Morgunblaðið - 27.08.1999, Side 64

Morgunblaðið - 27.08.1999, Side 64
• 64 FÖSTUDAGUR 27. ÁGÚST 1999 MORGUNBLAÐIÐ FÓLK í FRÉTTUM BÍÓVEISLAN HEFST í DAG KVIKMYNDAHÁTIÐ í Reykjavík verður formlega sett í Háskólabíoi í kvöld og mun Björn Bjarnason menntamálaráðherra setja hátíðina með pomp og pragt. Sérstakur gestur hátíðarinn- ar, Emir Kusturica, kom til landsins í gær ásamt hljóm- >sveit sinni, No Smoking Band, og dóttur sinni Dunja. Opnunarmynd hátíðarinnar er nýjasta mynd Kusturica, Svartur köttur, hvítur kött- ur, og mun leikstjórinn ásamt meðlimum hljómsveit- arinnar kynna myndina á opnuninni. Framleiðandi síðustu tveggja mynda Kusturicas, Karl Baumgartner, verður einnig viðstaddur en hann tengist íslendingum í gegn- um Friðrik Þór Friðriksson því hann var meðframleið- andi myndarinnar Á köldum klaka ásamt aðalframleið- andanum Jim Stark. Meðal annarra gesta hátíðarinnar sem verða viðstaddir opnun- ina er hin íslensk ættaða Sól- veig Anspach sem á tvær myndir á hátíðinni. Auk of- antalinna kemur bandariski leikstjórinn Darren Arnofsky í næstu viku til landsins til að kynna mynd sína Pí og ís- lenski leikstjórinn Ólafur Sveinsson sem býr í Þýska- landi mun fylgja mynd sinni NonStop úr hlaði. Ein breyting hefur orðið á dagskrá Kvikmyndahátíðar í Reykjavík sem birt var í Morgunblaðinu síðastliðinn miðvikudag. Hún er sú að kvikmynd Emirs Kusturica, Þegar pabbi fór í viðskipta- ferð, verður ekki sýnd því ekki tókst að fá eintak af myndinni til landsins. Meðfylgjandi á síðunni er kynning á þeim myndum sem sýndar verða á Kvikmynda- hátíð í Reykjavík í dag, en hátíðin stendur til 5. septem- ber. Klúbbur Kvikmyndahá- tíðar í Reykjavík er starf- ræktur á veitingahúsinu Sól- oni íslandusi í Bankastræti. Síðustu dagarnir Last Days 1998 James Moll/Bandaríkin HEIMILDARMYND James Moll um útrýmingarherferð- ina gegn gyðingum í síðari heimsstyrjöldinni hefur vakið mikla athygli. Myndin, sem Steven Spielberg framleiddi, rekur örlög fimm ungverskra ijyðinga sem eiga það sameig- inlegt að hafa lifað hörmung- arnar af. Myndin bregður Ijósi á lokatímabil stríðsins, þegar Hitler vissi að það ynnist aldrei, en þá var unnið ennþá hraðar að því að má gyðinga af yfirborði jarðar. Þessir síð- ustu dagar eru greyptir í huga þeirra gyðinga sem lifðu af og myndin sýnir vel hversu ógn- arleg eftirköst slík lífsreynsla hefur á allt lífshlaup þeirra. Síðustu dagarnir vann Óskarsverðlaunin í ár í flokki heimildarmynda og var einnig tilnefnd sem best klippta heimildarmynd ársins af American Cinema Editors. Þrjár árstíðir Three Seasons 1999 Tony Bui/Bandaríkin VIETNAM eftir stríðið er við- fangsefni ljóðrænnar kvik- myndar Tony Bui. I myndinni eru sagðar sögur fimm ein- staklinga, bílstjóra, vændis- konu, bandarísks hermanns, ungrar stúlku og ungs drengs. Öll eru þau í leit að hamingj- unni eða bara að reyna að lifa af erfiða tíma. Þrjár árstíðir er fyrsta bandaríska kvik- myndin í fullri lengd sem er fullunnin í Víetnam og skartar víetnömskum leikurum í öllum hlutverkum nema hlutverki bandaríska hermannsins sem