Morgunblaðið - 03.01.2000, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 03.01.2000, Blaðsíða 26
26 MÁNUDAGUR 3. JANÚAR 2000 1913 2000 Morgunblaðiö/Ólafur K. Magnússon Meistciri Kjarval Opnun á sýningum Jóhannesar S. Kjarval listmálara var jafnan viðburður og á myndinni frá opn- un í Listamannaskálanum í febr- úar 1949 lýsir Kjarvai af innlifun einhverjum af verkum sínum fyrir ýmsum kunnum borgurum. Þarna má m.a. þekkja Sigurgeir biskup Sigurðsson og börn hans Guð- laugu og Sigurð, þá er listamað- urinn sjálfur, Birgir Finnsson, al- þingismaður, Sigurður Sigurðs- son, berklalæknir, Guðmundur Magnússon í Áfenginu og Krist- ján í Kfddabúð. Á þessari sýn- ingu voru ýmis fræg málverk svo sem Fantasía og Fjarðarmynni. Á minni myndinni situr KJarval í leigubíl frá BSR á Þingvöllum og teiknar. stórfyrirtæki. Stefna Sjálfstæðis- flokksins er skýr. Flokkurinn telur tímabært að gera nýtt átak í virkjun fallvatna og byggingu stóriðjufyrir- tækja og telur raunar, að það sé ein af forsendunum fyrir því að takast megi að bæta lífskjör launafólks. Ekki er víst, að skoðanamunur milli flokka sé eins mikill á þessum vett- vangi og hann lítur út fyrir að vera. Hjörleifur Guttormsson, sem nú er helzti talsmaður Alþýðubandalags- ins í iðnaðar- og orkumálum, hefur ítrekað látið það koma fram, að hann vilji byggja upp orkufrekan iðnað í landinu. Meðal annars lýsti Hjörleifur því yfir á framboðsfundi á Reyðarfirði fyrir kosningamar, að hann væri hlynntur orkufrekum iðnaði þar. I iðnaðarráðherratíð Magnúsar Kjartanssonar var grundvöllur lagður að samningun- um um jámblendiverksmiðjuna á Gmndartanga, sem nú hefur tekið til starfa. Þótt Aiþýðubandalagið hafi lagzt gegn henni á síðustu stig- um málsins var þó ljóst, að með ein- hverjum hætti var flokkurinn tilbú- inn til að standa að stofnun slíks fyrirtækis. I þessum efnum er því ekki allt sem sýnist og mikilsvert að á það reyni, hvort Sjálfstæðisflokk- ur og Alþýðubandalag geta náð saman um stefnuna í stóriðjumál- um. Skynsamleg málamiðlun milli þessara tveggja flokka mundi tryggja öra hagnýtingu orkunnar, sem við eigum, íandsmönnum til hagsbóta á næstu ámm og áratug- um. Raunar má segja, að slík mála- miðlun ætti að vera ein af uppistöð- unum í samstarfi þessara tveggja flokka. Hér hefur verið vikið að þeim tveimur málaflokkum, sem valda mestu tilfinningaróti í flokkunum báðum. Raunar er athyglisvert, að sl. sumar tókst samstarf milli Sjálf- stæðisflokks og Alþýðubandalags um stefnuna í Jan Mayen-málinu og var það merkilegur áfangi í sam- skiptum þessara tveggja flokka, ekki sízt þar sem um mikilsvert ut- anríkismál var að ræða. En eins og vikið var að hér að framan er ástæð- an fyrir því, að menn hugleiða nú í alvöru, hvort samstarf geti tekizt milli þessara flokka, sú, að haldi fram sem horfir er fjárhagslegt sjálfstæði þjóðarinnar í hættu og versnandi lífskjör fyrirsjáanleg en í kjölfar þess mundi fylgja landflótti. Þess vegna er meginspurningin þessi: Geta Sjálfstæðisflokkur og Alþýðubandalag náð saman um sameiginlega stefnu til þess að hemja óðaverðbólguna og tryggja lífskjörin. Þessir tveir flokkar