Morgunblaðið - 03.10.1999, Side 35

Morgunblaðið - 03.10.1999, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ i 1 BJARNEY KRISTJANSDOTTIR Að heppnast sem foreldrar þó hjóna- bandið misheppnist FÉLAG fagfólks í fjölskyldumeð- ferð stóð dagana 29. september til 1. október fyrir nám- stefnu um sátta- meðferð fyrir for- eldra í skilnaðar- kreppu. Fyrirlesar- ar á námstefnunni voru norsku sál- fræðingarnir Odd Arne Tjersland og Venke Gulbrand- sen, en eins og fram kemur annars stað- ar hafa þau gert viðamikla rannsókn á því ferli, sem BJARNEY KRISTJÁNSDÓTTIR barnafjölskyldui' fara í gegnum við hjónaskiinað og hvaða áhrif það er líklegt til að hafa á börn- in. Efni þessarar námstefnu gef- ur tilefni til að hugleiða hvaða þjónustu íslenskar barnafjöl- skyldur eiga aðgang að ef bam lendh’ í tiifínningalegum og fé- lagslegum vanda, og hvernig má bæta þá þjónustu í von um að geta komið í veg fyrir langvar- andi álag og erfiðleika. Börn, sem búa við slíkt eru ekki bara vandamál íyrir fjölskyidumar. Skólakerfið finnur í auknum mæli fyrir þeim vanda og reynir sannarlega oftast að gera sitt besta til að takast á við hann. Þar er þó þjónusta félagsráð- gjafa og sálfræðinga af skornum skammti þannig að þeir geta engan veginn sinnt meðferðar- þættinum sem skyldi. Því vakn- ar þessi spurning: hvert geta ís- lenskar fjölskyldur leitað eftir ráðgjöf og stuðningi þegar á þarf að halda? Fjölskylduþjón- usta kirkjunnar hefur á að skipa reyndu fagfólki og býður upp á niðurgreidda þjónustu. Þar komast þó færri að en vilja og biðlistinn er langur. Það vantar því tilfinnanlega almenna fjöl- skylduráðgjöf sem byggist á þekkingu fagfólks í fjölskyldu- meðferð þar sem foreldrai' eða skólinn geta leitað beint eftir aðstoð áður en málin era orðin alvarleg. Og hér þurfa almanna- tryggingar að taka þátt í kostn- aðiyegna barnafjölskyldna. A undanfömum misseram höfum við ítrekað fengið fréttir, gjaman í æsifréttastíl, um að margi'a mánaða biðlisti sé á þeim stofnunum, sem sinna þeim börnum og unglingum, sem verst eru sett, og það væri sannarlega hægt að segja marg- ar sorgarsögur af heimilislífi á sumum bæjum, þar sem beðið er eftir þjónustu mánuðum sam- an fyrir fárveik og hegðunar- trufluð börn. A sama tíma hefur verið lögð niður starfsemi, sem bauð upp á ráðgjöf og göngu- deildarmeðferð fyrir fjölskyldur sem þurftu ráðgjöf og stuðning þegar eitthvað var að byrja að fara úrskeiðis hjá baminu eða unglingnum. Hér vO ég vísa tO Unglingaráðgjafarinnar, sem rekin var af Unglingaheimili rfldsins. Þangað gátu fjölskyld- umar leitað beint án tilvísunar auk þess sem skólakerfið gat vísað þangað málum til með- ferðar. Þessi Jyónusta var lögð niður árið 1994 í hagi'æðingar- skyni. Það þótti of kostnaðar- samt að bjóða foreldrum og skólakerfinu upp á slíka þjón- ustu. Tveimur áram síðar var annað slíkt meðferðartilboð stofnað í reynsluskyni af Reykjavíkurborg og Mosfellsbæ og hér á ég við Fjölskylduráð- gjöfina SAMVIST. Sú starfsemi var lögð niður sl. vor og þótti of dýr, þrátt fyrir að óháður matsaðili sem fylgdist með starfseminni hefði komist að því, að almennt hefði fólk verið ánægt með tilboðið og það hefði haft jákvæð áhrif á líðan og samskipti hjá meirihluta þeii'ra fjölskyldna, sem leituðu þangað. Svo virðist sem samfé- lagið sé ekki tilbúið til að leggja í kostnað tfl að byrgja branninn