Morgunblaðið - 27.08.1999, Page 59

Morgunblaðið - 27.08.1999, Page 59
MORGUNBLAÐIÐ FRETTIR FÖSTUDAGUR 27. ÁGÚST 1999 59 l gil§l i * % ’ljÍ'mmmsSSS* m i r l i Ljpf mMí? -***•■* Zí *. L Frá undirritun samninganna í Skólabæ. Morgunblaðið/Jim Smart Samstarfssamningar undirritaðir UNDIRRITAÐIR voru 26. ágúst sl. í Skólabæ tveir samstarfs- samningar milli Háskóla fslands, Rannsóknastofnunar fiskiðnaðar- ins og Tokyo University of Fis- heries. Annars vegar er um að ræða samning um nemendaskipti milli Háskóla fslands og Tokyo Uni- versity of Fisheries. Kveður samningurinn á um að hvor stofnun fyrir sig sendi allt að fimm nemendur til hinnar á ári hveiju til náms og rannsókna. Hins vegar er um að ræða samning milli Háskóla íslands, Rannsóknarstofnunar fiskiðnað- arins og Tokyo University of Fis- heries um almennt samstarf á sviði rannsókna og menntunar. Gerir þessi samningur ráð fyrir víðtæku samstarfi á sviði mennt- unar, rannsókna og starfsþjáif- unar. Munu stofnanirnar skiptast á rannsóknagögnum, áætluð eru gagnkvæm starfsmannaskipti og sameiginlegt ráðstefnuhald. Gildistími beggja samninga er fimm ár. Samninginn munu und- irrita Páll Skúlason, rektor Há- skóla íslands, Guðmundur Stef- ánsson, framkvæmdasljóri rann- sóknasviðs Rannsóknastofnunar fiskiðnaðarins, og Chiaki Koizumi, rektor Tokyo Uni- versity of Fisheries. Undirritun þessara samninga er liður í opinberri heimsókn rektors og nokkurra forráða- manna Tokyo University of Fis- heries til íslands. Tokyo Uni- versity of Fisheries er einn fremsti rannsóknaháskóli á sviði sjávarútvegsfræða í Japan. Með- an á heimsókninni stendur mun japanska sendinefndin einnig taka þátt í sameiginlegri ráð- stefnu um rannsóknir á sviði sjávarútvegs 27. ágúst nk. og heimsækja ýmsar stofnanir og fyrirtæki. Happdrætti um iimflytjenda leyfí til Bandaríkjanna SENDIRÁÐ Bandaríkjanna hefur tilkynnt að efnt verði til happ- drættis um innflytjendaleyfi til Bandaríkjanna (Diversity Immigr- ant Visa Lottery-DV-2001) á þessu ári. Fólk fætt á íslandi og sem dregið verður út í happdrættinu fær tækifæri til að sækja um inn- flytjendaleyfi, sem gefur rétt til að búa og starfa í Bandaríkjunum. Skráningartíminn er 30 dagar, frá hádegi 4. október 1999 til hádegis 3. nóvember 1999. Búist er við að u.þ.b. 55.000 inn- flytjendaleyfum verði úthlutað, á heimsvísu, gegnum DV-2001 happ- drættið. Fjöldi innflytjendaleyfa tO þeirra landa sem rétt hafa til þátt- töku er ákveðinn algerlega af handahófi upp að hámarkinu 3.500 á hvert land. Þeir sem dregnir verða út verða að hafa menntun sem sam- varar framhaldsskóla („high school“) í Bandaríkjunum, eða tveggja ára starfsreynslu síðustu fimm árin í starfsgrein sem viður- kennd er af atvinnumálaráðuneyti Bandaríkjanna. Þeir þurfa ekki að hafa atvinnutOboð í höndunum, en verða að vera við góða heOsu lfkam- lega og andlega og geta séð fyrir sér í Bandaríkjunum. T0 að geta tekið þátt í útdrættin- um verður viðkomandi að vera fæddur í landi sem rétt hefur tO þátttöku. Island er þar á meðal. Embættismenn sendiráðsins leggja áherslu á að það er fæðingarstaður sem skiptir máli, en ekki ríkisfang. Allar umsóknir ber að senda tO höfuðstöðva í New Hampshire í