Morgunblaðið - 17.09.1999, Blaðsíða 59

Morgunblaðið - 17.09.1999, Blaðsíða 59
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17 SEPTEMBER 1999 59 FÓLK í FRÉTTUM FJÖLHÆFNI söngkonunnar, dansarans og leikkonunnar Jennifer Lopez er síst eindæmi. En það sem fádæma þykir er hversu farsæld hennar er mikil í öllum þessum listgreinum. Óhætt er að segja að ijöldinn allur af listamönnum hefur fengist bæði við tónlist og kvik- myndaleik en fáir hafa komist með tærnar þar sem Lopez hef- ur hælana. Sú staðreynd, að hún er svo að segja nýliði á báð- um sviðum, gerir velgengni hennar jafnvel enn eftirtektar- verðari en ella. Byrjaði að dansa á unga aldri Lopez er fædd í Bronx-hverf- inu í New York 24. júlí 1970. Ung að aldri ákvað hún að stefna á skemmtanaiðnaðinn og strax á leikskólaaldri fór hún að læra dans. Alveg fram á unglingsár deildi Lopez kröft- Jennifer Lopez eru allir vegir færir um sinum milli kaþólska skól- ans sem hún gekk í og smárra hlutverka í hverfisleikhúsum þar sem hún tók þátt í upp- færslum sýninga á borð við Oklahoma og Jesus Christ Superstar. Framlag hennar til leikliússins gerði henni einnig kleift að ferðast til útlanda og leika og syngja í ýmsum söng- leikjum í Japan og Evrópu. Undir lok unglingsáranna kom Lopez oft fram sem dans- ari í hipp-hopp tónlistarmynd- böndum. Fyrsti vendipunktur- inn á ferli hennar varð hins Nr. vor • vikuri Diskur i Flytjandi i Útgefandi 1. NÝ i 2 i Live Aus Berlin : Rommstein : Universal 2. 1 1 14 i Ágætis byrjun ! Sigurrós i Smekkleysa 3. 2:14: Pottþétt 16 : Ýmsir | Pottþétt 4. 5 16: Notting Hill i Úr kvikmynd i Universal 5. 4 : 6 : A Little Bit o( Mambo i Lou Bega i BMG 6. 3 i 8 J Kondí fíling i Tvíhöfði i Fínn miðill 7. 7 i 12 i Significunt Other i Limp Bizkit i Universal 8. 14 i 4 i Bluck Cat, White Cat ; Úr kvikmynd i Universal 9. 6 i 33 i My Love Is Your Love 1 Whifney Houston ÍBMG 10. 10 i 12 i Matrix 1 Úr kvikmynd ! Warner 11. 9:14: Californication i Red Hot Chili Peppers i Warner 12. 11 : 12: Ricky Martin i Ricky Martin i Sony Music 13. 26 i 8 i Landkönnuðir i Gunni & Felix i Skifan 14. 8 i 10 ; Svona er sumarið 99 i Ýmsir i Skífan 15. 12 i 43 i Sehnsucht ; Rommstein i Universal 16. 25 i 40 i Miseducation of Lauryn H II i Lauryn Hill ; Sony 17. 28 i 28 i Fanmail ÍTLC i BMG 18. 13 i 14 i Skítamórall 1 Skítamórall i Sepfember 19. 29 i 8 ! On The 6 ! Jennifer Lopez : Sony 20. 17 ! 12 : Surrender ! Chemical Brothers : EMI 21. 19 : 10 : Britney Spears i Britney Speors i EMI 22. 18 ; 14 i Litla hryllingsbúðin i Úr söngleik i Skífan 23. 24 i 4 i Juxtapose i Tricky - DJ Muggs i Universal 24. NÝ i 2 i Machine He-The Burning Red i Machine Head : Roadrunner 25. NÝ i 2 i Slipknot-Silpknot Digi : Slipknot ! Roadrunner 26. 38 i 2 i l've Been Expecting You : Robbie Williams : EMl 27. NÝ : 2 : Simple Pleasure 1 Tindersticks : Universal 28. 31 1 2 : Writings on the Wall ! Destinys Child i Sony 29. 20 : 8 : Ladies Only - Various i Various _[BMG 30. 23 : 10 : No Boundaries (Kosovo Benefil Albumji Ýmsir iSony Unnið of PricewaterhouseCoopers í samstorfi við Sombond hljómplötuframleiðenda og Morgunbloðið. Fjölhæfnl Lopez þykir með ein- dæmum en hún er vinsæl söng- kona, þekkt leikkona og fær dansari. vegar 1991 þegar hún tók þátt í áheyrnarprófí og var valin einn af dönsurum í hinn vinsæla bandaríska sjónvarpsskemmti- þátt, In Living Color. Vinsældir þáttanna auðvelduðu Lopez að koma sér á framfæri og fékk hún smáhlutverk í hinum ýmsu sjónvarpsþáttum. Útgeislun Lopez vekur athygli Áður en leið á löngu voru kvikmyndaleikstjórar og fram- leiðendur farnir að gefa Lopez auga og veita athygli útgeislun hennar á sjónvarpsskjánum og upp úr því fóru tilboðin að streyma inn. Hún lék á móti Jimmy Smits í myndinni Mi Familia árið 1995 og ásamt Woody Harrelson og Wesley Snipes í Money Train. Það var þó ekki fyrr en hún fékk aðalhlutverkið í kvik- myndinni