Morgunblaðið - 27.08.1999, Side 24
24 FÖSTUDAGUR 27. ÁGÚST 1999
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
Um næstu mánaðamót tekur Sigurður Atli Jónsson við stöðu forstjóra Landsbréfa og framkvæmdastjóra
sjóðasviðs Landsbankans. Óli Jón Jónsson ræddi vlð hann um nýja starfíð og ástandið á mörkuðunum.
Breytinga þörf
á íslenskum
skuldabréfa-
markaði
Morgunblaðið/Jim Smart
Sigurður Atli Jónsson: Óæskilegt fyrir markaðinn ef
reglum um upplýsingagjöf er ekki fylgt út í æsar.
IGURÐUR Atli Jónsson er
fæddur árið 1968, lauk BS-
prófi í hagfræði frá HÍ 1992
og meistaragráðu í sömu
grein frá Queens University í
Kanada árið 1995, með peninga-
málahagfræði sem sérsvið. Hann
starfaði hjá Þjóðhagsstofnun á ár-
unum 1992-1993 en hóf störf hjá
Landsbréfum árið 1994, fyrst sem
sjóðsstjóri og síðar sem forstöðu-
maður eignastýringarsviðs. Sigurð-
ur Atli hefur meðal annars stýrt
uppbyggingu nýrra verðbréfasjóða
Landsbankasamstæðunnar, F ort-
una, á Guemsey á Ermarsundi.
Hvaða starfsemi er það sem þú
munt veita forstöðu í nýju starfi?
„Starfsemi Sjóðasviðs Lands-
bankans er þríþætt: eignastýring og
verðbréfaviðskipti einstaklinga,
sem fram fara undir nafni Lands-
bréfa, og svo sérbankaþjónusta sem
rekin er undir nafni Landsbankans.
Kjaminn í starfseminni er eigna-
stýring fjölmargra sjóða Lands-
bankasamstæðunnar en við tökum
einnig að okkur að stýra verðbréfa-
söfnum fyrir aðra, einkum lífeyris-
sjóði, fyrirtæki og stofnanir. Það
hefur verið mikill vöxtur í starfsem-
inni og verðbréfasjóðir okkai'
stækkuðu um 122% á síðasta ári.
Sem dæmi um umsvifin hér má
nefna að í upphafi hvers árs skilum
við frá okkur 13 ársuppgjöram fyrir
jafnmarga lögaðila.
Sérbankaþjónustan er sérhæfð
verðbréfa- og bankaþjónusta fyrir
efnameiri einstaklinga og era hund-
rað þeirra í virkri eignastýringu hjá
okkur. Mikill fjöldi fólks er svo auð-
vitað í föstum viðskiptum hjá okkur,
án þess að vera í virkri stýringu.
Sérbankaþjónustan er mjög um-
fangsmikið og fjölbreytt svið og fel-
ur í sér margþætta þjónustu, nýtir
þannig til dæmis sérþekkingu okkar
á gjaldeyris- og afleiðuviðskiptum.
Þar fer einnig fram ráðgjöf á sviði
endurskoðunar og skattamála sem
rekin er í samvinnu við samstarfs-
aðila okkar.“
Svo hafíð þið verið að færa starf-
semi ykkar út fyrir landsteinana á
síðustu árum.
„Já, við höfum verið að auka vægi
erlendra eigna í starfsemi okkar og
stigum það skref í fyrra að setja
upp þrjá verðbréfasjóði á Guemsey
á Ermarsundi. Samkeppnin á fjár-
málamarkaði eriendis er mjög hörð
og við verðum að geta sýnt fram á
árangur til þess að hafa raunvera-
lega eitthvað fram að færa fyrir við-
skiptavini okkar. Við höfum þess
vegna valið okkur mjög öflugan
samstarfsaðila, Midland Bank, sem
er nú orðinn hluti af HSPC-banka-
samstæðunni, stærstu bankasam-
stæðu í Evrópu. Ástæðan fyrir því
að við völdum Guemsey, af mörgum
kostum sem komu til greina, var sú
að skattalegt umhverfi er þar hag-
stætt, eyjan er ekki of langt fjarri
Islandi, allir tala ensku og þama
hefur orðið til mikil reynsla í stýr-
ingu sjóða. Bankar verða að upp-
fylla mjög ströng skilyrði til að fá að
hefja rekstur á eyjunni og þar hafa
margir af stærstu og virtustu bönk-
um heims útstöðvar. Það var því
mikil viðurkenning fyrir Lands-
bankann að fá að setja upp starf-
semi á eyjunni.
