Morgunblaðið - 30.11.1999, Page 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 30. NÓVEMBER 1999
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Morgunblaðið/Helgi Bjömsson
Jökulsporðurinn hefur hlaupið fram eins og sést á þessari mynd, sem tekin var 16. september. Til hægri má sjá
garða, en þaðan hefur sporðurinn hopað frá því í síðasta framhlaupi.
Ríkissjóhvarpið/Ómar Ragnarsson
Dyngjujökull er að tætast í sundur þessa dagana og er vægast sagt hrika-
legur ásýndar, en myndin er tekin á sunnudag.
Fjórða þekkta framhlaup Dyngjujökuls er hafíð
Skríður fram marga
metra á sólarhring
DYNGJUJÖKULL skríður fram
um marga metra á sólarhring og
meira en hann gerir að jafnaði á
heilu ári. Helgi Björnsson jarðeðl-
isfræðingur segir að búast megi við
hlaupi í Jökulsá á Fjöllum næsta
vor. Dyngjujökull verður ófær öll-
um farartækjum næstu árin.
Helgi segir að jökullinn sé allur
að tætast í sundur þessa dagana og
þetta hafi átt sér nokkurra vikna
aðdraganda. DyngjujökUll hljóp
fram síðast 1977-1978 og þar áður
1951. Helgi segir að fyrsta þekkta
framhlaup jökulsins hafi verið
1934.
„Við byrjuðum að fylgjast með
þessum jökli með reglubundnum
mælingum í byrjun þessa áratugar
og okkur var ljóst að hann hreyfð-
ist ekki nægilega hratt til að bera
fram það sem safnast á hann. Við
mælum hve mikið bætist á hann og
hve mikið hann hreyfist. Ljóst hef-
ur verið að það hlyti að koma að
því að hann hlypi fram til að bera
fram það sem safnast á hann því
hann getur ekki gert það með jöfn-
um hraða. Fyrir tveimur árum sá-
um við merki þess að hraðinn væri
að aukast og áttum við þá von á því
að þetta væri að byrja. Síðastliðið
vor afréðum við að setja ekki mæli-
tæki okkar á jökulinn því komnar
voru sprungur 20-30 km inn á jök-
ulinn,“ segir Helgi.
Hann segir að í sumar hafi
bylgja verið að fara niður jökulinn.
Síðastliðið haust hafi bylgjan verið
komin niður að jökulsporðinum og
farin að ganga fram. „Það er alveg
Ijóst að jökullinn er allur orðinn
sundurtættur 20 km upp á jökul-
inn. Á 35 km breiðum sporðinum
gengur hann allur fram,“ segir
Helgi.
Hann segir að fyrri framhlaup
hafl verið nokkur hundruð metrar
en þó ekki náð einum kílómetra.
„Ég á ekki von á því að það verði
mikið meira núna þótt framhlaupið
sé á mun stærra svæði en síðast
þegar jökullinn hljóp fram 1977-
1978. I vor á jökullinn eftir að
verða þarna sundurtættur og það
verður til þess að meiri leysing
verður frá þessum jökli en annars
hefði verið. Þess fer að gæta í vor í
ánum að jökullinn hleypur fram,“
segir Helgi.
Búast má við að Jökulsá á Fjöll-
um verði vatnsmeiri næsta vor en
hún hefði annars verið og auk þess
megi búast við miklum aurburði í
ánni. Búast megi við að Dettifoss
verði mórauður. Einnig megi búast
við lítilsháttar hlaupi í Jökulsá þeg-
ar framhlaupi jökulsins lýkur. Það
gerist þá þegar vatn, sem safnast
hefur undir jöklinum og ber hann
fram, sleppur undan farginu.
Áskorun frá eitt hundrað íslenskum læknum
Norsk Hydro dragi sig út úr
viðræðum við stjðrnvöld
HUNDRAÐ íslenskir læknar hafa
sent Norsk Hydro áskorun um að
fyrirtækið dragi sig út úr samninga-
viðræðum við íslensk stjórnvöld
meðan lögformlegt mat á úmhverf-
isáhrifum vegna Fljótsdalsvirkjun-
ar hefur ekki farið fram. Virkjuninni
er ætlað að úvega rafmagn fyrir ál-
verksmiðju í Reyðarfirði sem fyrir-
hugað er að reisa í samvinnu við
Norsk Hydro.
