Morgunblaðið - 27.08.1999, Síða 50

Morgunblaðið - 27.08.1999, Síða 50
'0 FÖSTUDAGUR 27. ÁGÚST 1999 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ + Sigfús Sigurðs- son fæddist á Hofsstöðum, Mikla- holtshreppi, Snæ- fellsnesi 19. febrúar 1922. Hann lést 21. ágúst síðastliðinn. Foreldrar hans voru Sigurður Kristjáns- son, bóndi f Hrísdal, Miklaholtshreppi, Snæfellsnesi, f. 5. '•föktóber 1888, d. 19. september 1969, og Margrét Hjörleifs- dóttir, f. 27. septem- ber 1899, d. 9. ágúst 1985. Sigfús ólst upp í stórum hópi systkina þar sem sex eru eftir á lífi. Þau eru: 1) Hjörleif- ur Sigurðsson, vegaverksljóri, d., maki Kristín Hansdóttir frá Hellissandi. 2) Kristján E. Sig- urðsson, bóndi í Hrísdal, d., maki María L. Edvardsdóttir, kennari. 3) Kristjana E. Sigurð- ardóttir, húsfr., Böðvarsholti, Staðarsveit, maki Vigfús Þrá- inn Bjarnason, bóndi og oddviti í Hlíðarholti, Staðarsveit. 4) Ás- **1aug Sigurðardóttir, húsfr. Reykjavík, d., maki Sveinbjörn Bjarnason, lögregluvarðstjóri, Reykjavík. 5) Valdimar Sigurðs- son, lögregluflokksstjóri, Reykjavík, d., maki Brynhildur Daisy Eggertsdóttir. 6) Elín G. Sigurðardóttir, Ijósmóðir, Stykkishólmi, maki Sigurður Ágústsson, flugvallarstjóri í Stykkishólmi. 7) Olga Sigurðar- dóttir, veitingakona, Hreða- vatnsskála, maki Leopold Jó- "*iiannesson, veitingamaður, Hreðavatni. 8) Magdalena M. Sigurðardóttir, húsfr., ísafirði, maki Oddur Pétursson, verk- stjóri. 9) Anna Sigurðardóttir, húsfr., Brekku, Norðurárdal, maki Þorsteinn Þórðarson, bóndi, Brekku. 10) Ásdís Sigurðardóttir, læknaritari, Reylqa- vík, maki Sigmundur Sigurgeirsson, húsa- smíðameistari. Sigfús kvæntist 16. nóvember 1947 eftir- lifandi eiginkonu sinni, Ragnheiði Esther Einarsdóttur, hárgreiðslukonu, f. 31. október 1916. Foreldrar hennar voru Einar Þórðar- son, afgreiðslumað- ur, Reykjavík, f. 15. júlí 1880, d. 7. ágúst 1966, og Guðríður Eiríksdóttir, f. 22. nóv- ember 1883, d. 14. janúar 1966. Sigfús og Esther bjuggu á Sel- fossi til 1970 og þar eftir í Stykk- ishólmi til ársins 1993, er þau fluttust til Reykjavikur. Börn Sigfúsar og Estherar eru sex, tal- in í aldursröð: 1) Guðríður Haugen, kaupmaður, Noregi, maki Thormod Haugen, kaup- maður. Börn Guðríðar frá fyrra hjónabandi eru Christian, sölu- maður, og Helena Hyldetoft. Barn Guðríðar og Thormods er Kjartan, nemi. Börn Christians eru Maria Antonett og Ida. 2) Margrét Dórothea, skólastjóri Húsmæðraskóla Reykjavíkur, maki Sigurður Petersen, skip- stjóri. Börn þeirra eru Esther Ágústa Berg, starfar sem sér- fræðingur við tölvuhugbúnað í Houston, Texas, og Sigfús, íþróttamaður og nemi. Barn Sig- fiísar og Anastasiu Pavlovu er Alexander Sigurður. 3) Einar, kaupmaður, Reykjavík, maki Anna Kristín Sigþórsdóttir, kaupmaður. Sonur þeirra er Sig- þór, rekstrarhagfræðingur hjá Flugleiðum. Eiginkona Sigþórs er Sigrún Guðmundsdóttir arki- tekt og þeirra sonur er Sveinn Þór. 4) Dómhildur Arndís, hús- stjórnarkennari og forstöðu- maður tilraunaeldhúss Osta- og smjörsölunnar sf., Reykjavík. 