hafa sameig- inlega mikil áhrif í atvinnulífinu. Sjálfstæðisflokkurinn hefur áhrif í og sterk tengsl við samtök atvinnu- veganna og hann hefur einnig veruleg áhrif innan verkalýðssam- takanna. AJþýðubandalagið er að sjálfsögðu sá stjómmálaflokkur, sem mest áhrif hefur á vettvangi verkalýðshreyfingarinnar en einnig nokkur tengsl við atvinnu- lífð að öðru leyti, ekki sízt á lands- byggðinni. Blómlegt atvinnulíf eyk- ur þjóðarframleiðsluna og þar með kaupmátt launa. A sína vísu eru þeir báðir flokkar atvinnulífsins. Samstarf þeirra á hinum pólitíska vettvangi mundi þýða í raun, að að- ilar atvinnulífsins hefðu tekið höndum saman um nokkurt skeið til þess að ná tökum á óðaverðbólg- unni og koma í veg fyrir fjárhags- legt hran. Jafnframt yrði það eitt helzta markmiðið í efnahagsmálum að tryggja og bæta hag láglauna- fólks og lífeyrisþega. Óðaverðbólga hefur aukið efnamun meðal fólks. Þar er á ferðinni þjóðfélagslegt ranglæti, sem ekki er hægt að una við. En hvað um leiftursóknina? Nú er það að vísu svo, að grundvöllur leiftursóknarinnar er sá, að gengis- fall og gengissig verði stöðvað og hefur það ekki einmitt verið stefna Alþýðubandalagsins? Aðalatriðið er þó, að Sjálfstæðisflokkurinn óskaði eftir umboði kjósenda til að fram- kvæma leiftursóknina. Flokkurinn fékk það umboð ekki. Þess vegna hefur Sjálfstæðisflokkurinn frjálsar hendur til að sveigja frá leiftursókn- inni að svo miklu leyti, sem hann telur sjálfur skynsamlegt. Andstaða annarra flokka við leiftursóknina þarf þvi ekki að koma í veg fyrir samstarf Sjálfstæðisflokksins við þá um efnahagsmál. Af öðrum meginmálum, sem upp mundu koma í samstarfi Sjálfstæð- isílokks og Alþýðubandalags má nefna kjördæmamálið. Allir flokkar virðast sammála um nauðsyn þess að leiðrétta kosningarétt kjósenda á höfuðborgarsvæðinu, sem er orðinn mjög takmarkaður miðað við at- kvæðavægi í öðrum landshlutum. Jafnframt sýnist verulegur áhugi á að breyta kosningafyrirkomulagi á þann veg, að kosning verði í senn listakosning og kosning um einstak- linga. Slíkt fyrirkomulag mundi losa alla flokkana út úr prófkjörsklemm- unni, sem er að verða þeim öllum mikið áhyggjuefni. Ætla má, að það sé tiltölulega auðvelt fyrir Sjálf- stæðisflokk og Alþýðubandalag að ná samstöðu um þessi málefni og á það raunar við um Alþýðuflokkinn líka. Þegar möguleikar á samkomulagi milli Sjálfstæðisflokks og Alþýðu- bandalags í þessum helztu mála- flokkum eru íhugaðir er ljóst, að það er ekki útilokað, að flokkarnir tveir geti náð samstöðu um ákveðn- ar aðgerðir í tiltekinn tíma. Auðvit- að yrðu slíkar viðræður erfiðar og stormasamar en ef þær bæru já- kvæðan árangur mundi samstaða yfirgnæfa sundrungu í samfélagi okkar og það eitt út af fyrir sig er svo mikilvægt, að tilefni er til þess fyrir flokkana tvo að íhuga og ræðá slíkt samstarf rækilega. Tveggja flokka stjórn eða nýsköpunarstjórn? Sjálfstæðisflokkur og Alþýðu- bandalag hafa sameiginlega meiri- hluta á Alþingi og geta þess vegna myndað samstjóm þessara tveggja flokka. Reynslan af þriggja fiokka stjómum hér er ekki góð. Miðað við þá reynslu er vafalaust skynsam- legra að stefna að