Morgunblaðið - 27.08.1999, Page 58

Morgunblaðið - 27.08.1999, Page 58
MORGUNBLAÐIÐ , 58 FÖSTUDAGUR 27. ÁGÚST 1999 Dýraglens Hundalíf Ljóska Smáfólk U)E CAME TO UJATCH YOUR 6AME, CHARLE5.. PO WE NEEP TICKET5 7 NO, YOU CAN SIT OVERTHERE W THE FENCE.. <t2> \ 1 v*/ f y/ í THE5E ARE LOUSY 5EAT5' Við komum til að horfa á Nei, þið getið leikinn þinn, Kalli.. setið þarna við þurfum við miða? girðinguna.. Þetta eru ömurleg sæti! BREF TIL BLAÐSINS Kringlunni 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329 Skaftafell til skammar Frá Guðrúnu H. Jónsdóttur: EG heimsótti þjóðgarðinn í Skafta- felli fyrir hálfum mánuði. Ég hafði fengið í heimsókn erlenda gesti sem við hjónin höfðum boðið hingað til að skoða íslenska náttúru í allri sinni dýrð. Við höfðum oftsinnis sagt þeim hvemig við ferðuðumst um íslensk- ar óbyggðir, við hengdum tjald- vagninn okkar aftan í bílinn og alls staðar væri orðið að finna góðan að- búnað á tjaldstæðum á Islandi. Sérstaklega væru okkar falleg- ustu perlur, eins og Skaftafell, vel búnar tO að taka á móti ferðamönn- umá tjaldstæði. Ég þurfti nú heldur betur að gleypa það ofan í mig þegar á stað- inn kom. Þar var dapurt um að lit- ast. Á tjaldstæðinu eru að minnsta kosti tvo hús sem hýsa salerni, sturtur og vaskaðstöðu. í húsi því sem næst okkur var eru fjögur sal- erni og sturtur í hinum enda húss- ins. Þegar við komum var miði á tveimur salernishurðum sem sagði að lokað væri vegna bOunar. Miðinn var ennþá þegar við fórum eftir fjóra daga. Ég fór inn á annað salemið sem opið var en sneri frá. Þar var heldur ógeðfellt um að litast. Gólfið var allt í vatni, grútskítugt, handþurrkubréf úti um allt gólf og salernisskálin hálffull. Ég beið eftir að hitt salem- ið losnaði. Þar tók ekki betra við. Ég ákvað að fara út í þjónustu- miðstöðina. Þar var skárra ástand, en samt var þar sóðalegt um að lit- ast, en ég fann þó altént óstíflað sal- emi. Frammi þar sem vaskamir em var á einum stað allt í vatni og var allt fremur subbulegt. Við komum þarna seinni hluta dags á virkum degi og töldum að við hefðum hitt einstaklega Ola á, því ekki er þetta í fyrsta né annað skipti sem við heimsækjum Skafta- fell og hefur það alltaf verið í lagi. Þarna dvöldum við í fjóra daga og ef eitthvað var versnaði ástandið frekar en hitt. Ég hitti á dögunum fólk sem hafði heimsótt Skaftafell um síðustu helgi og ekki hafði það betri sögu að segja. Mér finnst þetta til háborinnar skammar og vona að þeir sem hafa með þessa „landkynningu“ að gera, sjái sóma sinn í að taka til hendinni þarna. GUÐRÚN H. JÓNSDÓTTIR, Hrauntungu 95, Kópavogi. Réttdræpur! Frá Astrid Sigurðardóttur: ÞEGAR ég las grein Bryndísar Jónsdóttur í Morgunblaðinu hinn 25. ágúst sá ég mér ekki annað fært en að svara því. Bryndís segist ekki þekkja málið en hikar ekki við að tjá sig um það í blöðum, þar með ætti sá málflutningur að dæma sig ómerkan. Eins og fram kemur í frétt DV var sonur minn bitinn af hundi í Kópavogi síðastliðinn miðvikudag. Hann þurfti að fara í gegnum garð- inn heima hjá hundinum til að kom- ast leiðar sinnar vegna fram- kvæmda í götunni. Réðst þá hund- urinn á hann og beit í handlegginn að tOefnislausu. Drengurinn var á engan hátt að hamast í eða ögra þessum hundi. Varla telst það vera réttur hunda að passa garðinn sinn með því að bíta þann sem í hann kemur. Ef Bryndís hefði lesið betur frétt- ina í DV þá hefði hún kannski séð að þessi hundur var ekki að bíta barn í fyrsta sinn heldur í annað sinn. Éyrra atvikið gerðist fyrir ári, þá beit hann dreng sem var að bera út blöð í hverfinu ásamt móður sinni. Beit hann barnið í magann í gegn- um peysu og yfirhöfn og ber dreng- urinn nú ljótt ör á maga. Eins og fram hefur komið var hvorugur drengjanna að ögra hundinum á nokkurn hátt. Þeir vissu ekki að í garðinum væri hundur sem bítur þann sem í hann kemur því engin varúðarsldlti voru um slíkt. Ef rétt- ur hundsins er að bíta þá sem í garðinn koma væri betra að garður- inn væri kirfilega girtur þannig að þeir sem ekki kæra sig um bit geti verið annars staðar. Eiganda hundsins má vera ljóst að hundurinn hans bítur, það er því fullkomlega á hans ábyrgð að hann komi ekki nálægt fólki nema með múl eins og hafði verið lofað eftir fyiTa bitið. Hefði eigandinn staðið við sitt hefði sonur minn ekki verið bitinn. Ég tel að flestum hljóti að vera ljóst að þessi hundur er stór- hættulegur og eigandi hans ábyrgð- arlaus og því beri að aflífa hundinn strax. Ég hef sjálf haldið dýr og veit hvaða ábyrgð því fylgir. Einnig að það er sárt fyrir alla í fjölskyldunni þegar dýrin þurfa að fara. ASTRID SIGURÐARDÓTTIR, Engihjalla 25, Kópavogi. Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi. Eru rimlagardínurnar óhreinar! Vib hroinsum: Rimla, strimla, plíseruð og sólargluggatjöld. Sctjum afrafmagnandi bónhúft. Sækjum og sendum ef óskaó er. IM tffjet tækmhreinsimn tTifiT*rrTTT 33 * 5fcafe 533 3*34 ♦ OSMb 997 3*3*

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.