Bandaríkjunum. Aðeins er hægt að skila inn einni umsókn fyrir hvern mann og umsækjandinn getur sjálf- ur útbúið umsóknina á venjulegan pappír. Ekki er um nein eyðublöð að ræða. Umsækjandinn verður sjálfur að undirrita umsókn sína og líma mynd af sér í vegabréfsstærð á umsóknina með glæru límbandi, ekki festa hana með hefti eða papp- írsklemmu. Starfsmenn sendiráðsins taka fram að þótt margir einstaklingar og fyrirtæki auglýsi í dagblöðum og lofí aðstoð við að útvega vegabréfsá- ritanir eða að hjálpa fólki við að fá „græna kortið“, þá er DV-áætlunin hreint happdrætti. AHir sem geta skrifað nafn sitt og heimOisfang á blað geta tekið þátt. Eini kostnað- urinn felst í pappírnum og póst- burðargjaldinu. Þeir sem verða dregnir út þurfa hins vegar að borga sérstakt 75 dollara umsýslu- gjald. „Starfsmenn sendiráðsins vita tO þess að mörg fyrirtæki sem bjóða aðstoð við útvegun innflytjendaleyf- is setji upp óheyrilega hátt gjald og gefi óraunhæf loforð. Aðrir aðstoði umsækjendur fyrir sanngjarnt verð eða jafnvel ókeypis. En þau fyrir- tæki sem segjast geta aukið líkur umsækjandans eru að lofa því sem þau geta ekki staðið við,“ segir í frétt frá bandaríska sendiráðinu í Reykjavík. TO að fá upplýsingar um frágang á umsóknum fyrir DV-happdrættið skal senda frímerkt áritað umslag tO sendiráðs Bandaríkjanna, eða sækja upplýsingablaðið í afgreiðslu sendiráðsins. Einnig er hægt að nálgast upplýsingarnar á Netinu, á heimasiðunni: http://travel.state.gov. Amerískir dagar hjá Bakarameistaranum AMERÍSKIR dagar verða haldnir hjá Bakarameistaranum, Suður- veri, dagana 26. ágúst til 20. sept- ember, þar sem alls kyns bakkelsi frá Bandaríkjunum verður kynnt. f tilefni af opnun amerísku daganna bauð Bakarameistarinn viðskiptafulltrúa bandaríska sendiráðsins og öðrum fulltrúum til opnunarinnar. Hvalfjarðargöngin Bifhjólamenn vilja hraðari afgreiðslu MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi frá Bifhjólasamtökum lýðveldisins: „Bifhjólasamtök lýðveldisins, Sniglar, fagna lækkun veggjalda á bifhjól í gegnum Hvalfjarðargöngin. Samtökin benda engu síður á að þótt lækkun komi til verður tíminn sem tekur að afgreiða bifhjól í gegnum gjaldhliðið enn sá sami. Okumaður bifhjóls þarf eftir sem áður að stöðva ökutækið, taka af sér hjálminn, taka af sér hanskana, renna niður jakkanum til að komast að veskinu, greiða veggjaldið, ganga frá veskinu í jakkann aftur, hjálm- inn á, hanskana á og aka á braut. Það hefur sýnt sig að það getur tek- ið yfír klukkutíma að afgreiða um 30 manna hóp bifhjólafólks í gegn- um hliðið.“ Opið um allt land á degi símenntunar - DAGUR símenntunar verður hald- inn um land allt á morgun, laugar- daginn 28. ágúst. Opið verður á eft- irtöldum stöðum. Tímasetning dag- skrár er alls staðar kl. 10-17, nema annað sé tekið fram: Vesturland: Fjölbrautaskólanum á Akranesi, Safnahúsinu í Borgarnesi, Landbúnaðarháskólanum á Hvann- eyri, Tölvuskóla Snæfellsness, Snæfells- bæ, Grunnskólanum í Grundarfirði, Grunnskólanum í Stykkishólmi og Dalabúð í Búðardal. Vestfirðir: Framhaldsskóla Vestfjarða, Isa- firði. Norðurland vestra: Blönduósi, Þverbraut 1, FélagsheimOinu, Hvammstanga, Ráðhúsi Siglufjarðar, Höfðaskóla, Skagaströnd og