samstarfi þessara flokka tveggja. Líklega eru margir þeir í Alþýðubandalagi og Sjálf- stæðisflokki, sem á annað borð vilja kanna þetta mál nánar, þeirrar skoðunar að samstarf þeirra tveggja án þriðja aðila komi frekar til greina. A hinn bóginn má búast við, að þeir sjálfstæðismenn og alþýðu- bandalagsmenn, sem eru fráhverfir samstarfi þessara flokka tveggja, mundu eiga betra með að sætta sig við það, ef það yrði með aðild Al- þýðuflokksins. Þá væri um sama mynztur að ræða og Ólafur Thors mótaði 1944. Mundu margir sjálf- stæðismenn telja það landráð að feta í fótspor hans? Og skyldu þeir vera margir alþýðubandalagsmenn, sem líta á þá Einar Olgeirsson og Brynjólf Bjaraason sem flokkssvik- ara fyrir það að leiða Sósíalista- flokkinn inn í nýsköpunarstjóm? Málamiðlun og sættir en ekkl ný átök í upphafi fyrri greinar var að því vikið, að stjómmálin væru komin í sjálfheldu. Erfiðleikar á samstarfi flokka í milli virðast margvíslegir. Sumir tala jafnvel um kosningar í vor. Kosningar á hálfsárs fresti leysa ekki það vandamál, sem við glímum við um þessar mundir. Þess vegna er ekki æskilegur kostur, að kosið verði á ný í vor. Þjóðin á kröfu til þess, að flokkamir leysi þann vanda, sem þeir hafa boðið sig fram til að leysa. Við þurfum á að halda málamiðl- un og sáttum en ekki nýjum átök- um. Steingrímur Hermannsson, sem nú elur á sundrungu í stað þess að efna til sátta, mætti gjarn- an minnast þess, að Hermann Jón- asson hafði vit á því að efna til sátta, þegar allt var komið í óefni 1939 með því að mynda þjóðstjórn með aðild Ólafs Thors. Og sá mikli foringi sjálfstæðismanna lét sig ekki muna um að sitja þá í ríkis- stjóra undir forsæti Hermanns Jónassonar. Þeir stjórnmálafor- ingjar, sem nú sitja hver í sínu horni og telja sig ekki geta unnið með öðrum, mættu gjarnan og ættu að hafa það fordæmi að leið- arljósi á næstu vikum. Qunnar Qunnarsson í Berlín eftlr JÓHANN JÓNSSON Í930 Hinn 24. febrúar las frú Emestine Munchheim nokkra kafla úr verkum Gunnars Gunnarssonar fyrir Berlínarbúa - að viðstöddu skáldinu sjálfu. Áður en upplesturinn hófst hjelt skáldið ræðu. Var henni tekið með ódæma fögnuði. Frú Munchheim las prýðilega og klöppuðu áheyrendur henni og skáldinu lof í lófa. Dómar blaðanna voru ágætir. Kvöldið eftir hjelt berlínski P.E.N.-klúbburinn Gunnari Gunnarssyni heiðurssamsæti í hátíðasölunum í Zoo. Tóku 150 manns þátt í fagnaðinum; meðal annara voru þar mættir fulltrúar frá þýska mentamálaráðuneytinu og Zahle, sendiherra íslands og Danmerkur. Mælti sendiherra Zahle nokkur vel valin þakkarorð fyrir hönd Islands og Danmerkur. Ræða Gunnars Gunnarssonar stóð daginn eftir í Berliner Tageblatt undir titlinum: „Ræða til fjelaganna“. Fagnaðarins var getið í öllum blöðum Berlínar, birtu mörg þeirra myndir af skáldinu. Öll luku lofsorði á hann og verk hans Hinn 25. febrúar 1930 er merkisdagur í bókmentasögu íslands. í framtíðinni, þegar íslensk þjóð er röknuð til betri skilnings á sjálfri sjer, er farin að kunna að greina svart frá hvítu í annálum menningar vorrar, munu lærifeður landsins spyrja nemendur sína um þenna dag. Eigi það lán fyrir oss að liggja, að