fyrr en barnið er dottið ofan í. Við sem vinnum með bömum og fjölskyldum þein-a, sem eiga við erfiðleika að etja, eigum ákaílega ei'fitt með að skilja þessa hagfræði. Við vitum að oft er hægt að komast hjá því að vandinn þróist og verði að 01- kynjuðu æxli. Fólk leitar yfii'- leitt ekki tO Bama- og unglinga- geðdeOdar eða tO Félagsþjón- ustunnar fyrr en vandinn er þjakandi en getur þá komið að margra mánaða biðlistum. Mitt mat er það, að fyrir- byggjandi úrræði í formi fræðslu, ráðgjafar og meðferðar sem fólk hefur greiðan aðgang að geti ekki verið of dýrt fyrir samfélag sem státar af ein- hveiju hæsta hagvaxtarstigi í heimi. Hvað skyldi það vera í okkai- þjóðarsál, sem segir að sérhæfð, fyrirbyggjandi þjón- usta tfl að styðja foreldra við að efla tOfinnhigalega og félagslega stöðu bamanna sé of dýr? Við státum af lægsta ungbarna- dauða í heimi og af því getum við verið stolt. Það segir okkur líka að við getum gert vel þegar við ætlum okkur það. Slysatíðni bai'na á Islandi er hins vegar há miðað við nágrannalöndin og niðurgreidd þjónusta tO að fyr- irbyggja tilfinningalegar og fé- lagslegar kreppur er ekki að- gengfleg. Þeir sem eru efna- meh-i hafa þó þann möguleika að leita á einkareknar stofur fagfólks, meðan hinir sem ekki era fjárhagslega aflögufærir eiga þess ekki kost að leita að- stoðar. Vonandi vekm- nýafstaðin námstefna okkur tO umhugsun- ar um aðstæður barnafjöl- skyldna á íslandi. Áætlað er að u.þ.b. 33% bama upplifi skOnað foreldra sinna. Stór hluti þeirra mun síðan eignast stjúpforeldri og þó nokkur hluti mun reyna annan skOnað foreldris. Fagfólk í fjölskyldumeðferð hefur í auknum mæli beint athygli sinni að áhrifum skilnaðar og annarra áfalla á böm og algengt er að þau upplifi kvíða, öryggisleysi og jafnvel þunglyndi. Það hlýtur því að vera augljóst að mikO- vægt er að styðja foreldra í hlut- verkum sínum tO að afleiðing- arnar valdi ekki varanlegu tjóni. Norðmenn hafa gert sér grein fyrir þessu með því að beina at- hyglinni að foreldrahlutverkinu við skOnað og bjóða þeim aðstoð til að komast að samkomulagi um hvernig það skuli ræktað. Gengið er út frá því að allir for- eldrar vilji börnum sínum allt það besta og slíkt viðhorf auð- veldar þeim að sjá góðu hliðam- ar þrátt fyrir þá erfiðleika sem skilnaðarferlið hefur leitt af sér. Höfundur er félagsráðgjafí/ fjölskyldufræðingur og starfar á Bnrna- og unglingageðdeild Landsspítalans og eigin ráðgjafarstofu. Við verðum að gera okkur grein fyrir því að við hjónaskilnað er fólk ekki aðeins að missa maka sinn held- ur einnig vini, fjölskyldu og ákveðinn lífstíl. Þessu getur fylgt mikil sorg og tilfinningar sem rekja má til þess að fólkinu finnst því hafa verið hafn- að og það sé ekki elskað. Veldur börnunum skaða að taka þátt í deilum foreldranna Ef til ágreinings kemur milli for- eldranna er nokkuð algengt að börn séu notuð til að færa skilaboð á milli þeirra, segja þau. „Veldur það börn- unum miklu hugarangri að þurfa að taka þátt í deilum þeirra sem standa þeim næst og þeim þykir vænst um. Geta komið fram ýmis líkamleg ein- kenni á börnunum eins og verkur í maga eða höfði. Ef deilur foreldr- anna eru langvarandi getur komið til þess að þau þurfi sálfræðilega hjálp. Könnun var gerð í Bandaríkjunum þar sem bornir vora saman tveir hópar, annars vegar börn frá heimil- um þar sem skilnaður hafði átt sér stað og svo börn þar sem foreldrarn- ir vora í sambúð. Var um stórt úrtak að ræða sem sýndi að 13% barnanna frá skilnaðarheimilunum þörfnuðust sálfræðihjálpar en 5% þeirra sem bjuggu hjá foreldrum í sambúð.