Morgunblaðið - 30.11.1999, Síða 26
26 ÞRIÐJUDAGUR 30. NÓVEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Þrettán lfk fundin og þrigjaja til sex enn saknað eftir ferjuslysið undan strönd V-Noregs
Skipið hafði ekki vottaða haffærni
fyrir meira en 1 m ölduhæð
NORSKA tvíbytnuferjan
Sleipnir, sem sökk
skammt utan við
Haugasund á föstu-
dagskvöld, hafði ekki vottaða haf-
færni fyrir þá ölduhæð sem var á
sjónum þegar slysið varð. Frá þessu
greindu norskir fjölmiðlar í gær.
Skipið, sem var smíðað í Astralíu
og var fyrst tekið í notkun í ágúst
sl., hafði ekki vottaða haffærni fyrir
siglingar í meira en eins metra öldu-
hæð, en þegar slysið varð var hún
2-3 m. Norska siglingamála-
stofnunin hafði að sögn Aítenposten
gefið út „tímabundna takmörkun“ á
haffæmisskírteini fyrir Sleipni, sem
var þessum takmörkum háð vegna
þess að eftir var að prófa öryggis-
búnað skipsins og rýmingarleiðir
þegar vont væri í sjóinn.
„Hin tímabundna takmörkun
þýðir, að skipið hefði ekki átt að láta
úr höfn, þar sem skipstjórinn mat
ölduhæðina yfir einn metra,“ hefur
Aftenposten eftir Karstein Thing-
vold hjá farþegaskipadeild norsku
siglingamálastofnunarinnar, Sjo-
fartsdirektoratet. „Það er alvarlegt
mál, þegar sett rekstrarskilyrði eru
brotin,“ sagði Ivar A. Manum, sigl-
ingamálastjóri, í samtali við norska
ríkisútvarpið, NRK. Vildi Manum
ekki segja meira um málið að svo
stöddu en það, að það yrði ýtarlega
rannsakað. Mun sérstök rannsókn-
amefnd sinna rannsókninni.
Óveður hamlar leit
A sunnudag var fjarstýrður kaf-
bátur sendur niður að flaki ferjunn-
ar, sem liggur á um 99 m dýpi.
Flutti kafbáturinn tvö lík úr skipinu
upp á yfirborð. Samtals hafa 13 lík
fundizt, en þriggja til viðbótar er
saknað með vissu. I gær var þó enn
óvíst, hvort þriggja eða sex manna
væri saknað. Þegar Sleipnir, sem
var á leið frá Stafangri til Björg-
vinjar með viðkomu í Haugasundi,
lagði að bryggju í Haugasundi voro
69 eftir um borð eftir að farþegamir
frá Stafangri, sem ekki ætluðu
lengra, höfðu gengið frá borði. Um
það bil tuttugu nýir farþegar stigu
um borð, að sögn Aftenposten. Sá
skipverji á Sleipni, sem sá um að
selja miða er ferjan lagði að bryggju
í Haugasundi og þar með um að
telja farþegana, er meðal þeirra
sem drokknuðu, og veldur það
þeirri óvissu sem er um nákvæman
farþegafjölda.
Óveður heíúr hamlað áframhald-
Reuters
Ungur Haugasundsbúi kveikir á útikerti í minningu þeirra sem fórust með „Sleipni“. Með sölu kertanna var hafin fjársöfnun fyrir ljósmerki á sker-
ið sem grandaði skipinu.
Tvíbytnan „Sleipnir“ var smiðuð í Ástralíu og hóf ferjusiglingar með takmörkuðu haffærnisvottorði við V-
Noreg í ágúst sl.
andi leit. Margar ferjuleiðir voro
því ekki farnar í gær af þessum sök-
um. Kortagerðarskipið Geofjord,
sem fyrrnefndur fjarstýrður kaf-
bátur var gerður út frá, varð að leita
skjóls í Leirvík á Storð aðfaranótt
mánudags, en hélt aftur út að
strandstaðnum eftir hádegið í gær.
Rafmagnslaust var á Storð í gær-
morgun af völdum óveðursins.
Fjarstýrði kafbáturinn kannaði á
sunnudag brú skipsins og efri far-
þegahæðina, þar sem líkin tvö fund-
ust, en þá varð að gera hlé á aðgerð-
um vegna veðurs. Er talið líklegast
að lík þeirra sem saknað er sé að
finna í flakinu, en hundrað manna
hafa gengið fjörar frá því slysið
varð og ekki fundið annað en laus
björgunarvesti og annað brak.
