Morgunblaðið - 17.09.1999, Blaðsíða 56

Morgunblaðið - 17.09.1999, Blaðsíða 56
56 FÖSTUDAGUR 17. SEPTEMBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ BRIDS Umsjún Arnúr G. R a g n a r s s o n Úrslit í bikarkeppni Bridssambandsins UNDANÚRSLITIN í bikarkeppni Bridssambandsins verða spiluð á morgun, laugardag. Þá mætast sveitir Stillingar og Strengs annars vegar og sveit Landsbréfa og Jó- hannesar Sigurðssonar hins vegar. Spilaðar eru fjórar 12 spila lotur. Úrslit verða spiluð á sunnudag, fjórar 16 spila lotur. Sýningartafla verður í gangi alla helgina og áhorf- endur hvattir til að fjölmenna. Spilamennska hefst kl. 11.00 báða dagana. Keppnisstjóri verður Jakob Kristinsson. Brldsdeild FEBK Bridsdeild FEBK, Gullsmára 13, spilaði tvímenning mánudaginn 11. september. Tuttugu pör mættu til leiks. Keppnisstjóri var Hannes AI- fonsson. Efst voru: N.S.: Dóra Friðleifsd. - Guðjón Ottósson 225 Guðraundur Pálss. - Kristinn Guðmundss. 215 Auður Jónsd. - Bjami Guðmundsson 184 AV.: Jóhanna Jónsd. - Magnús Gíslason 225 Sigrún Sigurðard. - Guðm. Þorgrímss. 199 Stefán Jóhannsson - Halldór Jónsson 178 Bridsfélag Akureyrar Vetrarstarf félagsins hófs þriðju- daginn 14. sept með tveggja kvölda tvímenningi. Sextán pör mættu á þetta fyrsta mót vetrarins. Eftir fyrra kvöldið eru Grettir Frímannsson og Pétur Guðjónsson efstir með 214. Svein- bjöm og Hans Viggó eru í öðm sæti með 191 og jafnir í 3.-4. sætieru annars vegar Gylfi og Helgi en hins vegar Haukur og Pétur J. með 185. Næsta mót er Greifatvímenning- ur og hefst það 27. sept. Mörkinni 6 • Sími 588 5518 Nýjar vörur Leðurjakkar 2siddir-st3&42 Pelsjakkar Kápur Úlpur Ullarjakkar stórarstærðir Hattar og húfur SKÓLASKÓR FRÁ KangaROOS Hlýir flottir, sterkir, með TEX-vatnsvarnarfilmu Tegund: Shock Litir: Rauðir og svartir Stærðir: 30-40 Verð frá kr. 5.495 DOMUS MEDICA við Snorrabraut - Reykjavík Sími 551 8519 STEINAR WMGE SKÓVERSLUN KRINGLAN Kringlunni 8-12 - Reykjavík Sími 568 9212 PÓSTSENDUM SAMDÆGURS - 5% STAÐGREIÐSLUAFSLÁTTUR Gjaíavara — malar og kaffistell. Állir veróílokkdr. Gæðavara Heimsfrægir hönnuöir m.a. Gianni Versace. P VERSLUNIN Lnngavegi 52, s. 562 4244. PP &CO ÞAKVIÐGERÐAREFNI A -ÞOK - VEGGI - GOLF Rutland þéttir, bætir og kætir þegar þakið fer að leka Rutland er einn helsti framleiðandi þakviðgerðarefna í Bandaríkjunum Veldu rétta efnið - veldu Rutland! Þ.ÞORGRÍMSSON & CO ÁRMÚLA 29 S: 553 8640 & 5681100 I' DAG VELVAKAJMPI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 frá mánudegi til föstudags „Þúsöld“ í RÚMA viku hef ég reynt að venja mig við og melta tillögur um götu- nöfnin á Grafarholti, sem birt hefur verið alþjóð, en ég er jafnóánægð, hvernig sem ég reyni. Það er eink- um hin ábúðamikla „Þús- öld“ sem bögglast fyrir brjósti mínu. Reyndar var það nú svo, þegar ég heyrði fréttamann sjón- varps lesa þetta upp og ég var eitthvað að bjástra, að mér heyrðist hann segja „húsönd“ og hugsaði snöggt að þetta yrði víst sannkallað Andríki, hverf- ið á ég við, og kennt svo við ýmsar fleiri andateg- undir en heyrði svo út- skýringuna og féll frá þessari villu. Eitthvað finnst mér hjákátlegt að hugsa til fyrirsagna í fréttum á þessa leið: „Harður árekstur á Þúsöld“ eða „Loka varð Þúsöld í gær vegna...