Þessu til viðbótar höfum við sam-
starf við bandaríska fyrirtækið Alli-
ance Capital (ACM) og bjóðum við-
skiptavinum okkar upp á að ávaxta
eignir sínar í sjóðum þess. ACM er
eitt af stærstu eignastýringarfyrir-
tækjum heims og ávaxtar um 320
milljarða Bandaríkjadollara, sem
jafngildir um 23.000 milljörðum ís-
lenskra króna.“
Hvaða skyldur hefur fjármála-
fyrirtæki við viðskiptavin sem það
hefur tekið að sér að ávaxta fé fyrir
í virkri eignastýringu?
„Þær skyldur ráðast af því hvers
konar umboð fyrirtækið hefur frá
viðskiptavini til að ráðstafa fjár-
munum hans. Það er lykilatriði í
eignastýringu, þar sem sjóðstjóm-
arfyrirtækið er að vinna samkvæmt
umboði viðskiptavinar, að það um-
boð sé alveg skýrt. Fjárfestingar-
stefnan, þ.e. hvaða heimildir sjóð-
stjórinn hefur, þarf að vera ljós báð-
um aðilum. Ef þetta er allt saman
mjög skýrt og bæði sjóðstjóri og
viðskiptavinur hafa kynnt sér skil-
málana til hlítar, ætti misskilningur
ekki að geta komið upp.“
Áhyggjur af
skuldabréfamarkaði
Á síðustu misserum hefur tölu-
vert verið rætt um verðmyndun á
íslenskum hlutabréfamarkaði og
sýnist sitt hverjum. Er markaður-
inn búinn að ná fullum þroska?
„Almennt hefur orðið gríðarlega
ör þróun á íslenskum verðbréfa-
markaði. Á örfáum áram hefur
magn viðskipta á Verðbréfaþingi ís-
lands margfaldast, viðskipti hafa
orðið sýnilegri en áður og upplýs-
ingagjöf virkari. Þegar ég byrjaði
hér í lok árs 1994 var mjög algengt
að upplýsingagjöf væri ófullnægj-
andi, upplýsingar bárust misfljótt
og misvel. Þetta heyrir nánast sög-
unni til, verðbréfafyrirtækjunum
hefur tekist að byggja upp hratt til-
tölulega þróaðan markað. En vitan-
lega verður markaðurinn alltaf
mjög smár. Eins og staðan er í dag
era mikil tækifæri á markaðnum í
samranum og yfirtökum fyrirtækja.
Augljóslega eiga fyrirtæki eftir að
koma inn á markaðinn og aukið
hlutafé á eftir að koma til vegna
einkavæðingarverkefna.
Ég hef upp á síðkastið haft meiri
áhyggjur af skuldabréfamarkaðn-
um. I fréttum er hlutabréfamarkað-
ur yfirleitt fyrirferðarmeiri en
skuldabréfamarkaðurinn er marg-
falt stæiri og þar með jafnvel mikil-
vægari fyrir starfsemi eins og hér
er rekin. Velta á þeim markaði hef-
ur vaxið minna að undanfömu en á
hlutabréfamarkaði og ég held að
vinna verði að því að gera íslenskan
skuldabréfamarkað líkari erlendum
mörkuðum. Það þarf að taka út ým-
is sérkenni íslenskra skuldabréfa
sem koma í veg fyrir þátttöku er-
lendra aðila á markaðnum. Rafræn
skráning er að sjálfsögðu eitt atriði
sem máli skiptir í þessu sambandi.
Það era líka ýmis sérkenni við út-
reikninga á bréfum og verðtrygg-
ingu sem erlendir fjárfestar eiga
erfitt með að setja sig inn í, auk
þess sem bréfin falla illa að þeim
upplýsingakerfum sem menn nota.
Þessi atriði hindra þátttöku fleiri
aðila á markaðnum.
Ástand skuldabréfamarkaðar hér
á landi stendur reyndar í tengslum
við annað og það er gengisfyrir-
komulag krónunnar. Ég tel líklegt
að vegna þess að við búum við
frjálst flæði fjármagns, sem sífellt
er að verða virkara fyrirkomulag,
verði erfiðara að beita fastgengis-
stefnu. Á mjög skömmum tíma geta
átt sér stað gjaldeyrisviðskipti sem
era langt umfram gjaldeyrisforða
Seðlabankans og það er því ljóst að
það getur orðið ei-fitt að nota gjald-
eyrisforðann til að styðja við geng-
ið. Ef og þegar gengisfyrirkomu-
lagi verður breytt er mikilvægt að
íslenskur skuldabréfamarkaður sé
sem líkastur því sem alþjóðlegir
fjárfestar eiga að venjast.“
Um þessar mundir er rætt um
hvort setja þurfí reglur um hluta-
fjáreign í fjármálafyrirtækum. Er
þetta æskilegt og hvaða áhrif hafa
reglur af þessu tagi á markaðinn?