5) María Kristín, starfskona á Landspítalanum, maki Krist- björn Theodórsson, vaktstjóri í Laugardalslaug. Dóttir Maríu og Valdimars Briem, sálfræð- ings, er Ragnheiður Esther Briem, nemi. Barn Ragnheiðar og Ingólfs M. Jones er Sylvía Lind. 6) Sjgurður, markaðsfull- trúi hjá SÍF á Ítalíu, maki Sjöfn Björnsdóttir. Börn þeirra eru Emilía Björg, Katrín Erla, Sig- urður Kristinn og Elín Erla. Sigfús var kunnur íþrótta- maður á árum áður, keppti í gamla gullaldarliðinu og vann til margra verðlauna. Hann keppti á Ólympiuleikunum í London 1948 og komst þar í úr- slit. Sigfús tók alla tíð mikinn þátt í öllum félags- og íþrótta- málum og var einn af frum- kvöðlum íþróttauppbyggingar á Selfossi. Hann var formaður Ungmennafélags Selfoss um margra ára bil og var gerður að heiðursfélaga þess. Einnig var hann alla tíð mikill áhugamaður um söng og söng í ótal kórum. Sigfús stundaði nám í Hér- aðsskólanum á Laugarvatni og Iþróttaskóla Sigurðar Greips- sonar veturinn 1940-1941. Sigfús byijaði ungur að starfa í Kaupfélagi Árnesinga, fyrst sem afgreiðslumaður og siðan sem innkaupa- og verslun- arstjóri. Árið 1970 gerðist hann kaupfélagsstjóri Kaupfélags Stykkishólms. Sigfús var alla tíð öflugur Lionsfélagi og einnig góður bridsspilari og vann til ljölda verðlauna á því sviði. Er hann fór á eftirlaun gerðist hann flugvallarstjóri á flugvelli Stykkishólms, þar til hann fluttist til Reykjavíkur veturinn 1993. Útför Sigfúsar fer fram frá Selfosskirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 13.30. SIGFÚS - SIGURÐSSON Nú þegar tengdafaðir minn, Sig- fús Sigurðsson, er allur vil ég minn- ast hans með fáeinum orðum. Rúm- ir þrír áratugir eru nú liðnir frá því að fundum okkar Sigfúsar bar fyrst saman á Selfossi er ég, ung stúlka, trúlofaðist Einari syni hans. AUt frá fyrstu tíð tók hann mér af hlýhug og blíðu sem einkenndi þennan a*fann og fannst mér mikill fengur í því, sem ungri stúlku, að eignast traust og vináttu hans sem hélst óslitið öll þau ár sem hann átti ólif- uð. Hugur Sigfúsar skyggndist víða enda vel lesinn maður og því gott að vera í návist hans og allir samfundir Persónuleg, alhllða útfararþjónusta. Sverrir Olsen, Sverrir Einarsson, útfararstjóri útfararstjóri Útfararstofa íslands Suðurhlið 35 ♦ Sími 581 3300 Allan sótarhringinn. www.utfararstofa.ehf.is/ því gefandi. Þótt síðustu ár hafi ver- ið Sigfúsi erfið og líkamlegt ástand hans ekki sem hann kysi, var hugur hans ætíð óbugaður og persónan ætíð hin sama. íþróttir og stang- veiði voru honum hugstæð og er mér minnisstætt þegar hann og Esther, tengdamóðir mín, fóru til veiða með okkur hjónunum í Haf- fjarðará fyrir tveimur árum. Þrátt fyrir að hann gæti ekki gengið tO veiða við ána eins og hugur hans stóð tO lét hann ekki hugfallast en lét hjálpa sér að Kvörninni, þeim fallega veiðistað, og kastaði flugu þar sitjandi á stól. Þótt ekki tækist að ginna laxinn það sinnið veitti það honum mikla ánægju að sitja þama og hlusta á ámiðinn og sjá laxinn leika listir sínar. Þessa mynd mun ég ætíð geyma í huga mínum þar sm Legsteinar Lundi v/Nýbýlaveg áOLSIŒKABs: 564 3555 BtÓMðfjMðín v/ PossvogskiVkjugapð Sími: 554 0500 Þegar andlát ber að höndum Útfararstofan