Áskorun læknanna og nöfn þeirra
fara hér á eftir:
„Við undirritaðir læknar styðjum
kröfu meirihluta íslensku þjóðarinn-
ar um að fram fari lögformlegt mat
umhverfisáhrifum Fljótsdalsvir-
kjunar. Sú virkjun mun valda mikilli
umhverfisröskun. þar sem einstæðri
gróðurvin á hálendi íslands, Eyja-
bökkum, verður sökkt undir 44 fer-
kílómetra uppistöðulón. Eyjabakka-
svæðið tilheyrir stærsta ósnortna
víðerni Vestur-Evrópu og er mikil-
vægt fellisvæði heiðagæsarinnar,
Ríkisstjórn íslands virðist ætla að
sniðganga vilja þjóðarinnar og hefja
virkjunarfamkvæmdir á svæðinu án
þess að áður fari fram umhverfis-
mat samkvæmt núgildandi lögum,
sem gera ráð fyrir faglegu mati á
umhverfisáhrifum framkvæmda og
umsagnarrétti almennings. Fljóts-
dalsvirkjun er ætlað að útvega raf-
magn fyrir álver í Reyðarfirði, sem
íslendingar ætla að reisa í samvinnu
við Norsk Hydro. Álverið mun fara í
mat á umhverfisáhrifum samkvæmt
gildandi lögum en virkjunin fyrir ál-
verið ekki. Við skorum á Norsk
Hydro að draga sig út úr samninga-
viðræðum við íslensk stjórnvöld, á
meðan slík vinnubrögð eru viðhöfð.
Albert P. Sigurðsson taugasjúk-
dómalæknir, Anna Geirsdóttir
heimilislæknir, Anna M. Helgadótt-
ir kvensjúkdómalæknir, Ari Jó-
hannesson innkirtlalæknir, Ágústa
Andrésdóttir röntgenlæknir, Árni
Björnsson lýtalæknir, Árni Krist-
insson hjartalæknir, Ásbjörn Sig-
fússon ónæmislæknir, Benedikt 0.
Sveinsson kvensjúkdómalæknir,
Bergný Marvinsdóttir röntgen-
læknir, Bergþóra Sigurðardóttir
lyflæknir, Björn Blöndal heimilis-
læknir, Björn Guðmundsson heimil-
islæknir, Bjöm Gunnarsson svæf-
ingarlæknir, Eggert Jónsson
bæklunarlæknir, Einar Jónmun-
dsson röntgénlæknir, Einar Odds-
son meltingarlæknir, Einar Thor-
oddsen háls-, nef- og eyrnalæknir,
Eiríkur Jónsson þvagfæraskurð-
læknir, Friðþjófur Björnsson
lungnalæknir, Geir H. Þorsteinsson
barnalæknir, Gizur Gottskálksson
hjartalæknir, Grétar Guðmundsson
taugasjúkdómalæknir, Guðbrandur
Þorkelsson heimOislæknir, Guð-
mundur Björgvinsson heimilislækn-
ir, Guðmundur Björnsson endur-
hæfmgarlæknir, Guðmundur
Elíasson heimilislæknir, Guðmund-
ur I. Eyjólfsson blóðsjúkdómalækn-
ir, Guðmundur B. Guðmundsson
heimilislæknir, Guðmundur M. Jó-
hannesson blóðsjúkdómalæknir,
Guðmundur Oddsson hjartalæknir,
Guðný Bjarnadóttir öldrunarlækn-
ir, Guðrún Agnarsdóttir veirulækn-
ir, Gunnar A. Baarregaard heimilis-
læknir, Gunnar H. Guðmundsson
heimilislæknir, Gunnar I. Gunnars-
son heimilislæknir, Gunnsteinn
Gunnarsson heimilislæknir, Haf-
steinn Guðjónsson þvagfæraskurð-
læknir, Hafsteinn Skúlason heimil-
islæknir, Halldór Jónsson
heimilislæknir, Hannes Finnboga-
son skurðlæknir, Helgi Jónsson
gigtarlæknir, Hildur Viðarsdóttir
öldrunarlæknir, Hörður Þorleifsson
augnlæknir, Iðunn Leifsdóttir rönt-
genlæknir, Ingimundur Gíslason
augnlæknir, lngólfur. S. Sveinsson
geðlæknir, Ingunn Þorsteinsdóttir
meinefnafræðingur, Isak G. Hall-
grímsson heimilislæknir, Jens Guð-
mundsson kvensjúkdómalæknir,
Jens Magnússon heimilislæknir, Jó-
hann Tómasson heimilislæknir, Jón
G. Hannesson heimilislæknir, Jón
Högnason hjartalæknir, Jón E.