„Það er þörf fyrir almennar og
skýrar leikreglur á hlutabréfa-
markaði eins og í öðram viðskipt-
um, en það á að forðast sértækar
reglur. Ég held þó að menn verði
að hafa í huga að bankar eru sér-
stök fyrirtæki. Þeir búa yfir miklu
magni upplýsinga og era mikilvæg-
ur þáttur í gangverki peningamála-
stefnu á hverjum tíma, auk þess
sem þeir geyma mikinn hluta af
peningalegum spamaði lands-
manna. Ég skil það því mjög vel ef
opinberir aðilar hafa áhyggjur af
samsetningu hluthafa í bönkunum
og vilja tryggja að þeir séu í
dreifðri eign.“
Eru reglur um upplýsingagjöf á
íslenskum hlutabréfamarkaði full-
nægjandi?
„Ég held að þær reglur sem hér
gilda um upplýsingagjöf séu tiltölu-
lega skýrar. Eflaust má eitthvað
bæta úr og það sýnir auðvitað bara
að markaðurinn er í þróun. Ég held
að það sé óæskilegt fyrir markaðinn
í heild ef reglum um upplýsingagjöf
er ekki fylgt út í æsar og ef menn
halda upplýsingum leyndum, jafnvel
þótt ástæður komi fram síðar.“
Stórkostlegt tækifæri til
markaðssóknar
Verðbréfaviðskipti á Netinu hafa
farið vaxandi. Munu þau geta leyst
hefðbundin viðskipti af hólmi?
„Netið er stórkostlegt tækifæri
tO markaðssóknar. Sem dæmi má
nefna að það tók aðeins 4 ár fyrir
Netið að ná til 50 milljóna notenda.
Til samanburðar má nefna að það
tók tölvuna 16 ár að ná sama not-
endafjölda, sjónvarpið 13 ár og út-
varpið 38 ár. Það tók Wal-Mart
verslunarkeðjuna 12 ár og 74 versl-
anir að ná ársfjórðungslegri veltu
upp í 150 milljónir dollara en
amazon.com náði sömu veltu á
þremur árum og þurfti aðeins eina
vefsíðu og lager tU þess.
Hér hjá Landsbréfum var tekin
sú djarfa ákvörðun árið 1997 að
byrja að bjóða upp á verðbréfa-
þjónustu á Netinu með stofnun
Kauphallar Landsbréfa. Hún var
opnuð í nóvember sama ár og var
þá ein fyrsta kauphöll sinnar teg-
undar í Evrópu. Sem dæmi um
möguleikana að því er varðar verð-
bréfaviðskipti má nefna að föstu-
daginn 13. ágúst, buðum við okkar
viðskiptavinum upp á að eiga
ókeypis viðskipti í Kauphöll Lands-
bréfa. Viðskiptin vora sexföld mið-
að við venjulegan föstudag og síð-
ustu viðskipti áttu sér stað rétt
undir miðnætti. Ég held að þetta
sýni vel þann áhuga sem er til stað-
ar en ég dreg í efa að viðskipti á
Netinu muni leysa hefðbundnari
viðskipti gegnum síma algerlega af
hólmi, enda þótt stór hluti verð-
bréfaviðskipta muni örugglega fara
fram um Netið í framtíðinni."
Fríkirkjan í Reykjavík
Sunnudaginn 29. ágúst verður
Fríkirkjuhátíð í Skálholti.
Hátíðarguðsþjónusta kl. 14.00 og fjölskyldudagskrá á eftir. Óháði söfn-
uðurinn og Fríkirkjusöfnuðurinn í Hafnarfirði taka einnig þátt og munu
prestar safnaðanna, sr. Einar Eyjólfsson, sr. Hjörtur Magni Jóhannsson
og sr. Pétur Þorsteinsson, sameiginlega annast messuhald. Organisti
verður Kári Þormar og blandaður Fríkirkjukór leiðir sönginn.
Fríkirkjufólk á öllum aldri er hvatt til þátttöku og ekki síst fjölskyldufólk
sem vill samtengja holla skemmtun og kristilegt uppeldi.
Hópferðabílar leggja af stað frá Fríkirkjunni í Reykjavík kl. 12.00.
og er fólk á einkabílum hvatt til að vera í samfloti með þeim.
Komið verður til baka milli kl. 18.00 og 19.00.
MC
Allir hjartanlega velkomnir. ffi
Þátttaka tilkynnist í síma 552 7270 ÍlT fifi 03 fifi 33 fifi fii fiffi
milli kl. 10.00 og 13.00 virka daga. Qí B 1 1 i 1 1 1 i