eignast heimsbókmentir í annað sinn, er meira að segja ekki ótrúlegt, að talið verði að tímabil þeirra hefjist með þessum degi. Ekki af því, að íslensku skáldi var á þessum degi í fyrsta skifti haldið heiðurssamsæti í einni aðalmenningarborg heimsins, það út af fyrir sig þarf ekki, þótt sögulegt sje, að vera nein tildrög til sögulegra afleiðinga. Ekki heldur af því, að samsæti þetta var - ef litið er á þátttakendur þess, sem margir hverjir voru stórfrægir menn, meiri sæmd fyrir ísland en það hefir að jafnaði átt að venjast, það er í sjálfu sjer ekkert nema söguleg hending. Nei, heldur af því, að heiðursgesturinn sjálfur, íslendingurinn, skáldið Gunnar Gunnarsson, er engin hending, sem bókmentalegt heimsfyrirbrigði, heldur áþreifanlegt, órækt dæmi um þann andlega kjarna, er í þjóð hans býr; eftirminnilegur persónuleikur, sem með karlmannlegri einbeitni og trúmennsku gagnvart sjálfum sjer og landi sínu hefir tekist það, sem engum öðrum Islendingi hingað til hefir á svipaðan hátt tekist, en það er að hefja málstað íslands út á við upp yfir allan vafa. Hann er fyrsta skáld vort á síðari öldum, sem ritað hefir íslenskar heimsbókmentir, þ.e.a.s. bækur, er tala til almenns skilnings og ekki eru aðeins einstrengdar, við málýsku átthagafjálgleikans. Þessi synthetiski meðalvegur, sem þræðir takmörkin milli hins þjóðlega og almenna - báðum jafnnærri, hefir ætíð verið vegur heimsskáldsins. Gunnar Gunnarsson er eina íslenska skáldið í seinni tíð (ef til vill að undanteknum Jóhanni Sigurjónssyni), sem fundið hefir þennan sannarlega gullna meðalveg; Já hann er fyi'sta íslenska skáldið, sem ekki hleður garða heldur byggir brýr; sem ekki talar mállýsku sjerviskunnar heldur heimsmál mannlegleikans. Hve vel honum hefir sagst á því máli, hve vel honum þegar hefir tekist að gera sig skiljanlegan, það sýndi meðal annars hin gullfagra ræða, sem Hans Friedrich Blunck bauð hann (á P.E.N.- samsætinu) velkominn með, í hóp þýsku fjelaganna. Jeg tala ekki um faguryrðin, þau eru ekkert nýnæmi við slík tækifæri; og þetta, sem jeg gæti kallað kunnugleikann í röddinni, gerði mjer ræðu þessa mjög minnisstæða. Jeg hefi oft heyrt margt fallegt um Island síðan jeg settist að hjer í landi, en þessi tónn var mjer þó alveg spánýr. Hvað segir ekki Frakkinn Duhamel? Hann segir að skáldskapurinn sje besta landafræðin. Já, það er einmitt það sögulega við þetta kvöld - sem gerir það þess vert, að vjer leggjum oss það á minnið. í þetta sinn sýndi hinn mentaði heimur oss svo ótvírætt merki þess, að hann kannaðist við oss, að enginn vafi getur lengur á því leikið, að vjer sjeum á rjettri leið - í baráttunni við fordómana, fávísina og kæruleysið, sem hingað til hefir verið hlutskifti vort hjer úti í Evrópu. Hvað sagði jeg? Vjer? Nú, að minsta kosti einn af oss. Munum honum það. Ef ekki hans vegna, þá að minsta kosti sjálfra oss vegna. Því að ekkert er svo áríðandi fyrir neina þjóð, að hún ráði rjett sín eigin tákn. Og höfum vjer ekki senn lært það til hlítar af reynslunni - sem þjóð - þvílíkt böl það er, að misskilja sjálfan sig?
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.