annast meginhluta allra útfara á höfuíborgarsvæíinu. Þar starfa nú 15 manns við útfararþjónustu og kistuframleiðslu. AlúSleg þjánusta sem byggir á langri reynslu Útfararstofa Kirkjugarðanna ehf. Vesturhlíð 2-Fossvogi-Sími 551 1266 sem gleði og hamingja lýsti úr and- litum þeirra beggja sitjandi þar á árbakkanum. Vináttu hans var gott að eiga og vO ég nú að leiðarlokum kveðja þennan hlýja og góða mann sem ætíð gaf meira en hann tók. Elsku Esther, megi Guð gefa þér styrk í þessari miklu sorg. Blessuð sé minning Sigfúsar Sigurðssonar. Anna K. Sigþórsdóttir. Hann hafði hleypt heimdraganum hann Sigfús bróðir minn þegar ég fór fyrst að muna eftir mér enda nítján ára aldursmunur; hann þriðji elstur af stóra bamahópnum í Hrís- dal en ég yngst. Það hafði verið af- ráðið að Sigfús færi í Héraðsskól- ann að Laugarvatni enda afburða námsmaður og á þeim árum ekki um marga skóla að velja þar sem jafnframt var aðstaða tO að rækta °g leggja stund á íþróttir er stóðu huga hans svo nærri. En ég sá hann í huga mér enda mikið um hann rætt þótt landshlutar skOdu að og einu mögulegu samskiptin væru bréfleiðis. Sumarvinnu fékk hann við Kaupfélagið á Selfossi tO að fjár- magna áframhaldandi skólavist og á Selfossi var hans framtíð ráðin. Það var svo sumardag einn árið 1948 að ungur maður kom að Hrísdal. Þar var kominn Sigfús stóri bróðir minn. I minningunni er þessi stund ljóslifandi enn í dag. Glæsimenni í dökkum jakkafötum, hvítri skyrtu með ermahnappa og gullúr. Bróðir minn, stoltið sagði tO sín. Hann var kominn vestur í sumarleyfinu sínu tO að æfa kúluvarp á sandeyrinni í bæjarlæknum. Ólympíuleikamir í London voru framundan og markið var sett á þátttöku í þeim. Nú fóru spennandi vikur í hönd. Sjö ára gömul sveitastelpa hafði ekki mörg- um skyldum að gegna og því var hver stund notuð úti við bæjarlæk- inn í samvistum við nýfundinn bróð- ur. Horft á æfingamar og það sem meira var ég fékk að halda í mál- bandið og taka þátt í að mæla köstin. Á Ólympíuleikana fór hann og hafnaði í tólfta sæti í kúluvarpi. Geri aðrir betur í dag þegar hafðar eru í huga ólíkar aðstæður þá og nú. Árin liðu og fjölskyldan stækkaði. Nú kom Sigfús í sumarheimsóknir ásamt Esther, konu sinni, og börn- um. Alltaf upplifði ég eitthvað nýtt og spennandi, smá minningarbrot sem geymd era á meðal minning- anna frá áranum í Hrísdal. Eftir að ég flutti tO Reykjavíkur tóku við ferðir og heimsóknir tO þeirra hjóna á hið einstaka heimOi þeiira á Sel- fossi þar sem mannvirðingin og ást- in var í heiðri höfð. HeimOið var stórt og bæði unnu þau mildð en í fyrirrúmi vora ávallt börnin og vel- ferð þeirra. Á kveðjustundu get ég ekki lokið þessum minningarmynd- um mínum án þess að á hugann leiti það sem hæst ber og eftir stendur skýrt og fagurt: Þetta einstaka hjónaband. Þar verður mér orða vant. Jafnvel góðum rithöfundi vefðist tunga um tönn við að lýsa í fáeinum setningum svo einstaklega ástríku hjónabandi til liðlega hálfr- ar aldar. Háa skilur imetti himingeimur, blað skilur bakka og egg, En anda, sem unnast, fær aldregi eilífð að skilið. (J. Hallgrímsson.) Með þessum orðum