Harvey Keitel leikur. Kvikmynd Tony Bui hlaut Gullbjöminn í Berlín íyrr á þessu ári og í Sundance-kvik- myndahátíðinni í ár var hún valin besta mynd hátíðarinnar af áhorfendum og hlaut einnig verðlaun fyrir kvikmyndatök- una. Slam Slam 1998 Marc Levin/Bandaríkin SLAM segir sögu ungs hæfi- leikaríks manns, Ray Joshua, sem uppgötvar sjálfan sig í gegnum ást sína á konu og hæfileika sína í ljóðarappi. Joshua býr í húsalengju sem kallast Dodge City í Was- hingtonborg en þar era glæpir og morð daglegt brauð. Þegar Joshua er handtekinn fyrir að hafa í eigu sinni lítinn skammt eiturlyfja lítur framtíðin ekki gæfulega út en þegar hann kynnist Lauren Bell, kennara í skapandi skrifum, breytist líf hans til muna og Joshua upp- götvar að orð era mikils megnug og geta jafnvel breytt lífi manns. Slam hefur hlotið mikið lof Dagskrá Kvikmynda- hátíðar í Reykjavík föstudaginn 27. ágúst Kl. 17:00 A Clockwork Orange (Vélgengt glóaldin) The Shining (Birtingin) Slam Kl. 19:00 Kl. 23:20 The Big Swap (Makaskipti) The Big Swap The Shining Slam REGNBOGINN Kl. 16.-00 Kl. 17:00 Kl. 18:30 Kl. 19:00 Kl. 21:00 Kl. 23:30 Happiness (Lífshamingja) Three Seasons (Þrjáf árstíðir) Happiness Last Days (Síðustu dagamir) Happiness Happiness Kl. 21:00 Kl. 23:15 Tea With Mussolini (Temeð Mussolini) Ratcatcher (Rottufangarinn) og hún hlaut myndatökuverð- launin á Kvikmyndahátíðinni í Cannes núna í vor, auk þess að hljóta verðlaun áhorfenda sem besta myndin. Rottufangarinn Ratcatcher 1999 Lynne Ramsay/Skotland SÖGUSVIÐIÐ er Glasgow ár- ið 1973 og James Gillespie er tólf ára gamall á þröskuldi nýrrar og óþekktrar tilveru. Matt Munroe er íjórtán ára og foringi klíkunnar. Þegar Matt býður James að ganga í klík- una getur hann ekki neitað. En fyrst þarf James að sýna að hann sé maður með mönn- um með stúlkunni Margaret Anne. Þegar James finnur til '■Wýrra og óþekktra tilfinn- ingavakna ýmsar spurningai'. Lynne Ramsay hefur gert þrjár stuttmyndir sem allar hafa unnið til verðlauna. Sú fyrsta, „Small Deaths" vann til verðlauna í Cannes 1996, og þriðja stuttmynd hennar, „Gasman“, vann til verðlauna í Cannes árið 1999 auk þess að fá skosku BAFTA-verðlaunin. Rottuveiðarinn er fyrsta mynd hennar í fullri lengd. Makaskipti The Big Swap 1998 Niall Johnson/Bretland HÓPUR hjóna á fertugsaldri hafa haldið sambandi árum saman og vináttan er eins Sog hún getur verið. eitt er hópurinn saman kominn og þá er ákveðið að færa vinskapinn yfir á annað stig, hafa makaskipti. Akvörð- unin er eins konar leikur fyrir hópinn sem heldur, í krafti góðs vinskapar, að leiknum fiúki þegar nóttin er úti. En »ns og berlega kemur í ljós á sú ákvörðun eftir að verða ör- lagarík og ekki víst að allir höndli fjölbreytnina sem í frelsinu er fólgin. Makaskipti er önnur mynd breska leikstjórans Nialls Johnson sem fæddist árið 1964. Áður hefur Johnson gert hryllingsmyndina „Dawn“ sem gerð var árið 1989. John- son hóf feril sinn í unglinga- leikhúsi sem hann stjórnaði um dágóða hríð og eins hefur hann starfað töluvert í sjón- varpi. Velg’engl glóaldin Clockwork