Morgunblaðið - 17.09.1999, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 17.09.1999, Blaðsíða 28
28 FÖSTUDAGUR 17. SEPTEMBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ LISTIR Möguleikhúsið með þrjú ný barnaleikrit Snuðra og Tuðra verða á leikferð um Austurland í haust. Möguleikhúsið er nú að hefja tíunda Ieikár sitt, en síðasta leikár var eitt hið aðsóknar- mesta í sögu Ieikhússins, að sögn aðstandenda þess, en alls voru áhorfendur um 18.000 talsins. „Að venju einskorðar leikhúsið sig við sýningar fyrir áhorfendur af yngri kynslóð- inni og verður boðið upp á sjö mismunandi sýningar, þrjár frumsýningar og fjórar frá fyrra leikári," segir Pétur Eg- gerz höfundur, leikstjóri og leikari í Möguleikhúsinu. „Leikárið hefst á Ieikferð um Austurland með barnaleikritið Snuðru Og Tuðru, sem sýnt var á siðasta leikári við miklar vinsældir. Leikritið er byggt á sögum Iðunnar Steinsdóttur um systurnar Snuðru og Tuðru. Sýningar eru nú þegar orðnar rúmlega 120 talsins og er þegar orðið fullbókað á 20 sýningar í leik- og grunnskól- um á Austurlandi. Leikarar í sýningunni eru Drífa Amþórs- dóttir og Helga Vala Helga- dóttir, sem tekið hefur við hlutverki Tuðru. Leikstjóri og höfundur leikmyndar er Bjarni Ingvarsson, Katrín Þorvalds- dóttir sá um búninga og brúðu- gerð og tónlist er eftir Vil- hjálm Guðjónsson,“ segir Pétur. Langafí prakkari Fyrsta frumsýning leikársins er Langafí prakkari sem er leikrit eftir Pétur Eggerz byggt á sögum Sigrúnar Eld- járn. „Langafi hennar Onnu er alveg ofsalega skemmtilegur. Hann passar hana alltaf á dag- inn þegar pabbi hennar og inamma era í vinnunni. Þá gera þau ýmislegt skemmtilegt saman. Þau skoða mannlífið, baka drullukökur, veiða lan- gömmur og fleira skemmti- Iegt,“ upplýsir Pétur Eggerz sem jafnframt leikstýrir sýn- ingunni. Leikarar eru Bjarni Ingvarsson og Hrefna Hall- grímsdóttir, búninga gerir Katrín Þorvaldsdóttir og tónl- ist er eftir Vilhjálm Guðjóns- son. f lok nóvember frumsýnir Möguleikhúsið nýtt jólaleikrit sem heitir Jónas týnir jólunum. „Hér er um að ræða fjöruga jólasýningu ætlaða 2ja til 9 ára böraum. Þar segir frá Jónasi sem situr við tölvuna sína á að- fangadag, eins og hann gerir raunar alla daga ársins. Hann er svo upptekinn af því sem hann er að fást við að hann má ekki vera að því að halda jól. Himinþöll jólaengill er send af stað frá jólastjörnunni til að kanna hvort nokkur sé að gleyma að halda jólin. Þegar hún kemur til Jónasar þarf hún að ná athygli hans og hjálpa honum að finna jólin í hjarta sér. Það reynist erfiðara en það virðist í fyrstu, segir Pétur sem er höfundur og annar leik- enda í sýningunni ásamt Hrefnu Hallgrímsdóttur. Leik- stjóri er Bjarni Ingvarsson. Frumsýna Völuspá „Síðasta frumsýning leikárs- ins verður Völuspá í nýstár- legri leikgerð Þórarins Eld- járns. Völuspá er jafnan talin eitt merkasta kvæði forn- bókmenntanna og birtir sýn inn í hina mögnuðu heimsmynd norrænnar goðafræði. Kvæðið hefur þó löngum þótt torskilið á köflum og ekki verið talið fýsilegt til fiutnings fyrir börn. Hér er leitast við að gera efni kvæðisins aðgengilegt og lif- andi um leið og ýmsar vísanir sem þar er að finna verða nýtt- ar til að veita áhorfendum sýn inn í hinn ævintýralega goð- sagnaheim,“ segir Pétur sem sér um flutninginn ásamt tónl- istarmanni. Leikstjóri er Peter Holst, sem kemur sérstaklega frá Danmörku til að leikstýra sýningunni. „Völuspá er fyrsta sýningin á 10 ára afmælisári Möguleikhússins og er unnin í samstarfi við Listahátíð í Reykjavík og Reykjavík Menn- ingarborg Evrópu árið 2000. Auk Snuðru og Tuðru verða þrjár sýningar teknar upp frá fyrra leikári; Einar Áskell læt- ur sjá sig í takmarkaðan tíma í október, boðið verður upp á sýningar á Hafrúnu fyrir skóla og jólaleikritið Hvar er Stekkj- arstaur? verður á ferðinni í desember. Einnig verður boðið upp á tónleika fyrir börn, en þeir verða kynntir nánar síð- ar,“ segir Pétur Eggerz hjá Möguleikhúsinu. Einkamál og myndmál Ljóðatónleikar í Stykkishólmi BJÖRG Þórhallsdóttir sóprans- öngkona og Daníel Þorsteinsson píanóleikari halda ljóðatónleika í Stykkishólmskirkju í kvöld, föstu- dag kl. 20.30 og í Víðistaðakirkju í Hafnarfirði á sunnudaginn 19. sept- emþer kl. 17.00. A efnisskránni er eingöngu trúarleg tónlist sem spannar yfir 300 ár í tónlistarsögunni. Meðal höfunda eru Árni Thorsteinsson, Sigvaldi