Selena, sem byggð er á ævi suður-amerískrar söng- konu sem myrt var við dyr al- heimsfrægðar einungis 23 ára að aldri, að hjól Lopez fóru að snúast. Samningurinn hljóðaði upp á eina milljón dollara, eða sjötíuogþijár milljónir íslenskra króna, sem var hæsta upphæð sem leikkona af suður-amerísk- um ættum hafði hlotið fyrir kvikmyndaleik. Upp frá þessu tók hún að sér hlutverk í kvikmyndunum Anaconda, Blood and Wine, U- Turn og Out of Sight. Hlutverk hennar í Selenu hafði hins veg- ar kynt undir tónlistaráhuga Jennifer Lopez tekur á móti verðlaunum fyrir leik sinn í kvikmyndinni Out of Sight í aprfl síðastliðinn. hennar og staðráðin í því að feta í fótspor átrúnaðargoða sinna, Diönu Ross, Barbru Streisand og Ritu Moreno, ákvað hún að leggja sig alla fram við að þroska hæfileika sína. í viðtali í tímaritinu Ocean Drive segir hún: „Ég vissi að mig langaði til að syngja, dansa og leika - það var draumur minn. Ég byrjaði á því að syngja og dansa, en þá tók leik- ferillinn algjörlega við, það bara æxlaðist þannig. Þegar ég var að leika í Selenu hugsaði ég, „Guð, hvað ég sakna þess að vera ekki að syngja og dansa og deila því með öðru fólki.“„ Náði platínusölu á tveimur mánuðum Jennifer Lopez gerði síðan samning við Sony hljómplötu- fyrirtækið sem veitti henni tölu- vert listrænt frelsi. Á síðasta ári hóf hún að vinna að fyrstu hljómplötu sinni sem kom út í júní s.l. og ber nafnið On the 6. Platan náði platínusölu einung- '* is tveimur mánuðum eftir að hún kom út en titilinn fékk Lopez að láni frá neðanjarðar- lestinni sem flutti Lopez og móður hennar frá Bronx til Manhattan. On the 6 er nú í 19. sæti á Tónlistanum íslenska og hefur fært sig upp um 10 sæti frá því í síðustu viku. Meðal þeirra sem aðstoðuðu hana við gerð plöt- unnai' eru Emilio Estefan, Rod- ney Jenkins og Sean „Puffy“ Combs en hún hefur verið sterklega orðuð við hinn síðast- nefnda að undanförnu. Lopez fékk íjölmargar til- nefningar á MTV-verðlaunahá- tfðinni nú fyrir skömmu þrátt fyrir að hafa ekki hlotið sigur úr býtum í neinum flokki. Síðastliðið vor var hún sæmd verðlaunum suður-amerískra listamanna fyrir hlutverk sitt í kvikmyndinni Out of Sight. Lopez hefur fengið nokkuð að fínna fyrir ágangi gulu pressunnar að undanförnu. Eft- ir gerð myndarinnar um Sel- enu, giftist hún Ojani Noa sem var þjónn á kúbverskum veit- ingastað Gloriu Estefan á Mi- ami. Hjónaband varð þó ekki langlíft, enda skildu þau innan árs. Eftir skilnaðinn voru uppi miklar vangaveltur um ástarlíf Lopez og hefur hún verið orðuð við Mottola, forstjóra Sony hljómplötufyrirtækisins, Marc Anthony, suður-ameríska popp- stjörnu og síðast Sean „Puffy“ Combs. Nýlega sviptu Lopez og Combs þó hulunni af sambandi sínu og viðurkenndu opinber- lega að þau eru meira en „bara vinir“. Þrátt fyrir að vera á kafi í vinnu við nýjustu mynd sína The Cell hefur Lopez gefið það sterklega í skyn að til greina komi að fara í tónleikaferð ein- hvern tíma á næstu sex mánuð- um. 9{(Ztur£aíinn Smiðjuvegi 14, ‘Kópavogi, sími 587 6080 Dans- og skemmtistaður í kvöld og laugardagskvöld leika Hilmar Sverrisson og Þuríóur Sigurðardóttir Opið frá kl. 22—3 Næturgalinn — alltaf lifandi danstónlist fyrir fólk á öllum aldri Tónlistinn Land- könnuðir á uppleið ÞÝSKU gaurarnir í Rammstein koma af fullum krafti með nýja diskinn sinn „Live aus Berlin" inn á listann þessa vikuna, eins og þeim einum er lagið, og hlamma sér beint í fyrsta sætið. Það var lagið! Þar með verður Sigur rós með „Ágætis byrjun“ og Pottþétt 16 að víkja fyrir herramönnunum sem reyndar hafa fengið misjafna dóma. Diskar með kvikmyndatónlist mjaka sér hægt og örugglega upp listann; Notting Hill fer upp um eitt sæti, Matrix stendur reyndar í stað, en Black Cat, White Cat hoppar upp um fimm sæti, og þar eru áreið- anlega tónleikagesth’ No Smoking Band að skila sér inn í búðirnar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.