gömlu húsi í Hafnarfirði í
tvö ár, því Steinþór sé gafl-
ari, en ekkert fundið. Kost-
irnir sem húsið þurfti að
hafa voru möguleikar fyrir
litla fjölskyldu, góð lóð og
skemmtileg aðkoma. Þau
hafi síðan dottið niður á
þetta hús við Sunnubraut-
ina í Kópavogi.
Steinþór og Sylvie segja
að endurgerð hússins hafi
kostað mikla vinnu og að
þeim hafi verið ráðlagt
strax í upphafi að fara ekki
út í slíkar framkvæmdir.
„Það eru bara svo margir
kostir sem fylgja þessu.
Það er staðsetningin og
umhverfið, að setjast að í
grónu hverfi og vera þarna
við Kópavoginn, það er al-
veg ótrúlega dýrmætt,"
segir Steinþór. Þau hjónin
segjast vera miklir nátt-
úruunnendur og það sé
ómetanleg upplifun þegar
vogurinn fyllist skyndilega
af farfuglunum á vorin.
Það sé alveg dýrlegt að
fylgjast með árstíðunum á
þessum stað.
Endurbætur hússins
standa ennþá yfir og telja
þau að tvö ár séu eftir. Þau
segja að húsið sé afar nota-
legt og því fylgi góður andi.
Steinþór segir að dóttir
hans hafi orðað þetta á
skemmtilegan hátt:“Það er
ekkert svo flott húsið okk-
ar, pabbi, en það er nota-
legt.“ Þetta segir Steinþór
að endurspegli hug þeirra
til hússins.
Morgunblaðið/Halldór Kolbeins
Sylvie Primel og Steinþór Einarsson taka ásamt dóttur
sinni á móti viðurkenningu fyrir endurgerð húsnæðis úr
hendi Ásdxsar Ólafsdóttur, formanns umhverfisráðs
Kópavogs.
Kópavogur
Götunöfn í nýju hverfi í Grafarholti tengjast landafundum og kristnitöku
og er sú gata nefnd Kirkju-
stétt. Kristnibraut endar í
Krosstorgi. Frá því greinast
þrjár höfuðgötur sem heita
eftir þjóðardýrlingum; Jóns-
geisli eftir Jóni helga Ög-
mundarsyni, Þorláksgeisli
eftir Þorláki helga Þórhalls-
syni og Gvendargeisli eftir
Guðmundi góða Arasyni.
Síðastnefnda gatan endar í
hringtorginu Þórðarsveig,
sem nefnt er eftir Þórði Jóns-
syni góðamanni, sem höggv-
inn var 1385, og Þórhallur
segir að lærðustu menn þess
tíma hafi talið Þórð helgan
mann.
Þórhallur leggur jafnframt
til að hverfið nefnist Þúsöld
eða Þúsaldarhverfi. Borgar-
ráð hefur samþykkt götu-
nöfnin en ekki hverfisnafnið,
að svo stöddu.
Á blaðamannafundi hjá
borgarverkfræðingi kom
Stefán Hermannsson borg-
arverkfræðingur segir að
gera megi ráð fyrir að frum-
býlingar flytji í nýja hverfið
eftir um það bil ár en hverfið
verði orðið þéttbýlt árið 2002.
Skólastarf mun hefjast í fær-
anlegum kennslustofum í
hverfinu en eftir er að taka
ákvarðanir um byggingu leik-
skóla og skóla í hverfinu.
■ Greinargerð/55
fram hjá Magnúsi Sædal,
byggingarfulltrúa borgarinn-
ar, að framkvæmdir væru
þegar hafnar við aðkomuleið-
ir að hverfinu nyrst í holtinu
og fyrstu gatnaframkvæmdir
í hverfinu verði boðnar út í
haust.
400-600 lóðir verða bygg-
ingarhæfar á næsta ári og er
ráðgert að auglýsa þær til út-
hlutunar í október og úthluta
þeim í nóvember.
Þúsöld, Vín-
landsleið og
Ólafsgeisli
Grafarholt
GÖTUR í nýju hverfi í Graf-
arholti, sem farið verður að
byggja á næsta ári, munu
bera nöfn sem minna á af-
mæli landafunda og kristni-
töku.
Borgarráð hefur samþykkt
tillögur Þórhalls Vilmundar-
sonar prófessors að götu-
nöfnum í hverfinu og voru
nöfnin kynnt á blaðamanna-
fundi í húsnæði borgarverk-
fræðings í gær.
Aðkomugatan inn í hverfið
verður nefnd Þúsöld. Það ný-
yrði leggur Þórhallur jafn-
framt til að notað verði um
árþúsund, þannig að segja
mætti þúsaldamót en ekki ár-
þúsundamót um aldamótin
framundan.
Frá Þúsöld liggja götur,
sem nefnast Vínlandsleið og
Grænlandsleið í minningu
landafunda. Smærri götur til
vesturs og austurs nefnast
Guðríðarstígur, til minningar
um Guðríði Þorbjarnardótt-
ur, og Þjóðhildarstígur, til
minningar um Þjóðhildi Jör-
undardóttur, konu Eiríks
rauða. Þúsöld endar í
hringtorgi, sem lagt er til að
verði nefnt Sólartorg. Þar
taka við götunöfn, sem tengj-
ast kristnitökunni. Frá forg-
inu iiggja göturnar Ólafs-
geisli, sem nefnd verður eftir
Noregskonungunum Ólafi
Tryggvasyni og Ólafi helga
Haraldssyni, og Kristnibraut.
Frá Kristnibraut liggur til
suðurs hringlaga gata, sem
gefið er nafnið Maríubaugur.
Önnur gata liggur austar að
væntanlegri kirkju hverfisins