“ Ég get svosem látið hinar nafngiftirnar í friði, enda veit ég af reynslu að fólk kærir sig kollótt um við hvem eða hvað nöfn gatna eru kennd er frá líður, en mér finnst gengið framhjá Þorgeiri Ljósvetninga- goða í þessu sambandi. Ég er fædd og uppalin í jaðri þessa holts, á þar ótal spor í leik og starfi og er ekki alveg sama um af- drif þess. Mér datt si svona í hug hvort hverfið nýja gæti bara ekki kallast Alda- mótahverfi og aðkomugat- an Aldamótabraut, nú þegar Aldamótagarðarnir við Vatnsmýrina em ekki lengur til og ekki nafngift- in heldur. Þá sleppum við því að steypa eða malbika „Þúsöldina“. Kristrún Hreiðarsdóttir, Sólheimum 27. Blöskrar áherslur sjónvarps OFT hefur mér blöskrað áherslur sjónvarpsstöðv- anna í fréttaflutningi. Sjaldan þó eins og sl. laugardag þegar fyrstu 10 mínútur frétta ríkissjón- varpsins vom notaðar til að fjalla um það að eitt sparklið landsins slysaðist til að vinna eitt af þeim bikar- eða Islands- eða meistaramótum sem lík- lega era í gangi. Síðan var notuð 1 mínúta til að segja frá stærsta eiturlyfja- smygli sem upp hefur komist hérlendis. Ég held að þeir hjá Sjónvarpinu ættu að horfa á nokkra fréttatíma í BBC og reyna að læra eitthvað. Ragnhildur Kristjánsdóttir. Tapað/fundið fþróttataska týndist í Hraunbæ ÁSDÍS sem er 10 ára missti íþróttatöskuna sína á gangstétt við Hraunbæ, nálægt Árbæjarskóla, mánudaginn 4. septem- ber. Taskan er svört og gul með myndum, frekar lítil. í henni var nýr sund- bolur og handklæði ásamt tómu gleraugnahylki. Sundbolurinn er grænn með hvítum og gulum blómum og á honum er pils. Það sást til konu á rauðum bíl stoppa og taka töskuna og er hún beðin um að hafa samband í síma 567 8926. Dýrahald Fress týndist í Garðabæ DÖKKUR fress með ljósu hringmunstri og háa hvíta sokka á afturfótum og lága hvíta á framfótum týndist í Garðabæ sl. föstudag þar sem hann var í pössun og ratar hann því ekki heim. Hann er ómerktur. Þeir sem hafa orðið varir við hann hafi samband í síma 565 6541. Kettlingar fást gefins ÞRÍR gullfallegir 8 vikna kettlingar fást gefins á góð heimili. Tveir þeirra em kolsvartir, en hinn er svartur með hvítar dopp- ur. Upplýsingar í síma 699 6746. sumar. David Marciano IZ (2.525) hafði hvítt og átti L3KVrI. J.V leik gegn Y. Benitah -------------------- (2.380). IJmsjón Margeir 29. Rf5! - exf5 30. Rxg6+ - Pétnrsson Rxg6 31. Hxe7 - Rxe7 32. Dc7 - Hc6 33. Dd8+ - Rg8 34. g3 - Hc2 35. b4 - Hd2 36. Dxd5 - f4 37. gxf4 - Hd3 38. a4 - Ha3 39. a5 - b6 40. Dd8 - bxa5 41. bxa5 - Ha4 42. f5 og svartur gafst upp. Undrabarnið Etienne Bacrot sigraði á mótinu, en Marciano varð annar. Joel Lauti- er, stigahæsti skákmaður STAÐAN kom upp á Frakka, varð að sætta sig franska meistaramótinu við fimmta sætið að þessu sem fram fór í Besancon í sinni. HÖGNI HREKKVÍSI ~ l/fltu p/ey/wo- f>€ssa/t fU/gu -?' Hvítur leikur og vinnur. Víkveiji skrifar... VÍKVERJI las nýlega athyglis- vert viðtal við forstjóra Össur- ar hf., sem framleiðir gervilimi. Fyrirtækið mun vera í fremstu röð í heiminum í sinni grein og ljóst að það er