Jónsson öldrunarlæknir, Jón B.
Þorsteinsson heimilislæknir, Kjart-
an Magnússon krabbameinslæknir,
Kolbrún Benediktsdóttir röntgen-
læknir, Konráð Sigurðsson heimilis-
læknir, Kristbjörn Reynisson rönt-
genlæknir, Ki-istján Guðmundsson
háls-, nef- og eyrnalæknir, Leifur
Bárðarson barnaskurðlæknir,
LudvigGuðmundsson endurhæfing-
arlæknir, Lúðvík Ólafsson héraðs-
læknir, Magnús Böðvarsson nýrna-
læknir, Magnús Kolbeinsson
skurðlæknir, Magnús K. Pétursson
hjartalæknir, Margrét Georgsdóttir
heimilislæknir, Margrét Snorra-
dóttir meinafræðingur, Ólafur G.
Jónsson barnalæknir, Ólafur Kjart-
ansson röntgenlæknir, Ólafur M.
Hákansson kvensjúkdómalæknir,
Ólafur F. Magnússon heimilislækn-
ir, Ólafur Mixa heimilislæknir, Ólaf-
ur Þ. Ævarsson geðlæknir, Ólöf Sig-
urðardóttir meinefnafræðingur,
Ósk Ingvarsdóttir kvensjúkdóma-
læknir, Pétur Hauksson geðlæknir,
Rafn Benediktsson innkirtlalæknir,
Ragnheiður I. Bjai-nadóttir kven-
sjúkdómalæknir, Runólfur Pálsson
nýrnalæknir, Samúel Samúelssön
heimilislæknir, Sigmundur Magnús-
son blóðsjúkdómalæknir, Sigrún
Reykdal blóðsjúkdómalæknir, Sig-
urður Ái-nason krabbameinslæknir,
Sigurður Björnsson krabbameins-
læknir, Sigurður Björnsson melt-
ingarlæknir, Sigurður Júlíusson
háls-,nef- og -eýrnalælpnr, Sigurður
Kristjánsson barnalæknir, Sigurður
V. Sigurjónssop röntgenlæknir, Sig-
urður B. Þörsteinsson smitsjúk-
dómalæknir, Sigurður E, Þorvalds-
son • lý'talæknir, Sigurjón ■ .f B.
Stefánsson geðlæknir, Sjöfn Krist-
‘jánsdóttir meltingarlæknir, Stefán
Skaftason háls-, nef- og eyrnalækn-
ir, Sveinn Guðmundsson blóðbanka-
fræðingur, Sverrir Bergmann
taugasjúkdómalæknir, Svei-rir
Harðarson meinafræðingur,
Tryggvi Þorsteinsson skurðlæknir,
Unnur Steina Björnsdóttir ofnæm-
islæknir, Ulfar Þórðarson augn-
læknir, Valgarður Egilsson meina-
fræðingur, Vilhelmína Haralds-
dóttir blóðsjúkdómalæknir, Viktor
Sighvatsson röntgenlæknir, Þórólf-
ur Guðnason barnalæknir."
Mál og menning
malogmenning.is I
Laugavegi 18 • Sími 515 2500 • Síðumúla 7 • Sími 510 2500