Bók- námshúsi, Sauðárkróki. Norðurland eystra: íþróttahöllinni á Akureyri og Verkalýðshúsinu á Húsavík. Austurland: Menntaskólanum á Egilsstöðum, Verkmenntaskóla Austurlands á Neskaupstað, Framhaldsskóla Austur-Skaftafells- sýslu á Hornafirði og íslenskri miðlun, Stöðvarfirði. Suðurland: Fjölbrautaskóla Suðurlands, Sel- fossi. Reykjanes: Kjama, Hafnargötu 57, Reykja- nesbæ, Fjölbrautaskóla Suðurnesja, Reykjanesbæ, kl. 13-16, Hafnargötu 35, Reykjanesbæ, kl. 13-16 Nótastöðinni Krosshúsum, Grindavík, kl. 15 og 17, Fræðslusetrinu, Sandgerði, Hitaveitu Suðumesja, Svartsengi, kl. 13-17 og Bláa lóninu, Svarts- engi, kl. 13-16. Nýir leiðbeinendur Phoenix-námskeiðsins, f.v.: Jón Gauti Árnason, Sigurður Guðmundsson og Ólafur Þ. Ólafsson ásamt Fanný Jónmunds- dóttur, umboðsmanni Brian Tracy. Nýir leiðbeinendur Phoenix-námskeiðsins f SUMAR hefur staðið yfir þjálfun nýrra leiðbeinenda í Phoenix-nám- skeiðinu - Leiðin tO árangurs og era þeir nú teknir tO starfa með Innsýn sem er umboðsaðOi Brian Tracy á íslandi. Nýju leiðbeinend- umir eru Jón Gauti Amason, Sig- urður Guðmundsson og Ólafur Þ. Ólafsson. Með fyrirtækinu starfa nú í sam- starfi sjö leiðbeinendur og era nám- skeið haldin um allt land árið um kring. Klúbbfundir era haldnir fyrir alla sem sótt hafa Phoenix-námskeiðið og verður fyrsti fundur haustsins haldinn að Hótel Loftleiðum mánu- daginn 30. ágúst kl. 20. Þess má geta að klúbburinn hefur starfa sl. 7 ár. Utanríkisráðuneytið boðar til ráðstefnu undir yfirskriftinni Áhrif EES-samningsins á stjórnsýsiu aðildarríkjanna Dómstólaeftirlit Ráðstefnan verður haldin á Hótel Loftleiðum 2. september 1999 Dagskrá *09.00 Inngangserindi Stefán Haukur Jóhannesson, skrifstofustjóri viöskiptaskrifstofu utanríkisráðuneytisins *09.30 Samráð og samræming EES-mála í stjórnsýslu Liechtenstein Christoph Biichel, yfirmaöur EES-deildar stjórnarráðs Liechtenstein •10.00 Samráð og samræming EES-mála í stjórnsýslu Noregs Jan Bugge Mahrt, yfirmaöur lagadeildar EES og WTO-mála utanríklsráðuneytis Noregs •10.30 Framkvæmd EES-samningsins frá sjónarhóli framkvæmdastjórnar ESB Eva Gerner, yfirmaöur EES-deildar framkvæmdastjórnar ESB 11.00 Kaffihlé •11.15 Þriðju ríkja samskipti EFTA/EES-ríkja Philippe Metzger, lögfræðingur, EFTA-skrifstofunni í Brussel 11.45 Amsterdam-sáttmálinn og áhrif hans á EES-samstarfið Grétar Már Sigurðsson, sendifulltrúi, sendiráði íslands í Brussel 12.15 Mál Erlu Maríu Sveinbjörnsdóttur (E-9/97) Martin Eyjólfsson, sendiráðsritari, sendiráði íslands Brussel 12.45 Samningsbrotamál gegn EFTA/EES-ríkjum Bjarnveig Eiríksdóttir, lögfræðingur, lagadeild ESA 13.15 Hádegisverður •13.45 „Dýnamísk“ einsleitni í framkvæmd og túlkun „EES-dðmstólanna“ á henni John Forman, lögfræðilegur ráðgjafi, lagadeild framkvæmdastjórnar ESB •14.30 EFTA-dómstóllinn og túlkun EES-réttar Peter Dyrberg, yfirmaður lagadeildar ESA 15.15 Ráðstefnuslit Ráðstefnustjóri erStefán Haukur Jóhannesson, skrifstofustjóri viðskiptaskrifstofu utanrík- isráðuneytisins. Ráðstefnan er öllum opin meðan húsrúm leyfir. ' Pátttökugjald er kr. 3.500. Innifalinn erþr/rétfaðuróuföiftfki&ráðuneytið Viðskiptaskrifstofa

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.