Kaldalóns, Jón Leifs, HAndel, Schubert, Dvorák, Barber og Copland. Björg og Daniel fluttu sömu efn- isskrá við setningu Kristnihátíðar á íslandi á Kirkjulistaviku í Akureyr- arkirkju sl. vor. SLIM-LINE dömubuxur frá gardeur Oðuntv tískuverslun v/Nesveg, Seltj., s. 561 1680 BÆKUR Ljóðaörsögur KVEDDU MIG Eftir Davíð Stefánsson. Nykur 1999. KVEDDU MIG er önnur bók Da- víðs Stefánssonar, sem sendi frá sér ljóðabókina Orð sem sigra heiminn fyrir þremur árum. Hér er um að ræða bók í smáu broti (réttnefndu vasabroti) sem skipt- ist í tvo meginhluta; í fyrri hluta eru ljóð og seinni hlutinn samans- tendur af 27 örsögum. Það sem einkennir texta bókar- innar framar öðru er afar pers- ónuleg tjáning. Bæði ljóð og prós- ar hafa mælanda sem talar í 1. persónu og eru sett upp sem áv- arp til 2. persónu. Þetta „ég-þú“ samband sem allur textinn bygg- ist á veldur því að reynslan sem lýst er verður á stundum eins og einkamál mælanda og viðmæl- anda sem ekki er alltaf auðvelt fyrir lesandann að tengja sig við. Annað einkenni á texta Davíðs er að hann er fremur einfaldur, höfundur virðist forðast að nota myndmál og líkingar eru ílestar beinar og augljósar. Þar sem ljóð- formið er framar öðru form myndrænnar tjáningar er ekki laust við að einfaldleiki textans leiði til ákveðins litleysis í þeirri ljóðrænu tjáningu sem hér er á ferðinni: þú sem segist lifa þú sem þorir að gera án þess að hugsa Öll ljóð fyrri hluta bókarinnar eru í þessu formi, þ.e. viðmæla- ndinn er ávarpaður og á eftir kemur fullyrðing, hugsun eða lýs- ing á „þér“ eða „mér“. Stöku sinn- um tekst þó að hefja textann upp úr hinu hversdagslega máli og frjóvga hann með skemmtilegum myndum: þú ert marr mitt í snjó þú ert hnefi í borð þú ert högg mittájörð Örsögur síðari hluta skiptast í tvo kafla. Sá fyrri nefnist „Hér er ég“ og hefur að geyma 24 sögur sem flestar fjalla um samband tveggja, um upphaf og endalok, um góðar stundir og aðrar verri. Eins er með þessa texta og ljóð fyrri hlutans að flestir lýsa þeir einkareynslu sem ekki er auðvelt að tengja sig við. Áhrifamesti textinn hér er sá sem fremst stendur og nefnist „Skrámur". Hann er falleg ástarjátning föður til dóttur sinnar. Síðari hluti ör- sagnanna ber sama titil og bókin, Kveddu mig, og samanstendur af þremur stuttum samtölum, á milli konu og karls, karls og konu, og tveggja karla. Sá fyrsti ber af hin- um og einmitt fyrir það sem bók- ina í heild skortir, ríkt myndmál: ... Ég get lagst afturábak í sóf- ann og teygt tærnar til þín og þú getur líkt þeim við páfuglsfjaðrir eða góða spilahönd. Ég get sýnt þér iljar mínar og þú munt sjá þar sandöldur og lágreist klettabelti; þröng gil og nýsleginn grashól. Ef þú biður um skal ég reisa mig upp svo stinn brjóst mín minni þig á spælegg eða jarðarber og súkkul- aði... Davíð Stefánsson (hinn nýi) ætti að leyfa sér meiri dirfsku í myndmálssköpun því þar sem texti hans er bestur í þessari bók kemur glöggt fram að hann hefur hana á valdi sínu. Einfaldleikinn er vandmeðfarinn og verður að hefja sig yfír hið hversdagslega til að hitta í mark. Soffía Auður Birgisdóttir Gunnar Gránz með eitt verka sinna. Haustsýn- ingin I lok aldar í Eden NÚ stendur yfir myndlistarsýning Gunnars Gránz alþýðulistamanns í Eden í Hveragerði. Þar sýnir Gunnar 50 verk í litum og formi úr listasmiðju sinni. Þessa sýningu til- einkar hann nýrri öld með von um gott gengi íslensku þjóðarinnar, segir í fréttatilkynningu. Verk eftir Kolbrúnu S. Kjarval Kolbrún S. Kjarval sýnir í Stöðlakoti KOLBRÚN S. Kjarval opnar sýningu á leirmunum í Stöðla- koti við Bókhlöðustíg á morgun, laugardag kl. 15. Kolbnín hefur unnið í leir síðastliðna áratugi og rekur nú eigin vinnustofu að Ránargötu 5. Hún hefur einnig stundað kennslu og kennir nú við Myndlistarskólann í Reykja- vík. Kolbrún hefur tekið þátt í fjölda samsýninga og haldið nokkrar einkasýningar hér heima og erlendis. Sýningin stendur til 3. október og er opin alla daga frá kl. 14- 18. LISTMUNAUPPBOÐ SUNNUDAGSKYÖLDIÐ 19. SEPTEMBER KL. 20.00 Á HÓTEL SÖGU VINSAMLEGA KOMIÐ OG SKOÐIÐ VERKIN í GALLERÍI FOLD, RAUÐARÁRSTÍG 14, í DAG KL. 10.00-18.00, Á MORGUN KL. 10.00-17.00 EÐA Á SUNNUDAGINN KL. 12.00-17.00. SELD VERÐA UM 100 VERK, ÞAR Á MEÐAL FJÖMÖRG VERK GÖMLU MEISTARANNA ART CALLERY Rauðarárstíg 14, sími 551 0400.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.