kveð ég þig, kæri bróðir. Esther, börnum henn- ar og öðram aðstandendum sendum við Sigmundur okkar innOegustu samúðarkveðjur. Ásdis Sigurðardóttir. Þeim fækkar gömlu góðu Selfyss- ingunum. Nú er Sigfús Sigm-ðsson farinn „heim“ því þótt hann hafí verið frá Hrísdal í Miklaholtshreppi fluttist hann ungur tO Selfoss og fyrir mér er hann alltaf Selfyssing- ur. Eiginkona Sigfúsar er Esther Einarsdóttir og ég minnist þess að þegar ég tók mynd af þeim á nýju kassamyndavélina mína árið 1947, þegar Ölfusá flæddi sem mest yfir bakka sína, skrifaði ég aftan á myndina „Fúsi og Esther í flóðinu“. Fyrir mér vora þau aOtaf Fúsi og Esther. Fúsi var hetjan okkar strákanna á Selfossi í den og við fundum okkur þunga steina til að kasta tO að verða kappar eins og Fúsi því hann kastaði nefnOega manna lengst kúlu og var voðalega sterkur. Annar kappi var lflía á Selfossi á sama tíma en það var Kolbeinn Kristins- son og gat hann stokkið yfir háar slár með stönginni sinni en Fúsi var sá sterki svo hann var mitt uppá- hald. Svo var það hún Esther sem var fyrsta konan sem passaði mig og hún var svo sæt og ég smápolli varð svo skotinn í henni og hálffeim- inn í hvert skipti sem hún gerði mömmu þann greiða að líta eftir mér. Þannig eiga Fúsi og Esther sérstakan sess í hjarta mínu. Þeir Fúsi og Kolbeinn vora dyra- verðir í Selfossbíói þegar haldin vora þar böll um helgar og margar sögurnar urðu tO um það hvemig Fúsi tugtaði tfl slagsmálaliðið sem kom neðan frá Stokkseyri og Eyr- arbakka, að ekki sé nú talað um lýð- inn sem kom frá Reykjavík. Einnig heyrðum við um afreksverk eins og að bjarga fólki úr ánni sem hafði í einhvers konar ölvímu fleygt sér í hana og skipti þá engum togum að stungið var sér út í iðandi straum- inn og manneskjunni bjargað. Ekki veit ég hvað margar af þessum sög- um vora sannar en mikfl goðsögn var um styrk Fúsa. Þegar ég var ellefu ára fluttist ég til Reykjavíkur en undi mér þar ekki og fékk að ljúka bamaskóla- námi á Selfossi og bjó þá hjá móður- systur minni, Guðrúnu, og Ólafi Kristmundssyni manni hennar, en þau bjuggu í Ingólfi, þar sem afi minn og amma höfðu áður búið. Húsið Ingólfur var beint á móti Sel- fossbíói svo ég hafði gott útsýni yfir hlaðið við bíóið og stalst oft tO að fylgjast með látunum eftir böllin. Eg man sérstaklega eftir einu skipti og þá fékk ég sönnur á hvað hann Fúsi minn var sterkur. Þessi böll vora ótrúleg, engin lögregla, bara Fúsi og Kolbeinn til að sjá um allt liðið og margir komu bara á böllin tO að slást. Þama varð ég vitni að því að hópur af mönnum veittist að Fúsa og hann varð seint reyttur tO reiði, en aflt í einu rann á hann eins konar berserksgangur og hann tók hvem garpinn á fætur öðram og fleygði frá sér eins og tuskum. Þeir sem hann náði ekki tO vora fljótir að taka tfl fótanna en það skal tekið fram að Fúsi var hvers manns hugljúfi og vfldi ekld flugu gera mein en ég held að hann hafi stundum verið hræddur við hvað hann var sterkur. Ölfusá var mikið aðdráttarafl fyrir okkur strákana og þá vora veiði- mennimir í sérstöku uppáhaldi. Fúsi var góður veiðimaður og ég fylgdist oft með_ honum, enda hann minn maður. Eg man að það var mikið tal- að um það á þessum áram hvað Fúsi og Esther vora glæsflegt par og ég var svo sannarlega sammála því. Svo liðu árin. Ég flutti frá Sel-' fossi 12 ára gamall til Reykjavíkur og leiðir okkar Fúsa og Estherar skfldi. Ég er og var í klúbbi sem heitir Gufubaðsklúbbur Jónasar, nefndur eftir hinum þekkta sund- kappa Jónasi Halldórssyni. Jónas rak gufubaðstofu sína á Kvisthaga 29 og hef ég sótt þessa stofu í fjöra- tíu ár. Svo er það fyrir um það bil tuttugu áram að ég hitti stóran og stæðilegan mann í Gufubaðstofu Jónasar og hann kemur mér kunn- uglega fyrir sjónir. Þama er kom- inn Einar Sigfússon, sonur Fúsa og Estherar. Hann var þá búsettur í Stykkishólmi og kom oftast við á gufubaðstofunni þegar hann kom tfl Reykjavíkur. Það er skemmst frá því að segja að það tókst fljótt með okkur vin- átta. I fyrsta skiptið sem við hjónin heimsóttum Einar og Önnu konuna hans í Stykkishólmi, en þær heim- sóknir urðu margar, hitti ég Fúsa og Esther á nýjan leik og það urðu fagnaðarfundir. Þau höfðu flutt frá Selfossi 1972 er Fúsi tók við kaupfé- lagsstjórastöðu Kaupfélags Stykk- ishólms. Mikið var rætt um gamla daga og allt fólkið sem við þekktum sameiginlega, þessa „orginal“ Sel- fyssinga, og ég sagði þeim bug minn tfl þeirra og hvað þau hefðu verið mér og fleirum. Seinna þegar Einar og Anna höfðu flutt tfl Reykjavíkur fóram við í fjölda mörg ár tfl rjúpna á svæði nálægt Stykkishólmi sem Einar þekkti vel og þá var það mér sérstakt tOhlökkunarefni að vera ávallt boðið í veislu tfl Fúsa og Estherar á þeirra fallega heimOi í Presthúsinu eins og það var og er kallað. Já, veisla var það á gamla góða mátann og ekkert sparað tO. Frú Esther engri lík í sinni elda- mennsku og Fúsi vertinn á staðnum með sitt ljúfa bros og kímna viðmót. Þetta vora yndislegar stundir og stórkostíeg viðbót fyrir mig í kynn- um við þessi heiðurshjón. Þau vora jafn glæsfleg þá og þegar þau vora ung með aðeins öðravísi áherslum. Ég fylgdist með veikindum Fúsa og fékk að vita um hvem „sigurinn“ á fætur öðram mér tfl mikillar gleði. En svo fór að lokum að jafnvel mikl- ir kappar verða að gefa eftir. Fúsi minn, ég þakka þér fyrir fyrirmyndina sem þú varst mér á Selfossi. Hún var mér gott vega- nesti. Ég þakka þér líka vináttuna og gestrisnina. Ég er ekki í nokkram vafa um að þú stendur á verðlaunapalli „heima“ fyrir þitt fyrirmyndarlífshlaup. Fallega Esther mín, þinn missir er mestur en þú getur litið tfl baka með stolti yfir að hafa átt hann Fúsa fyrir eiginmann og vin. Við hjónin vottum þér og fjölskyldu þinni allri okkar innOegustu samúð og vitum að guð er með ykkur öllum. Guðlaugur Bergmann. Við fluttum inn í húsið að Sflfur- götu 4, Stykkishólmi, haustið 1982 með nýfædda dóttur okkar, Ásdísi. Að SOfurgötu 6 í hinu myndarlega Prestshúsi sem reist var 1896 bjuggu Sigfús, Esther, Maja og Heiða. Þau vora nágrannar okkar tO ársins 1993 er þau fluttu tfl Reykjavíkur. Þau áttu eftir að reyn- ast okkur ákaflega vel. 1986 og 1988 fæddust okkur svo tvær dætur í við-

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.