hugvitið, sérþekkingin, sem því veldur en ekki einhverjar óvenjulegar aðstæður eða náttúm- auðæfi hér. Ef einhver efast um að þetta sé rétt lýsing á stöðu fyrirtækisins á heimsmarkaði er nóg að benda á frásögn forstjórans af iðnaðamjósn- um sem uppgötvuðust fyrstu dag- ana eftir að Össur flutti í nýtt hús- næði í fyrra. Engin tjöld vom enn þá fyrir gluggunum. Óþekktur ljós- myndari var dögum saman á lóðinni og tók fjölda mynda af því. Ástæð- an? Þegar málið var kannað kom í ljós að maðurinn hafði verið sendur hingað til lands af bandarískum keppinaut Össurar til að „fiska“ at- vinnuleyndarmál. Þótt þessar aðferðir séu ekki til fyrirmyndar í viðskiptum er líkiega skynsamlegra fyrir okkur að líta á atvikið sem jákvætt teikn um að við getum fleira en að veiða fisk og eyða um efni fram. xxx LEIKURINN við Makedóníu- menn (Víkverja finnst það kjánalegt að kalla þjóðina Ma- kedóna) á sunnudaginn var spenn- andi, fram á síðustu mínútur virtist allt geta gerst. Jafnvel þeir sem finnst allur annar bolti en fótbolti vera vandræðaleg eftirlíking gátu hrifist með. Vonandi tekst Þorþirni og mönnum hans að halda sínum hlut í útileiknum. En það var annað sem vakti at- hygli og gerði Víkverja svolítið gramt í geði. Auglýsingar á keppn- isstað eru óhjákvæmilegar en ein- hvers staðar verður að staldra við. Flennistórar auglýsingar em mál- aðar á gólf salarins. Nú sjáum við líka auglýsingar sem þekja alla hlið- ina á heilum strætisvagni, með tæknibrellum em meira að segja rúðurnar hluti af myndinni. Auglýs- ingar eru áreiti og þegar þær era orðnar svona fyrirferðarmiklar kemur að því að einhverjir fá nóg og meira en það. Sums staðar í Bandaríkjunum er hart deilt á þá sem raða risastórum skiltum upp við þjóðvegina og hindra þannig vegfarendur í að sjá annað en hvatningar frá framleið- endum gosdrykkja og sælgætis. Landslagið er gert að homreku. Kannski er það ekki annað en nöld- ur að benda á að við getum verið að hafna í ófæm. Víkverji ætlar samt að vera leið- inlegur og endar kannski sem nátt- tröll. En hann vill fá frið stöku sinn- um fyrir kaupmennskunni og segir eins og tröllin við Guðmund biskup góða þegar hann vígði bergið í Drangey: „Vígðu nú ekki meira, Gvendur, einhvers staðar verða vondir að vera.“ xxx EINN af viðmælendum Víkverja rakst á áþreifanlegt merki um að verðbólgan er að hnykla vöðvana. Hann fór á bensínstöð til að kaupa sér ryðleysi og á hillunni var verðið: 160 krónur. En þegar hann hugðist greiða fyrir vörana sýndi tölvan allt annað verð, nefni- lega 200 krónur. Brúsinn var nú skoðaður í krók og kring og þá fannst á honum lítill miði með þriðju útgáfunni, 185 krónum! Þegar viðskiptavinurinn yfirgaf staðinn heyrði hann afgreiðslumann brýna fyrir félaga sínum að hann yrði að muna að breyta alltaf sam- tímis verðinu á öllum þrem stöðum. Verst er að eftir nokkurra ára sælutíð í þeim skilningi að verð- breytingar hafa verið sáralitlar eða jafnvel niður á við erum við neyt- endur komnir úr æfingu. Við erum ekki lengur á varðbergi og þess vegna er stundum hægt að lauma hækkunum að án þess að við tökum strax eftir því.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.