“ Það er auðvelt að dæma foreld- rana og segja að þau hagi sér á óá- byrgan hátt með því að beita börn- unum fyrir sig í ágreiningsmálum sínum,“ segir Odd Arne. „Við verð- um að gæta að því að foreldrarnir eru að vissu leyti einnig fórnarlömb og það er hlutverk okkar sem leitum sátta á milli þeirra að sýna þeim skilning en dæma þau ekki,“ þætir Venke við. „Það er mun árangursrík- ara að höfða til ábyrgðarkenndar þeirra gagnvart börnunum og sýna jieim fram á að þótt að hjónabandið hafi beðið skipbrot þá geti þau verið góðir foreldrar." Hefur gert viðamikla rannsókn á barnafjölskyldum sem eru að ganga í gegnum skilnað Odd Arne og Venke sem era hjón hafa mikla reynslu og þekkingu á þeim vanda sem getur komið upp hjá barnafjölskyldum þar sem hjóna- skilnaður er á döfinni. Þau eru þekktir fyi'irlesarar á Norðurlönd- unum og halda námskeið fyrir fag- fólk í Noregi sem miðar að því að veita því löggildingu sem sáttasemj- arar í forsjár- og skilnaðarmálum. Á árunum 1986-1992 vann Odd Arne að umfangsmikilli rannsókn í Noregi á því ferli sem barnafjölskyldur ganga í gegnum við hjónaskilnað. Ræddi hann við 40 pör sem höfðu farið í gegnum sáttameðferðina. Þau voru spurð um ýmis hagnýt og tilfinninga- leg mál sem koma upp við skilnaðinn og þau vildu ræða um. Eftir eitt og hálft ár hitti hann fólkið aftur til að kanna hvernig málin höfðu þróast hjá þeim og börnum þeirra. í tengsl- um við rannsóknina segist hann einnig hafa lesið sér mikið til um svipaðar erlendar rannsóknir, þá sérstaklega bandarískar. ,Á- viðtölunum lærði ég mikið um hvernig við getum hjálpað barnafjöl- skyldum sem eru að fara í gegnum skilnað og á rannsókninni hef ég byggt þá sáttameðferð sem við not- um“, segir Odd Arne sem var ráðgef- andi við gerð norsku hjúskaparlag- anna frá árinu 1991. „Niðurstöður rannsóknarinnar voru meðal annars þær að 70% þeirra para sem við ræddum við í seinna skiptið áttu í góðu samstarfi með börnin eftir skilnaðinn. 48 af 53 börnum leið vel heima hjá sér, á dag- vistunarstofnunum eða í skólum. 10 af þessum börnum höfðu þó átt í að- lögunarerfíðleikum eftir skilnaðinn. 86% af hópnum voru mjög ánægð með sáttameðferðina og þá niður- stöðu sem hún hafði leitt til og þau höfðu mótað sjálf. Þau vora einnig mjög ánægð með að sáttargjörðin var skrifleg og undirrituð. Þegar pörin voru spurð að því í upphafi könnunarinnar hvort þau teldu að þau ættu eftir að festa ráð sitt aftur þá vildu þau lítið tala um það og töldu slíkt afar ólíklegt að minnsta kosti í náinni framtíð. Þegar rætt var við þau einu og hálfu ári s£ð- ai' vora 92% fólksins komin í annað samband. Fyrir okkur sem stóðum að rann- sókninni var þýðingarmikið að fá að vita að fólki sem fór í gegnum sátta- meðferðina vegnaði mun betur en þeim sem ekki hafði reynt hana.“ SUNNUDAGUR 3. OKTÓBER 1999 35 _____________________________»■ Endast 10 sinnum lengurog nota 20% af orku venjulegrar Sjáöu þig i nýju Ijósil A Ijósadögum IKEA finnur þú réttu birtuna fyrir hvaSa herbergi sem er. -fyrir alla muni Opið: Virka dagal 0-1 8:30, laugardagalO-17, sunnudagal 2-17. ■I RÚNA

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.