Orange 1971 Stanley Kubrick/Bretland í FRAMTÍÐAR Bretlandi fer unglingagengi um á hverri nóttu, lemjandi og nauðgandi hjálparlausum fórnarlömbum. Þegar einn drengjanna, Aiex, bælir niður uppreisn í geng- inu, berja hinir strákarnir hann og skilja hann eftir svo lögreglan geti hirt hann. Alex samþykkir að láta lækna sig af óeirðaseminni. Hann verður tilraunadýr í nýrri lækningar- aðferð sem stjórnvöld eru að reyna til að gata aukið pláss fyrir pólitíska fanga í fangels- um. Þegar Alex kemur úr fangelsinu sem góður friðar- sinni afneita vinir hans og fjöl- skylda honum og ekki líður að löngu þar til að hann verður stjórnvöldum til skammar og reyna þau að lækna hann af lækningunni. Lífshamingja Happiness 1998 Todd Solondz/Bandaríkin HVAÐ er hamingja? Það er spumingin sem Todd Solondz spyr í nýjustu kvikmynd sinni Lífshamingju þar sem ein- staklingurinn og bandarískt þjóðfélag er undir stækkunar- glerinu. Joy býr í úthverfi New Jersey í húsi foreldra sinna. Systur Joy, þær Trish og Helen, virðast báðar hafa höndlað hamingjuna betur en Joy en ekki er þó allt sem sýn- ist og gömul leyndarmál koma upp og gára fellt yfirborðið. Todd Solondz skrifar bæði handritið og leikstýrir Lífs- hamingju. Solondz vakti at- hygli með mynd sinni Welcome to the Dollhouse. Sjónarhom Tolondz er á mörkum gleði og sorgar og áhorfandinn veit oft ekki hvort hann á að hlæja eða gi'áta. Lífshamingja vann al- þjóðlegu gagnrýnendaverð- launin á kvikmyndahátíðinni í Cannes á síðasta ári. Birting The Shining 1980 Stanley Kubrick/Bretland JACK Nicholson er öllum eft- irminnilegur í hlutverki Jack Torrance sem fær húsvarðar- starf á Overlook-hótelinu í fjöllum Colorado, sem er lokað yfir veturinn. Torrance-fjöl- skyldan er því ein um að dvelja þar um langan tíma. Þegar fjölskylduna snjóar þar inni kemst sonurinn Danny, sem er skyggn, að því að reimt er á hótelinu og eru draugarn- ir að gera Jack vitlausan, en það er fyrst þegar hann hittir Hr. Grady, sem áður var hús- vörður á hótelinu og myrti konu sína og tvær dætur, að hlutimar gerast mjög óhuggu- legir. Þetta er eina hryllings- myndin sem Kubrick gerði á ferli sínum, og hefur hún oft verið nefnd óhuggulegasta mynd allra tíma. Te með Mussolini Té con Mussolini 1999 Franco Zeffirelli/Ítalía MYNDIN segir frá lífi Luca sem alinn er upp af enskri konu í Flórens á tímum Mus- solinis. í enska hverfinu í Flórens virðist lífíð vera ör- uggt. En þegar stríðið brýst út er konunum og Luca komið fyrir í herbúðum og þaðan á hótel þar sem þær hitta hina bandarísku Elsu. Smám sam- an kemur ýmislegt á daginn sem áður var dulið. í nýjustu mynd Zeffirellis byggir hann á eigin lífi. Eftir Zeffirelli liggur fjöldi kvik- mynda og má m.a. nefna La Traviata (‘82), Cavalleria rast- icana, I Pagliacci. Leikstjór- inn hefur einnig getið sér gott orð fyrir kvikmyndun sína á leikritum Shakespeares en þar liggja eftir hann_ verk eins og Hamlet (‘90), Óþelló (‘86), Romeó og Júlía (‘68) og sjónvarpsmyndin Much Ado Ábout Nothing frá árinu 1967.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.