Risapandan Hsing-Hsing látin í hárri elli
Mikill söknuður
og tómleiki
Washington. Reuters, AFP, Washington Post.
HSING-Hsing, risapandan, sem var svo vin-
sæl í Bandaríkjunum og tákngervingur nýrri
og betri tima í samskiptum Bandaríkjamanna
og Kínvetja, var svæfð á sunnudag. Hafði
hún eða raunar hann verið heilsuveill í nokk-
uð langan tíma og í maí sl. kom í ljós, að nýr-
un voru að gefa sig. Var ástæðan fyrst og
fremst elli en Hsing-Hsing var orðinn 28 ára
gamall. Er það mjög hár aldur hjá pöndum.
Kínverjar gáfu Bandaríkjamönnum eða
Smithsonian-dýragarðinum í Washington
Hsing-Hsing árið 1972 í tilefni af hinni sögu-
legu Kínaferð Richard Nixons forseta og
einnig kvenpönduna Ling-Ling. Hún lést
1992 af hjartabilun.
Nýrnabilun og gigt
Illa hefur gengið að fjölga pöndum í dýra-
görðum og sú var einnig raunin á með þau
Hsing-Hsing og Ling-Ling. Þau áttu raunar
fimm húna saman, þann fyrsta 1983, en þeir
komu ýmist dauðir eða dóu á fyrstu klukku-
stundunum eftir gotið.
Lisa Stevens, starfsmaður dýragarðsins,
sagði á fréttamannafundi á sunnudag, að
heilsu Hsing-Hsing hefði hrakað mjög síðustu
daga en auk nýrnabilunarinnar hefði hann
þjáðst ef slæmri gigt. Því hefði sú erfiða
ákvörðun verið tekin að svæfa hann.
Gífurlega vinsæll
„Lífið var orðið honum mjög erfítt enda
var hann líklega langlífasta panda, sem vitað
er um. Við söknum hans sárt og finnum til
mikils tómleika nú þegar hann er farinn,“
sagði Stevens.
Stevens sagði, að þrátt fyrir heilsuleysið
hefði Hsing-Hsing ávallt haft góða matarlyst
og siðasta máltfðin, sem hann fékk, var sætar
kartöflur, bambussprotar, hrísgrjónaseyði og
AP.
Hsing-Hsing að gæða sér á gulrót í dýra-
garðinum í Washington í apríl 1997.
Nokkru síðar kom í ljós, að hann var með
krabbamein í eistum, sem þá voru fjar-
lægð. Þjáðist hann einnig af slæmri gigt
og loks voru nýrun að gefa sig. Risapönd-
ur verða mest um 15 ára gamlar í heim-
kynnum sínum en Hsing-Hsing var orðinn
28 ára en það svarar til níræðisaldurs hjá
mönnum.
blábeijakökur, sem honum þóttu svo góðar.
Fyrsta daginn, sem Hsing-Hsing og Ling-
Ling voru sýnd í dýragarðinum komu þangað
20.000 manns og síðan hafa milljónir manna
komið til að dást að þeim. Eftir að Hsing-
Hsing veiktist bárust garðinum mörg kort,
einkum frá börnum, sem óskuðu honum góðs
bata.
I Smithsonian-dýragarðinum er nú engin
panda en vonast er til, að Kínverjar fallist á
að lána honum tvær pöndur í 10 ár fyrir um
183 millj. ísl. kr. Fyrr iþessum mánuði kom
pöndupar til dýragarðsins í Atlanta, Yang-
Yang og Lun-Lun, og fyrir það fá Kínveijar
73 millj. kr. á ári næstu 10 árin. Var það fjár-
magnað með því að hækka aðgangseyri úr
730 kr. í 876 kr. en Smithsonian-garðurinn
hefur ekki kost á slíku því að þar er enginn
aðgangseyrir.
I útrýmingarhættu
Pöndur lifa yfirleitt í um 15 ár í sínu nátt-
úrulega umhverfi en í dýragörðum geta þær
orðið eldri, komist nokkuð á þrítugsaldur.
Sagði Stevens, að á mælikvarða okkar mann-
anna hefði Hsing-Hsing verið um nírætt.
Risapandan er í mikilli útrýmingarhættu
og henni hefur fækkað mikið. í Vestur-Kína
eru pöndurnar nú innan við 1.000 í nokkrum
einangruðum hópum og í dýragörðum eru
þær um 130.1 Bandaríkjunum eru þær nú
fimm.